Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 43
FIMMTUDAOUR.lv. APRÍL 2003 Helqarblað E>V
47
V
Fisichella fær uppreisn æru
Síðastliðinn föstudag var Jordan-ökumann-
inum Giancarlo Fisichella dæmdur sigurinn
sem hann var svo viss um að hafa unnið fyr-
ir tæplega hálfum mánuði í Brasilíu. Kimi
Ráikkonen var sá sem steig á efsta þrep verö-
launapallsins í kjölfar sögulegrar keppni sem
lengi verður í minnum höfð. Það voru hins
vegar mistök því í kjölfar nýrra upplýsinga
frá tímavörðum kallaði Alþjóða aksturs-
íþróttasambandið, FIA, til fundar alla þá sem
hlut áttu að máli og tilkynnti niðurstöðu sína.
Giancarlo Fisichella var réttur sigurvegari
brasilíska kappakstursins sem var stöðvaður
á 56, hring eftir alvarleg óhöpp Marks Webber
og Fernandos Alonso. Fisichella er því loks-
ins kominn á spjöld Formúlu 1-sögunnar og
má þakka það hetjulegum akstri við stór-
hættulegar og erfiðar aðstæður.
Tveir hringir fyrir rautt flagg
Þetta hófst allt er Fisichella hóf keppnina af
áttunda rásstað, en aðstæður í Brasilíu voru
vægast sagt erfiðar og var keppnin ræst með
öryggisbílinn í forystu. Fisichella fór strax á
þjónustusvæði til að bæta meira eldsneyti á
bílinn og breytti þar með keppnisáætlun
sinni. Bridgestone-hjólbarðarnir virkuðu
mjög vel og þegar innan við tíu ökumenn
voru eftir í keppninni á 54. hring, var Kimi
Raikkonen kominn í forystu en var í basli
með Michelin-hjólbarða sína og hægði veru-
lega ferðina. Fisichella nýtti tækifærið og tók
forystuna eftir stuttan slag við Finnann. Örfá-
um augnablikum síðar missti Mark Webber
vald á bíl sínum í síðustu beygju brautarinn-
ar og ók með feiknaafli utan í vegrið. Örygg-
isbíllinn fór af stað, en of seint fyrir Fern-
ando Alonso sem gat ekkert gert þegar hann
sá að brautin var full af drasli og ók á hjól-
barða af bíl Webbers. Keppnin var stöðvuð og
Fisichella var í forystu. í reglum segir að sé
keppni stöðvuð skuli úrslitin tveim hringjum
áður en rauða flaggið var sett upp standa sem
úrslit keppninnar. Fyrst var haldið að ein-
ungis hefðu verið eknir 55 hringir, og sam-
kvæmt því var Kimi Raikkonen réttur sigur-
vegari keppninnar. Seinna kom í ljós að Gi-
ancarlo Fisichella hafði farið farið yfir enda-
línuna og hafið 56. hringinn áður en keppnin
var stöövuð. Sem þýddi að hann var sigurveg-
ari.
