Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 62
ee Helgarblað H>V FIMMTUDACUR 17. APRÍL 2003 Stabat mater í Hallgrímskirkju á föstudaginn langa Á föstudaginn langa, 18. apríl, kl. 21 mun Schola cantorum, kammerkór Hallgrímskirkju, undir stjórn Harðar Áskelssonar flytja kórverk eftir ítölsku tón- skáldin Domenico Scarlatti og Antonio Lotti ásamt mótettum eftir Brahms og Bruckner. Aðaltónverk tónleikanna er Stabat mater, kórverk í tíu þáttum fyr- ir tíu radda kór og fylgirödd eftir Domenico Scarlatti. Tónleikarnir, sem eru á dagskrá Listvinafélags Hall- grímskirkju, eru einn af hápunktunum í fjölbreyttum tónlistarflutningi í dymbilviku og á páskum í Hall- grímskirkju á þessu ári. Efnisskrá tónleika Schola cantorum á fóstudaginn langa er tvíþætt. Annars vegar fjölrödduð föstutónlist ítölsku barokkmeistaranna, hins vegar átakamikil og persónuleg kórverk eftir tvö af fremstu tónskáldum rómantiska tímans. Fyrsti flutningur á Stabat mater eftir Domenico Scarlatti á íslandi ætti að vekja áhuga allra sem unna kórtónlist. Texti þessarar fornu sekvensiu lýsir veru Maríu Guðsmóður við krossinn á Hausaskeljastað, sorg hennar og sársauka og bæn- arákalli hennar, sem kristnar sálir enduróma á föstu- daginn langa. Verkið er skrifað fyrir tíu sjálfstæðar raddir, sem fléttast saman á meistaralegan hátt. Til að undirstrika áhrifamikla fjölröddunina í hljómrými Hallgrímskirkju er félögum kórsins dreift í hálfhring í kringum selló, orgel og bassa, sem leika fylgirödd. Þrjár tónsmíðar við textann Cruciflxus úr trúarjátn- ingunni eftir Antonio Lotti, sex, átta og tíu radda, mynda eins konar leiðarþema efniskrárinnar. Þær bjóða líka upp á dreifða uppstillingu kórsins, tvær þeirra verða sungnar innan úr hákór kirkjunnar við upphaf og enda tónleikanna. Hinar rómantísku mótettur Warum ist das Licht gegeben eftir Johannes Brahms og Christus factus est eftir Anton Bruckner mynda mótvægi við fleygrödduð barokkverkin. Schola cantorum hlaut verðlaun fyrir flutning sinn m.a. á mótettu Brahms í virtri kórakeppni í Gorizia á Ítalíu sl. sumar. Kammerkórinn Schola cantorum var stofnaður árið 1996 af Herði Áskelssyni og samanstendur af 19 söngvurum með mikla söngreynslu og tónlistarnám að baki. Kórinn komst fljótt í hóp virtustu kóra lands- ins og hefur notið einróma lofs jafnt áheyrenda sem gagnrýnenda. Kórinn heldur reglulega tónleika í Hall- grímskirkju, með nýrri og gamalli tónlist, og hefur auk þess komið fram á fleiri stöðum á íslandi og á er- lendri grund. Árið 1998 var kórinn sigurvegari í al- þjóðlegri kórakeppni í Frakklandi og sumarið 2002 hlaut haxui silfurverðlaun í áðumefndri keppni á ítal- íu. Scola cantorum hefur gefið út geisladiskana Principium, með tónlist frá endurreisnartímanum og Audi creator coeli, með samtímatónlist eftir íslensk tónskáld. Auk þess hefur kórinn tekið þátt í umfangs- miklum upptökum á tónverkum Jóns Leifs fyrir kór og hljómsveit ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands fyrir sænska útgáfufyrirtækið BIS. Hörður Áskelsson hefur verið organisti og kantor Hailgrímskirkju í Reykjavík frá 1982 og gegnt lykil- hlutverki í uppbyggingu listalífs þar. Hann stofnaði Listvinafélag Hallgrímskirkju, Mótettukór Hallgríms- kirkju og Schola cantorum, setti á laggimar Kirkju- listahátíð, sem haldin er annaö hvert ár, og einnig hina árlegu tónleikaröð Sumarkvöld við orgelið. Hann hefur stjórnað flutningi margra óratóría, m.a. með Sinfóníuhljómsveit íslands, og frumflutt fjölda ís- lenskra tónverka. Hörður hefur hlotið margs konar viöurkenningu fyrir starf sitt og árið 2002 fékk hann t.d. bæði íslensku tónlistarverðlaunin og Menningar- verðlaun DV fyrir túlkun sína á Passiu eftir Hafliða Hallgrímsson, Jósúa eftir Handel og fleiri verkum. Viðskiptaþátturinn Alla virka daga kl. 17-18 eru sérfræðingarViðskiptablaðsins, Sigurður Már Jónsson og Hörður Vilberg viö hljóðnemann og taka púlsinn á viðskiptalífi þjóðarinnar. Þú þarft að hlusta! Útvarp w94.3 FRFTTIR • SPJAIL • SPORTj W 7 ' ii immW \ \ ; // / ;a m ] \ ji ijm T 1 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.