Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 Utlönd DV REUTERSMYND Til í að skrifa undlr samnlng Farouq al-Shara, utanríkisráöherra Sýrlands, segir þarlenda tilbúna aö gera Miö-Austurlönd aö gjöreyðingar- vopnalausu svæöi. Ekki gjöreyðingarvopn í Mið-Austurlöndum Farouq al-Shara, utanríkisráð- herra Sýrlands, sagði í gær að stjóm sín væri reiðubúin að und- irrita samning um að engin gjör- eyðingarvopn yrðu í löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Al-Shara neitaði því í viðtali við ástralska útvarpsstöð að Sýr- lendingar ættu efnavopn eða hefðu leyft írökum að koma bönnuðum vopnum undan til Sýr- lands á meðan stríðið stóð yfir. „Sýrlensk stjómvöld eru reiðu- búin að undirrita samning undir eftirliti SÞ um að Mið-Austurlönd verði laus við öll gjöreyðingar- vopn,“ sagði hann. Bandarísk stjómvöld hafa síð- ustu daga fullyrt að Sýrlendingar ættu slík vopn og hafa haft í hót- unum við þá. ísraelar loka fyrir alla umferð frá Gaza og Vesturbakkanum - af ótta viö hryöjuverkaárásir á páskahátíö gyöinga ísraelar lokuðu í gær fyrir alla umferð frá heimastjómarsvæðum Palestínumanna vegna ótta við hryðjuverk á páskahátið gyðinga sem haldin er um helgina til minningar um brottfor þeirra frá Egyptalandi, en hátíðin hófst um sólsetur í gær. Talsmaður ísraelska hersins sagði í gær að borist hefðu viövar- anir um hryðjuverkaárásir, bæði frá Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu, og því hefði verið ákveð- ið að loka fyrir alla umferð yfir hátíðina en í fyrra lét palestínsk- ur sjálfsmorðsliði til skarar skríða í hafnarbænum Netanya með þeim afleiðingum að 29 manns létu lífið. Er það mannskæðasta sjálfsmorðsárás Palestínumanna frá upphafi yfirstandandi ófriðar sem braust út í september árið 2000. Á mánudaginn dæmdi ísraelsk- ur herréttur fjóra Palestínumenn í lífstíðarfangelsi fyrir aðild að áð- umefndri sjálfsmorðárás í Net- anya á páskunum í fyrra en þeir sem létust voru aðallega eldri borgarar sem héldu páskana há- tíðlega á hóteli í bænum. Fjór- menningamir voru dæmdir fyrir það að hafa aðstoðað sjálfs- morðsliðann við verknaðinn og einnig fyrir hafa skipulagt aðrar árásir. Gyðingar minnast brottfararinnar frá Egyptalandi Heittrúaöur gyöingur eldar hér súrdeigsbrauö viö opinn eld en þaö er siöur á páskahátíö þeirra sem hófst um sólarlag í gær. Þá hafa einnig verið settir upp vegartálmar í Jerúsalem en þaðan hafa einnig borist njósnir um yfir- vofandi árásir. Öll öryggisgæsla verður aukin til muna í ísrael yfir hátíðina og verður sérstök áhersla lögð á að gæta fjölfarinna staða eins og verslunarmiðstöðva, útimarkaða, baðstranda og strætisvagna sem oft hafa verið skotmörk hryðju- verkamanna að undanfömu. Leiðandi í gæðum í 20 ár vegna yfirburða næringargildis Sérfræðingar í Lífrænni Næringu ■ Fyrir: Fullorðna, unglinga og börn ■ Barnshafandi og konur með börn á brjósti íþróttafólk og þá sem eru undir miklu álagi Smásæir blágrænir ferskvatns þörungar: Lífræn uppbygging næringarefna í jafnvægi og samræmi við þarflr líkamans. Er vottað 100% lífrænt- Laust við illgresiseyði, skordýraeitur, CE frítt, ekkert gluten. Uppfyllir alþjóðlegan gæðastaðal ISO9001, ISO14001 • 12 vikna skammtur • 5 vikna skammtur dJjLYFJA Ap itokid CELSUS HEILDV. Aumt