Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
Fréttir
DV
Samþykkt ríkisstjórnarinnar um mikla aukningu vegaframkvæmda:
Formaður skipulagsnefndar höfuð-
borgarinnar ósáttur við hennar hlut
DV-MYND: SBS
Bratt og flott veröur aö baki
Erfiður vegakafli um Almannaskarð veröur að baki á næsta ári með gerö jarðganga undir skarðiö. Vegurinn er í dag
sá brattasti á hringveginum en útsýnið það besta.
Þegar ríkisstjómin ákvað í vik-
unni að veita um 6 milljarða
króna til eflingar atvinnulífínu
sagði Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra m.a. að slakinn í
efnahagsmálum væri heldur meiri
en gert hefði verið ráð fyrir og at-
vinnuleysið svo mikið að það væri
nauðsynlegt að grípa til aðgerða
því ríkisstjómin hefði alltaf lagt
megináherslu á fulla atvinnu í
landinu. Það væri einsdæmi i ís-
landssögunni að svona mikill
slaki hafi verið í efnahagslifinu en
lítill ótti um verðbólgu á næst-
unni. Það væri einsdæmi að fara
út í 6 milljarða útgjöld án þess að
hækka skatta.
Þrettán vegaframkvæmdum
sem þegar hafa verið ákveðnar
verður flýtt og er hlutur Norður-
lands, Vesturlands og Vestfjarða
þar sýnu stærstur.
Verður ekki kominn með
bílpróf
Halldór Halldórsson, bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar, segir Vest-
flrðinga vera alveg himinlifandi
yfir framtaki ríkisstjómarinnar
en að sama skapi hafi það komið
þægilega á óvart hvað þetta sé há
fjárhæð í heildina. Halldór sagði
nýlega að sex ára sonur hans yrði
kominn með bílpróf áður en bund-
ið slitlag yrði komið á veginn um
Ísaíjarðardjúp til Reykjavikur. En
hefur það breyst?
„Þetta hefði ekki verið hægt
áður og er staðfesting á því að rík-
issjóður er mun öflugri en hann
var áður. Það fer auðvitað eftir
því hvernig þingmennimar skipta
þessu fjármagni. En ef ég réði því
einn mundi ég gera veg um Am-
kötludal frá Hólmavík á Ströndum
til Króksfjarðamess í Reykhóla-
sveit. Sá vegur mundi stytta leið-
ina frá ísafirði til Reykjavíkur um
44 km, eða álíka stytting og varð
er Hvalfjarðargöngin komu. Verði
þetta gert verður strákurinn ekki
kominn með bílpróf þegar hægt
verður að aka á bundnu slitlagi
milli ísafjarðar og Reykjavíkur.
Hugmyndin um Amkötludalsveg
á fylgi meðal vestfirskra sveitar-
stjórnarmanna því hún var sett
inn sem leið í samgönguáætlun
okkar á fjórðungsþingi 1997 og þar
segir að hún hafi yfirburði yfir
aðra valkosti á þessari leið. En
þingmenn þurfa líka að sinna Pat-
reksfjarðarsvæðinu og hvað sé
skynsamlegast að gera innan
næstu 18 mánaða,“ segir bæjar-
stjóri ísafjarðarbæjar.
- Það fer hálfur milljarður tii
gangagerðar undir Almanna-
skarð. Hefðirðu viljað sjá jarð-
gangagerð á Vestfjörðum?
„ Já, auðvitað hefði ég viijað sjá
það. Ég er mikill áhugamaður um
jarðgöng milli Dýrafjarðar og Am-
arfjarðar, undir Hrafnseyrarheiði,
til að tengja Patreksfjarðar- og ísa-
fjarðarsvæðið, en þau eru á lang-
tímaáætlun. Ég er líka fylgjandi
jarðgöngum frá ísafjaröarflugvelli
til Súðavíkur."
Vonandi ekki settir hjá
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri Austur-Héraðs, segir
að ýmis mál á sviði vegagerðar og
menntamála séu þannig að Aust-
firðingar vonist til að hægt verði
að koma þeim í framkvæmd á
þessu tímabili, en hann vonast til
að vegna væntanlegra stórfram-
kvæmda á Austfjörðum verði
fjórðungurinn ekki settur hjá til
ársins 2005, bæði vegna undirbún-
ingsframkvæmda vegna stóriðj-
unnar og þeirrar þenslu sem
væntanlega verði á svæðinu. Inn-
spýting frá ríkisvaldinu í atvinnu-
llfið sé nauðsynleg en gæta þurfi
jafnræðis og ráðast í þær fram-
kvæmdir sem nýtist best til fram-
tiðar.
