Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.2003, Page 20
20 MIÐVTKUDAGUR 9. APRÍL 2003 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 21 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aöalritstjóri: Óli Bjöm Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, bladaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 5S0 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Rltstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrl: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl viö þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Sér er hver staðfestan Rétt í þann mund sem herir Bandaríkjamanna og Breta eru aö ganga af karlinum Saddam Hussein dauðum suður á bökk- um Tígris og spítalar eru að yf- irfyllast af blóöugum borgurum landsins rikir á að giska grafar- þögn um níðingsskap ísraela í Palestínu. Fimmtíu ára hefð fyrir landstuldi gyðinga á þessu svæði er vitaskuld sterkari en svo að hún verði rofin af alþjóðaherjum. Óþægilega oft snúast alþjóðalög ekki um grundvallarrétt heldur pólitiska duttlunga. ísraelsmenn eru ekki arabar. Það eru hugsanlega þeirra forréttindi. Allir vita hvemig málum væri háttað ef sög- unni væri snúið á hvolf í landinu helga. Alþjóðaherir stæðu þar gráir fyrir jámum á hverju götuhorni ef Palest- ínumenn væru búnir að stela stærstum hluta af landi ísra- ela og brjóta heimili þeirra og skóla og sjúkrahús. Þvílík- ur yfirgangur og óréttlæti væri vitaskuld ekki liðinn og næsta auðvelt að vísa í þeim efnum í ibyggnar samþykkt- ir Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Þannig háttar málum í Austurlöndum nær að einum lýðst að brjóta alþjóðalög en öðrum ekki. Einum lýðst að níðast á nágrönnum sínum en öðrum ekki. Enda þótt Saddam Hussein vegi vísast þyngra en Ariel Sharon og fyrirrennarar hans í djöfulskap og vonsku er enginn eðl- ismunur á því hvernig þessir þjóðarleiðtogar hafa brotið alþjóðlega sáttmála og lög. Og er nú svo komið að annar er réttdræpur hvar sem hann finnst en hinn er aufúsu- gestur á meðal staðfastra rikja. Nágrannaerjur ísraelsmanna og Palestínumanna verða ekki leystar nema að tilstuðlan erlendra sáttasemjara. Enda þótt athygli heimsins sé öll á írak þessa dagana sprengja ísraelar upp heilu fjölskyldurnar í leit að bófum, nú síðast í gær. Sambúð þjóðanna er erfiðari en nokkru sinni og mun liklega versna enn frekar á næstunni. Það er einkum vegna þess að alþjóðasamfélagið hefur ekki þorað að taka á vandanum og leyft lögbrjótunum að fara sínu fram. Nýtt járntjald er að falla. Það er ekki fyrr búið að lyfta því af Evrópu en það fellur í landinu helga. Landtöku- byggðirnar breiðast út um alla Palestínu. Palestínumenn ráða nú aðeins yfir tíunda hluta þess lands sem þeir höfðu til umráða eftir að ísrael var stofnað fyrir ríflega hálfri öld. Og landtakan hefur aukist svo mjög á allra síðustu árum að fullyrða má að Palestínumenn séu fyrir löngu orðnir fangar í eigin landi. Og það litla sem þeir eiga er eyðilagt með jöfnu millibili. Tvískinnungurinn sem nú ríkir í þessum heimshluta er augljós þótt athyglin beinist annað. Hann er í hæsta máta aumkunarverður. Það er á þessum tímum sem orðið stað- festa fær nýja merkingu og staðfastar þjóðir leyfa sér að leggjast í víking gegn einum bófa á meðan aðrir hafa þög- ult einkaleyfi á þjösnaskap og þjóðarníði. Og þetta einka- leyfi er endumýjað með reglubundnum hætti og hefur nú dugað hálfa mannsævi. Sér er nú hve staðfestan og sér er nú hver samkvæmnin. ísraelsmenn hafa á allra siðustu mánuðum eyðilagt um tvö hundruð heimili Palestinumanna til að vinna land fyr- ir nýja járntjaldið