Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Blaðsíða 23
LAUGARDAGU R 29. MARS 2003
Helqarhlcið 301W
23
... eitthvað fyrir þig?
Eftirlætiskrem Ophrah Winfrey
því lyktin af því er æðisleg, einhvers konar frískleg
ferskjulykt. Kremið er partur af línunni A perfect
world en í línunni er einnig að finna augnkrem,
andlitskrem og hreinsikrem. Allar innihalda þessar
vörur white tea en í gamla daga notuðu Kínverjar
það í drykk sem ótti að færa þeim eilíft líf. Hvort
white tea lengir líf manns er ekki víst en líkams-
kremið mýkir að minnsta kosti líkamann og styrkir
húðina.
„Ég var að uppgötva nýtt lúxus líkamskrem sem ég
skelli alltaf á mig eftir bað. Ég nota ekkert ilmvatn,
bara þetta krem." Þetta segir sjónvarpskonan
Oprah á heimasiðu sinni um eftirlætislíkamskrem
sitt, „A perfect
world" frá Orig-
ins, á heimasíðu
sinni,
www.oprah.com.
Það er ekki skrýt-
ið að sjónvarps-
konan fræga
skuli hafa fallið
fyrir þessu kremi
Keypt í gegnum vörulista
OTTO vor- og sumarlistinn er kom-
inn út, fjölbreyttur að vanda. Listinn
er tæplega 1400 síður að stærð en
þar er að finna vöruúrval fyrir alla
fjölskylduna. M.a er að þar að
finna ýmsar nýjungar sem ekki hafa
sést hér á islandi áður eins og t.d
mjaðmasokkabuxur og sokka fyrir
opna skó. Auk tískufatnaðar á
alla fjölskylduna er í
listanum einnig að
finna búsáhöld, vefn-
aöarvöru, skartgripi
og heimilistæki. Fyrir
utan þennan aðallista
býður Otto einnig upp á
ýmsa sérvörulista. Allir list-
arnir koma út tvisvar á ári.
Listarnir fást á eftirtöldum
stöðum: Bókabúð Keflavíkur,
Bókabúðinni Grímu Garðatorgi
og Bókabúð Máls og menningar
Mjódd. Einnig er hægt að panta
lista í síma 565-9991 og fá þá
senda i póstkröfu.Hægt er að fá all-
ar nánari upplýsingar og í síma 565-
9991, mánudaga
þriðjudag fimmtudaga og föstudaga
milli kl. 14 og 18. Senda fax í síma 565-
9991 eða á heimasíðu Otto, www.otto.is
Gift fóik ekki hamingjusamara
Ný bandarísk könnun sýnir að gift fólk
er ekki endilega hamingjusamara en
ógift fólk. Könnun þessi var gerð yfir
15 ára tímabil og tóku 24.000 mann-
eskjur þátt í henni. I könnuninni kom í
Ijós að flest gift fólk upplifir tilfinninga-
legan topp eftir giftinguna en kemur
svo fljótlega aftur niður á jörðina. Það
eru sem sagt ekki kirkjuklukkur sem
hringja hamingjuna inn hjá fólki.
Eigum aðeins eftir þrjá
afþessum gullfallegu
sjónvarpsskápum.
Verð 250 þús.
Tllboð 195 þús.
Laugardagstilboð
Funkis-stólar
í anda afa og ömmu
Verð 49 þús. Tiiboð 39 þús.
A horni l.augavegar og Klapparslígs
HEiíL JjA !Jk§€
ÞJALFUNAR OG ÆFINGARPUNKTAR
Ef þú ert með flensu áttu ekki að stunda
líkamsrækt. Það hefur enginn neitt upp úr
því að þræla sér út í þjálfun þegar veikindi
herja á kroppinn. Það getur haft slæm
heilsufarsleg áhrif og þar á meðal leikið
hjartavöðvann grátt. Þannig geta
veirusýkingar herjað á hjartað af miklum
þunga þegar líkaminn verður fyrir mikilli
líkamlegri áreynslu. Því er mikilvægt að fólk
hlusti á líkama sinn og hvílist þegar þörf er
á. Hreyfing er nauðsyn en þó ekki alltaf!
