Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Qupperneq 26
26 Helgczrblað 13 "V LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 er á móti þessu stríði Össur Skarphéðinsson: „Könnun kanadískrar hjálparstofnunar á áhrifum árásarstríðs á írösk börn, sem var birt fyrir skömrnu, leiddi í ljós að írösk börn voru svo illa stödd vegna yfirvofandi stríðs að fjögur af hverjum tíu þeirra vilja ekki lifa áfram." DV-Mvnd Hari Össur Skarphéðinsson ræðir um stríðið í Irak, muninn á Bush og Blair og stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar við árás bandamanna á Irak. Forsœtisráöherra hefur sagt að þú sért ekki samkvœmur sjálfum þér, hafir stutt árás á Kosovo á sínum tíma en sért andvígur innrás í írak. Hverju svararöu þessu? „Forsætisráðherra líður fyrir vonda samvisku eða hreina vanþekkingu, nema hvort tveggja sé. Þetta eru gjör- ólíkir atburðir. í Kosovo var verið að drepa menn þúsund- um saman daglega, nauðga konum skipulega og flótta- menn streymdu yfir landamæri í tugþúsundatali. Þaö rikti hrein upplausn. Tíminn var að renna út. Það voru ótrúleg- ar hörmungar í gangi þegar Atlantshafsbandalagið greip til aðgerða til aö stöðva þjóðemishreinsanir á albanska minnihlutanum. Þær aðgeröir vora með samþykki og vilja ails alþjóðasamfélagsins nema Rússa. Sú atburöarás var þvi svo gjörólík stöðunni í írak þegar Bandaríkjamenn hófu árásarstríð sitt að því er ekki hægt að jafna saman. í Kosovo var yfirgnæfandi meirihluti alþjóðasamfélags- ins á einu máli um að það yrði að grípa strax inn í til að stöðva skipulega útrýmingu á albanska minnihlutanum í Kosovo. Öll ríki Evrópusambandsins voru því sammála. Sama gilti um Atlantshafsbandalagið. Hver einasta sam- starfsþjóð okkar innan Atlantshafsbandalagsins var þeirr- ar skoðunar að gripa ætti til aðgerða í Kosovo til að koma í veg fyrir þjóðemishreinsanir Milosevic. Utanríkisstefna okkar hefur ekki síst hvílt á því að rækta náin tengsl milli okkar og þess. Við höfum litið svo á að það væri það bandalag sem okkur stendur einna næst. Löndin sjö, sem liggja þama að, voru ekki bara sammála aðgerðunum heldur kölluðu hátt á alþjóðavettvangi eftir því að gripið yröi í taumana. Það sem mestu skipti var þó að fólkið sjálft, Kosovo-Albanimir, sem verið var að myrða og nauðga, báðu um vemd Atlantshafsbandalagsins. Þeir hrópuðu á hjálp. Tíminn var að renna út og við þessar að- stæður var það skylda og neyðarréttur umheimsins að koma til aöstoðar og bjarga konum, bömum og saklausu fólki frá tortímingu." Böm og stríðsógn En voru þá aöstœöur aörar að þínu mati í írak? „Já. íraska þjóðin bað ekki um árás Bandaríkjamanna. Ekkert bendir til að hún hafi viljað innrás, þó hún kunni að vera algerlega andstæð Saddam Hússein. Þvert á móti hefur ógn styijaldarinnar legið eins og mara á írösku þjóðinni um mörg ár. Könnun kanadískrar hjálparstofn- unar á áhrifum árásarstríðs á írösk böm, sem var birt fyrir skömmu, leiddi í ljós að írösk böm vora svo ilia stödd vegna yfirvofandi stríðs að fjögur af hverjum tíu þeirra vilja ekki lifa áfram. Þetta era skelfilegar upplýs- ingar. Þetta er nú bakgrunnur ákvörðunar íslensku ríkis- stjómarinnar um að taka með óbeinum hætti þátt í stríð- inu gegn írösku þjóðinni. Manni verður hugsaö til sinna eigin barna. Sameinuðu þjóðimar gáfu út skýrslu þar sem spáð var að réðust