Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2003, Qupperneq 36
40 HelQarblaö DV LAUGARDAGU R 15. FEBRÚAR 2003 Hvílir bölvun á George Bush? Ef marka má amerískar þjóðsögur hi/ílir böli/un á forsetum sem eru kosnir á ári sem endar á nálli. Sé þetta rétt er núverandi forseti Georqe W. Bush einn þeirra og hrífi bölvunin enn þá mun hann degja í embætti. honum. Garfield særðist mjög illa en lést tveimur mánuðum seinna af völdum skotsáranna. Síðan liðu 20 ár og enn fara fram forsetakosningar árið 1900. Það var WiIIiam McKinley sem náði kjöri og var reyndar verið að endurkjósa hann því hann hafði setið kjörtima- bilið næst á undan. í september 1901 var hann staddur á sýningu í Buffalo í New York þegar atvinnulaus verka- maður, Leon Czolgosz, réðst að hon- um og skaut hann. McKinley lést Abrahuni Lincoln cr í liuguin flestra einn merkasti forseti Bandaríkjanna. Hann var kjörinn á ári scm endaði á núlli og lést í embætti. Bölvunin hreif. John F. Kennedv var kosinn forseti á ári sem endar á núlli enda lircif bölvun indíánanna fáum árum seinna og hann lést í embætti eins og fvrirrennarar hans. hann var kosinn á ári sent endar á núlli? Næsta ár sem kosið var á núlli var síðan 1920 og þá náði Warren G. Harding kjöri. Hann varð fyrstur bandarískra forseta til að heimsækja Alaska í miklum leiðangri sem hann fór árið 1923 og skyldi ná til allra fylkja Ameríku. Harding veiktist hastarlega á þessari ferð og lést í eftirköstum þeirra veikinda í ágúst 1923. Næstur forseta til þess að verða fyrir barðinu á bölvim indíánahöfðingjans var Franklin Roosevelt en hann var kjörinn 1940 og hafði þá setið frá 1932. Hann lést í embætti árið 1945 af völdum heilablæðingar. Kennedy og Reagan Það var síðan John F. Kennedy sem náði kjöri á næsta ári bölvunarinnar, 1960. Það þarf varla að rifja upp örlög Kennedys en hann .lést í embætti þegar hann var myrtur í Dallas í Texas 22. nóvember 1963. Morðingi hans, Lee Harvey Oswald, náðist og var sjáifur myrtur skömmu síðar af Jack Ruby. Ronald Reagan var síðan kjörinn forseti á næsta óheillaári samkvæmt bölvuninni en það var 1980. Hann er undantekningin sem sannar regluna í þessari skugga- legu upptalningu um fómarlömb bölvunarinnar og sat aukinheldur tvö kjörtímabil í embætti. Þeir sem vilja trúa á bölvunina benda þó á að hann slapp mjög naum- lega frá því að deyja í embætti því 30. mars 1981 sýndi John Hinckley honum banatilræði sem Reagan slapp frá með skrekkinn því hann særðist á brjósti og var skil- greindur í lífshættu um tíma. Með því að lifa þetta af rauf Reagan bölvunina í ákveðnum skilningi en hann var fyrsti forsetinn í 140 ár til þess að lifa af þótt hann væri kosinn á ári sem endaði á núlli. Það stríðir gegn vísindahyggju nútímans að hægt sé að leggja bölvun á fólk eða staði, hvað þá embætti eða virð- ingarstöður. Samt leggja menn oftast eyrun við sögum af því tagi og flestir hafa heyrt sögur um bölvun egypsku faraóanna sem snertir alla sem hreyft hafa við tilteknum gröfum þeirra og þaðan er stutt í sögumar um íslensku álagablettina sem ekki má hreyfa eða slá án þess að hræðilegir hluti gangi yfir bændur og búsmala. Ein slík saga er tengd forsetaembætti Bandaríkjanna og á sér rætur í landnámi Ameriku og þeirri miskunnar- lausu útrýmingu og yfirgangi sem amerískir indíánar máttu þola þegár evrópskir landnemar tóku lönd þeirra eignamámi, myrtu þá eins og skynlausar skepnur og gerðu þá að útlögum í eigin landi. Þessi tiltekna bölvun er kennd við indíánahöfðingj- ann Tecumseh sem var af ættbálki Shawnee-indíána, mikill stríðsmaður og leið- togi. Hann gerði sér Ijóst í upphafi