Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Blaðsíða 61
LAU GARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 Helgarblacf lOV 65 Kristinn Ólafsson fyrrv. bóndi, póstur og harmoníkuleikari í Hænuvík, er 90 ára í dag Kristinn Ólafsson, fyrrv. bóndi, póstur og harm- oníkuleikari í Hænuvík í Rauðasandshreppi, er níræð- ur í dag. Starfsferill Kristinn fæddist á Sellátranesi í Rauðasandshreppi og ólst þar upp við almenn bústörf og barnaskólanám þess tíma. Hann flutti með foreldrum sínum til Hænu- víkur 1926. Þar starfaði Kristinn á búi Jónfríðar, syst- ur sinnar, sökum sjúkleika mágs hans, um nokkurra ára skeið. Kristinn tók síðan við þeim hluta Hænuvík- ur 1943 og bjó þar til 1988. Þá hætti hann búskap og festi kaup á íbúð á Patreksfirði þar sem hann dvelur nú. Meðfram sauðfjárbúskap stundaði hann hrognkelsa- veiðar um margra áratuga skeið. Hann stundaði einnig refaveiðar allan sinn búskap. Árið 1945 gerðist Kristinn póstur um ytri hluta Rauðasandshrepps og gegndi þeim starfa allt til ársins 1985. Fyrst fór Kristinn þessa leið gangandi, síðar á hestum allt fram á miðjan sjöunda áratuginn er hann fór að nota bifreið í póstferðunum. Um fermingaraldur áskotnaðist honum harmoníka sem hann náði fljótlega góðum tökum á og áratugum saman spilaði hann á dansleikjum og ýmsum manna- mótum í Rauðasandshreppi. Kristinn er heiðursfélagi í Harmoníkufélagi Vest- Þrándur Ingvarsson bóndi í Þrándarholti Þrándur Ingvarsson, bóndi í Þránd- arholti í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi, verður sextugur á morgun. Starfsferill Þrándur fæddist í Þrándarholti og ólst þar upp. Hann lauk bú- fræðiprófi frá Bændaskólan- um að Hvanneyri 1964. Þrándur tók við búi af foreldrum sínum í Þrándar- holti 1970 og hefur verið bóndi þar síðan. Þrándur situr í sveitarstjórn frá 1998 og í ýmsum nefndum á vegum sveitarfélagsins. Þá er hann formað- ur sóknamefndar Stóra-Núpssóknar frá 1998. Fjölskylda Þrándur kvæntist 21.11. 1970 Guðrúnu Jörgens Hansdóttur, f. 6.7. 1948, bónda og húsfreyju. Hún er dóttir Hans Jörgens Ólafssonar, f. 17.2. 1900, d. 16.11. 1983, og Ólafar Guðmundsdóttur, f. 26.10. 1901, d. 12.6. 1985. Börn Þrándar og Guðrúnar eru Ólöf, f. 9.8. 1970, tækniteiknari í Reykjavík, og eru böm hennar Þránd- ur Snær og Sigrún Elfa Kristinsböm; Hrund, f. 9.8. 1972, sálfræðinemi í Reykjavík en maður hennar er Skarphéðinn Guðmundsson og er sonur þeirra Guð- mundur; Arnór Hans, f. 25.10. 1978, bóndi og smiður í Þrándarholti en kona hans er Sigríður Björk Marinós- dóttir og er dóttir þeirra Edda Guðrún; Ingvar, f. 25.10. 1978, smiður í Þrándarholti en unnusta hans er Magnea Gunnarsdóttir; Dóra Björk, f. 12.9. 1990, nemi í Þrándarholti. Systkini Þrándar: Sverrir, f. 30.3. 1930, búsettur á Selfossi; Steinþór, f. 23.7. 1932, d. 16.2. 1995, oddviti í Þrándarholti; Guðlaug, f. 20.10. 1933, d. 2.4. 1947; Stein- unn, f. 13.10. 1934, búsett í Reykjavík; Esther, f. 31.10. 1935, d. 23.1. 1986, var búsett í Reykjavík; Rannveig, f. 26.3. 1937, d. 23.3. 1975, var búsett í Þrándarholti; Guð- laug, f. 19.12. 1946, búsett í Hafnarfirði. Foreldrar Þrándar voru Ingvar Jónsson, f. 8.9. 1898, d. 25.8. 1980, bóndi í Þrándarholti, og Halldóra Hans- dóttir, f. 14.8. 1905, d. 22.7. 1997, húsfreyja. Þrándur verður að heiman á afmælisdaginn. Guðleif Bender sjúkraliði í Reykjavík Guðleif Bender sjúkra- liði, Rjúpnasöl- um 6, Kópa- vogi, verður fimmtug á morgun. Starfsferill Guðleif fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í efri Þingholt- unum. Hún var í Miðbæjar- skólanum, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða- skóla Austurbæjar, stundaði sjúkraliðanám og lauk prófi í Landspítalanum 1975 og hefur síðan sótt fjölda námskeiða, s.s. í endurlífgun, aðhlynningu mikið veikra í heimahúsum, heilbrigðisfræði á ofnæmisöld, viðtalstækni og skýrslugerð og aðhlynningu heilablóð- fallssjúklinga. Guðleif starfaði við hótel í Danmörku á unglingsár- unum og stundaði verslunarstörf í Reykjavik áður en hún hóf nám. Hún var síðan sjúkraliði við Landspital- ann, við hjúkrunarheimlið Skjól, stundaði heima- hjúkrun á vegum Heilsugæslunnar í Efra-Breiðholti, Gerðubergi, og er nú sjúkraliöi á vegum Heimahjúkr- unar í Reykjavík. Guðleif var trúnaðarmaður sjúkraliða við Heilsu- gæsluna í Efra-Breiðholti og hefur starfað með Lions- klúbbnum Eir og gegnt þar trúnaðarstörfum. Fjölskylda Guðleif giftist 20.3.1976 Guðmundi Aðalsteini Gunn- arssyni, f. 6.10. 