Bandaríkjamenn á írak gæti það leitt tíl þess að hálf milljón óbreyttra borgara félli. Þetta er tvisvar sinnum íslenska þjóðin. Hvemig í ósköpunum get- um við íslendingar stutt aðgerðir sem Sameinuðu þjóðim- ar segja að hafi slíkar mannlegar hörmungar í fór með sér? Lykilspumingin er þessi: Er harðstjórinn Saddam Hússein slík ógnun við frið í heiminum að það réttlæti árás á írak? Málsatvik benda ekki til þess. Hann er stríðs- glæpamaður en mögulegan dauða óheyrilegs fjölda sak- lausra bama er ekki hægt að réttlæta með nauðsyninni á að Bandaríkjamenn nái honum.“ Þurfti samt ekki aö eyða gereyðingarvopnum sem menn hafa talió aó Saddam Hússein byggi yfir? „Ég tek undir aö það á að eyða slíkum vopnum alls staðar. Líka í ísrael. En jafnólíkir menn og Hans Blix, yf- irmaður vopnaeftirlitsins, og Halldór Ásgrímsson sögðu báðir að það ætti að gefa vopnaeftirlitsmönnum meiri tíma til aö finna þessi vopn. Munurinn á þeim er sá að Blix var sama sinnis eftir aö árásin hófst en Davíö Odds- son skipti um skoðun fyrir Halldór. Nú skal ég auðvitað ekki útiloka að það sé að finna einhver gereyðingarvopn eða leifar þeirra í írak. Þegar árásin hófst benti hins veg- ar ekkert til þess, nema tylft gamalla sprengjuodda sem fundust og í ljós kom að vopnaeftirlitsmennimir vissu um frá fyrri tíð. Robin Cook, sem sagöi sig úr bresku ríkis- stjóminni í síðustu viku með áhrifamikilli ræðu í breska þinginu, hafði sama aðgang og Tony Blair að trúnaðar- upplýsingum bresku leyniþjónustunnar - og ef til vill þeirrar bandarísku líka. Hann sagði að ekkert benti til að gereyöingarvopn væri að finna í írak nema ef vera skyldi leifar af miltisbrandi sem Bandaríkjamenn seldu þeim sjálfir fyrir tæpum tveimur áratugum. En á þeim tíma var Saddam Hússein einmitt leiðtoginn sem þeir ætluöu að byggja upp sem helsta handbendi sitt í Miðausturlönd- um, eftir að íranir steyptu keisaranum. Bush eldri, sem þá var forseti Bandarikjanna, fordæmdi aldrei hræöileg- ar efnavopnaárásir hans á Kúrda, hvað þá Irana, þó þær væra skelfilegt brot á Genfarsáttmálanum. Gleymum ekki að Bandaríkjamenn byggðu Saddam Hússein upp.“ Svart-hrít heiinsmynd Bush Þú minnist á Robin Cook. í afsagnarrœöu sinni sagöi hann aö ef Al Gore vœri forseti Bandaríkjanna en ekki Ge- orge Bush þá vœri ekkert stríö í írak. Ertu sammála þessu? „Já. Bandaríkjaforseti hefur komið sér upp sérkenni- legri utanríkisstefnu svo ekki sé meira sagt. Heimsmynd hans er svart-hvít: Annaðhvort ertu með mér, eða þú ert á móti mér. Hann hefur lýst yfir að Bandaríkin áskilji sér rétt til einhliða fyrirbyggjandi árása hvenær sem er og hvar sem er á það sem hann skilgreinir sem óvinveitt ríki. Það er ótrúlegt að halda því fram að ef alþjóðastofnanir eins og Sameinuðu þjóðimar samsinna ekki málflutningi Bandaríkjanna réttlæti það einhliða aðgerðir. Hvar ætla menn að stoppa? Yfirlýsingin um öxulveldi hins illa var eins og ættuð af pólitískri steinöld. í þeim hópi vora írak, íran og N-Kóreu. Má búast viö að íran og Norður-Kórea verði næst? Ætlar íslenska ríkisstjómin aö styðja Bush sjáifkrafa ef hann kastar stríðshanskanum gagnvart þess- um ríkjum? Bandaríkjaforseti, og klaufaleg ummæli ráð- herra hans eins og Donalds Rumsfield, hafa vakiö djúp- stæðan ágreining við gamlar vinaþjóðir í Evrópu og vald- ið alvarlegum klofningi innan Atlantshafsbandalagsins. Þetta harma ég, sem vinur vestrænnar samvinnu. Nálgun jafnaðarmanna, eins og A1 Gore, einkennist af miklu meiri virðingu fyrir alþjóðlegri samvinnu og mannslífum.