sitt. Frá þvi palestínska þjóðin tók sig saman og mótmælti yfirgangi ísraela í september 2000 hafa herir og jarðýtur Ariels Sharons stökkt á sjötta þús- und aröbum á flótta frá fóðurlandi sínu. Og svona rétt i anda smekkvísinnar hafa ísraelsmenn á þessum tima eyðilagt að jafnaði um 40 flóttamannaskýli á mánuði. Með okkar þögla leyfi. Sigmundur Emir Skoðun Þegar skoöanakönnun DV á landsvísu, sem birt var í blaðinu síðastliðinn fostudag, er borin sam- an við úrslit síðustu þingkosninga viröast einna mestar sviptingar liggja í loftinu í Norðausturkjör- dæmi. Einhverra hluta vegna sker þetta kjördæmi sig úr að ýmsu leyti. Margir óákveðnir Úrtakið í könnuninni var 1.800 manns, 300 í hverju kjördæmi. At- hygli vekur að í Norðausturkjör- dæmi voru flestir óákveönir eða 40% aðspurðra. Að jafnaði voru 31,1% óákveðin í könnuninni. Nið- urstöðunum ber auðvitað að taka með þessum fyrirvara. Engu að síð- ur eru í könnuninni vísbendingar um talsverðar sviptingar. Samfylkingin á flugi Samfylkingin fær 33,3% fylgi í könnuninni og er fylgi flokksins hvergi meira nema í Suðvestur- kjördæmi. Þetta yrði algjör við- snúningur frá síðustu þingkosning- um en þá var flokkurinn hvergi veikari en á þessu svæði. Samkvæmt könnuninni myndi flokkurinn nær tvöfalda fylgi sitt á svæðinu frá síðustu kosningum; vegið meðaltal úr gömlu kjördæm- unum tveimur gaf Samfylkingunni 18,3% i kosningunum. Frjálslyndi flokkurinn margfald- ar fylgi sitt og fer úr rúmum 2% í tæp 9% og nær kjördæmakjörnum manni. Þess má geta að oddvitar beggja þessara lista eru frá Siglufirði, þeir Kristján L. Möller og Brynjar S. Sigurðsson. Báðir eru „nýliðar“ í kjördæminu því að Siglufjörður til- heyrði áður Norðurlandskjördæmi vestra. Þar eru ríflega eitt þúsund manns á kjörskrá og ef marka má úrslit sveitarstjórnarkosninganna í fyrra ætti Samfylkingin að njóta góðs af, því að Siglufjarðarlistinn (sem á rætur í Alþýðuflokki og Al- þýðubandalagi) fékk hreinan meirihluta en eitt framboð hefur ekki fengið hreinan meirihluta á Siglufirði frá 1938. Bullandi vandræði Aðrir flokkar eiga í miklu basli í þessu nýja kjördæmi samkvæmt könnuninni. Þetta er langsamlega veikasta kjördæmi Sjálfstæðis- flokksins sem fær þarna 22,2%, næstum því þriðjungi minna fylgi en í Norðvesturkjördæmi þar sem fylgi flokksins er þó næstminnst. Að vísu voru gömlu kjördæmin tvö einhver veikustu kjördæmi flokks- ins í síðustu kosningum, en þótt fylgið væri minna en víðast annars staðar tókst Halldóri Blöndal þó að leiða flokkinn til sigurs í Norður- landskjördæmi eystra. Samkvæmt úrslitum síðustu kosninga ættu gömlu kjördæmin tvö á þessu svæði að mynda sterkasta kjördæmi Framsóknar og flokkurinn ætti að eiga sigurinn nokkuð vísan. í könnun DV var Framsókn hins vegar þriðji stærsti flokkurinn í kjördæminu og Suöur- landskjördæmi tekið við sem sterkasta kjördæmi flokksins. Vinstri-grænir eiga ekki síður í vandræöum. Miðað við síðustu kosningar ætti Norðausturkjör- dæmi að vera þeirra langsamlega sterkasta kjördæmi; flokkurinn hefði raunar orðið stærri en Sam- fylkingin í sameinuðu kjördæmi 1999. Samkvæmt könnuninni er fylgi Vinstri-grænna aðeins þriðj- ungur af fylgi Samfylkingarinnar og formanninum, Steingrími J. Sig- fússyni, gengur verr að afla flokkn- um fylgis en flokkssystkinum hans í Norðvesturkjördæmi og Reykja- vík-suður. Toppsætiö ekki tryggt Enn eiga 40% kjósenda í Noröausturkjördæmi eftir aö gera upp hug sinn en miöaö viö þá sem taka afstööu yröi oddviti Sjálfstæöisflokksins - og forseti Alþingis - 3. þingmaöur kjördæmisins. Fylgi Sjálfstæöisflokksins er hvergi minna en í kjördæmi hans og Ijóst aö allt kapp veröur lagt á aö höföa tii þeirra sem enn eiga eftir aö gera upp á milli flokkanna. [ Sviptingar í Norðausturkjördæmi: B D | m s U Alþingiskosningar 1999: Noröurlandskjördæmi eystra 29,2% 29,8% ! 