Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Side 10
10 DV FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003 Úigáfufélag: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aðalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaBaafgreiBsla, áskrift: Skaftahliö 24, 105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - ABrar deildir: 550 5749 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Plötugeró og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aB birta aBsent efni blaBsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiBir ekki viflmælendum fyrir vifltöl viB þá eBa fyrir myndbirtingar af þeim. Lágkúran á stall Fíflaskapur er að verða eitt af lykilorðunum í islenskri afþrey- ingu. Alls konar furðufuglum og rugludöllum er hampað í fjöl- miðlum og leiksviðum landsins og iðulega gert jafn hátt undir höfði og metnaðarfullu lista- fólki. Þessir trúðar tiðarandans þykja þeim mun betri og eftirsóknarverðari eftir því sem þeir ganga meira fram af fólki. Og atriðin draga fleiri að og þykja villtari og svaka- legri eftir þvi sem áhorfendur þurfa oftar að líta undan. Best er náttúrlega að gubba af öllu saman! Þrir útlenskir rugludallar voru með margvísleg kjána- prik í Háskólabíói síðastliðinn fostudag. Húsfyllir var. Sá sem fremstur fór i ruglinu skar sjálfan sig í tunguna með glerbroti, kveikti í hausnum á sér og skaut með heftibyssu brjóstahaldara inn í bringuna á sér. Svokallaður hápunkt- ur sýningarinnar var þegar þessi maður heftaði punginn á sér við lærið á sér. Greinilegt var að mennirnir sem þama komu fram á sviði Háskólabíós voru útúrdukknir og skakk- ir. Og því skemmtilegri! Ekkert lát er á sýningum af þessu tagi. Fram undan er önnur eins og þá munu tittlingar vera í eins konar aðal- hlutverki. Tveir fullorðnir karlmenn munu í þetta sinn engjast um sviðið í Austurbæ og bera þar kynfæri sín eins og um strengjabrúður væri að ræða. Ef skilja má auglýs- ingu i tengslum við þessa sýningu ætla mennirnir að teygja og toga kynfæri sín á alla vegu svo áhorfendur geti skellt upp úr. Auglýsingunni fylgir aðvörun um að sýningin geti sært blygðunarkennd fólks. Ruglið hrífur. Og vart kemur til greina að bjóða forviða áhorfendum upp á eitthvað minna þegar tjöldin verða næst dregin frá. Reyndar eru þess dæmi að á sýningum sem þessum séu labbarnir farnir að ganga enn lengra en að ofan segir. Ekki þykir lengur tiltökumál að menn æli á sviðið og einn liður i sýningum af þessu tagi mun vera sá að kasta þvagi fram í salinn þar sem áhorfendaskarinn liggur mátt- laus i hlátri sínum. Timaspursmál er hvenær menn losa hægðir á sviðinu. Viðbjóður og lágkúra af þessu tagi er að ryðja sér til rúms í íslensku samfélagi. í þessum efnum sem öðrum er nýjungagirni landsmanna engin takmörk sett. íslendinga þyrstir í að vera á meðal þeirra fyrstu sem kynnast nýjum siðum og hegðunarmynstri. Og fyrir vikið eru jafnvel stjórnmálamenn í kosningabaráttu farnir að ropa út úr sér ógeðisdrykkjum í beinni útsendingu í íslensku sjónvarpi. Allt er leyfilegt og aðeins spurning hvenær þeir fara að éta fullar skálar af ánamöðkum. Eitt vinsælasta sjónvarpsefni samtimans er því marki brennt að minnka fólk. Linsa sjónvarpsvélanna liggur uppi i andliti fólks sem er að reyna að troða ofan i sig sem mestu magni af kakkalökkum eða krækja eins mörgum krókum i likama sinn og nokkur kostur er. Dagskipun sjónvarpsiðn- aðarins er að vera á mörkum yfirliðs; áhrifin af mörgum kunnustu sjónvarpsþáttum seinni ára eiga vera þeirrar ætt- ar að menn trúi ekki sínum eigin augum - að menn leggist lægra og lægra. Og lægra. Misþyrming hefur jafnan verið talin á meðal neikvæðra orða. Misþyrming líkama og sálar er að verða uppistaðan i sjónvarpsglápi nýrrar kynslóðar á