Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Side 8
8
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Útlönd
STRID VID
. / •:
REUTERSMYND
Bömln í sálarháska
Stríðið í írak getur haft aivariegar af-
leiðir-gar á sálarlíf barnanna.
Stríðíð kann að skaða
börnin í írak mikið
Há]f milljón barna sem hafa
OTÖið vitni að stríðsátökunum í
Írak undanfarna daga kann að
verða svo illa úti andlega að þau
þurfl á aðstoð sálfræðinga aö
halda, að því er fulltrúi UNICEF,
barnahjálpar SÞ, sagði í gær.
„Ég á von á að um hálf milljón
bama í Basra, Najaf, Kerbala og
Bagdad muni hugsanlega þurfa á
sálfræðilegri endurhæfingu að
halda þegar við fönun aftur inn í
landið,“ sagði Carel de Rooy, fúll-
trúi UNICEF í írak. Hann sagði
þó að fleiri yrðu ef til vill hjálp-
arþurfi.
Miklar loftárásir hafa verið
gerðar á áðurnefndar borgir eða
þar hefur verið hart barist.
Major segir ólíklegt að
lýðræði komist á í írak
John Major, fyrrum forsætis-
ráðherra Bretlands sem sendi
hermenn tO að berjast í
Persaflóastríðinu 1991, sagði í
gær að nærri útilokað væri að
koma á vestrænu lýðræði í írak.
Orð hans ganga þvert á það
sem George W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur ávallt haldið fram,
nefnilega að eitt af markmiðum
hemaðarins í írak sé að koma á
lýðræðislegum stjórnarháttum.
Major sagði á fundi kaupsýslu-
manna í Hong Kong að það væri
fáránlegt að ímynda sér sam-
steypustjóm súnní-múslíma, síta
og Kúrda. Saddam Hussein er
súnníi og hefur lengi ofsótt bæði
Kúrda og síta í landi sínu.
REUTERSMYND
Ekkl upp á sitt besta
Athygli hefur vakiö hve Tony Biair
hefur veriö þreytulegur síöustu vikur.
Tugir fórust í loftár-
ás á markað í Bagdad
Arabískar sjónvarpsstöðvar
sögðu að rúmlega fimmtíu írakar
hefðu týnt lífi í því sem þær sögðu
að hefði verið loftárás á markaðs-
torg í Bagdad í gær.
Fréttaritari stöðvarinnar al-
Jazeera sagði að 51 maður hefði
látist og 49 særst í Shula-hverfinu
í Bagdad.
„íraskur embættismaður sagði
mér að enn væri verið að leita að
fólki sem er grafið undir rústun-
um,“ sagði fréttamaðurinn og
sýndi myndir af líkum, þar á með-
al af tveimur börnum.
Sjónvarpsstöðin al-Arabiya
sagði að 52 hefðu farist í árásinni.
Bandarískir embættismenn vís-
uðu í gær á bug að hörð mót-
spyrna íraka hefði komið þeim á
óvart sem skipulögðu stríðið við
Saddam Hussein. Þeir sögðu
einnig að George W. Bush forseti
væri hvekktur á fréttamönnum og
REUTERSMYND
Reiði í Bagdad
íbúar í Bagdad lýstu margiryfir reiöi
sinni í garö Bandaríkjamanna og
Breta fyrir stríö þeirra gegn írak þeg-
ar þeir tóku þátt í bænahaldi í
moskum írösku höfuöborgarinnar.
öðrum sem leyfðu sér að vera vitr-
ir eftir á. Forsetinn teldi að stríð-
ið færi fram samkvæmt áætlun.
Ari Fleischer, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að höfundar hem-
aðaráætlunarinnar gegn írak
hefðu alltaf gert ráð fyrir að stríð-
ið kynni að verða bæði langt og
erfitt. „Það hefur alltaf verið hluti
áætlunarinnar,“ sagði talsmaður-
inn við fréttamenn.
Hermenn samfylkingarinnar
hafa mætt harðri mótspymu á leið
sinni til Bagdad. Fréttamaður
breska ríkisútvarpsins BBC, sem
er með bandarískum hersveitum í
miðhluta íraks, sagði að írakar
beittu aðferðum skæruliða í árás-
um sínum á innrásarliðið.
Bandarískar herflugvélar vörp-
uðu sprengjum á stöðvar íraka í
norðurhluta landsins þar sem sagt
er að íraskar sveitir séu að hörfa
frá olíuvinnslusvæði.
REUTERSMYND
Á flótta frá Basra
írösk fjölskylda flýr fram hjá eyöilögöum T-55 skriödreka frá íraska hernum eftir sprengjuárás á breska hermenn í
borginni Basra í sunnanveröu írak. íraskar hersveitir skutu á um tvö þúsund óbreytta borgara sem reyndu aö flýja
undan bardögunum og neyöarástandinu í borginni i gær.
iraskar hersveiBr skutu á
óbreytta borgara á flútta frá Basra
Slæmrl lýsingu kennt
um þreytulegt úfliBft
Aðstoðarmenn Tonys Blairs,
forsætisráðherra Bretlands, sögðu
í gær að þreytulegt útlit hans í
sjónvarpi að undanfömu hafi ver-
ið slæmri lýsingu að kenna.
