Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Side 20
20
Heltga rblctð JO'V
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Uppreisnarmaðurinn
Michael Moore
Þegar óskarsverðlaunin voru afhent á dög-
unum vakti fáttþar meiri athygli en skor-
inorð og óstýrilát ræða Michaels Moores
sem skammaði forseta Bandaríkjanna
eins og hund vegna stríðsins íírak. Moore
æpti til þess að yfirgnæfa baul úrsalnum
og hljómsveitina sem byrjaði að spila íof-
boði til að yfirgnæfa hann. Hver er þessi
uppreisnarmaður?
Þaö er ekki víst að margir utan hóps þeirra sem hafa
mikinn áhuga á kvikmyndum hafi vitað hver Michael
Moore er þegar óskarsverðlaunin voru afhent. Moore
fæst við gerð heimildamynda og það var kvikmyndin
Roger and Me sem skaut honum upp á stjömuhimininn
í þeim efnum. Sú kvikmynd fjallaði um áhrif lokunar
verksmiðju Generai Motors á heimabæ Moores, Flint í
Michigan, og tifraunir hans til að ná tali af Roger Smith,
forstjóra General Motors. Myndin var gerð 1989 og hefur
engin heimildamynd í Bandaríkjunum fengið meiri aö-
sókn, svo óhætt er að segja að hún hafi komið fótunum
undir Moore sem kvikmyndagerðarmann.
Síðan hefur Moore tekið þátt í gerð fjölda heimilda-
mynda en einnig komið að gerð leikinna mynda og gam-
anmynd hans, Canadian Bacon, sem var gerð 1995 þótti
afar vel heppnuð.
Morðæðið í Golumbine
Erindi hans í ræðustól á óskarsverðlaunahátíðinni
var að taka við verðlaunum fyrir bestu heimildamynd-
ina á síðasta ári en hún heitir Bowling for Columbine og
fjaliar um atburðina sem urðu í apríl 1999 í smábænum
Littleton í Colorado þegar tveir unglingspiltar í Col-
umbine-skólanum gengu berserksgang og skutu og
særðu alhnarga skólafélaga sína áður en þeir styttu sér
aldur. í myndinni reynir Moore að átta sig á því að hve
miklu leyti atburöir þessir séu einstakir og að hve miklu
leyti þeir séu afleiðing útbreiddrar byssueignar í amer-
ísku samfélagi og þess hugsunarháttar að hver maður
hafi rétt á því að bera byssu og veija sig og fjölskyldu
sína. Þessi heimildamynd sem þykir taka á málinu á ein-
stæöan hátt hefur verið sýnd við feikna vinsældir víða
um heim og mun vera væntanleg til íslands á næstunni.
sMctsöluhók Michaels Moore, Stupid White Men, var tilbúin í drcifingu 10
september. f kjölfar hryðjuverkanna, þegar World Trade Center hrundi,
vildi útgefandinn hætta við að gefa bókina út.
Eldd tala um pólitík, taklí
Áður en afhending óskarsverð-
launanna fór fram hafði þeim
kurteislegu tilmælum verið beint
til væntanlegra verðlaunahafa að
blanda ekki stjómmálaskoðunum
sínum inn í þakkarræðumar. Eft-
ir þessu fóm alls ekki allir og
nokkrir aðrir en Michael Moore
létu í ljós andúð sína á framferði
bandarískra stjómvalda. Það tók
hins vegar algerlega steininn úr
þegar Moore tók til máls og lét
skammimar dynja á Bush og
sagði orðrétt að hann ætti að
skammast sín. Salurinn baulaði
talsvert þótt einhverjir fógnuðu
og líklega til þess að þagga niður
í mótmælandanum byrjaði hljóm-
sveitin að spiia til að yfirgnæfa
það sem Moore sagði. Hann náði
tilgangi sínum því sennilega hef-
ur ekkert myndbrot frá hátíðinni
verið sýnt oftar né víðar en ræða
hans. Á þessu er þó sú undan-
tekning að þegar samantekt frá
afhendingunni var sýnd á Stöð 2
vantaöi ræðu Moores en þeir sem
klipptu saman þáttinn vestur í
Ameríku sáu ekki ástæðu til að
hafa hana með.
Meðal annara verka Moores
má nefna sjónvarpsþætti eins og
The Awful Truth og TV Nation
sem báðir hafa notið mikilla vin-
sælda. Moore er afskaplega uppsigað við allt sem tengist
stórum fyrirtækjum og auðhringum og hefur sérstaklega
hom í síðu Repúblikanaflokksins og leggur mikla fæð á
George W. Bush sem hann telur að hafi með svikum og
samsæri fjölskyldu sinnar komist til valda í Ameríku og
sé í raun ekki réttkjörinn forseti.
Skoðanir af þessu tagi eiga eðlilega ekki alltaf upp á
pallborðið hjá ríkjandi valdhöfum en eflaust má rekja
vinsældir Moores til meinlegrar og leiftrandi kímni-
gáfu hans sem setur hans sérstaka mark á allt sem
hann gerir.
Heimskir hvítir menn
Moore hefur ekki bara fengist við að gera kvikmynd-
ir heldur er hann höfundar bókar sem heitir Stupid
White Men - and Other Sorry Excuses for the State of
the Nation. Þar beinir Moore spjótum sinum að George
Bush og fjölskyldu hans og samstarfsmönnum og lýsir
því í smáatriðum hvemig Bush komst til valda í kjölfar
samsæris sem gekk að stærstum hluta út á að útiloka
fjölda fólks frá kosningum í Flórída. Þar er einnig íjall-
að um margvísleg efni sem Moore telur að sé athugavert
við bandarískt þjóðfélag, s.s. misskiptingu auðsins, ægi-
vald auðhringa og skuggaleg tengsl mýmargra stjóm-
málamanna við risafyrirtæki.
