Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Page 35
34-
HelQctrblctcf 3E>"V" LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
Ég gefst ekki upp fyrr en
eftir síðasta blóðdropa
Þú ert komin í nýtt hlutverk, hvernig kom það
til?
„Ég hef alltaf verið vinstrisinnuð og haft áhuga
á umhverfismálum. Skoðanir mínar hafa alltaf ver-
ið pólitískar en ég hef aldrei fyrr komið fram með
þær opinberlega. En núna iða ég í skinninu."
Þetta kemur nokkuð á óvart.
„Já, ég hugsa að margir séu mjög hissa.“
Hefurðu tekið þátt í pólitísku starfi áður?
„Nei, ég hef aldrei gefið mér tíma í það fyrr en
nú. Ég taldi líka að það væri ekki heppilegt fyrir
íþróttaferilinn að vera í pólitík; ég þarf á öllum
stuðningi að halda sem ég get fengið. En núna
ákvað ég að taka afstöðu.“
Og þú ferð beint í annað sætið.
„Já, ég gaf fyrsta sætið eftir fyrir reynslumeiri
manneskju," segir Þórey Edda og hlær.
Þú gætir orðið varaþingmaður.
„Ég stefni reyndar á þingsæti."
Þú hefur ekki fengið tilboð frá fleiri flokkum?
„Nei, enda hefði slíkt aldrei komiö til greina.“
Mér hefur sýnst íþróttamenn frekar skipa sér á
lista hægra megin við miðju. Eru íþróttir tengdari
hægri pólitík en vinstri?
„Það er ekkert innbyggt í íþróttir sem tengist
frekar hægri pólitík. Það er mjög misjafnt."
Var pólitík mikið rædd á heimili þínu þegar þú
varst að alast upp?
„Já, pólitík hefur alltaf verið eitt af umræðuefn-
unum við matarborðið þótt hún hafi aldrei verið
hörð. Ég er líklega sú fyrsta í fjölskyldunni sem fer
út í þennan slag.“
Ólílíur hugsanagangur
Þú ert í verkfræöi í Háskóla íslands. Af hverju
valdirðu verkfræðina?
„Mér hefur alltaf þótt gaman að reikna. Ég hef
einnig áhuga á þeim sviðum sem umhverfis- og
byggingaverkfræði fjalla um. Ég hef áhuga á að
vinna viö byggingar eða í tengslum við umhverfiö.
Ég ætlaði alltaf í jarðfræði og svo langaði mig líka
í jaröeðlisfræði. Stærðfræöiáhuginn gerði það svo
að verkum aö ég valdi umhverfis- og byggingaverk-
fræði. Ég sæi mig hins vegar alls ekki í iðnaðar-
eða vélaverkfræði."
Og er áhugi þinn á umhverfismálum ástæðan
fyrir því að þú ferð fram fyrir VG?
„Það er ein af ástæðunum. Mér finnst VG vera á
réttri leið og þá ekki bara í umhverfismálum held-
ur líka í menntamálum og mannréttindamálum."
Nú ertu að fara úr hlutverki íþróttamannsins
yfir í pólitíkina. Er þetta tvennt ekki gjörólíkt?
„Það er barátta á báðum stöðum þótt hugsana-
gangurinn sé auðvitað gjörólíkur. í pólitíkinni
hugsar maður ekki bara um rassgatið á sjálfum sér
eins og gerist i íþróttunum.“
Stokldð í hálfgerðu gríni
Hefurðu verið í íþróttum alla ævi?
„Já, ég byrjaði í fimleikum þegar ég var níu ára
og æföi í tíu ár þangað til ég byrjaði í stangar-
stökkinu 19 ára.“
Af hverju byrjaðirðu í stangarstökki?
„Ég vildi prófa eitthvað nýtt og vissi að stangar-
stökk var gott fyrir fimleikastelpur. Þá var stang-
arstökkið mjög ný grein og ég byrjaði í hálfgerðu
gríni. Æfingarnar í fimleikunum voru miklar og ég
vildi kúpla mig út úr því, æfa passlega mikið og
hafa gaman af því. Það fór reyndar öðruvísi en ég
bjóst við. Það má segja að mér hafi gengið betur en
ég ætlaði mér þegar ég mætti á fyrstu æfinguna.
Þjálfarinn sá reyndar mikið efni í mér strax á
fyrstu æfingu og þá jókst metnaðurinn rnikið."