1,9% 16,8% 22,0% ] Austuriandskjördæmi 38,4% 26,3% ! 2,9% 21,2% 11,0% I Noröausturkjördæmi 31,6% 29,0% 2,2% 18,3% 18,6% Könnun DV 3. apríl 2003: Noröausturkjördæmi 24,5% 22,2% | 8,9% 33,3% 10,6% Kristián L. Moller Oddviti lista Samfylkingarinnar er aö brjóta undir sig ný lönd því að Siglufjöröur var áöur í Noröuriands- kjördæmi vestra. Brynjar S. Sigurösson Þessi tiitölulega óþekkti oddviti lista Frjálslynda flokksins færi samkvæmt könn- un DV meö flokk- inn úr rúmum 2% upp í tæp 9% og yröi kjördæmakjör- inn þingmaöur. Ingibjörg Sólrún? „Ég held að þegar menn fari að skýra stefnu sína hér í kjördæminu þá verði þetta ekki raunverulegt fylgi Samfylkingarinnar,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þriðja á lista Sjálfstæðisflokksins. „Þau fara fram með fyrningarleið í kvótakerfinu, voru haldin ákvarð- anafælni í sambandi við álver og virkjanir, þannig að ýmislegt sem þau hafa verið að gera hér passar ekki inn í landslagið í þessu kjör- dæmi,“ segir Ambjörg. Hún segir að stjórnarflokkarnir hafi haldiö vel á málum gagnvart kjördæminu og því trúi hún ekki öðru en að fólk treysti sjálfstæðismönnum bet- ur en stjórnarandstöðunni. Steingrímur J. segist ekki hafa trú á að Vinstri-grænir veröi svona neðarlega í kosningunum. En hvernig skýrir hann sveifluna? Er hún til dæmis oddvita Samfylking- arinnar Kristjáni Möller aö þakka? „Ætli það sé nú ekki meira þessi Ingibjargar Sólrúnar-sveifla," segir Steingrímur, „enda hefur hún ver- ið að funda mikið í kjördæminu og henni hampað. Það hanga risastór- ar myndir af henni upp um alla veggi þama en ekki af frambjóð- endum kjördæmisins; það er þvert á móti öfugt og þeir eru nú hafðir í felum. Þannig að ég held nú kannski að þegar baráttan í sjáifu kjördæminu fer að yfirtaka athygl- ina og fólk áttar sig betur á því hveijir eru í framboði í Norðaust- urkjördæmi breytist þetta kannski eitthvað." Steingrímur segir að vitanlega horfist flokkurinn í augu við aö sigurinn í Noröurlandskjördæmi eystra hafi verið mikill síðast og erfitt gæti orðið að endurtaka slíkt. „Það var náttúrlega alveg sérstök bylgja með okkur þá. En ég held að við eigum mikið inni. Okkar tak- mark er að fá þarna tvo kjördæma- kosna menn og ég er bjartsýnn á að það takist." Þægileg staða Stöðu Samfylkingarinnar verður að meta með hliðsjón af þvi að flokkurinn fékk slæma útreið í Norðurlandskjör- dæmi eystra í síðustu kosning- um, hugsanlega vegna umdeilds prófkjörs í að- draganda þeirra. Kristján L. Möller segir að flokkurinn hafi sett sér það tak- mark í upphafi kosningabaráttunn- ar að ná þremur þingmönnum kjömum og haldi sig við það mark- mið. Óneitanlega bendi könnunin til að staðan sé þægileg fyrir flokk- inn. Hann þakkar hana öflugri kosningabaráttu og vel heppnuðu prófkjöri. „Við tókum hér mjög gott próf- kjör sem um það bil 70% skráðra flokksfélaga tóku þátt í. Við stillt- um í framhaldinu upp mjög góðum lista sem hefur góða skírskotun í allt kjördæmið. Síöan höfum við verið mjög dugleg við fundaherferð í kjördæminu, haldið mjög fjöl- menna fundi og sums staðar sprengt utan af okkur húsnæðið, og eigum nokkra fundi eftir. Það er þægilegt að vera með svona stöðu í skoðanakönnun - al- veg eins þægilegt og það er að keyra um kjördæmið 8. apríl á marauðum og þurrum vegum!