Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 Fréttir DV Grænmetisbændur blása til stórsóknar: græna byrangu . DV-MYND GVA í gróðurhúsunum Guöbjörg Runölfsdóttir og Georg Ottósson á Jörfa á Flúöum í gróðurhúsunum í gær. Fáar vikur eru í aö innlent græn- meti fari aö fossa inn á markaöinn. Boða „Strax í vor ætlum við að gera stórátak í því að kynna og mark- aðssetja íslenskt grænmeti. Hluti af því eru sérmerkingar og -pökk- un framleiðslunnar sem við vilj- um að verslanir geri enn hærra undir höfði en tíðkast hefur. Þarna teljum við að neytendur séu okkur hliðhollir og að þeirra vilji sé eindregið sá að fá innlenda vöru,“ segir Georg Ottósson, garð- yrkjubóndi á Jörfa á Flúðum og formaður Sölufélags garðyrkju- bænda. Hægt hefur verið að fá íslenskt grænmeti í verslunum í allan vet- ur. Framleiðslan hefur hins vegar verið í næsta litlu magni og langt því frá að fullnægja þörfum mark- aðarins. í gróðurhúsum Georgs og annarra bænda eru tómata- klasarnir óðum að ná fullum þroska. Má vænta að eftir fáar vikur fari nýir íslenskir tómatar að streyma á markað - og annað íslenskt grænmeti. „Eftir að við bændur afsöluðum okkur tollavernd á grundvelli GATT er íslensk garðyrkja í æ ríkari mæli háð heimsmarkaðs- verði. Við verðum að fylgja því, en getum þó selt framleiðsluna ögn dýrar því að íslendingum finnst hærra verð gefandi fyrir gæði inn- lendrar vöru,“ segir Georg. Paprikubændum fækkar Sú breyting verður í ár frá því sem verið hefur að framleiðend- um á papriku fækkar talsvert frá því sem var. Er staðan raunar sú að aðeins um fjórðungi eftir- spurnar verður fullnægt með inn- lendri framleiðslu. Georg er einn fárra bænda sem ætlar að halda áfram. „Mikill innflutningur á papriku í fyrra kom illa við marga framleiðendur. Mig langar hins vegar að halda áfram,“ segir Georg. Hann segir að íslensk paprika fari að koma á markaðinn strax í næsta mánuði. Geir H. Haarde íjármálaráð- herra sagði í fyrirspurnatíma á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í gær að nauðsynlegt væri að af- nema hátekjuskattinn. Hann sagði að áhrif hans hefðu í fór með sér óæskilega bjögun í skatt- kerfinu burtséð frá þeim áhrifum sem hann hefði á hvatningu manna til að leggja fram vinnu. Sagði hann að nauðsynlegt væri að sem flestir legðu fram vinnu vegna þess ástands sem fyrirsjá- anlegt væri á vinnumarkaðinum vegna allra framkvæmdanna og aö þess vegna væri eðlilegt að kerfið væri einfalt og ekki með óhófleg jaðaráhrif. Hann vakti einnig athygli á þeirri aðgerð sem kynnt hefði verið til sögunnar um að lækka matarskattinn um helm- ing, þ.e. virðisaukaskatt á mat- væli og aðrar nauðsynjar. Sagði hann aö sú lækkun myndi koma hlutfallslega betur fyrir þá sem lægri hefðu tekjurnar og eyddu hlutfallslega meira af tekjum sín- um í brýnustu nauösynjar. Davíð Oddson forsætisráðherra Sérpökkun og -merkingar ís- lensks grænmetis í ríkari mæli - eins og nú stendur til fara út í - er í þeim tilgangi að neytendur geti verið fullkomlega vissir um að varan sé innlend og þar með fyrsta flokks. Segir Georg að stundum hafi viljað brenna við að erlend framleiðsla sé boðin sem innlend tók undir orð Geirs og sagði að hátekjuskatturinn hefði gengið sér til húðar og að hann ætti að hverfa. Hann hefði upphaflega verið settur á sem tímabundinn og það sé óviðunandi. Garðyrkju- bændur vilji leggja áherslu á hreinleika íslensku vörunnar sem framleidd er með vistvæn sjónar- mið í huga. Eiturefni við fram- leiðsluna heyri sögunni til. Sala á grænmeti eykst þegar gæði þess aukast. í þeim efnum að gera innlendu framleiðslunni skattur sem félli niður á endan- um. Davíð var spurður að því af hverju íslendingar væru ekki með sömu afstöðu og Norðmenn í hærra undir höfði tel ég að