1947, skrifstofumanni. Hann er sonur Gunnars Aðalsteinssonar, f. 5.6. 1921, d. 17.1. 1986, bif- reiðastjóra og verkstjóra, og Katrínar Huldu Tómas- dóttur, f. 10.7. 1917, hjúkrunarkona. Böm Guðleifar og Guðmundar eru Friðrik Örn Guð- mundsson, f. 21.8.1976, nemi; Eva Dögg Guðmundsdótt- ir, f. 1.4. 1981, nemi; Brynjar Freyr Guðmundsson, f. 11.5. 1985, nemi. Hálfbræður Guðleifar, sammæðra, eru Þór Rúnar Baker, f. 11.3. 1945, matreiðslumaður, búsettur í Reykjavík; Karl Markús Bender, f. 21.12. 1949, verk- fræðingur, búsettur i Reykjavík. Foreldrar Guðleifar eru Gunnþór Bender, f. 28.2. 1926, fyrrv. verslunarmaður í Reykjavík, og Elín Sig- ríður Markúsdóttir, f. 22.2. 1922, húsmóðir. fjarða. Hann er einn af fáum núlifandi sem þátt tóku í frækilegri og sögufrægri björgun skipverja af breska togaranum Dhoon sem strandaði við Látrabjarg í des- ember 1947. Fjölskylda Systkini Kristins: Kristján Brandur Ólafsson, f. 1902, d. 1930; Jónfríður Ólafsdóttir, f. 1904, nú látin, var gift Jóni Arasyni sem lést 1940; Sigurgarður Ólafsson, f. 1906, d. 1932; Pétur Ólafsson, f. 1908, nú látinn, var kvæntur Önnu Ólafsdóttur; Gisli Ólafsson, f. 1910, d. 1917; Björg Ólafsdóttir, f. 1915, d. 1923; Jóhanna Ólafs- dóttir, f. 1917, nú látin, var gift Haraldi Ágústi Snorra- syni; Hjörtur Ólafsson, f. 1919, d. s. á.; Lilja Ólafsdótt- ir, f. 1922, d. 1956, var gift Brandi Bjarnasyni; Dagbjörg Una Ólafsdóttir, f. 1924, var gift Bjarna Sigurbjörns- syni og lifir hún mann sinn ein systkina Kristins; Ást- ráður Birgir Ólafsson, f. 1927, d. 1931. Foreldrar Kristins voru Ólafur Mikael Pétursson, f. að Hnjóti 1878, d. 1934, bóndi og sjómaður í Hænuvík, og k.h., Gróa Brandsdóttir, f. í Sauðlauksdal 1881, d. 1940, húsfreyja. Kristinn tekur á móti gestum i gistiheimilinu Stekkabóliá Patreksfirði, á afmælisdaginn milli kl. 15.00 og 18.00. Þeir sem hafa þýtt hinar austurlensku hækur eða ort undir því formi hafa gjarnan látið reglur um rím og stuðla lönd og leið og eingöngu stuðst við braglínu- lengdina, þ.e. 5 atkvæði í 1. og 3. línu og 7 atkvæði í 2. línu. Helgi Zimsen vildi láta á það reyna hvernig ís- lenskar bragreglur færu við hækurnar: í glerjum gljáum brimar mjööur botni nœr freyöir fjarar út íhugum háum flýgur hegri fjaöraskœr ölur ofar sút. Þetta hljómar hreint ekki illa. Næst er þorravísa eftir Rögnu S. Gunnarsdóttur frá Arnórsstöðum: Þegar úti þeytir snjó þorri í byljum Ijótum alltaf stakan yljar þó inn aö hjartarótum. Þessi vísa er í bók Rögnu, Bæði og, sem út kom áriö 1986. Þar er líka þessi fallega staka: Fatast hönd og förlast sýn fárs ég víöar kenni, en tapist œskutrúin mín tjón er mest aö henni. Og Ragna orti um þann landsþekkta heiðursmann, Stefán frá Möðrudal, þegar hann varð sjötugur: Ungur bœöi í anda og sál, alltaf hress og glaöur, sjötugum þér sýp ég skál, súperlistamaður. Það er útbreiddur misskilningur að menn verði ham- ingjusamir ef þeir eignast nógu mikið af peningum. Eins og áöur hefur komið fram hér í þættinum þá hafa skáldin margsinnis bent á að þetta er alls ekki svona en undirtektir hafa verið dræmar. Um þetta yrkir Kristján frá Djúpalæk stutt ljóð sem hann kallar Girnd: Gef þú mér, Faöir, gulliö rautt, ég grátbaö, því œ mér virtist sú hjálp vera mest á lífsins leiö. Aö lokum mér svariö birtist: Grátiö ég oft í hjarta hef aö heyra rödd þinna hvata. Því ástvini mínum ég gleöi gef en gulliö þeim, sem ég hata. Við endum á limruafbrigði eftir Þorstein Valdi- marsson. Það heitir Leifur heppni: Haldi hún í horfi slíku, þá hygg ég þaö, aöfátt verði lagt aö líku við lán vort - aö týna Ameríku. Umsjón % 5 u X
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.