íslandi. Þegar við bætist linnulitil hrifning af allskonar klámi, kynórum og tví- ræðni, að ekki sé talað um ómælda nekt í myndböndum og bíói, verður ekki betur séð en íslensk ungmenni lifl i tryllt- um heimi. Svallið er hafið til skýjanna og það er ekki ein- asta að gildismatið breytist heldur guggnar það. Enda heit- ir þetta gildissukk. Sigmundur Ernir Fær stjornar- andstaðan frítt spil? Olafur Teitur Guðnason blaöamaöur Ritstjórnartaréf Það reynir á fjölmiðla í kosn- ingabaráttu. Alla jafna beina þeir kastljósi sínu fyrst og fremst að stjórnvöldum eins og vera ber, veita þeim aðhald og láta einskis ófreistað við að finna á þeim veik- an blett. Upp að vissu marki eru fjölmiðlar því sjálfkrafa í stjórnar- andstöðu lengst af hverju kjörtima- bili. í kosningabaráttu reynir hins vegar meira á það en á öðrum tím- um hvort þeim tekst að rýna jafn gagnrýnum augum í spilin sem stjómarandstaðan leggur á borðið. Loforð sem enginn skilur Helsta útspil Samfylkingarinnar í skattamálum er hækkun skatt- leysismarka um ríflega 10.000 krón- ur á mánuði. Þetta er loforð sem enginn skilur. Einhverra hluta vegna hafa næstum allir fjölmiðlar kynnt lof- orðið með þessum hætti - að skatt- leysismörk verði hækkuð um 10.000 krónur á mánuði. Talan 10.000 hefur þannig víðast hvar ver- ið gerð að aðalatriði algjörlega gagnrýnislaust. Hún hljómar vita- skuld ágætlega en hún segir ná- kvæmlega ekki neitt um hvað í þessu felst - nákvæmlega ekki neitt. Skattleysismörk eru ekki til sem slík í skattkerfinu. Þau eru hvergi ákveðin heldur eru þau afleiðing af samspili persónuafsláttar og skatta- prósentu - tekjurnar þar sem af- slátturinn er jafnhár reiknuðum skatti þannig að enginn skattur er greiddur. Tvennt veldur því að enginn skil- ur loforð Samfylkingarinnar. I fyrsta lagi halda sumir að skatt- leysismörk og persónuafsláttur séu það sama. Sjálfur formaður Frjáls- lynda flokksins ruglaði þessu sam- an í Kastljósinu í fyrrakvöld og vanreiknaði þess vegna skattatil- lögur flokksins um litla 10 millj- arða króna! (Sem hefði líklega eitt og sér verið stórfrétt ef sumir aðrir hefðu átt í hlut.) Og Fréttablaðið sagði blákalt í úttekt sinni á loforð- um flokkanna að Samfylkingin ætl- aði að hækka persónuafslátt um 10.000 krónur! Er við því að búast að al- menningur botni eitthvað í þessu? í öðru lagi er það ógerningur fyrir aðra en flinkustu reiknimeistara að reikna út í huganum hverju 10.000 króna hækkun skattleysis- marka skilar fólki. Það eru svo sannar- lega ekki 10.000 krónur. En hvað þá? Jafnvel þeir sem skilja kerfið þurfa að setjast niður með reiknistokk til þess að botna í tölunni frægu sem einhverra hluta vegna hefur verið gerð að aðalat- riði málsins. Öfugt við fjölmiðla fær hins vegar Sam- fylkingin prik fyrir að komast að kjama málsins í aukasetn- ingu í kosninga- stefhuskrá sinni sem fáir virðast hafa veitt athygli og lítið hefur verið fjallað um. Þar segir að við breytinguna aukist ráðstöfunartekjur hvers skattgreiðanda um 50.000 krónur á ári. Við grípum reikni- stokkinn og fáum út um það bil 4.000 krónur á mánuði. Þarna er að- alatriðið: Það stendur til að hækka persónuafslátt um u.þ.b. 4.000 krón- ur á mánuði. Það er auðvitað merkilegt að þetta er hvergi sagt berum orðum í kosningastefnuskrá flokksins sem fer um landið í fundaherferð um „pólitísk aðal- atriði“. Rangfærslur Látum vera að algjörlega óskilj- anlegt aukaatriði hafi verið gert að aðalatriði varðandi þetta útspil. Þegar kom að því að túlka þetta var nefnilega gengið skrefi lengra og beinlínis röngum upplýsingum hcddið að fólki. Talsmenn Samfylkingarinnar Einhverra hluta vegná hafa næstum allir fjöl- miðlar kynnt loforðið með þessum hœtti - að skattleysismörk verði hœkkuð um 10.000 krón- ur á