Vildi fagna á verðlaunapallinum
„Ruglingurinn eftir keppnina í Brasilíu var
mér mjög erfiður,“ sagði Fisichella sl. föstu-
dag. „Ég er enn mjög vonsvikinn yfir því að
hafa ekki getað fagnaö á verðlaunapallinum
en ég er mjög ánægður að það sé komið á
hreint að ég hafi unnið mína fyrstu Formúlu
l-keppni,“ segir ítalinn sem vonast til að geta
endurtekið leikinn mjög fljótlega. Næsta
keppni verður háð á Ítalíu og er heimakeppni
Fisichella sem hefur jafnt og þétt eignast stór-
an aðdáendahóp. „Ég get ekki beðið eftir
næstu keppni um helgina því það verður frá-
bært að keppa á Ítalíu frammi fyrir aðdáend-
um heima fyrir. Stemningin á Imola er alltaf
sérstök og það eru mörg ár síðan ítalskur
ökumaður hefur unnið Formúlu-keppni, svo
-
ÖKUMENN
Sæti: ökumaður: Stig:
1. Ráikkonen 24
2. Coulthard 15
3. Alonso 14
4. Fisichella 10
5. Trulli 9
6. Montova 8
7. Barrichello 8
8. M. Schumacher 8
9. R. Schumacher 8
10. Frentzen 7
11. Villeneuve 3
12. Button 2
13. Heidfeld 1
það verður jafnvel enn betra núna. Ég er
stoltur af því að hefja heimakeppni mína með
sigur í farteskinu.“
Gjöf á tímamótum
Keppnin í Brasilíu var 200. keppni Jordan-
liðsins í Formúlu 1 og var sigurinn því kær-
komin gjöf á stórum tímamótum. Þetta var
fjórði sigur liðsins, en Damon Hill og Heinz
H. Frentzen færðu liðinu þá fyrri á árunum
1998 og 1999. Eddie Jordan, eigandi liðsins,
var að vonum ánægður því gengi þess hefur
ekki verið gott undanfarin ár: „Ég er mjög
ánægður fyrir hönd Giancarlos, liðsins og
Ford. Keppnin í Brasiliu var gjörsamlega
spennuþrungin og ég er FIA mjög þakklátur
fyrir að hafa rannsakað úrslitin svona vel.“
Þegar einhver sigrar tapar annar, og það
urðu liðsmenn McLaren að þola í þetta skipt-
ið. Þeir taka ósigrinum þó með jafnaðargeði
og samgleðjast keppinautum sínum. „Þau
gögn sem okkur hafa verið sýnd sanna að Gi-
ancarlo og Jordan eru sigurvegarar brasil-
íska kappakstursins og ég er ánægður með að
allur ruglingur hefur verið lagfærður," sagði
Ron Dennis, keppnisstjóri McLaren. „Það er
auðvitað mjög slæmt að hvorki ökumaður né
liðsmenn gátu fagnað í Brasilíu en ef ég þekki
Eddie rétt get ég ímyndað mér að hann bjóði
upp á nokkrar kollur af írskum bjór,“ bætti
hann við og kann greinilega að taka ósigri
með sæmd. -ÓSG
FRAMLEIÐENDUR
Sæti: Lið: Stig:
1. McLaren-Mercedes 39
2. Renault 23
3. Ferrari 16
4. Williams-BMW 16
5. Jordan-Ford 10
6. Sauber 8
7. BAR-Honda 5
Vissir þú...
... að hámarkshraði Formúlu
1 kappakstursbíls getur orðið
allt að 360 km á klukkustund?
Á þeim hraða snýst vélin allt
að 19.000 snúninga á mínútu.
Þetta er mikil þolraun á bíl og
vél og mikiö atriði að búnaður
þoli þetta mikla álag. Á einni
sekúndu snýst vélin um 315
sinnum og yfir fimmtán hundr-
uð sinnum neistar logi á kert-
unum. Hver stimpill ferðast
yfir 25 metra í vélarblokkinni
og bíllinn sjálfur fer 100 metra.
Hvert hjól snýst 50 sinnum á
sekúndu og sjónsvið ökumanns
minnkar í örlítinn punkt.
Ekkert hflablað um helgina
Ekkert bílablað kemur út fyr-
ir páskahelgina og kemur þvi
næsta blað út laugardaginn 26.
apríl. í því blaði verður birt
tafla sem inniheldur upplýsing-
ar um verð og fleira á öllum
nýjum fólksbílum á markaði í
dag. Þessi tafla hefur hingað til
komið út í stóru aukablaði á
þessum tíma en kemur nú út í
þessu blaði. Einnig byrjar for-
valið fyrir bíl ársins í næsta
blaði þannig að það er um að
gera að fylgjast vel með.