“ Halldór Ásgrímsson sagöi á fundi í Háskólanum um daginn aö íslendingum bœri siöferöileg skylda til aö standa meö bandalagsþjóöunum. Ertu sammála því sjón- armiöi? „Við veittum vinum okkar Bandaríkjamönnum drengi- legan siöferðilegan stuðning í leiðangri þeirra gegn sam- tökunum Al-Queida, sem réðust 11. september 2001 á þá og vorum reiðubúin til að gera meira en þaö. Smáþjóðin ísland var þá vinur í raun. En vinur er sá er til vamms segir. Við eigum að reka sjáifstæða utanríkisstefnu. Við áttum umbúðalaust að segja Bandaríkjunum að við vær- um andsnúin árásinni á írak eins og aðstæður vora. Við eigum ekki að láta skipa okkur fyrir verkum, eða hlaupa eins og seppar á eftir stórveldum. Það var ömurlegt að eini maðurinn sem forsætisráðherra virtist hafa ráðslag- að við um afstöðu íslands var sendiherra Bandaríkjanna. Viö þurfum ekki að sanna vináttu okkar með því að styðja við árásarstríð." Heldurðu að þaö hafi veriö Davíð Oddsson en ekki Hall- dór Ásgrímsson sem mótaöi afstööu ríkisstjórnarinnar í þessu máli? „Um það er ekki spuming í mínum huga. Halldór ítrek- aði í janúar í viðtali við Stöð 2 að það væri útilokað að ríkisstjómin styddi einhliða aðgerðir Bandaríkjanna. Hann talaði aftur og aftur um að gefa ætti vopnaeftirlits- mönnum tíma. Það er auðvitað borðleggjandi að Davíð hirti ekkert um skoðun hans. Ég hefði aldrei látið þetta yfir mig ganga hefði mér verið vikið til hliðar með þess- um hætti eins og gerðist með Halldór. Ég ímynda mér að staða Framsóknarflokksins væri önnur ef þeir hefðu stað- ið við sín orð.“ Hræðileg staða Tony Blair var átrúnaöargoö jafnaöarmanna á Vestur- löndum. Nú hefur hann fariö meö þjóð sína út í striö sem mikil andstaóa er viö er ímynd Blairs ekki aö bíöa hnekki? „Allir eiga villukvóta. Blair hefur reynst Bretum og Verkamannaflokknum vel. Hann virðist sannfærður í þessu máli. En ég vona að hann sjái að sér. Hann hefur hins vegar allt aðrar hugmyndir um hvað tekur við að stríði loknu en Bush. Haukamir í liði Bush vilja greini- lega gera írak að leppríki sínu og hugsa sér að ráða stjórnun þéss og uppbyggingu. Blair er á annarri skoðun, eins og obbi Verkamannaflokksins í því efni. Þeir vilja láta Sameinuðu þjóðimar sjá um uppbygginguna. Ég er þeim sammála um það. Umfram allt þá er ég á móti þessu stríði og öllum þeim hörmungum sem þaö mun færa yfir saklaust fólk.“ Hefur trúveröugleiki Sameinuöu þjóöanna beöiö hnekki vegna innrásarinnar í írak og forleiksins? „Nei. Trúverðugleiki þeirra hefur fremur skaðast vegna endurtekinna brota gegn öðrum ályktunum sem Öryggisráðið hefur gert siðustu ár um skyld átakamál, eins og deiluna í Palestínu. Ég á erfitt með að skilja þeg- ar menn halda því fram að trúverðugleiki SÞ hafi rýmað vegna þess að Öryggisráöið náði ekki saman um árás á írak. Mér finnst miklu fremur að þaö hefði rýrt trúverð- ugleika Sameinuðu þjóðanna ef Öryggisráðið hefði látið undan óbilgimi Bandaríkjanna. í hjarta mínu er ég því al- gerlega andsnúinn. Mér finnst þetta hræðileg staða og óskiljanlegt hvemig ríkisstjómin dró ísland inn í málið án þess að ræða viö Alþingi.“ -KB !
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.