mánuði. Talan 10.000 hefur þannig víð- ast hvar verið gerð að að- alatriði algjörlega gagn- rýnislaust. héldu þvi ítrekað fram að hækkun perónuafsláttar um um það bil 4.000 kr. á mánuði (eða hækkun skattleysismarka um 10.000 kr. eins og það hét jafnan) kæmi betur út fyrir fólk með lágar og meðaltekjur en flöt 4% lækkun skatthlufalls. DV tók sig þá tO og reiknaði út að mörkin lægju við 104.000 kr. mán- aðarlaun sem eru svo sannarlega ekki meðallaun. Ekki fór mikið fyr- ir áhuga annarra fjölmiðla á þess- ari niðurstöðu. Hún var að vísu borin undir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur í Kastljósinu og sagðist hún snarlega draga hana mjög í efa enda lægju fyrir upplýsingar frá ríkisskatt- stjóra um að mörkin væru við 210-220.000 kr. mánaðarlaun. Það með var málið tekið af dagskrá. Nú hefur ríkisskattstjóri staðfest að niðurstaða DV var rétt - mörkin liggja við 104.000 kr. mánaðarlaun. Enn fannst sumum fjölmiðlum þetta ekki fréttnæmt og voru þó upplýstar rangfærslur ekki lengur bara ein heldur tvær. Og viðbrögðin? „Ekki sambæri- legir kostir" segir Ingibjörg Sólrún í frétt Morgunblaðsins í gær, spurð um þessa niðurstöðu ríkisskatt- stjóra. „Fréttin" er reyndar ein- ræða Ingibjargar Sólrúnar og ber ekki með sér að blaðamaður hafi spurt hana einnar einustu spurn- ingar. Eins og til dæmis: „Þú segir að þessar tillögur flokkanna séu ósambærilegar; hvers vegna varst þú þá ásamt öðrum forystumönn- um flokksins að bera þær saman fyrir nokkrum dögum og halda því fram að sá samanburður væri ykk- ur hagstæður?" Næstum allir fjölmiðlar hafa því gefið Samfylkingunni frítt spil í skattamálum. Hnífjafnt! Fjölmiðlar hafa jafnan verið heldur tregir til að hnýta hver í annan. Enda er rétt að fara spar- lega með slíkar yfirlýsingar; allir fjölmiðlamenn þekkja að margs konar ofur eðlilegar ástæður - sem koma óvönduðum vinnubrögðum eða meintri hlutdrægni ekkert við - geta verið fyrir því að fjallað er um hlutina á tiltekinn hátt en ekki einhvern annan. Átti að birta skoðanakönnun sem sýndi Sjálfstæðisflokkinn fara upp fyrir Samfylkinguna á forsíðu eins og flestar (ef ekki allar) fyrri kannanir sama blaðs? Átti forstjóri Hafrannsóknastofnunar að fá pláss framar en i þriðju síðustu frétt tO þess að gefa skýringar á ummælum sínum um þorskkvótann sem höfðu verið rifiuð upp með áberandi hætti daginn áður og gefið tilefni til fullyrðinga um að forstjórinn hefði kúvent til að þóknast forsæt- isráðherra? Það væri að æra óstöðugan að velta sér upp úr slík- um smámálum. En hvað skal segja þegar Stöð 2 slær því upp sem fyrstu frétt í fyrradag að fylgi Sjálfstæðisflokks- ins og Samfylkingarinnar sé „hnífiafnt"? Samkvæmt könnun- inni var fylgi Sjálfstæðisflokksins 36,8% en fylgi Samfylkingarinnar 33,9%! Þetta er auðvitað fráleit framsetning. Hún ber ekki með sér að fiölmiðlamenn séu almennt gagnteknir af ótta við að forsætis- ráðherra komi og „hamist í þeim“ ef þeir „lúta ekki valdi“ hans. Og það er erfitt að gera sér í hugarlund aðra skýringu en þá að sumir séu einfaldlega hnífiafnari en aðrir. MANUOACUR Norskur kór <yrt Motwh WéwNw. X>tnw»rll Pólskur harmon- ikkuktkarí Ht» Okai fe*«r w tftir Utmm Mmta* BltfK MitaM. Ufe 4* Xm+*u, V»dw Mikil andstaða við kvótakerfið Áttatiu próicnt Undtmanna cru andvig kvótakcrfinu umkvtemt nýrri skoóartakonnun Fréttablaðwm. Guðjón A. Kmtjánwon scgir þjódtna *já ranglartið i kcrfinu cn Fridrik J. Am- grim**on scgir að enn hafi ekki fundist betra fyrirkomulag. ------------i M**- tfcurn *ð t«»ft fnirti að *k>i* fcníW) ^----út txrir ttm. Utt - ■ - fpx við (ullyrflingar Samiylkinaarinnar trtfctaiawta; Þí mib Uw' ÍS?'«íSí:í« „ „ipvsismarka uro 1° kosbr J gS'ÆS vssz**-! Sss&w*6 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.