Hlutur Reykjavíkur fyrir
borð borinn
„Framkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu verða auðvitað í samráði
Vegagerðar og sveitarfélaga á
svæðinu og þar verður horft til
nokkurra verkefna. Skipulag
verður fyrst að hafa verið unnið,
en það er t.d. ekki fyrir hendi á
gatnamótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og virðist
langt í það. En við horfum t.d. til
Vesturlandsvegar," sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi og formaður skipu-
lags- og bygginganefndar Reykja-
víkurborgar, telur að hlutur
Reykjavíkurborgar hafi verulega
verið fýrir borð borinn í þessu
átaki ríkisstjómarinnar þegar lit-
ið sé t.d. til íbúafjöldans.
„Það er hægt að fara í fjölmörg
verkefni á þessu svæði sem ekki
eru beint tengd vegaframkvæm-
um, stórverkefni sem bent hefur
verið á mjög lengi. En ég vil alls
ekki fara í einhvern slag við
landsbyggðina um þennan skerta
hlut höfuðborgarinnar. Það hefði
verið hægt að ráðstafa hluta fjár-
magnsins til atvinnumála með
öðrum hætti til þess að gera öllum
hópum samfélagsins jafnt undir
höfði. Ýmsar greinar háskóla-
menntaðs fólks bera skarðan hlut
frá borði, nema ef vera skyldi
verkfræðingar. Bent hefur verið á
tónlista- og ráðstefnuhús í Reykja-
vík, sem ég hefði viljað sjá fjár-
magn i, og til framhaldsskólanna í
Reykjavík. Verkefnin era næg þó
ekki sé hægt í bili að ráðast í
byggingu mislægra gatnamóta á
mótum Miklubrautar og Kringlu-
mýrarbrautar," segir Steinunn
Valdís Óskarsdóttir.
Stjómendur Vegagerðarinnar
hafa fundað stíft um fram-
kvæmdaáætlun vegna þessarar
gríðalegu aukningar og flýtingu
vegaframkvæmda sem ætlaðar
era á næstu 18 mánuðum, eða
fram til haustsins 2004.
„Við erum að undirbúa móttöku
þessa fjármagns en vegna skamms
tíma eram við fjarri því að vera
komnir á leiðarenda en höfum þó
enn um tvær vikur til stefnu. Þó
er verið að hraða verkefnum sem
voru ákveðin og gera t.d. tillögur
um verkefni á höfuðborgarsvæð-
inu. Að lokum kristallast þetta í
því að samgönguáætlun til 12 ára
er til meðferðar á Alþingi og þetta
mim ganga inn í hana. Við viljum
taka af hlykkinn á Hellisheiði suð-
austur Svinahraunið að Þrengsl-
unum en gatnamótin þar hafa
alltaf verið erfið. Það verður farið
upp á hraunbrúnina á sama stað
og dálítið þar austur eftir en það-
an beint í brekkuna fyrir neðan
Hveradali. Jarðgangagerð undir
Almannaskarð er nýtt verkefni en
við höfum þegar startað undir-
búningi og erum það bjartsýnir að
stefna að útboði i haust. Þetta
kostar um 700 milljónir króna, en
þama þurfti hvort eð var að end-
urbæta veginn svo í þetta kemur
viðbótarvegafé, einnig til að
tengja göngin við vegakerfið," seg-
ir Helgi Hallgrímsson vegamála-
stjóri.
LORÉAL
5HAMPOO
fUilMÚÍ VA#I)AWD! HO«»*VA
SMOOTH INTENSE
Þurrt, stíft og strítt hár
er ekki lengur vandamál.
Nýtt ELVITAL Smooth Intense
sjampó frá L'Oréal með Nutrileum.
Nutrileum inniheldur einstaka blöndu
af míkróolíum sem næra hárið og
gera það fjórum sinnum mýkra.
Hárið helst lengur mjúkt, slétt og
viðráðanlegt með Smooth Intense.
Nýtt ELVITAL Smooth Intense
frá L'Oréal.
Því þú átt það skilið...
L'ORÉAL