“ segir Kristján. „Ég er að fara Lág- heiðina á Siglufjörð. í venjulegu ár- ferði væri þar fimm til sex metra snjódýpt. Þetta er hvort tveggja jafnyndislegt og verður vonandi hvort tveggja svona að minnsta kosti fram til 10. maí.“ Kristján minnir hins vegar á hátt hlutfall óákveöinna í könnun DV. Og fyrst frambjóðandinn leitar í veðrið að samlíkingum er líklega óhætt að segja að í hinu pólitíska landslagi Norðausturkjördæmis sé allt á floti. Það ræðst á næstu vik- um hvert vötnin falla. -ÓTG Ummæli Heilræði „9. Ef þú ert formað- ur/talsmaö- ur/forsætis- ráðherra- efni/stall- ari/kansl- araefni/stór- moffi/in- spector scholae hjá Samfylking- unni... þá lofarðu að taka ísland af lista þjóða sem styðja stríðið - nokkrum mán- uðum eftir að stríðið er búið.“ Ármann Jakobsson á Múrnum.is. „Heilræbum til frambjóöenda* I tðlf liðum um hver eigi aB vera viBbrögB þeirra viB spurningum um striöiB í írak. flmöphunum H„Stundum dettur manni í hug, að pistlahöfund- ar hins óhlutdræga ríkisútvarps noti tækifær- ið rétt fyrir kosningar til að ganga eins langt á svig við óhlutdrægnina og þeir frekast mega í trausti þess, að þeir verði ekki reknir fyrir að brjóta gegn henni, þar sem það þætti sér- stakt hneyksli og til marks um of- riki í ritstjóm á þessum viðkvæma pólitíska tíma - sérstaklega af því að útvarpsráð er kjöriö á alþingi.“ Björn Bjarnason á vef sínum, um pistla GuBmundar Steingrimssonar í Víösjá. Önnur niðurstaöa „Tíu þús- und króna hækkun skattleysis- marka skil- ar lágtekju- og meðal- tekjufólki miklu meira en flöt 4% lækkun á tekjuskatti. [...] Einstaklingar með 2,2 milljónir í árstekjur, en 70% einstaklinga eru undir þeim mörkum, og hjón með 4,4 milljónir en 40% hjóna era undir þeim mörkum, fá lægri skatta með 10 þúsund króna hækk- un skattleysismarka en 4% flatri tekjuskattslækkun." Jóhanna Siguröardóttir á vef sínum. Samkvæmt útreikningum DV liggja mörkin viö u.þ.b. 1,3 milljóna árstekjur hjá einstaklingum. „Kosninga- barátta Sjálf- stæðisflokks- ins einkenn- ist af ábyrgð- arleysi, þar sem er ýtt stórkostlega undir vænt- ingar lands- manna um meint góðæri fram undan. Formaður flokksins varpar kosn- ingaloforöum á báðar hendur, og eys milljörðum einsog karamell- um.“ Össur Skarphéöinsson á vef Samfylkingarinnar. Nammi Af aldamótaskáldum Einar var bodberi einkaframtaks en ekkert einkafyrirtœki myndi taka 100 milljarða lán fyrir von um jafn lítinn ágóða og rík þjóð með óbilað sjálfstraust myndi aldrei fóma landi og ímynd fyrir jafn veikan málstað. JAndri Snær Magnason aldamótaskáld „Já, mikið má hann þola, aumingja Einar Ben. Einar var manískur og innblás- inn athafnamaður, einskonar sambland af Magga Scheving og Kára Stefáns." Þegar guðinn Belda steig úr vél- inni fyrir austan um daginn og samningar við Alcoa voru undir- ritaðir var vitnað í Geir H. Haarde sem sagði eitthvað á þá leið að „nú hafi draumar aldamótaskáldanna loksins ræst.“ Ekki veit ég með hvaða skáldum hann djammaði í aldamótapartíi en ég get illa kom- ið fyrir mig í hvaða skáld hann er vitna. Hákon Aðalsteinsson, Stein- unn Sigurðar, Guðbergur Bergs- son, Pétur Gunnarsson, Elísabet Jökuls, Sjón og margir fleiri hafa gagnrýnt fómimar harðlega og ég kannast ekki við að þriðja ál- bræðslan hafi orðið Einari Má eða Matthíasi Johannessen innblástur í stórbrotin jörmunljóð þótt ég viti annars ekkert um afstöðu þeirra að öðru leyti. Ekki getur maður sagt að draumur tónskáldanna hafi ræst vegna þess að Björk, Hilmar Örn og Hjálmar H. Ragnarsson hafa talað sterklega gegn þessum áformum, Jónsa í Sigurrós var hent út úr ráðhúsinu og Jóhann G. Jóhannsson samdi lag til verndar hálendinu. Hvað athafnaskáldin varðar þá man ég ekki betur en að Ólafur Jóhann