Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Helgarblaö H>V
37
staða komið upp í mínu tilfelli.
Ég er ekki að segja að það verði
en það er engin ástæða til að
útiloka þann möguleika.“
Ertu aö íhuga að stofna nýjan
flokk?
„Það hefur ekki staðið til að
stofna nýjan flokk en ég er
ásamt félögum mínum að stofna
T-listann, Framboð óháðra í
Suðurkjördæmi. Við munum
starfa sem flokkur í einu kjör-
dæmi í þessari kosningabaráttu
og á kjörtímabilinu ef við náum
inn. Til þess erum við að móta
stefnu sem mun taka mið af
málefnum í kjördæmisins."
Lymskufullur áróður
Nú hefur Geir H. Haarde sent
þér kaldar kveöjur og ef ég man
rétt sagöi hann aö þú vœrir að
spilla fyrir flokknum og myndir
sennilega ekki ná kjöri. Hverju
svararöu þessu?
„Þær eru vandræðalegar yfir-
lýsingarnar frá sjálfstæðis-
mönnum þessa dagana og
reyndar allar eins og úr einum
munni. Að þeirra sögn kem ég
til með að spilla fyrir þeim en á
samt ekki að ná neinum ár-
angri. Þetta er lúmskur áróður
en merkilegt hvað þeir eru þó
uppteknir af mínu framboði ef
það hefur ekki meiri möguleika
að þeirra áliti. Áróður minna
fyrrum félaga er því miður
mjög lymskufullur og á margan
hátt mjög ógeðfelldur eins og
hann hefur birst síðustu daga
og til þess gerður að hræða fólk.
Ég ætla ekki að tíunda ná-
kvæmlega hvað verið er að gera
en aðferðirnar minna oft frekar
á vinnubrögð í einræðisríki en í
lýðræðisríki eins og Íslandi.
Geir var einn hugmyndasmið-
urinn á bak við það hvernig
komið var í veg fyrir prófkjör í
Suðurkjördæmi og mér kemur
ekki á óvart þótt hann sé feng-
inn til að ráðast að mínu fram-
boði og minna stuðningsmanna.
Hann orðaði það svo pent að
„Sjálfstæðisflokkurinn muni
standa þetta af sér“. Staðan er
nú sú að ég stend einn með mín-
um stuðningsmönnum gegn
þessu ofurvaldi sem fær hundr-
uð milljóna króna af fjárlögum
á hverju kjörtímabUi til að reka
sinn áróður og á því ótakmark-
aða peninga til að berja á mínu
framboði. Við erum í stöðu Dav-
íðs gegn risanum Golíat. við
skulum spyrja að leikslokum."
Er ekki nokkur léttir aö vera
laus undan flokksaga. Nú get-
uröu: greitt atkvœöi eftir sann-
fœringu þinni.
„Ég var nú stuttan tíma utan-
flokka og gat því ekki notið þess
frjálsræðis nema mjög takmark-
aðan tima. Það var þó góð til-
finning að geta beðið um orðið í
utandagskrárumræðu án leyfis
þingflokksformannsins. Það hef-
ur sína kosti og gaUa að vera
einn og eins og ég hef sagt þá
eru dæmi um að þingmenn í
þeirri stöðu komist í oddaað-
stöðu innan þingsins. Þeir geta
einnig einbeitt sér sérstaklega
að sinu kjördæmi og haldið
uppi mun sérhæfðari umræðu
en innan stórs flokks.“
Áherslumál
kjördæmisins
Hver veröa helstu áherslumál
þín?
„Þau verða mörg og snúa að
verulegu leyti að kjördæminu.
Sjávarútvegsmálin verða þar
efst á baugi. Við teljum að
stöðva beri nú þegar frekari
samþjöppun aflaheimUdanna og
berjast hart gegn þeim kröfum
stórútgerðanna að ein einstök
útgerð geti átt 20% allra afla-
heimilda við landið. Taka ber
úr kvóta fisktegundir sem af
vísindalegum ástæðum þurfa
ekki að vera þar og höfum við
bent þar á tegundir eins og
keilu, löngu og skötusel. T-list-
inn telur að allt of hröð sam-
þjöppun aflaheimilda sé að koU-
varpa landsbyggðinni. Kvóta-
kerfið hefur mikla kosti sem
verður að nýta og fátt hefur
unnið betur að stöðugleika í
efnahagslífinu en kvótinn. Það
er samt ekki hollt neinni þjóð
að eiga fjöregg sitt í höndum að-
eins fimm aðila sem gætu þess
vegna allir búið í London. Það
væri ekki betra að eiga við of-
ríki slíkra manna en kommisar-
anna í Brussel.