nítjándu aldarinnar að eina leiðin fyrir amerísku frumbyggjana til þess að eiga möguleika gegn her- flokkum hvíta mannsins væri að standa saman. Hann barðist mjög fyrir því að all- ir ættbálkar berðust samein- aðir á einum vígvelli gegn þessum sameiginlega óvini. Margir ættbálkar höfðu eld- að grátt silfur um aldir og vora meira en lítið tregir til slíkrar pólitískrar samstöðu. Þaimig var hlutskipti Tecumseh undarlega líkt verkefni núverandi Banda- ríkjaforseta sem reynir hvað hann getur til að ná sam- stöðu meðal þjóða um stríðs- reksturinn gegn írak. Tecumseh mistókst þetta ætlunarverk sitt og hann féll í orrastunni sem kennd er við Thames árið 1813 sem var ein síðasta stórorrastan í landnámsstríðum Amerikana. Fyrir liði andstæðinga hans fór hershöfðingi að nafni Wiliiam Henry Harrison og sumar útgáfur sögunnar segja aö hann hafi hleypt af kúiunni sem banaði Tecum- seh. Bróðir Tecumseh, sem hét Tenskwatawa og gekk undir nafninu spámaðurinn, lagði þá bölvun á Harrison og mælti svo um að ef hann yrði kosinn forseti þá myndi hann deyja í embætti og einnig sá sem kæmi 20 áram á eftir honum og svo framvegis til loka. Bölvunin fer að hrífa Nú er það svo að forsetakosningar era á fjögurra ára fresti í Bandaríkjunum. Þessi bölvun skal hafa verið lögð á árið 1836 og fjórum árum seinna, árið 1840, var Wiliiam Henry Harrison kosinn forseti, 68 ára að aldri. Svo und- arlega vildi til að hann var settur inn í embætti í mars árið eftir og hélt ræðu sem varði í klukkutíma og fjöru- tíu mínútur hattlaus undir berum himni. Hann kvefaðist heiftarlega og fékk lungnabólgu upp úr því. Hann lá lengi rúmfastur og lést með harmkvælum mánuði seinna. Þetta kom á fót þeirri goðsögu að allir forsetar sem kosnir væra á ártali sem endaði á núlli myndu deyja í embætti. Næsti forseti sem kjörinn var á slíku ári var Abraham Lincoln sem var kosinn árið 1860. Hann sat það kjörtímabil og næsta en þegar það var nýhafið var hann myrtur í Washington og lést árið 1865 aðeins sex dögum eftir að þrælastríðinu lauk. Garfield og McKinley Næsti forseti sem lenti á núlii var James Garfield sem var kjörinn 1880. Það var síöan 2. júlí sem tilræðismaður að nafni Charles Guiteau réðst að forsetanum á jám- brautarstöð í Washington og skaut tveimur skotum að Ronald Reagan var fyrstur forseta í 140 ár til að sleppa undan bölvuninni en liann slapp naunilega. viku seinna af drepi sem hijóp í sárin. Það var Theodore Roosevelt sem tók við af honum út kjörtímabilið en hann kemur síðar við þessa sögu með þeim hætti að hann var myrtur í kosningabaráttu um embættið þegar hann var að reyna að endurheimta það. Hv’ílir bölvun á Bush? Næsta óheiiiaár var síðan áriö 2000 og þá var Georg W. Bush, núverandi forseti Bandaríkjanna, kjörinn. George W. Bush hefur því setið nærri heiit kjörtímabil en kosn- ingar era á næsta ári, 2004. Nú er auðvitað engin leið að fullyrða um það hvort hann verði næsta fómarlamb bölvunar indíánanna og muni deyja í embætti en halda má því fram að 11. sept- ember hafi hann átt að verða eitt fómarlambanna en einni flugvélanna sem hryðjuverkamenn náðu á sitt vald var stefnt á Hvíta húsið en hún hrapaði í Pennsylvaníu áður en hún gæti lokið ætlunarverki sínu. Það kann að vera aö þar hafi legið við að bölvun Tecumseh hafi náð fram að ganga enn einu sinni en skylt er að geta þess að áður en bölvunin var lögð á sátu tveir forsetar sem kosnir vora á ári sem endaði á núlli. Það vora þeir Thomas Jefferson (kosinn 1800) og James Mon- roe (kosinn 1820) sem báðir sátu tvö kjörtímabil án áfalla. -PÁÁ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.