Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Qupperneq 44
48
Helqarhlað H>V
LAUGARDAGUR 29. MARS 2003
Skemmti-
garður
guðanna
I maínæstkomandi verður opnaður í
Bernese Oberland íSviss skemmtigarður
sem er að mestu íeigu metsöluhöfundar-
ins Srichs von Danikens og úraframleið-
andans Swatch. Garðurinn er gamall
draumur Danikens og þar er að finna eftir-
líkingar af nokkrum dularfyllstu mann-
virkjum íheiminum, stóra píramídanum í
Egyptalandi, steinahringnum íStonehenge
og kalkmyndinni íNazca íPerú, svo eitt-
hvað sé nefnt. Tilgangurinn með garðinum
er að gefa fólki tækifæri til að skoða öll
þessi undur á sama stað og að sjálfsögðu
að græða um leið.
Fyrir rúmum þremur áratugum kom út bók
sem hét Erinnerungen an die Zukunft og var eft-
ir svissneska hótelhaldarann og ævintýramann-
inn Erich von Daniken. Bókin vakti gríðarlega
athygli og var strax þýdd á fjölda tungumála.
Loftur Guðmundsson þýddi bókina á íslensku og
hún kom út árið 1972 undir nafninu Voru guð-
irnir geimfarar.
í bókinni, sem hefur selst í nokkrum tugum
milljóna eintaka, og öðrum sem fylgdu í kjölfar-
ið, alls tuttugu og sex, heldur Daniken því fram
aö í trúarbrögðum og goðsögnum megi finna vís-
bendingar um að guðirnir séu geimverur frá
öðrum hnöttum sem hafi heimsótt jörðina. Fjór-
ar af bókum Danikens hafa verið þýddar á ís-
lensku.
Ptramídinn í
Alpafjöllunum
Eitt sýningarhúsið
er eftirgerð af
stóra píranúdan-
um í Giza og ann-
að er Chiehen
Itza, þrepap-
íramídinn frá
Suður-Aineríku.
Inni í píranúdun-
um verður liægt
að kynna sér
menningu Egypta
og hið flókna
dagatal Maya.
Rak hótel nítján ára
Erich von Dániken fæddist í Sviss árið 1935,
hann fékk strangt kaþólskt uppeldi og gekk í
Jesúíta skóla. Sagan segir að á námsárum sínum
hafi hann legið yfir gömlum trúarbragðatextum
og drukkið í sig þekkingu um hver kyns
goðsagnir. Nítján ára gamall hætti hann í skóla
og tók við rekstri fimm stjörnu hótels og skrif-
aði Voru guðirnir geimfarar. í frítíma sínum. Á
meðan hann vann að bókinni taldi hann sig
þurfa að fara í vettvangsferð og fékk að „láni“
fjögur hundruð þúsund franka úr sjóði hótelsins
og ferðaðist um Egyptaland, Líbanon og Suður-
Ameríku. Dániken var kærður fyrir þjófnað og
fór málið fyrir dóm um svipaö leyti og bókin
Mystery Park
Eitt sýningarhúsið er eftirgerð af stóra píranúdanuin í Giza og annað er Chichen Itza, þrepapíramídinn frá
Suður-Ameríku. Inni í píramidunum verður hægt að kynna sér menningu Egvpta og hið flókna dagatal Maya.
Metsöluhöfundur og svindlari
Erich von Dániken fæddist árið 1935, hann fékk
strangt kaþólskt uppeldi og gekk í Jesúíta skóla.
Sagan segir að á námsáruin sínuiu hafi hann legið
yfir gömluin trúarbragðatextum og drukkiö í sig
þekkingu uiii liver kvns goðsagnir.
Leikvöllur guðanna
Í garðinum, sem stendur á göinlum herflugvelli í
Bernese Oberland í Sviss, verður að finna á einum
stað cftirlíkingar af nokkrum dularfvllstu mannvirkj-
um í heimi.
kom út. Málið vakti mikla athygli og bókin seld-
ist vel í kjölfar fréttaflutnings um það. Hann var
dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir fjár-
drátt og skjalafals og skrifaði aðra bókina sína í
fangelsi.
Skömmu eftir útkomu fyrstu bókarinnar var
gerð mynd eftir henni. Myndin sem heitir Leit-
in að fornum geimförum naut mikilla vinsælda
í Bandaríkjunum og 1996 gerði ABC-sjónvarps-
stöðin klukkutímaþátt þar sem fjallað er um
Dániken og hugmyndir hans. Árið 1993 gerði
þýsk sjónvarpsstöð tuttugu og fimm þætti
byggöa á kenningum hans.
Dániken býr í Beatenberg í Sviss ásamt eigin-
konu sinni, Elisabeth Skaja, sem hann giftist
árið 1960. Hann hefur mikinn áhuga á matargerð
og dálæti á vínum frá Bordeaux.
Dularfull mannvirki
Nýjasta ævintýri Dánikens er bygging
skemmtigarös sem gengur undir heitinu My-
stery Park. í garðinum, sem stendur á gömlum
herflugvelli í Bernese Oberland í Sviss, verður
að finna á einum stað eftirlíkingar af nokkrum
dularfyllstu mannvirkjum í heimi. Sýningarhús-
in, sem eru átta, mynda hring sem er tengdur
saman með yfirbyggðum gangi. Ef áætlanir
ganga eftir verður garðurinn opnaður almenn-
ingi tuttugasta og fjórða maí næstkomandi og
verður opinn alla daga ársins frá klukkan tíu á
morgnana til klukkan sautján þrjátíu síðdegis.
í einU sýningarhúsinu verður að finna eftir-
gerð Vimana-hofsins í Norður-Indlandi og þar
geta gestir skoöaö teikningar sem eru í hofinu
og sýna geimborg og menn í einhvers konar
flugförum við reykelsisilm og undirleik ind-
verskra sítartóna. Eitt sýningarhúsið er eftir-
gerð stóra píramídans í Giza og annað af
Chichen Itza, þrepapiramídanum í Suður-Amer-
íku. Inni í píramídunum verður hægt að kynna
sér menningu Egypta og hið flókna dagatal
Maya. Þeir sem vilja skoða steinahringinn í Sto-
nehenge geta gert það í einu húsanna, hægt
verður að ganga inn á milli steinanna og lesa
sér til um þá. Einnig verður hægt að kynnast
„cargo cult“, menning frumbyggja Nýju-Gíneu
og eftirlíkingu af væntanlegum bústað manna á
plánetunni Mars.
Frjálslega farið með heimildir
Þrátt fyrir að kenning Dánikens um að guðirn-