T-listinn leggur ríka áherslu
á að eignaréttur manna er heU-
agur og stjórnarskrárvarinn.
Fjármálaráðherra er nú að gera
kröfur í bújarðir bænda, þing-
lýstar eignir til að gera að þjóð-
lendum. Stjórnarskrána ber að
virða og þess vegna vinnum við
með bændum í þessu máli.
T-listinn mun vinna að því að
styrkja stöðu ferðaþjónustunn-
ar og fjölga ferðamönnum tU
landsins. Það viljum við gera
meðal annars með því að lækka
gjaldtöku af ferðamönnum til
landsins eins og með lækkun
flugvallarskatta. Einnig höfnum
við sérstakri skattlagningu á
þessa atvinnugrein eins og með
gistináttagjaldi og sérstöku
gjaldi á ferðamannastaði.“
Ráðleysi
heilbrigðisráðherra
„T listinn telur sérstakt átak í
samgöngumálum svæðisins
mjög mikUvægt og gera verði
þar að auki sérstaka áætlun um
hvernig byggja eigi upp sam-
göngumálin til Vestmannaeyja.
Herjólfur er þjóðvegurinn til
Eyja og verðlagningin með skip-
inu verður því að vera í sam-
ræmi við það og ferðir tvisvar á
dag aUt árið. Vinna ber hratt að
rannsóknum fyrir hugsanleg
jarðgöng milli lands og Eyja.
T-listinn vill gera sérstaka
áætlun um hvernig unnið verði
á atvinnuleysinu á þessu svæði.
Það viljum við gera meðal ann-
ars með því að styrkja stöðu
eignarhaldsfélaga, styrkja stöðu
línuútgerðar dagróðrabáta og
fleira.
Að lokum vil ég taka sérstak-
lega tU heilsugæslumálin. Sú
staðreynd blasir við okkur á
Suðurnesjum að heUsugæslan
hefur verið án heilsugæslu-
lækna í bráðum Fimm mánuði.
Ráðleysi heilbrigðisráðherra
virðist algjört. Hann ræður
greinilega ekki við þetta mál og
verður því að segja sig frá því
og fela öðrum að leysa það.
Hann hefur nú skipað nefnd og
er það gott og blessað ef það er
ekki gert til að drepa málinu á
dreif. Þessi nefnd hefur engin
völd til að taka á neinu svo ég
viti til og leysir því vart vand-
ann. Ég vil ekki gefa ráðherra
meira en viku tU viðbótar til að
leysa þetta mál.“
Nú er þaö örugglega þannig
aö flestir sem sitja á þingi stefna
aö því aö veröa ráöherrar. Er
þaö ekki eitthvaö sem þig dreym-
ir um?
„Að sjálfsögðu."
Áttu von á aö þaö veröi?
„Enginn veit sína ævina fyrr
en öll er.“
-KB
hjá okkur.
Sérhver
viðskiptavinur
spv
Sparisjóður
vélstjóra
www.spv.is
og allt, sem tengist fjármálum hans, hefur meira
vægi hjá SPV en hjá stórum fjármálastofnunum.
Þjónusta SPV er alhliða og fagleg og byggir á
persónulegri þekkingu á óskum og þörfum hvers
viðskiptavinar.
Við stöndum þétt við bakið á viðskipta-
vinum okkar því velgengni þeirra
skiptir okkur öllu máli. Styrkur okkar
er traust og örugg f jármálaþjónusta
sem þú getur nýtt þér til vaxtar.
Verið velkomin í afgreiðslustaði okkar í
Borgartúni 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1,
eða fáið upplýsingar í síma 5754100 og
á heimasíðu okkar, sem er www.spv.is