Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 Fréttir I>V Utlenskir knattspyrnukappar mega ekki hreyja sig í beinni útsendingu án þess að allt verði vitlaust á mörgum helstu öldurhúsum bœjarins. Ný menning hefur rutt sér rúms - bjór í beinni. / Biór. bottl&brjálaðar bulur miðbæ Reykjavíkur var talsverð- ur fjöldi knattspyrnuáhugamanna mættur til að fylgjast með viður- eigninni. Þorgeir Ingólfsson var einn þeirra en hann er einlægm- aðdáandi Manchester-liðsins. Hann var nokkuð bjartsýn fyrir leikinn og taldi sína menn ekki myndu eiga undir högg að sækja þótt leikið væri á heimavelli Ma- drídarliðsins. „Ég veit nú ekki alveg hvemig þetta fer en ég hallast að því að við náum jafntefli," sagði Þorgeir fyrir leikinn. Björn Berg Gunnarsson var einnig staddur á Glaumbar til að fylgjast með leiknum þótt hann væri stuðningsmaður Liverpool. Hann sagðist frekar halda með Manchester United í þessum ákveðna leik þrátt fyrir að hans menn frá Bítlaborginni hefðu tap- að stórt fyrir Rauðu djöflunum um liðna helgi. „Ég held frekar með Manchest- er heldur en Real í þessum leik. Manchester-liðið er mjög öflugt og spilar skemmtilegan fótbolta, svo heldur maður líka tryggð við ensku liðin í svona keppnum. Ég hallast að því að þetta verði jafn- tefli, 1-1.“ Mikill hiti í mannskapnum Á Ölveri var bekkurinn þétt set- inn og talsverð stemning meðal Manchester-manna þegar leikur- inn hófst. Það átti hins vegar fljót- lega eftir að draga af mönnum því eftir um 12 mínútna leik skoraði portúgalski landsliðsmaðurinn Figo fyrir Real Madrid og kom heimamönnum þar með yFir í leiknum. Blótsyrði heyrðust þá víða úr salnum á meðan aðrir fógnuðu. Þegar blaðamaður DV Glaðir Madrídarbúar Þessi hópur Spánverja skemmti sér vei yfir leiknum á Players í gær enda fóru peirra menn í Real oft og tíöum á kostum. Sannkölluð stórviðureign fór fram í meistaradeild Evrópu í knattspymu í gær þegar heima- menn í Real Madrid tóku á móti Rauðu djöflunum frá Manchester. Mikið hefur verið rætt og ritað um þessa viðureign meðal knatt- spyrnuáhugamanna síðan að ljóst var að liðin myndu mætast í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðin þykja vera tvö af þeim bestu í heiminum um þessar mundir og því var eftir- vænting stuðningsmanna liðanna, sem og annarra áhugamanna um íþróttina, mikil þegar flautað var til leiks í gær. Jafntefli líkiegast Mikill fjöldi var samankominn á sportbörum borgarinnar til að fylgjast með leiknum í beinni út- sendingu í gærkvöld. Stuðnings- menn Manchester United virtust vera í miklum meirihluta við- staddra enda nýtur enska knatt- spyrnan fádæma vinsælda hér á landi. Einhverjir voru klæddir búningi liðsins svo að ekkert færi á milli mála með hverjum þeir héldu. Stuðningsmenn Real-liðs- ins frá Spáni létu hins vegar minna fyrir sér fara, alla vega framan af kvöldi. Á Glaumbar í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.