Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 65

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Blaðsíða 65
FIMN/1TUDA.GUR 17. APRÍL 2003 // <3 fc) ct rí? / cj c) DV Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkjugarða Reykjavíkur, verður 60 ára annan í páskum Amór L. Pálsson, framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkjugarða Reykjavíkur, Kórsölum 1, Kópavogi, verður sextugur annan í páskum. Starfsferill Arnór fæddist á Skinnastað í Öxarfirði og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Laugum í Reykjadal 1959 og nam tungumál og verslunarfræði i Dan- mörku og Englandi 1962-64. Arnór var gjaldkeri hjá Útvegsbanka íslands 1964-66, deildarstjóri hjá Al- mennum tryggingum 1966-82, aðstoðar- framkvæmdastjóri Byggingarþjónust- unnar 1982-84, var forstjóri og eigandi ALP-bílaleigunnar 1984-2000 en hefur síðan verið framkvæmdastjóri Útfararstofu Kirkju- garða Reykjavíkur. Arnór var forseti Kiwanisklúbbsins Eldeyjar í Kópavogi 1976-77, formaður Sjálfstæðisfélags Kópa- vogs 1980-84, í bæjarstjórn Kópavogs 1982-98 og var umdæmisstjóri íslenska Kiwanisumdæmisins 1986-87. Arnór sat í áfengisvarnanefnd 1982-86, í framtals- nefnd Kópavogs 1980-90, í félagsmálaráði Kópavogs 1990-2002, er formaður vinabæjanefndar Kópavogs frá 1990 og var forseti bæjarstjórnar Kópavogs 1992-93 og 1996-97. Arnór sat í stjórn Almennra líftrygginga hf. 1984-88, í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavikur 1978-82, í stjórn Þingeyingafélagsins 1976-82, var varaformaður Hjallasóknarnefndar 1987-2002, er for- maður Lindasóknar frá stofnun 2002 og sat í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma 1987-2000. Fjölskylda Arnór kvæntist 6.6. 1964 Betsý ívarsdóttur, f. 22.12. 1944. Hún er dóttir ívars Ágústssonar bifreiðarstjóra sem nú er látinn og Regínu Rósmundsdóttur, f. 29.10. 1923, fyrrum símavarðar. Börn Arnórs og Betsýjar eru: Páll, f. 2.6. 1965, fiskútflytjandi í Reykjavík, kvæntur Sigríði Rut Hallgrimsdóttur og eru börn þeirra Andri Már og Andrea; ívar, f. 2.6. 1965, d. 30.4. 1994, bifreiða- smiður í Kópavogi, kvæntur Jó- hönnu Steinsdóttur hárgreiðslu- meistara og eiga þau Silju, Katrínu og Evu Karen; Ágúst, f. 17.11. 1971, nemi á Akureyri, en kona hans er María Veigsdóttir verslunarmaður og eru börn þeirra Viktor og Baldvin; og Elísa- bet, f. 11.6. 1981, nemi. Systkini Arnórs eru: Jóhanna, f. 10.2. 1933, fyrrv. yfirféhirðir i Bún- aðarbanka íslands, gift séra Jóni Bjarman sjúkrahús- presti, búsett í Kópavogi og eiga þau tvö börn; Stefán, f. 7.12. 1934, fyrrv. bankastjóri Búnaðarbanka íslands í Reykjavík, kvæntur Arnþrúði Arnórsdóttur kenn- ara og eiga þau íjögur börn; Þorleifur, f. 17.6. 1938, sýslumaður í Kópavogi, kvæntur Guðbjörgu Kristins- dóttur lyfjafræðingi og eiga þau eitt barn; og Sigurð- ur, f. 30.7. 1948, rithöfundur í Reykjavík, kvæntur Kristínu Jóhannesdóttur kvikmyndagerðarmanni og eiga þau eitt bam. Foreldrar Arnórs voru séra Páll Þorleifsson, f. 23.8. 1898, d. 19.8. 1974, prófastur á Skinnastað í Öxarfirði, og Guörún Elísabet Arnórsdóttir, f. 22.12. 1905, d. 18.11. 