Þessi bók hefur setið í efstu sætum metsölulista yfir
bækur almenns eðlis um mestallan hinn enskumælandi
heim. Það á bæði við vinsældalista amazon.com, met-
sölulista New York Times og nánast hvaða lista sem er.
Af þessu leiðir að höfundurinn er orðinn sterkefhaöur
og segir kinnroðalaust frá því hvemig hann býr í húsí
sem kostar 2 mUljónir dollara.
Ritskoðun í Ameríku
Útgáfusaga bókarinnar Stupid White Men er nokkuð
sérstök og ástæða til þess að fara í gegnum hana eins og
hún birtist í formála þess eintaks sem liggur á borði
blaðamanns DV og er gefin út í Bretlandi af Penguin.
Þar segir höfundur frá því að hann skrifaði bókina
vorið og sumarið 2001 og örlögin höguðu því svo til að
prentun fyrstu 50 þúsund eintakanna var lokið 10 sept-
ember 2001. Daginn eftir riðu hryðjuverkin, sem kennd
eru við ellefta september, yfir Ameríku. Þaö var fyrir-
tæki sem heitir ReganBooks, dótturfyrirtæki Harper-
Collins sem gaf bókina út. Moore og útgefandinn gerðu
með sér samkomulag um að fresta dreifmgu og kynn-
ingu bókarinnar um hríð. ■
Nokkrum vikum síðar tilkynnti útgefandinn, Moore,
að það kæmi ekki til greina að gefa bókina út óbreytta.
Nauðsynlegt væri að endurskrifa stóra kafla í henni,
fella ætti út kafla sem er opið bréf til George W. Bush og
breyta kaflaheitum eins og: Drepum hvítingjana og ekki
væri ásættanlegt að tala um forsetakosningamar 2000
eins og valdarán. Auk þess krafðist útgefandinn 100 þús-
Michael Moore er þessa dagana einhver frægasti and-
stæðingur stríðsrekstursins í írak eftir að hann
hleypti upp afhendingu óskarsverðlaunanna.
und dollara frá Moore til að standa straum af endur-
prentun umræddra 50 þúsund eintaka.
Moore harðneitaði að breyta einu orði i bókinni og
ásakaöi útgefandann um heigulshátt og bíræfha tilraun
til ritskoðunar og skoðanakúgunar. Um þetta var deilt í
tvo mánuði án árangurs og þá kom meðal annars í ljós
að Moore gat ekki farið með bókina til annars útgefanda
þar sem Harper-Collins áttu útgáfuréttinn í heilt ár eftir
prentun. Harper-Collins áskildu sér rétt til þess að tæta
eintökin 50 þúsund frekar en að gefa þau út.
Byijaði með einum bókaverði
Það var síðan 1. desember þetta sama ár sem Moore
var fenginn til að halda erindi á fundi frjálslyndra borg-
ara í New Jersey. í stað þess að fjalla um það sem upp-
haflega var ætlun hans sagði hann fundargestum, sem
voru í kringum 100, frá samskiptum sínum við útgefand-
ann dg las brot úr nokkrum köflum sem sérstaklega
voru hættulegir að áliti útgefandans.
Einn fundargesta var kona að nafiii Ann Sparanese,
bókavörður í New Jersey. Hún sendi aragrúa annarra
bókavarða bréf og setti af stað herferð á Netinu og
hundruð manna sendu Harper-Collins bréf þar sem skor-
að var á fyrirtækið að setja bók Michaels Moore í sölu
þegar í stað. Síðan komst Publishers Weekly á snoðir um
málið og Harper-Collins stóðu á almannafæri eins og
argasta afturhald og ritskoðarar sem þeir réttilega voru.
Það var því með verulegum hundshaus sem Harper-
Collins ákváðu loks að setja bókina i sölu. Þeir sendu
hins vegar engar fréttatilkynningar frá sér um málið,
keyptu engar auglýsingar og markaðsdeild þeirra bókaði
Moore hvergi í viðtöl vegna útkomu bókarinnar eins og
alsiða er. Þeir héldu því fram aö bókin væri úr öllum
tengslum við amerísku þjóðina og ráðlögðu höfundinum
öryggis hans sjálfs vegna að fara ekki í bókabúðir til að
árita bókina..
Þau 50 þúsund eintök sem til voru seldust upp á fáein-
um klukkustundum og daginn eftir að henni var dreift
var Stupid White Men kominn efst á metsölulista
amazon.com. Bókin hefur selst í fleiri eintökum en nokk-
ur önnur bók almenns eðlis í Bandaríkjunum árið 2002.
Það mun vera 25. prentun sem er á ferðinni í Bandaríkj-
unum um þessar mundir og ekkert lát á vinsældum
hennar því í síðustu viku var hún enn í efsta sæti vin-
sældalista New York Times.
Sá sem þetta ritar fékk sitt eintak í erlendu deildinni
hjá Eymundsson í Austurstræti og greiddi 1990 krónur
fyrir. Besta leiðin til þess að vita hvað hinn uppreisn-
argjami Michael Moore hefur fram að færa er að lesa
bókina. -PÁÁ