MATSEÐILL DAGSINS
Dagur 42
Morgunverður: Special K, morgunkorn 3 dl
Undanrenna 2,5 dl
Plómur 2 stk.
Hádegisverður: Grænmetissúpa: s.s. 11 vegetables- (Maggi) 3 dl
Brauð 1 sneið
Kotasæla 2 msk.
Ávaxtasafi, hreinn 1 glas
Miðdegisverður: ís í brauðformi 1 stór
Kvöldverður: Nautalundir, steiktar 200 g
Franskar, ofnbakaðar 100 g
Hrísgrjón, soðin 100 g
Sojasósa 1/2 tsk
Piparsósa 1 dl
Salat, blandað 100 g +
Rauðvín 2 dl
Kvöldhressing: Sérrí 1 dl
Konfekt 2 molar
Löglegt en siðlaust kemur stundum í hug mér þegar ég sé augiýsingar frá apótekum
þar sem töfraformúlur af ýmsum toga eru auglýstar. Ástæðan fyrir því að apótekin
hafa farið þá leið að selja slík efni liggur að mínu mati í augum uppi. Afurðirnar eiga
það til að seljast vel og það merkir að sjálfsögðu pening í kassann.
Þar sem mitt sérsvið er næringarfræði liggur í hlutarins eðli að efnum sem tengjast
næringarfræðinni eru mér ofarlega í huga. Ég gæti nefnt til sögunnar margar vörur
sem hafa verið ranglega auglýstar í gegnum tíðina sem töfraafurðir hinar mestu.
Sem dæmi má taka AppleSlim, Eplaedik með krómi, Phasomin kovetnisbanann, Diet
fuel án efedríns, Fat binder, Bogensen pillen, "næturmegrunarvökva",
"megrunarplástra", WaterDrain. Ekki er það ætlun mín að þessu sinni að ræða
sérstaklega tilteknar afurðir heldur að velta fyrir mér hvort eðlilegt sé að apótek
taki þátt í þeim Ijóta leik að ala á trúgirni fólks? Er það réttlætanlegt að apótekin,
sem meirihluti almennings telur starfa af fagmennsku, láti freistast að auglýsa
gagnslausar, í besta falli gagnslitlar, afurðir, með þeim formerkjum að um áhrifarík
efni sé að ræða? Mitt svar er nei!
Ég vil taka fram að sjálfur hef ég aðeins jákvæða reynslu af starfsfólki apóteka og
veit að sumum starfsmönnum líður hálfilla með að selja viðskiptavinum afurðir sem
þeir vita að standa ekki undir nafni. í óvísindalegu "tilraunaverkefni", sem ég stóð
fyrir í tilteknu apóteki, spurði ég starfsmann út í nokkur vörumerki, í reynd sömu
vörumerki og ég nafngreini hér að ofan. Sá sem fyrir svörum varð svaraði spurningunum
greiðlega og mátti á viðkomandi skilja að afurðirnar væru gagnslausar, í besta falli
gagnslitlar og að ekki lægju til grundvallar neinar klínískar rannsóknir fyrir virkni
þeirra! Það má því telja líklegt að sumu starfsfólki finnist á stundum sem það sé í
ákveðinni klemmu þegar kemur að því að svara spurningum fólks varðandi efni sem
það veit að virkar ekki á þann hátt sem auglýsingar fyrirtækis þess segja til um.
Víst er það staðreynd að þungamiðja viðskipta er að græða pening. Þess vegna er
það kannski til of mikils ætlast að aðiiar sem standa fyrir
apótekarekstri selji ekki afurðir þótt þær hafi ekki sannað gildi sitt
samkvæmt viðurkenndum vísindalegum mælistikum. Engu að síður
er það mín skoðun að fyrirtæki sem almenningur treystir á að búi
yfir fræðilegri þekkingu ætti að minnsta kosti ekki að leggjast svo
lágt að auglýsa með glannalegum og órökstuddum fullyrðingum
vita gagnslaus efni, í besta falli gagnslítil, eins og um "töfraefni"
hin mestu væri að ræða. Slíkt yrði almenningi til hagsbóta!
Kveðja, Ólafur G. Sæmundsson næringarfræðingur
HReynnc