1983, húsmóðir. Þau bjuggu að Skinnastað í 40 ár. Ætt Faðir Arnórs, Páll, var sonur Þorleifs, b. og alþingis- manns á Hólum í Nesjum, Jónssonar, b. og hreppstjóra á Hólum, Jónssonar, prests á Hofi í Álftafirði, Bergsson- ar. Meðal systkina Jóns á Hólum voru Bergur, prófastur í Bjarnarnesi, en i fjórða lið frá honum eru þau Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi, Herdís Þorgeirsdóttir rit- stjóri og Eiríkur Jónsson sjónvarpsmaður. Móðir Arnórs, Guðrún Elísabet, var dóttir Arnórs, prests á Hesti í Borgarfirði, bróður Þorláks, afa Jóns forsætisráðherra. Arnór var sonur Þorláks, prests á Undirfelli í Vatnsdal, Stefánssonar. Móðir Arnórs var Sigurbjörg Jónsdóttir, prófasts í Steinnesi, Pétursson- ar. Meðal systkina Sigurbjargar voru Guðrún, amma Sveins Björnssonar forseta, og Þórunn, langamma Jó- hanns Hafstein forsætisráðherra, föður Péturs Haf- stein sýslumanns. Amma Arnórs, Guðrún Elísabet, var dóttir Jóns, b. í Neðra-Nesi í Stafholtstungum, Stefánssonar, pró- fasts í Stafholti, Þorvaldssonar, prófasts og skálds í Holti undir Eyjafjöllum, Böðvarssonar, sonarsonar Presta-Högna, en meðal afkomenda Þorvaldar Böðv- arssonar í fimmta lið er Vigdís Finnbogadóttir for- seti. Langamma Sigurðar, móðir Guðrúnar Jónsdótt- ur, var Marta Stephensen, systir Hans Stephensen, afa Þorsteins Ö. Stephensen leikara, og Sigríðar Stephensen, ömmu Helga Hálfdanarsonar leikritaþýö- anda. Arnór og Betsý dvelja á Kanarieyjum á afmælisdag- inn. Höfuðstafir nr. 75 í dag er við hæfi að byrja á tveimur vorvísum eft- ir Kristján Stefánsson í Gilhaga: Þrastahópur hljómi nær hlaóinn nýju þori, jöröin þánar, jöröin grœr. Jafndœgur á vori. Flytur gleöi framtíöar flokkur söngvaspörva, og þaö sem enginn vetur var viröist samt aö hörfa. Sú aðgerð bandarískra og breskra stríðsáhuga- manna að frelsa írösku þjóðina frá leiðtoga sínum hefur mælst misjafnlega fyrir. Jón Ingvar Jónsson orti um stríðið í írak: Jón Hilberg Sigurðsson verkamaður í Kópavogi Jón Hilberg Sigurðsson verkamaður, Borgarholts- braut 27, Kópavogi, er sjötugur í dag. Starfsferill Jón fæddist í Stykkishólmi og ólst þar upp. Hann var í Barnaskóla Stykkishólms og Unglingaskóla Stykkishólms. Jón var bóndi á Dröngum á Skógarströnd, Snæfells- nesi, 1957-68, flutti þá í Kópavoginn og hefur búið þar síðan. Jón var verkamaður hjá Byggingarsamvinnufélagi Kópavogs og í Vélsmiðju Heiðars í Kópavogi. Hann hefur verið verkamaður hjá ÍSAL síðastliðin tuttugu og fjögur ár. Fjölskylda Jón kvæntist 10.6. 1957 Kristjönu Emilíu Guð- mundsdóttur, f. 23.4. 1939, ljóðskáldi, bókbindara og bókaverði i Bókasafni Kópavogs. Foreldrar hennar: Guðmundur Ólafsson, f. 15.12. 1907, d. 24.7. 1999, bóndi og landpóstur, og k.h., Valborg Vestfjörð Emilsdóttir, f. 22.1. 1916, ljósmóðir. Þau bjuggu á Dröngum á Skóg- arströnd 1934-68 en fluttu þá í Kópavoginn. Böm Jóns Hilbergs og Kristjönu Emilíu eru Stein- ar, f. 13.4. 1958, en börn hans og fyrri konu hans, Sig- ríðar Jónsdóttur, f. 10.1. 1958, eru Steinunn Ósk, f. 15.4. 1980, og Sigurður Atli, f. 16.12. 1985, en dóttir Steinunnar Óskar og sambýlismanns hennar, Bjöms Róbertssonar, f. 4.4. 