„Sjónarhornið var slæmt, lýs-
ingin var hörð svo hann leit
miklu verr út en hann gerir í al-
vörunni," sagði aðstoðarmaöur
Blairs við Reuters-fréttastofuna.
Nú þegar rúm vika er liðin af
stríðinu hefur heldur birt yfir.
Lýsingin er betri og Blair er ein-
beittur á svipinn þegar hann
reynir að útskýra hvers vegna
stríðið í írak er nauðsynlegt að
hans mati.
íraskar hersveitir skutu á um
tvö þúsund óbreytta borgara sem
reyndu að flýja átök og neyðar-á-
stand í borginni Basra í sunnan-
verðu írak í gær, að sögn breskra
hernaðaryfirvalda.
Ronnie McCourt, talsmaður
breska hersins, sagði fréttamanni
Reuters að írösku sveitimar hefðu
beitt sprengjuvörpum og vélbyss-
um á fólkið sem var að reyna að
komast út úr borginni til bæði
norðurs og vesturs.
Svo virðist sem svipað atvik
hafi átt sér stað suður af Basra í
gær þegar írakar skutu með
sprengjuvörpum á um eitt þúsund
óbreytta borgara sem biöu eftir að
komast yfir brú. Að sögn bresks
liðsforingja í Basra særðist ein
kona alvarlega í þeirri árás.
REUTERSMYNO
Vatnssoplnn er góður
Ungur drengur fær sér sopa af vatni
sem breskur hermaöur gaf honum
skammt frá borginni Basra í gær.
McCourt sagði í höfuðstöðvum
innarásarliðsins í Katar að bresk-
ir hermenn væru að reyna að
koma særðum úr árásunum norð-
an og vestan við Basra undir
læknishendur.
Upplýsingaráðherra íraks, Mo-
hammed Saeed al-Sahaf, sagði á
fundi með fréttamönnum í Bagdad
að 116 óbreyttir borgarar hefðu
fallið og 659 særst í Basra frá því
átökin hófust 20. mars.
Starfsmenn Rauða krossins
sögðu á fimmtudag að þeim hefði
tekist að koma vatnsveitunni í
Basra í lag að hluta. Ibúarnir
sögðu hins vegar að erfiðlega
gengi að finna vatn. Bandarískir
embættismenn sögðu svo í gær að
rennandi vatn væri í um helmingi
borgarinnar.
Frestað í Suður-Kóreu
Ákvörðun Rohs
Moo-hyuns, for-
seta Suður-Kóreu,
um að senda sjö
hundruð manna
sveit hjúkrunar-
fólks og tækni-
manna til átaka-
svæðanna í írak
mætti svo mikilli andstöðu verka-
lýðsfélaga og fleiri að ákveðið var
að fresta atkvæðagreiðslu um
málið í þinginu.
Olíutekjup til matarkaupa
Öryggisráð SÞ samþykkti ein-
róma í gær að hrinda aftur í
framkvæmd áætlun um matar-
kaup fyrir olíutekjur íraka.
Bretap draga í land
Bresk stjómvöld drógu aðeins í
land í gær með fullyrðingar sínar
um að tveir breskir hermenn sem
féllu í írak hefðu verið teknir af
lífi. Ættingjum hafði verið sagt
annað og brugðust ókvæða við
frásögn Tonys Blairs.
Lík Stambolics fundið
Serbneska lögreglan segir að
líkamsleifar Ivans Stambolics,
fyrrum forseta, séu fundnar og að
hann hafi verið tekinn af lífi af
sérsveitum lögreglunnar. Stam-
bolic hvarf í ágúst árið 2000.
Brugðist við veirunni
Yfirvöld í nokkrum löndum
Asíu settu fleira fólk í sóttkví og
hertu heilbrigðiseftirlit til að
reyna að hefta útbreiðslu ban-
vænnar lungnabólguveiru sem
hefur orðið 54 að fjörtjóni.
Engin skipun um efnavopn
Bandaríski hers-
höfðinginn
Vincent Brooks
sagði í gær að
írösk stjórnvöld
kynnu að hafa gef-
ið herafla sínum
fyrirmæli um að
nota eiturgas ef
innrásarherirnir færu yfir
ákveðna línu, en engin merki
væru um að lokaskipun um notk-
un gassins heföi verið gefin.
Danskir vísindamenn hafa
komist að því með rannsóknum
sínum að dauðsföll af völdum
blóðtappa í hjarta og heila eru al-
gengari á norðlægum slóðum,
eins og Grænlandi, en í Dan-
mörku, þvert á viðtekin viðhorf.
Mugabe sakaður um svindl
Stjórnarand-
stæðingar í
Simbabve segja að
Robert Mugabe og
flokkur hans ætli
að svindla í auka-
kosningum sem
verða haldnar í
landinu um helg-
ina með svokölluðum draugaat-
kvæðum. Ofbeldisverk hafa ein-
kennt kosningabaráttuna.
Hans Blix hættir íjúní
Hans Blix, yfirmaður vopnaeft-
irlits Sameinuðu þjóðanna í írak,
hefur ákveðið að hætta þegar
samningur hans rennur út í júní
í sumar. Blix var sestur í helgan
stein þegar kallað var á hann fyr-
ir þremur árum.