Ég viðurkenni að það vex mér nokkuð í augum
að stökkva tvær mannhæðir upp í loftið. Stökkstu
strax á fyrstu æfingu?
„Ég fékk stöngina í hendur á fyrstu æfingunni
og var sagt að stökkva. Fljótlega stökk ég yfir 2,70
metra og eftir tvo mánuði og átta æfingar stökk ég
yfir 3,30 metra. Þetta gekk því mjög vel strax í byrj-
un.“
Draumaheimur Ameríkana
Þú ert Hafnfirðingur. Fórstu í framhaldsskóla í
Firðinum?
LAUCARDAGUR 15. FEBRÚAR 2003
H e Iga rb lctö H>’Vr
39
ÍllPl®
gig '
Þórey £dda Elísdótt-
ir hefur unnið hug
og hjörtu þjóðarinn-
ar með glæsilegri
frammistöðu sinni í
stangarstökki. Fyrir
skömmu fór hún í
nijtt hlutverk þegar
hún tók annað sæti
á lista Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns
framboðs íSuðvest-
urkjördæmi. I við-
tali við Helgarblað
DV ræðir Þórey
Fdda um pólitíkina,
íþróttaferilinn og
einmanaleikann.
„Ég vildi prófa eitthvað nýtt og vissi að stangarstökk
var gott fvrir fimleikastelpur. Þá var stangarstökkið
mjög ný grein og ég byrjaði í hálfgerðu gríni. Æfing-
arnar í fimlcikuuum voru miklar og ég vildi kúpla
mig út úr því, æfa passlega mikið og hafa gainan af
því. Það fór reyndar öðruvísi en ég bjóst við. Það má
segja að mér hafi gengið betur en ég ætlaði mér þeg-
ar ég mætti á fvrstu æfinguna."
varleika. Ég ólst upp við skýr markmið en mér fannst
allt verða að einum graut í Bandaríkjunum. Mér
fannst ég vera að eyða tíma mínum í skólanum og æf-
ingarnar voru eins og ég væri að byrja í íþróttinni. Ég
vildi meiri fagmennsku og meiri alvarleika."
Annar veruleiki
Þú talaðir um að íþróttamenn þyrftu breiðan stuðn-
ing. En með þessu skrefi sem þú hefur nú tekið ertu
orðin umdeildari.
„Já.“
Þú hræöist það ekki?
„Nei. Það er skylda íþróttaforystunnar að styðja við
bakið á fólki hvar í flokki sem það kann að vera. í
rauninni er ég bara í tveimur hlutverkum: annars
vegar í íþróttum og hins vegar í pólitík. íþróttamað-
urinn þarf stuðning allra en í pólitíkinni tekur annar
veruleiki við.“
Það er stundum talað um að ungt fólk hafi ekki
áhuga á pólitík.
„Það er alls ekki rétt. Auðvitað er það misjafnt eft-
ir fólki en mér finnst áhugi á pólitík hafa aukist hjá
ungu fólki. Það er aftur komið í tísku að hafa skoðan-
ir þótt það hafi kannski dottið upp fyrir á tímabili."
Af hverju er það aftur komið í tísku að hafa skoð-
anir?
„Ég held að umræðan um utanríkismálin skipti þar
miklu. ESB og NATO koma okkur öllum mikið við.
Ungt fólk tekur ekki eftir gildi velferðarmálanna fyrr
en það stígur sín fyrstu skref í íbúðarkaupum eða
eignast börn. Utanríkismálin hafa því kveikt áhuga
fólks að nýju.“
Illt auga
Heldurðu að reynsla þín úr íþróttunum komi til
með aö nýtast þér í pólitíkinni?
„Já, það er engin spurning um það. Ég hef kynnst
ýmsu í gegnum íþróttirnar, bæði gleði og sorg. Sú
reynsla hjálpar manni í hverju því sem maður tekst á
við í lífinu. Mótlætið styrkir mig. Það þýðir ekkert að
gefast upp; ég gefst ekki upp fyrr en eftir síðasta blóð-
dropa og það gildir líka í kosningabaráttunni."
Andstæðingar þínir í pólitík eru líklega ólíkir þeim
andstæðingum sem þú hefur keppt við í stangarstökk-
inu?
„Ég hef ekki þurft að ræða mikið við andstæðinga
mína í íþróttunum, það er frekar að maður gefi þeim
illt auga. í pólitíkinni þarf svo ekki endilega að rífast
heldur er hægt að ræða málin.“
En hvernig er andinn í hópnum á þessum stóru
mótum sem þú hefur keppt á?