við höfum neytendur með okkur og ég vil að kaupmenn komi til liðs við okkur. Eins og staðan á matvöru- markaðnum er ég tel óeðlilegt að örfáir aðilar geti alveg stýrt fram- boði og við því erum við garð- yrkjubændur nú að bregðast," seg- ir Georg. -sbs íraksmálinu. Hann svaraði þannig að Norðmenn hefðu ekki tekið afstöðu í stríðinu, hvorki með Bandaríkjamönnum né Frökkum. Hann sagði að í Noregi væri minnihlutastjórn sem veikti stöðu ríkisstjórnarinnar til að taka afstöðu í svo viðkvæmum málum en benti á að ekki væri hægt að skorast undan ábyrgð. Ekki þýddi að eltast við niður- stöður skoðanakannana eins og Samfylkingin gerði, menn yrðu að taka afstöðu. Sagði hann að sú afstaða væri afskaplega einföld og siðferðisrökin á bak við hana augljós. Davíð var einnig spurður út í fjármál stjórnmálaflokkanna og sagðist hann tilbúinn að banna fyrirtækjum að styrkja flokkana. Sjálfstæðisflokkurinn væri það stór að það myndi ekki hafa slæm áhrif á hann. Hann sagði hins vegar að Samfylkingin hefði alla tíð lofað að upplýsa almenning um framlög til flokksins en að lít- ið væri að marka slík loforð þeirra -EKÁ Kringlan í Hæstarétti: Kröfu verslunar- eigenda vísað frá Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu nokkurra verslunar- eigenda í Kringlunni þess efnis að þar sem ákvörðun rekstrarfé- lags Kringlunnar um að fjarlæga tvo rúllustiga hefði verið ólög- mæt yrði félagið skyldað til að setja rúllustigana upp aftur . Hér- aðsdómur hafði áður kveðið upp dóm þar sem ákvörðun rekstrar- félagsins um að taka stigana nið- ur var talin ólögmæt og félaginu sagt að setja þá upp aftur. Deilt var um hvort stjórn rekstrarfélagsins hefði verið bær til að taka ákvörðun um að fjar- lægja stigana. Hæstiréttur féllst á að ákvörðunin hefði verið ólög- mæt en þar sem lögmætur félags- fundur rekstrarfélagsins hefði hins vegar samþykkt hina um- deildu ákvörðun stjómarinnar eftir uppsögu héraðsdóms taldi dómurinn að verslunareigendurn- ir hefðu ekki lögvarða hagsmuni af því að krafa þeirra um að rekstrarfélagið yrði skyldað til að setja rúllustigana upp aftur næði fram að ganga. Var þessum kröf- um því vísað frá dómi. -EKÁ Norðurland eystra: Skilorðsbundið faitg- elsi fyrir þjófnað Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvo rúmlega tvítuga menn í 30 daga skilorðs- bundið fangelsi fyrir þjófnað og vörslu fíkniefna. Mennirnir tveir höfðu brotist inn í verslunina Litlahúsið við Strandgötu á Akur- eyri í ágúst 2002 og stolið þaðan tíu þúsund krónum. Þeir voru einnig teknir í Sjallanum í des- ember 2002 með 0,4 grömm af am- fetamíni í vörslum sínum. Með hliðsjón af ungum aldri þeirra, skýlausri játningu og því að þeir greiddu fullar skaðabætur undir rekstri málsins þótti dóm- ara rétt að skilorðsbinda fangels- isrefsinguna. Annar þeirra var einnig dæmdur til að greiða fjörutíu þúsund króna sekt til ríkissjóðs. -EKÁ Vélskóli íslands: Skrúfudagur í dag Skrúfudagur Vélskóla íslands og kynningardagur Stýrimanna- skólans í Reykjavík verða haldnir í dag kl. 13 til 16.30. Á kynningar- deginum gefst tækifæri til að kynna sér hið fjölbreytta nám sem skólarnir hafa upp á að bjóða. Fyrirtæki sem tengjast starfsgreinum skólanna kynna starfsemi sína, vörur og þjónustu, sýnd verða líkön af veiðarfærum sem nemendur hafa gert og starfsfólk skólanna mun sýna gestum húsnæðið. Kvenfélög skip- stjórnarmanna á farskipum og vélstjóra, Hrönn og Keðjan, bjóða kafíiveitingarí mötuneyti Sjó- mannaskólans. -GG Fyrirspumatími ráöherra á landsfundí Sjálfstæðisflokksins: Hátekjuskatturinn hefur gengið sér til húðar DV-MYND TEITUR Landsfundur SJálfstæðlsflokksins Ráöherrar Sjálfstæöisflokksins sátu fyrir svörum á fundinum í gær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.