Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Side 32
32
Helcjarblaö E>*\ir
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Ég er bjartsýnn
- segir Eiður Smári Guðjohnsen
„Ég er bjartsýnn fyrir þennan
leik gegn Skotum. Þaö verður
mikilvægt fyrir okkur aö byrja
vel. Þeir verða örugglega með
brjáluð læti fyrstu fimmtán mín-
úturnar svo að við verðum að
vera þéttir varnarlega og meg-
um ekki leyfa þeim að setja okk-
ur undir pressu. Við þurfum síð-
an að sjálfsögðu að reyna að
halda boltanum þegar við vinn-
um hann en ekki þruma eitt-
hvað út í loftið. Þetta gekk ekki
nógu vel í síðasta leik gegn
þeim, það vantaði smáhugsun
hjá okkur þegar við vorum með
boltann. Við gátum aldrei fært
liðiö framar á völlinn þá því að
boltinn hélst aldrei innan liðs-
ins nægilega lengi. Við fengum
þá á okkur strax aftur og það
gerði liðinu erfitt fyrir.“
Spiluðum undir getu
„Við vitum það, bæði leik-
mennirnir og þeir sem sáu leik-
inn á Laugardalsvelli, að við
spiluðum langt undir getu. Ég
spilaði sjálfur illa, ég var ekki í
nægilega góðu formi, hvorki
líkamlega og andlega, þar sem
ég var nýstiginn upp úr meiðsl-
um og í lítilli leikæfingu. Ég á
von á því að það verði annað
uppi á teningnum í leiknum á
morgun (í dag). Ég ætla að spila
vel í þessum leik og vonandi
færir það liðinu eitthvað."
- Finnur þú fyrir þeirri
pressu að sóknarleikur liðsins
hvíli á þinum herðum?
„Nei, ekkert sérstaklega. Ég
geri mér grein fyrir því að það
eru gerðar miklar kröfur til mín
sem mér finnst vera eðlilegt. Ég
spila með nokkuð stóru liði í
ensku úrvalsdeildinni og get því
ekki skorast undan. Það er oft
þannig að því betur sem ég spila
þeim mun meiri verður pressan
og kröfumar. Menn verða hins
vegar að átta sig á því að ég er
bara einn af ellefu leikmönnum
liðsins og reyni að gera mitt fyr-
ir það. Við erum ekki sterkastir
þegar ég á einhvem stórleik
heldur þegar allt liðið spilar
vel.“
Lærðum sjálfir
„Ég held að við þurfum ekki
að hafa svo miklar áhyggjur af
Skotunum og hvemig þeir spila.
Aðaláhyggjuefnið fyrir okkur er
það hvort við séum tilbúnir í
leikinn og vitum hvað við ætl-
um að gera. Skotarnir eru engir
heimsklassaleikmenn en þeir
eru með mikla hefð og flestir
leikmannanna spila í sterkum
liðum á Bretlandseyjum. Þeir
era reyndar, líkt og við, með lið
í mótun. Það er kominn nýr
þjálfari og hann er að prófa sig
áfram. Skotarnir hafa verið dug-
legir að spila vináttuleiki að
undanförnu og sú staðreynd að
þeir séu fyrir neðan okkur á
styrkleikalistanum segir mér
ekkert. Miðað við fyrri leikinn
áttum við að vera fyrir neðan en
staða á styrkleikalista gefur ekk-
ert þegar út í aivöruleiki er
komið.
Það er algjört lykilatriði fyrir
okkur að ná stigi á morgun (í
dag) til eiga einhvem möguleika
í riðlinum. Ef okkur tekst að
halda hreinu veit maður aldrei
hvað gerist en við verðum lika
að passa okkur á því að vera
ekki of varkárir. Við erum
komnir hingað til að spila fót-
bolta, ekki bara til að berjast
fyrir jafnteflinu," sagði Eiður
Smári Guðjohnsen. -ósk
Eiður
Sinári Guðjónssen og félagar hans í íslenska landsliðinu eru klárir í slaginn fyrir einn
mikilvægasta leik sem íslcnskt landslið í knattspyrnu hefur spilað. í gcgnuui tíðina.
Höfum vonandi lært eitthvað
- segir Lárus Orri Sigurðsson, varnarmaður íslenska landsliðsins
Lárus Orri Sigurðsson mun að öllum líkindum spila
sem einn af þremur miðvörðum í vörn íslands i leikn-
um í dag. Lárus Orri hefur ekki spilað með landsliðinu
síðan þjóðirnar mættust síðast á Laugardalsvelli og
hann sagði við blaðamann DV-Sports í gær að íslenska
liðið ætti gífurlega erfitt verkefni fyrir höndum.
„Leikurinn gegn Skotum leggst vel í mig en þetta
verður alveg gríðarlega erfitt fyrir okkur. Þeir eru með
gott lið, eru á heimavelli og með góða og sterka áhorf-
endur á bak við sig sem hafa oft hjálpað þeim mikið.“
- Hafið þið dregið einhvern lœrdóm af fyrri leik
liðanna þar sem hlutirnir gengu ekki upp?
„Ég ætla rétt að vona það. Skotamir spiluðu vel í
þeim leik. Þeir skoruðu snemma, vörðust síðan vel og
það var virkilega erfitt að brjóta þá á bak aftur. Þeir
sýndu það í þessum leik að þeir eru með mjög gott lið
þrátt fyrir að margir hafi reynt að telja okkur trú um
annað fyrir leikinn. Ég held að það skipti engu máli þó
að þeir séu ef til vill taldir sigurstranglegri í þessum
leik. Þeir komu sem „litla“ liðið í þann leik og við
stóðum einfaldlega ekki undir þeim væntingum sem tO
okkar voru gerðar. Svona pressa, að vera sigurstrang-
legra liðið, getur virkað á báða vegu, bæði sem hvatn-
ing og vakið hræðslu. Við þurfum að setja þá undir
pressu og gera þeim erfitt fyrir ef við ætlum að notfæra
okkur þá staðreynd að pressan er á þeim. Sú staðreynd
ein og sér hjálpar okkur ekkert."
Þurfum að verjast vel
„Atli ætlar að þétta vömina frá því í síðustu leikjum
og ég held að það sé af hinu góða. Þegar við spilum á
móti stórum þjóðum á útivelli er oft gott að byrja á því
að verjast vel, halda markinu hreinu og reyna síðan að
sækja hratt. Það er betra að byrja á þvi að reyna að
tryggja að við fáum ekki á okkur á mark og í framhald-
inu huga að því hvemig við komum til með sækja,“ seg-
ir Lárus Orri og bætir því við að Guðni Bergsson muni
styrkja liðið mikið.
„Það er gott að fá Guðna Bergsson inn í liðið á nýjan
leik. Það er reyndar orðið ansi langt síðan maður spil-
aði með honum í landsliðinu en hann hefur spilað frá-
bærlega með Bolton á þeim tíma. Hann hefur mikla
reynslu og það er ekki nokkur spurning að hann mun
styrkja liðið mikið.“
- Eru einhverjir sérstakir leikmenn i skoska
landslióinu sem eru hœttulegri en aðrir?
„Skotamir eiga marga öfluga framherja sem við þurf-
um að varast. Kenny Miller hjá Wolves hefur verið sjóð-
andi heitur upp á síðkastið og kemur hugsanlega til
með að byrja. Annars er liðið mjög jafnt. Það er fyrst og
fremst liðsheildin sem er sterk hjá Skotum. Liðið er
sterkt og ef við náum einhverju héðan þá megum við
vera mjög ánægðir með það,“ sagði Lárus Orri Sigurðs-
son. -ósk