„Andrúmsloftið er mjög sérstakt. Það er spennu-
þrungið og öllum er illa við alla. Og það á líka við
mig. Við tölum ekki mikið saman á stóru mótunum
heldur vonumst til að hinum mistakist. Andrúmsloft-
ið er hins vegar léttara á minni boðsmótum."
Það þarf væntanlega sterk bein til að þola þetta?
„Sterk bein? Neinei. Þetta er bara baráttuandinn.
Þegar ég geng inn á völlinn breytist ég í aðra mann-
eskju; dýrið kemur upp í mér. Þá finnst mér gaman.
Það er ekki hægt að lýsa þeirri spennu sem grípur
mann þegar gengið er inn á völlinn á stóru móti.“
Heldurðu að kosningabaráttan verði svipuð? Áttu
eftir að gefa Árna Mathiesen illt auga?
„Ég held ekki. Kosningabaráttan er mjög frábrugð-
in þessu. Hún dreifist til dæmis yfir mun lengra tíma-
bil. Það verður aðallega kosninganóttin sjálf sem
verður spennandi; það verður ekki mikið sofið þá. Ég
held reyndar að kosningabaráttan verði meira spenn-
andi en stressandi. Ég ætla mér að hafa gaman af
henni og berjast."
„Nei, ég fór í Fjölbrautaskólann í Garðabæ."
Og svo fórstu til Bandaríkjanna eftir það?
„Nei, ég fór til Svíþjóðar og var þar í tvö ár. Eftir
það fór ég til Bandaríkjanna þar sem ég var í hálft
ár.“
Er ekki mikill munur á þessum þremur samfélög-
um, íslandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum?
„Jú. Ég er hrifnust af því íslenska. Því sænska
kynntist ég lítið þótt ég væri þar í tvö ár. Ég æfði
mikið og var ein heima þess á milli; sóttist ekki eftir
því að komast út á meðal fólks. Það kom mér hins
vegar á óvart hvað Svíar eru pirraðir út í útlendinga.
Það var það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég kom
þangað. Maður er ekki velkominn fyrr en maður get-
ur talað sænsku. Mér fannst Svíar ósgestrisnir og því
kynntist ég strax fyrsta kvöldið sem ég var í Svíþjóð.
Ameríkanarnir voru hins vegar rosalega léttir á
öllu. íslendingar eru mun jarðbundnari og raunsærri
en þeir. Ameríkanar lifa meira í einhverjum drauma-
heimi.“
Hvar í Bandaríkjunum varstu?
„Ég var Suðurríkjunum, Aþenu í Georgíu."
Það hefur væntanlega verið svolitið frábrugðið
Hafnarfirðinum?
„Já, mjög frábrugðið en mjög skemmtilegt. Þetta
var góður tími og gaman að kynnast þessu. Mér
fannst stundum eins og tíminn í Georgíu hefði
stöðvast í kringum 1980; mannlifið einkenndist meðal
annars af kántrítónleikum, vængjagreiðslum, síðu
hári hjá körlum og kúrekastígvélum.“
Þig hefur ekki langað að vera lengur í Aþenu?
„Jú, ég hefði alveg viljað það en ég vildi meiri al-
Eldti á móti öllum virkjunuin
Fyrir hvað stendurðu í pólitík?
„Ég hef til dæmis mikinn áhuga á íþróttamálum og
sérstaklega æskulýðsmálum. Skrýtið!" segir Þórey
Edda hlæjandi. „Það er oft talað um unga fólkið og
verið að tala um fólk á mínum aldri. Mér finnst að
þaö þurfi að huga meira að yngsta fólkinu okkar, það
má ekki gleyma því að það er framtíðin. Börn verða
að geta stundað íþróttir.
Ég nefndi umhverfismálin áðan. Ég er ekki á móti
öllum virkjunum. Ég er að læra verkfræði og veit að
það er ekki hægt aö vera fullkomlega á móti öllum
virkjunum. Ég vil hins vegar virkja rétt og virkja um
leið manninn sjálfan og hugsun hans; skapa ný störf.
Menntamál eru mér einnig ofarlega í huga. Ég vil til
dæmis ekki sjá skólagjöld i Háskóla íslands. Jafn rétt-
ur fólks til náms er gríðarlega mikilvægur.