1973, er Emilía Ósk, f. 8.10. 2002, núverandi sambýliskona Steinars er Ragnheiður Hilmarsdóttir, f. 17.10. 1962; Elín Jónsdóttir f. 15.8. 1961, en böm Elínar og eiginmanns hennar, Harðar Hjartarsonar, eru Andrea Hlín, f. 27.10. 1993, og Björg- vin, f. 29.12. 1996; Valborg, f. 15.8. 1961, en börn Val- borgar og eiginmanns hennar, Magna Rúnars Þor- valdssonar, f. 28.1. 1959, eru Elínborg, f. 18.4. 1979, Erna Rún, f. 29.6. 1983, og Guðjón, f. 21.10.1991; Sævar, f. 3.11. 1967, en synir Sævars og konu hans, Gerðar Helgu Helgadóttur, f. 8.2. 1964, eru Emil Kristmann, f. 26.7. 1990, og Jón Helgi, f. 10.11. 1998; Sjöfn Jónsdóttir, f. 3.11.1957, börn Sjafnar og eiginmanns hennar, Krist- jáns Eysteins Harðarsonar, f. 24.2. 1967, eru Linda Dögg, f. 15.7. 1988, Eysteinn Már, f. 18.12. 1993, og Magnús Þór, f. 22.4. 2001; Guömundur Hilberg f. 6. 10. 1968, en sonur Guðmundar og sambýliskonu hans, Sig- ríðar Jónsdóttur, f. 25.1. 1975, er Friðgeir Nökkvi, f. 13.12. 2001, en sonur Sigríðar er Sindri Már Baldurs- son, f. 13.4. 1997. Alsystkini Jóns: Friðrik Óskar, f. 20.6. 1920, d. 5.4. 1981; Sigríður Breiðfjörð f. 11.9. 1922, d. 23.5. 1992. Hálfsystir: Laufey Samsonardóttir f. 15.4. 1917, d. 17.11. 1992. Foreldrar Jóns: Sigurður Ólafur Lárusson, f. 1.11. 1895, d. 1.3. 1976, verslunarmaður, og k.h., Elín Kjerni- steð Helgadóttir, f. 18.4. 1898, d. 25.9. 1960. Þau bjuggu í Stykkishólmi. Jón verður að heiman á afmælisdag- inn. Þú nærö alltaf 550 5000 mánudaga tll flmmtudaga kl. 9 — 20 föstudaga kl. 9 — 18 sunnudaga kl. 16 — 20 sambandi viö okkur! smaauglysingar@dv.is hvenær sólarhringsins sem er 550 5000 Sagt er aö viö Sundin blá sumir væti brœkur, varpi bombum Bagdad á Bush og Ketill skrækur. Nú nálgast kosningar og daglega glymja í eyrum misjafnlega skemmtilegar fréttir af niðurstöðum skoðanakannana um fylgi flokkanna. En hvað ætl- um við svo að kjósa? Einar Kolbeinsson setti fram á óvenjulegan hátt afstöðu sína til Framsóknarflokks- ins: Framsókn aö ég fœrist nœr, fjarlœg er sú veiki. En þegar ég verö elliœr er það möguleiki Það skal tekið fram að þessi þáttur er algjörlega ópólitískur og ef framsóknarmönnum finnst að sér vegið með þessari vísu er þeim frjálst að svara. Þátt- urinn er opinn öllum sem yrkja rétt. Hagyrðingar eiga það flestir sameiginlegt aö hafa gaman af alls kyns rímþrautum. Inni á leirvefnum rakst ég á tvær skemmtilegar vísur á dögunum. Gísli Helgason spurði Magnús Steinarsson hvað rímaði á móti „ærlær“. Magnús svaraði á eftirfar- andi hátt: Kjötiönaöi kœr hlœr kappinn og á lœr slœr, ruggar sér og rœr nœr ríma kunni ærlær. Tindra af gleöi tær skœr tinnuaugun nœrfœr flínk aö taka fœr mœr feitt í sundur œrlœr. Kristján Eiríksson var að velta fyrir sér hvernig stjórn yrði mynduð eftir kosningarnar. Lesendur geta reynt að finna út hvers konar sam- starf hann er aö yrkja um hér. Bragarhátturinn heitir skáhenda (sumir vilja reyndar kalla þetta bláhendu!!): Hitti hann knáa hringaná hefji spaug meö ástarglingur; bygg ég þá aö höndin blá hljóti Baug á sérhvern fingur. Umsjón J* %
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.