Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2003, Page 54
58 HelQCtrblað I> V LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 Vændi á íslandi T n Kærur i/egna vændis á íslandi eru óþekkt- ar. Samt qegmir sagan nokkur dæmi um uændi íRegkjavík og samkvæmt rumlega ársqamalli skgrslu um vændi á Islandi er staðfest að það var fglgifiskur nektar- dansstaða sem spruttu upp 1995 til 2000. Netið er ngr vettvangur fgrir lítt dulið vændi sem er augljóslega stundað á Is- landi rétt undir gfirborði samfélagsins. Þaö hefur mikið verið ritað og rætt um vændi á ís- landi undanfarin misseri. í kjölfar nektardansstaða og aukins frjálsræðis og frjálslyndis á ýmsum sviðum telja margir líklegt að vændi hafi aukist á íslandi. Vændi hefur oft verið kallað elsta atvinnugrein mannkynsins og virðist sú nafngift eiga með einhverj- um hætti að ljá því meiri þegnrétt eða aukið vægi. Með sömu rökum mætti kalla morð og pyntingar at- vinnugrein því lengi hefur slík iðja verið fylgifiskur mannkyns. Þegar velta skal því fyrir sér hvort vændi hafi lengi viðgengist á íslandi er svarið auðvitað já. Þórbergur Þórðarson var sá íslenskra rithöfunda sem mest sagð- ist elska sannleikann og þegar hann lýsir lífinu í Reykjavík á fyrstu tveimur tugum 20. aldarinnar bregöur vændi þar fyrir. Annars vegar segir Þórberg- ur frá lífinu í Unuhús.i eins og Stefán skáld frá Hvíta- dal lýsti því fyrir honum, og þar segir af léttlyndum stúlkum sem vöndu komur sínar í þetta hús skáld- anna en á þeim og fleiri stúlkum í Reykjavík lá það orð um þessar mundir að þær tækju aura fyrir að „gera hitt“. Þórbergur sjálfur fór eitt sinn í kompaníi við félaga sinn og allífið upp í kirkjugarð og hafði þar samfarir við stúlku utan af Seltjarnarnesi sem kunninginn hafði útvegað gegnum einhvern kunningja. Ekki er þess getiö hvort stúlkan tók eitthvað fyrir greiðann í þetta skipti en þeir kumpánar hittu hana nokkrum sinnum og hættu því svo þegar hún fór aö fara fram á greiðslur sem þeirra fjárhagur leyfði augljóslega ekki. Smitandi lauslæti? Næstu heimildir sem við höfum um vændi á íslandi eru allumfangsmiklar en það eru stríðsárin þegar ríkti í Reykjavík og víðar á íslandi eitthvað sem kall- að var „ástandið" og talað var um að konur lentu í ástandinu. Þar var átt við konur sem höfðu náin kynni af breskum hermönnum og síðar bandarískum. Margt af því sem sagt var og skrifað um „ástandið" var auðvitað undarlegt sambland af þjóðernisremb- ingi, öfund og einhvers konar hysteríu. í merkri bók sem þeir Bjarni Guðmarsson og Hrafn Jökulsson skrifuðu um ástandsárin og kom út 1989 er vitnað í skýrslu sérstakrar ástandsnefndar í Reykjavík sem kanna átti siðferðisástandið í bænum og starfaði einkum árið 1941. í niðurstöðum nefndarinnar segir: „Sumar stúlkurnar selja sig og mun það vera nýtt fyrirbrigði hér á landi að fjöldi kvenna selji blíðu sína. Þó munu þær konur, er mök hafa við setuliðs- menn, vera í minni hluta er selja sig og kemur víöa fram sú skoðun þeirra að þetta sé ekki þess vert.