Ég hafna ESB. Mér finnst nauðsynlegt að við höld-
um í sjálfstæöi okkar og gefum okkur ekki undir yf-
irvald ESB þegar við höfum loks náð sjálfstæði okk-
ar.“
ESB er mjög í umræðunni og kannanir sveiflast
mikið.
„Já, það er auövelt að snúa fólki frá því að vera
með eöa á móti ESB því það eru góð rök fyrir hvoru
tveggja. Það sem mér finnst vega þyngst í þeirri um-
ræöu og ég tek mína ákvörðun út frá er að ég vil ekki
sjá á eftir fiskimiðunum og missa þannig sjálfstæðið.
Við erum ríkt þjóðfélag og þótt evran eigi að styrkja
okkur þá þurfum við ekki á því að halda. Mikilvæg-
ara er að við höldum sjálfstæði okkar og sérstöðu. Ég
er ekki trúuð á að 280 þúsund manna þjóð geti haft
mikil áhrif innan ESB. Við yrðum fljót að missa fiski-
t {
miðin úr höndum okkar eins og gerst hefur hjá Skot-
um og Englendingum.“
Samkvæmt skoðanakönnunum eru nú tveir stórir
flokkar og þrír minni. Það liggur því kannski ekki
beint við að velja Vinstri græna?
„Ég vel bara rétt. Ég kýs þann flokk sem mér finnst
gera rétt. Ég geri ekki það sem aðrir gera heldur fer
eftir eigin skoðunum og sannfæringu."
Einmana í tvö ár
Það hafa verið hæðir og lægðir hjá þér í íþróttun-
um. Hvað hefur verið þér erfiðast?
„Ég hef meiðst og það getur dregið mjög úr manni.
Ég ákvað að leyfa því ekki að gerast og nú styrkist ég
við hverja raun. Ég er heilbrigð og þakklát fyrir það
og þótt einhver meiðsl komi upp annað slagið get ég
vel sigrast á því.
Ég hef líka kynnst einmanaleikanum. Ég var í Sví-
þjóð í tvö ár og æfði eins og brjálæðingur. Þá átti ég
ekkert líf. Á þeim tíma lærði ég ýmislegt og til dæm-
„Ég vel bara rétt. Ég ltýs þann flokk sem mér finnst gera rétt. Ég geri ekki
það sem aðrir gera heldur fer eftir eigin
skoðunum og sannfæringu."
I)V-mynd Ilari
is það að ég er í íþróttum til að hafa gaman af en ekki
til að brjóta mig niður.“
Varstu sem sagt einmana í tvö ár í Svíþjóö?
„Það má eiginlega segja það.“
Varstu þá bara að æfa?
„Seinna árið var ég reyndar í skóla en ég ákvað
þegar ég byrjaði í skólanum að ég ætlaði ekki að
kynnast neinum vegna þess að félagsskapur þýddi að
ég yrði að gera eitthvað annað en æfa. Þetta var auð-
vitað ákveðin brenglun og skilaði engum árangri. Úr
þessu umhverfi fór ég síðan í brjálaða hamingjuna í
Bandaríkjunum. Svo varð ég að fara heim. Maður
veröur að finna jafnvægið."
Og jafnvægið er hér á íslandi?
„Mér finnst þaö. Hér líður mér best; ég get stundað
skóla og stangarstökk, hitt vini mína og kíkt á
skemmtistaði annað slagið. Maður verður að leyfa sér
að eiga líf.“
Spilað eftir eyranu
Áttu þér einhver áhugamál önnur en íþróttina?
„Ég á eiginlega of mikið af áhugamálum. Eitt það
skemmtilegasta sem ég geri er að fara á skíði. Það er
líka frábært að fara í jeppatúr á fjöll. Svo veit ég ekki
hvort ég þori að segja það ... en mér finnst gaman að
sauma.“
Þú ert líklega klofinn persónuleiki!
„Já, ég hef mikinn áhuga á saumaskap og sauma
næstum öll mín fót þótt oft sé takmarkaður tími til
þess. Svo hef ég líka veriö dálítiö í klettaklifri og ýms-
um félagsstörfum."
Hefurðu tíma fyrir allt þetta?
„Eiginlega ekki. Ég reyni bara að spila það eftir
eyranu. Æfingarnar og skólinn ganga fyrir og í kring-
um það púsla ég áhugamálunum."
Er ekki hætt við aö pólitíkin rugli kerfið?
„Það má alveg raða upp á nýtt.“
-sm