Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 37 - keppni i hveriu orði Tveir leikir fóru fram í meistaradeild Evrópu í gærkvöld: Kassa b - leikmenn Real Madrid sýndu sínar bestu hliöar gegn Evrópumeistarar Real Madrid sýndu allar sínar bestu hliðar þegar liðið tók á móti Manchester United á Santiago Bernabeau-leikvangin- um í gærkvöld í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum. Real Madrid fór með sigur af hólmi í leiknum, 3-1, og var aldrei spuming hvoru megin sigurinn myndi lenda. Luis Figo kom spænska liðinu yfir á 12. mín- útu með fallegu marki og Raul Gonzalez bætti öðru marki við á 28. mínútu. Á þessum kafla fóru leik- menn Real Madrid hreinlega á kost- um og léku sér að leikmönnum Manchester United eins og köttur að mús. Fjórum mínútum eftir að flautað var til síðari hálfleiks skor- aði Raul þriðja mark Real Madrid og annað mark sitt og staða enska liðsins varð enn skuggalegri. Hol- lenski markahrókurinn Ruud Van Nistelrooy náði að minnka muninn í 3-1 þremur mínútum síðar og get- ur það mark reynst Manchester United dýrmætt í seinni leiknum eftir tvær vikur. Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum - öruggur sigur Real Madrid staðreynd og tveggja marka forysta fyrir ferðalag- ið til Manchester. Sanngjörn úrslit Alex Ferguson, knattspymustjóri Manchester United, var brattur eft- ir leikinn þrátt fyrir að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði en sagði þau sanngjöm. „Mér fannst þetta vera sanngjörn úrslit. Við áttum okkar möguleika og ég var ánægður með sóknarleik- inn í síðari hálfleik. Við skoruðum mikilvægt mark á útivelli og það er sennilega það besta sem gerðist í kvöld,“ sagði Ferguson eftir leikinn. „Þeir gerðu okkur lífið leitt með frábærum sendingum og sýndu og sönnuðu að þeir eru með stórkost- legt lið. Við getum síðan sjálfum okkiu- um kennt með mörkin sem við fengum á okkur - þau voru af ódýrari gerðinni," sagði Ferguson og bætti við að það væri gífurlega mikilvægt fyrir sina menn að verða fyrri til að skora á Old Trafford í seinni leiknum. „Ef við skorum fyrsta markið þá tryllist allt á vellinum og möguleik- a‘r okkar aukast til muna - þetta er langt frá því að vera búið.“ David Beckham var mjög ósáttur við byrjunina hjá Manchester United og sagði að hún hefði eyði- lagt leikinn. „Fyrri hálfleikur var mjög erfið- ur. Við bárum alltof mikla virðingu fyrir þeim og leyfðum þeim að gera það sem þeir vildu. Leikurinn var jafnari í seinni hálfleik og markið sem við skoruðum gefur okkur möguleika fyrir seinni leikinn." Pögn í búningsklefanum Englendingurinn Steve Mc- Manaman, sem sat allan tímann á varamannabekk Real Madrid í leiknum, sagði að stemningin í bún- ingsklefanum hjá Real Madrid hefði verið róleg eftir leikinn þrátt fyrir sigurinn. „Við hefðum ekki átt að fá þetta mark á okkur. Það ríkti þögn í bún- ingsklefanum eftir leikinn enda voru menn mjög ósáttir við að halda markinu ekki hreinu. Mér fannst leikmenn Manchester United spila mjög varfæmislega og ég hef aldrei séð liðið gefa okkur jafnmikinn tíma með boltann eins og í kvöld. Það hjálpaði okkur mikið,“ sagði McManaman. Fernando Hierro, fyrirliði Real Spænski framherjinn Raul Gonzalez skoraöi tvö marka Real Madrid í sigrinum á Manchester United og hér aö ofan sést hann fagna seinna marki Roberto Carlos, Claude Makalele og Zinedine Zidane fagna hér ásamt Luis Figo en hann skoraöi fyrsta mark Real Madrid í leiknum. Reuters sínu í leiknum. Madrid, sagði eftir leikinn að tveggja marka sigur gegn Manchest- er United gæti ekki talist slæm úr- slit. „Þetta voru góð úrslit þó að það hefði að sjálfsögðu verið betra að vinna 3-0. Markið gefur leikmönn- um Manchester United meiri von fyrir seinni leikinn en þetta voru ekki slæm úrslit því við vorum að spila á móti frábæru liði,“ sagði Hi- erro. Frábær varnarleikur Milan Vamarmenn AC Milan lögðu grunninn að markalausu jafntefli gegn Ajax í Hollandi í gærkvöld í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar. Þeir Al- essandro Nesta, Paolo Maldini, Al- essandro Costacurta og Dario Simic reyndust ókleifur múr fyrir