hafi sagt í viðtali að hann skildi ekki hvers vegna ríkasta þjóð í heimi ætlaði að setja svo mörg egg í sömu körfu. Maður þarf líklega að leita aftar í tímann. Halldór Laxness var harðorður í grein sinni um hemaðinn gegn landinu og Geir var eflaust ekki að tala um aldamótakynslóðina enda lét hún drauma sína rætast og rúmlega það, skilaði okkur hreinu og riku landi sem heimurinn öf- undar okkur af. Stórir draumar Einars Ben Fari maður enn aftar þá loksins kemur í ljós hann Einar gamli Ben sem fæddur var 1864. Að öllum lík- indum var Geir að tala um Einar Ben. Já, mikið má hann þola, aum- ingja Einar Ben. Einar var manískur og innblásinn athafna- maður, einskonar sambland af Magga Scheving og Kára Stefáns. Einar var ólíkt samtímamönnum sínum ekki alltaf 30 árum á effcir heiminum þegar kom að hug- myndum en hann var ekki spá- maður, haxm hafði farið til út- landa og séð tækniframfarirnar þegar rafmagnið var stóra bylting- in, það þurfti engan snilling til að sjá að slíkt hið sama væri hægt að gera á íslandi. Það þurfti ekki af- brigðilega frumlega eða frjóa hugs- un, aöeins einfalda yfirfærslu og trú á að mannfólkið hér gæti það sem mannfólk annars staðar get- ur. Einar fylgdist með nýjustu tækni sinnar tíðar. Hann vildi koma á loftskeytasambandi við út- lönd, hann stofnaði dagblað, braskaði með hlutabréf og vildi láta fossa knýja áburðarverksmiðj- ur og rækta þannig upp sveitimar og hálendið. Hann var bam síns tíma og hugmyndir hans bera þess merki. Hann var fæddur fyrir kjarnorkuöld, tölvuöld, traktors- öld, gervihnattaöld, fyrir tíma tog- ara, þotunnar, ferðaiðnaðar, tón- listariðnaðar, kvikmyndaiðnaðar, kvenréttinda og möguleika til langskólanáms eða öllu heldur: lífsnauðsyn langskólanáms í al- þjóðlegri samkeppni. Einar var fæddur fyrir tíma farsímans og sjónvarps á tímum örbirgðar, barnadauða, bamaþrælkunar og hungiu-s á íslandi þegar offita og offramleiðsla í landbúnaði hefðu verið talin absúrd vandamál. Ljósaperan var fundin upp þegar Einar var 15 ára. Penicillín kom á markað eftir að hann dó. Stórmennskudraumar Einars Ben rættust fyrir óralöngu og fá- ránlegt að tengja hann svo óskáld- legum framkvæmdum. Einar barð- ist fyrir bláhvíta fánanum, var draumur hans að rætast þegar blá- hvíti fáninn var dreginn að húni á Reyðarfirði? Einar vildi gera Grænland að íslenskri nýlendu. Eigum við að láta næsta draum rætast? Með eymd í arf í íslandsljóði ávarpar Einar þjóð sína „þú fólk með eymd í arf‘. Er Einar að tala við okkur? „Fólk með eymd í arf? Erum við eða Austfirðingar „fólk með eymd í arf“? Fjölmiðlaumfjöllun hefur verið á þeim nótum. Ljós eða myrkur. Á1 eða ekkert. Það er kaidhæðnislegt en bygging Kára- hnjúkavirkjunar væri ekki mögu- leg nema fyrir þá sök að hér býr rík þjóð sem getur ábyrgst vitleys- una og tekið á sig kostnaðinn ef illa fer. Einar var boðberi einkafram- taks en ekkert einkafyrirtæki myndi taka 100 milljarða lán fyrir von um jafn lítinn ágóða og rík þjóð með óbilað sjálfstraust myndi aldrei fóma landi og ímynd fyrir jafn veikan málstað. Við erum efn- islega rík en hugsunin ennþá við hungurmörk. Hvað munu menn segja eftir 30 ár þegar álverð hefur fallið og tæknin hefur sannað að virkjunin var óþörf. Hver verða eftirmæli stjómmálamanna sem lögðu allt imdir til að láta 100 ára gamlar hugmyndir rætast, voru 30 árum á eftir nágrönnum sínum hugmyndalega en létu martröð aldamótaskáldanna (2000) verða að veruleika. Best að láta Einar eiga lokaorðin: „því aflið, það sem oss skal fleyta fram, býr hjá oss sjálf- um, ei hjá dauðum draugum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.