“ Þegar ástandsnefndin skilaði áliti sínu fylgdu með tvær lögregluskýrslur. Þar var að finna frásagnir 15 og 16 ára stúlkna sem selt höfðu sig hermönnum og kostaði hvert skipti 30 krónur. Ríkisstjórn íslands brást við með lagasetningum sem heimiluðu talsverð afskipti af fólki innan 20 ára aldurs og mátti grípa inn í yrði vart við lauslæti, drykkjuskap, slæpingshátt eða óknytti. Þetta aldurstakmark var lækkað árið eft- ir í 18 ár enda blöskraði mörgum hve langt ríkisvald- ið var til i að seilast inn í einkalíf fólks meö þessum lögum. Einnig var fröken Jóhanna Knudsen ráðin sér- staklega til lögreglunnar til að reyna að stemma stigu við vændislifnaði. Hún taldi aö líta bæri á stúlkur sem leiöst hefðu út í vændi sem sjúklinga meö hættu- lega, smitandi sjúkdóma sem veita ætti bestu að- hlynningu svo þeir smituðu ekki frá sér. Reynt var að koma „sýktum" stúlkum fyrir í sveit, nánar tiltekið á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði, en óttalegt sleifar- lag virðist hafa verið þar á flestum hlutum og stúlk- umar struku unnvörpum með því að fara á puttanum í bæinn. Unuliús var ekki aðeins athvarf skálda og listanianna í upphafi síðustu aldar. Þangað vöndu líka komur sínar stúlkur sem sagt var að tækju aura fyrir að „gera hitt“. Upphafssíða einkamal.is sem er vinsælasta vefsíða á fslandi. Þar eru 40 þúsund skráðir félagar. Vilji menn finna lítt dulbúnar vændisauglýsingar þar er „fjárhagslega sjálfstæður1' dulmálið sem allir nota. Vændishús við Hverfisgötu Snemma á stríðsárunum gerði lögreglan hins vegar talsveröa rassíu í gistihúsi við Hverfisgötu 32 þar sem öldruð kona, Þuríður Þórarinsdóttir, rak gistihús. Þessi gististaður hafði á sér vægast sagt skuggalegt orð en þangað leituðu hermenn með stúlkum sem seldu blíðu sína og léigöu herbergi í skamman tíma. Þessu fylgdi mikil áfengisneysla og óreiöa af því tagi sem lögreglan hefur alltaf átt bágt með að þola. Að minnsta kostii tvær stúlkur, sem voru handteknar í gistihúsinu, viöurkenndu að hafa vanið komur sínar þangað í þeim tilgangi að hafa mök við hermenn gegn greiðslu. Önnur stúlkan nefndi við lögregluna nöfn fleiri stallsystra sinna sem hún sagði að kæmu þarna í sömu er- indagjörðum. Þetta voru nöfn eins og Lísa lufsa, Lísa ljóshærða, Bíbí, Gauja, Steina, Jóna systir hennar, Lúlla líkaböng og Lúlla sem býr með Jensen. Hún sagðist hafa séð þarna margar fleiri stúlkur án þess að vita nöfn þeirra. Hún sagði líka að hermennirnir hefðu stundum gefið sér peninga fyrir að vera með sér og stundum gjafir eins og und- irföt og sokka. Frú Þuríður mætti til yfirheyrslu vegna þessa máls þótt nær áttræðu væri og staðfesti að henni væri full- kunnugt um þá starfsemi sem fram hefði farið á gistihúsi hennar enda mætti öllum vera ljós tilgangur herbergisleigu eins og þar fór fram til hermanna og barnungra stúlkna. í framhaldinu lokaði lög- reglan gistihúsi frú Þuríðar og hún leigði húsið breska hemum. í áðurnefndri bók Bjarna og Hrafns, sem ber nafn- ið Ástandið, er viðtal við aldraða konu sem tók þátt í þvi lífi sem lifað var á stríðsárunum og umgekkst her- menn mjög mikið. Hún segir svo frá: „Þetta voru ágætir strákar sem ég var með. Sumir vildu borga mér en ég þáði aldrei krónu. Þegar ég fór að búa ein bauð ég stundum hermönnum heim til mín en ekki nema ég þekkti þá vel. Þeir gáfu mér stund- um gjafir til dæmist mat og sígarettur og jafnvel nær- fót. En ég þekkti stelpur sem tóku peninga. Þaö var kannski ekki skrýtið, margar þeirra voru bláfátækar. Ég vissi hins vegar vel um skipulagt vændi í bænum og það voru íslenskir karlmenn sem stjórnuðu því... En það voru ekki bara smástelpur eða fátækar ungar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.