Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Side 29
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003 H&lgarblaö 33'V 29 Hcðinu Unnsteinsson hcfur starfað niikið að gcðræktarmálum á íslandi en er nú í frekara námi í Bretlandi. Hann segir hraðann í íslcnsku samfélagi vera ógnvekjandi. DV-inynd: GVA Fólk á neyslusnúningi niður - Ertu sammála Jóhanni Ágúst prófessor þegar hann segir aö neysla á geðdeyfðarlyfjum sé hættu- leg samfélaginu? „Nei, ekki neysla geðdeyfðarlyfja almennt, en þegar félags- og efnahagsafleiðingar „eins“ félags eru farnar að kalla á óeðlilega mikla notkun þeirra þá er eitthvað að, að félaginu. Það má alls ekki gleyma því að horfa á orsakirnar. Margir þættir sem hafa áhrif á vellíðan fólks og velgengni eru af hagfræðilegum og félagslegum toga og læknar eru ekkert menntaðir til að takast á við slíkt eða fjalla einir um slíka þætti. Heilbrigðiskerfið er veikindakerfi og læknar eru menntaðir til að fást við sjúkdóma. Þetta snýst allt um veikindi. Geðlæknir sem ég þekki vel lýsti því fyrir mér hvemig fólk sem kemur á stofuna hans er klyfjað innkaupapokum úr dýrustu verslunum, talar um vanlíðan sína og óhamingju og vill fá að- stoð í formi lyfja, fer síðan heim í leigubíl en á ekki peninga til að borga lækninum. Sennilega er töluvert um fólk í hröðum neyslu- snúningi niður á við og haldið lífsstílstengdum sjúkdómum eða ójafnvægi. Samfélagið, ef það orð á að merkja almenna samhefdni, þarf að endurskoða gildi sín og viðmið í trássi við markaðinn og það hefst meö því heimaverkefni að íhuga hvort minna getur verið meira,“ segir Héðinn. -PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.