ástand í Irak. MamtrétSndasamtök gagnrýna bandamenn Mannréttindasamtökin Amnesty Intemational sendu í gær frá sér yfirlýsingu þar sem þau gagnrýna Bandaríkjamenn og Breta fyrir það að leggja meiri áherslu á að vemda olíusvæðin í írak heldur en fólkið í landinu. Irene Khan, aðalritari samtak- anna, sagði í gær að mun meiri þörf væri aö verja sjúkrahús, vatnsból og sjálft fólkið heldur en olíuna. „Svo virðist sem aðal- áherslan hafi verið lögð á olíulind- imar á meðan annað var látið biða,“ sagði Khan og lýsti einnig vonbrigðum með viðbrögð banda- manna við sundrunginni í Bagdad. l/iöurkenna aö hafa skoflð á mótmælendur Yfirstjóm bandaríska hersins við Persaflóa, með aðsetur í Katar, við- urkenndi í gær að bandarískir hermenn hefðu skotið sjö íraska borgara til bana og sært aðra sjö í borginni Mosul þegar þar fóru fram mómæli gegn ástandinu í Irak í fyrradag. Vincent Brooks, talsmaður her- stjórnarinnar, sagði að mótmælend- ur hefðu skotið að hermönnum sem gættu stjómarbygginga í borginni og þeir svarað skothríðinni þegar nokkrir mótmælenda reyndu að ógna þeim með því að klifra yfir veggi framan við byggingamar. Stuttar fréttir Clinton atypðir Bush Bill Clinton, fyrrum Banda- ríkjaforseti, hefur heldur lítið álit á utanríkisstefnu núverandi forseta landsins eftir hryðjuverkaárás- irnar 2001. Clinton segir að það sé ekki hægt að drepa bara, fangelsa eða hersetja andstæðinga sína. Elt borgaöi skilnaðinn Lo'ik Le Floch-Prigent, fyrrum forstjóri franska ríkisolíufélags- ins Eif, viðurkenndi fyrir rétti í París aö fyrirtækið hefði fjár- magnað skilnað hans og eigin- konunnar. Hættið að hata í hótunum Mohammad Khatami íransfor- seti hvatti bandarísk stjórnvöld í gær til að láta af hótunum sínum í garð Sýrlendinga en sagði ólík- legt að Bandaríkjamenn réðust á landið. Flóttamaður tekinn í Vín Austurríska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að morðinu á serbneska stríðsherranum Arkan fyrir þremur árum. Maðurinn var á flótta undan réttvísinni. Þýskir gagnrýna Fogh Þýskur formað- ur utanríkismála- nefhdar Evrópu- þingsins segir að Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur, kunni að missa traust starfsbræðra sinna í ESB fyrir að hafa ekki látið klippa burt úr um- deildri heimildamynd atriði þar sem danski utanríkisráðherrann vitnar í trúnaðarsamtöl við þýsk- an starfsbróður sinn. NATO tekur við Afganistan NATO hefur fallist á taka við yfirstjórn alþjóðlega friðargæslu- liðsins í Afganistan, að því er stjómarerindreki i höfuðstöðvum samtakanna greindi frá. ítalar vilja fá Abbas Dómsmálaráð- herra Ítalíu sagði í gær að stjórn- völd í Róm hefði í hyggju að fara fram á framsal hryðjuverka- mannsins Abus Abbas sem banda- rískir sérsveitarmenn handtóku í Bagdad á mánudag. Abhas var fjarstaddur dæmdur fyrir rán á skipinu Achille Lauro 1985. Denktash hafnar viðræðum Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja, ætlar ekki að mæta til fundar um framtíð eyjarinnar sem Grikkir hafa boðað. Aparnir fyila í myndina Apar sem vísindamenn hafa smitað með nýrri kórónaveiru hafa orðið veikir af svipaðri pest og lungnasjúkdómurinn dularfulli í Asíu. Því þykir næsta ljóst að veiran valdi sjúkdóminum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.