sóknar- menn Ajax sem vom mun meira með boltann en tókst varla að skapa sér færi, þökk sé frábærum leik fjór- menninganna. Leikurinn endaði, eins og áður sagði, með markalausu jafntefli; góð úrslit fyrir ACMilan en að sama skapi geta leikmenn Ajax reynst þeim skeinuhættir í seinni leiknum þegar ítalamir þurfa að sækja. Fengum varla færi Ronald Koeman, þjálfari Ajax, var hundfúll eftir leikinn en viður- kenndi að það hefði reynst sínum mönnum þrautin þyngri að brjóta vöm AC Milan á bak aftur. „Við ætluðum okkur að skora í þessum leik en því miður fengum við varla tækifæri í leiknum. Fyrstu tuttugu mínútur leiksins vom erfið- ar fyrir.okkur en eftir að við náðum tökum á leiknum hleyptum við AC Milan aldrei aftur inn í hann. Ég er Reuters ánægðastur með hversu sterkir við vorum í vöminni. Leikmenn AC Milan sköpuðu sér nánast engin færi í leiknum og miðað við mann- skapinn sem þeir hafa í sókninni hjá sér er það ekki lítið afrek. Þrátt fyrir þessi úrslit erum við ekki úr leik. Við höfum áður sýnt það í þessari keppni að við getum auð- veldlega skorað á erflðum útivöllum og það er nákvæmlega það sem við ætlum okkur að gera i Mílanó að tveimur vikum liðnum," sagði Koeman eftir leikinn. Allt enn opið Carlo Ancelotti, þjálfari AC Mil- an, var ánægður með vamarleikinn hjá sínum mönnum en að sama skapi ónægður með sóknarleikinn. „Jafntefli er jákvætt fyrir okkur en það sem veldur mér áhyggjum er að við leyfðum Ajax að stjóma leiknum. Við vorum ekki nógu kraftmiklir í sókninni og það gerði það að verkum að við lentum meira og minna í því að spila vöm. Við spiluðum mjög góða vöm í leiknum en það gekk lítið upp í sókninni. Við sköpuðum okkur varla færi og það er eitthvað sem þarf að breytast fyrir seinni leikinn í MOanó. Það er enn allt opið og við höfum áður sýnt að við getum spilað frábæra knatt- spymu á heimavelli,“ sagði Carlo Ancelotti eftir leikinn. í kvöld fara fram seinni tveir leik- imir í átta liða úrslitunum. Þá tek- ur Inter Milan á móti Valencia á San Siro-leikvanginum og Barcelona sækir Juventus heim á Delle Alpi í Tórínó. Seinni leikir liðanna fara fram að tveimur vikum liðnum og þá spila liðin sem léku í gærkvöld á mið- vikudag og öfugt. -ósk Mörg HðáefOr Reyni Reynir Þór Reynisson, sem varið hef- ur mark Aftureldingar i Essó-deildinni undanfarin ár, mun að öllum líkindum ekki standa á milli stanganna hjá félag- inu næsta vetur. Mörg lið hafa sett sig í samband við Reyni Þór en samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV-Sports bendir allt til þess að hann haldi í heimahagana og spili með Víkingi á komandi vetri. MEÍSTARADEILD m Átta liða úrslit, fyrri leikir Real Madrid-Man Utd ..........3-1 1- 0 Luis Figo ................12. 2- 0 Raul Gonzalez.............28. 3- 0 Raul Gonzalez.............49. 3-1 Ruud van Nistelrooy........52. Real Madrid: Iker Casillas, Miguel Salgado, Fernando Hierro, Ivan Helguera, Roberto Carlos, Luis Figo, Flavio Conceicao, Zinedine Zidane, Claude Makelele, Raul Gonzalez, Ron- aldo (83., Jose Maria Guti). Man. Utd: Fabien Barthez, Gary Neville ( 86., Ole Gunnar Solskjaer), Rio Ferdinand, Wes Brown, Mikael Sílvestre (58., John O'Shea), David Beckham, Roy Keane, Nicky Butt, Ryan Giggs, Paul Scholes, Ruud van Nistelrooy Gul Spjöld: Gary Neville, Roy Kea- ne, Paul Scholes, Ruud van Nistel- rooy (Man. Utd). Áhorfendur: 75.000. Dómari: Anders Frisk (Sviþjóð). Ajax-AC Milan ................0-0 Ajax: Bogdan Lobont, Hatem Tra- belsi, Christian Chivu, Petri Pasanen (73., Nigel De Jong), John O'Brien, Tomas Galasek (67., Wesley Sneijder), Steven Pienaar, Andrede Maxwell, Abubakari Yakubu, Rafael Van der Vaart, Zlatan Ibrahimovic (73., Jari Litmanen). AC Milan: Nelson Dida, Paolo Mald- ini, Alessandro Nesta, Dario Simic, Alessandro Costacurta, Gennaro Gattuso, Rui Costa, Clarence Seedorf (26., Serginho), Massimo Ambrosini, Andriy Shevchenko (79., Rivaldo), Filippo Inzaghi (73., Jon Dahl Tomas- son). Gul spjöld: Massimo Ambrosini, Gennaro Gattuso (AC Milan) Áhorendur: 50.967. Dómari: Terje Hauge (Noregi).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.