Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003
DV
Fréttir
rrrfejýnrlCTmMgmp
r#9mm iiyn-ir ypriö rlýfr
yyfóur Lirrirerð: hbyptá rri
&trRrajriTáuOc; *•-**%s
am mm WFm / 4 11 I Ný mislæg gatnamót á Reykjanesbraut
n íi—ríiii/- fQQififiiii ciifoo mon
tu uu /u itwimiiii oiyofl inou
mmm^m^^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm WW mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm Breiöholtsbrautar og Nýbýlavegar.
nvium gatnamotum á Revkianesbraut
Vegagerðin í samvinnu við
Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ
stendur nú að gerð mislægra
gatnamóta á mótum Reykjanes-
brautar, Stekkjarbakka og
Smiðjuvegar. Vinna við jarðvegs-
framkvæmdir hófst fyrir
nokkrum dögum, en gert er ráö
fyrir að umferð veröi hleypt á allt
mannvirkið í byrjun nóvember,
en endanlegum frágangi verður
síðan lokið á næsta ári. Búast má
viö að umferðaröryggi á þessu
svæði verði mun meira með til-
komu þessa mannvirkis, eða allt
að 40-50% fækkun bæði eignatjón-
sóhappa og slysa.
Verkfræöistofan Línuhönnun
sá um hönnun mannvirkisins í
samstarfi við Studio Granda og
Landmótun. Ávinningur af þessu
verkefni er helst sá að plangatna-
mótum viö Reykjanesbraut fækk-
ar um þrenn, tenging milli Stekkj-
arbakka og Smiöjuhverfis sem og
tengingar við Reykjanesbraut
batna mikið. Einnig verða teng-
ingar fyrir gangandi og hjólandi
vegfarendur milli hverfa og úti-
vistarsvæða betri með tilkomu
nýrra stíga, göngubrúar og undir-
ganga.
Verkið var boðið út á Evrópska
efnahagssvæðinu. Áætlaður verk-
takakostnaður var 788 milljónir
króna. Tilboð voru opnuð 10.
mars 2003 og buðu sex aðilar I
verkið, en tíu aðilar buðu í eftir-
litsþátt framkvæmdanna. Um
verktakahlutann var samið við
Jarðvélar ehf. sem bauð
688.405.193 krónur eða 87,4% af
kostnaðaráætlun. Þá var einnig
samið um að Sveinbjörn Sigurðs-
son ehf., Reykjavík, yrði þeirra
undirverktaki. Varðandi eftirlits-
þáttinn var samið við Fjarhitun
ehf., verkfræðistofu sem bauð
15.988.500 krónur í verkið en
kostnaðaráætlun hljóðaöi upp á
18,5 milljónir króna.
Brúin yfir Reykjanesbraut
Linuhönnun sá um hönnun mannvirkisins i samstarfi viö Studio Granda og
Landmótun
Tvær brýr
Til framkvæmdanna telst gerð
tveggja brúa á Stekkjarbakka yfir
Reykjanesbraut, gerð göngubrúar
yfir Reykjanesbraut, gerö undir-
ganga undir Stekkjarbakka auk
allrar vegagerðar, stígagerðar og
landmótimar sem nauðsynleg er
til að ljúka verkinu endanlega.
Sem dæmi um umfang verkefn-
isins fara í brúarsmíðina 1.900
rúmmetrar af steinsteypu og 194
tonn af steypustyrktarjárni. Þá
fara í verkið 43,6 tonn af spenni-
stáli og 77 tonn af smíðastáli.
Vegna vegagerðar eru fluttir til
yfir 300.000 rúmmetrar af efni og í
vegina fara 35.000 fermetrar af
malbiki.
Umferð skal vera komin á
mannvirkin samkvæmt útboði
þann 1. nóvember 2003 og verki
skal vera að fullu lokið 1. júlí 2004.
-HKr.
wKm í A&m 1 \ 1
M '
ftno* L_- i
DVA1YND HARI
Framkvæmdir vlð ný mislæg gatnamót
Stórvirkar vinnuvélar verktaka eru nú í óöaönn aö fiytja til jaröveg vegna nýju mislægu gatnamótanna.