Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Síða 12
12
Helgarblað
FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 2003
DV
Ástarhreiðri Saddams
Kkt við gtaumgosaíbúð
Yfirgefið ástarhrelður
Til hliöanna voru speglar á veggjum frá gólfli til lofts og erótiskt ævintýramál-
verk ofan viö höföagaflinn. Málverkiö var af Ijóshæröri berbrjósta konu og að
baki henni vargræn skaöræöisskepna.
Bandarlskir hermenn, sem leitaö
hafa Saddams Husseins og helstu
fylgismanna hans eftir frelsun
Bagdads, fundu um helgina það sem
þeir kalla „ástarhreiöur Saddams" í
einu hverfa borgarinnar.
Umrædd íbúð, sem er á tveimur
hæðum, er í byggingu Baath-flokks-
ins í einu hverfa miðborgarinnar
sem sérstaklega hefur verið byggt
upp fyrir iraskan Saddam-aðal en í
byggingunni bjuggu aðallega for-
ingjar úr hernum og helstu forystu-
menn Baath-flokksins.
í fyrstu var talið að þama væri
um felustað hins tortryggna Sadd-
ams aö ræða en að sögn hermann-
annna minnti þetta leyniathvarf
Saddams helst á glaumgosaíbúð. í
henni vora leikmyndir gaman-
mynda frá sjöunda áratugnum með
tilheyrandi speglum og skrauti uppi
um alla veggi og loft og að sögn eins
þeirra eins og klippt út úr skopstæl-
ingum Austins Powers.
Spencer Willardson, liðsforingi
hersveitarinnar sem uppgötvaði
hreiðrið, sagði að þetta hefði verið
ótrúleg sjón. „Strákarnir hlupu á
mUli herbergja með alls konar upp-
hrópanir á vörum, enda höfðu þeir
aldrei séð annað eins nema þá í
Hollywood-myndum Á veggjunum
voru myndir og málverk af nöktum
konum inn á milli speglanna og á
borðunum eggjandi lampar, í lögun
eins og konulíkamar. Ein myndin
var af berbrjósta ljóshærðri konu og
önnur af dökkhærðri hetju með yf-
irskegg sem barðist við krókódíl."
sagði WUlardson.
Ekki af verri endanum
Að sögn fréttamanns, sem skoð-
aði íbúðina, voru myndir af Saddam
uppi um aUa veggi og á annarri
hverri var hann með þekktri hjá-
konu sinni þar sem þau horfðust í
augu og brostu hvort tU annars.
Húsgögnin voru ekki af verri end-
anum og hægindastólar og sófar
með gulUögðum örmum, auk svo-
kallaðra „beanback-stóla“ sem settu
mjög svip sinn á íbúðina.
í setustofunni var bar niðri í
miðri laug og mátti þar fmna dýr-
indis vín, aUt frá tuttugu ára göml-
um ítölskum og frönskum rauðvín-
um tU bestu og dýrustu viskíteg-
unda, að ógleymdu eðalkoniakinu.
I eldhúsinu voru fuUir glerskápar
af sérhönnuðum borðbúnaði með
íraska skjaldarmerkinu en tU spari
fádæma glæsUegt guUlagt kínverskt
matarsteU með skjaldarmerki kú-
veisku krúnunnar sem líklega er
ránsfengur úr Persaflóastríðinu eft-
ir innrásina í Kúveit.
Á efri hæðinni var sjónvarpsher-
bergi með risaskjá og gólfið þakið
bláum, bleikum og gulum púðum. í
baðherbergi inn af var nuddpottur
og tilheyrandi tæki og tól.
Ijóshærð og berbrjósta
Sjálft ástarhreiðrið, eða svefnher-
bergið, var í stóru rými á neðri
hæðinni og var risastórt rúmið feUt
inn í sambyggðan blómaskála með
plastblómum í einu homi herbergis-
ins. TU hliöanna voru speglar á
veggjum frá gólfi tU lofts og erótískt
ævintýramálverk ofan við höfða-
gaUinn.
Málverkið var af ljóshærðri ber-
brjósta konu og að baki henni var
græn skaðræðisskepna. Konan
bendir fingri að einhvers konar goð-
sagnahetju, sem eflaust hefur átt að
tákna sjálfan Saddam, og út úr
fingri konunnar sprettur risasnák-
ur sem vefur sér um líkama hetj-
unnar.
Önnur mynd i herberginu var af
bústinni konu, sem hlekkjuð er við
hrjóstrugan eyðimerkurdrang og í
baksýn er grimmur dreki sem gerir
sig líklegan tU þess að ráðast á kon-
una með beittum klónum.
Myndin þykir táknræn fyrir
þekkta kynlífsóra Saddams og án
efa er drekinn ímynd hans en kon-
an ímynd hinnar ljóshærðu
fyrrverandi hjákonu hans, Paris-
oula Lampsos, sem Saddam kaUaði
sjálfur Shaqraa, eða Ljósku, en
undanfama mánuði hefur hún verið
í felum eftir ævintýralegan flótta
undan Saddam frá írak um
Jórdaníu.
Tvennar nærbuxur
í klæðaskápum svefnherbergisins
var lítið að sjá annað en tómar
skúffur og hiUur fyrir utan tvenn pör
af boxer-nærbuxum, tvo stuttermaboli
og baðslopp, öUu pakkað rækUega inn
í plast.
f næsta húsi, sem Saddam átti
einnig, fundust gífurlegar vopna-
birgðir bak við glugga með sterkum
járnrimlum.
Að sögn WUlardsons liðsforingja
voru þar þúsundir vopna og þar á
meðal um 6000 Barretta-skamm-
byssur, 650 Sig Sauer-skammbyssur,
250 Colt-marghleypur, 160 belgískar
7,65 mm skammbyssur, tólf kassar af
litlum Sterling-vélbyssum og fjórir
kassar af skriðdrekavamarflaugum,
enn þá í upprunalegum óuppteknum
kössum. Þá voru þar tugir þúsunda
skothleðslna af ýmsum gerðum, auk
stafla af sprengjuvörpum, gömlum
handbyssum og þungum hríðskota-
rifflum.
Kallaði hana Ijósku
Áðumefndri hjákonu, sem Saddam
kallaði Ljósku, kynntist hann fyrir
meira en þrjátíu árum þegar hún var
rétt um tvítugt og hann 31 árs.
Þetta mun hafa verið árið 1968
þegar hinn ungi og fjallmyndarlegi
Saddam Hussein var að klifra upp
metorðastigann í Baath-flokknum.
Shaqraa, sem hafði lengst af búið í
Beirút í Líbanon þar sem hún ólst
upp, er dóttir grísks vellauðugs
olíuverkfræðings sem á svipuðum
tíma hóf störf við olíuiðnaðinn í írak.
í einni heimsókninni til fóður síns
kynntist hún Saddam og féll fyrir
honum. Þar með var hún föst í
vefnum og hófst ástarævintýið í íbúð
bróður Saddams í Bagdad.
Þegar Saddam tók síðan við for-
ystunni í Baath-flokknum af frænda
sínum, Ahmad Hasan al-Bakr, eftir
vel heppnað valdarán flokksins í
Bagdad, hélt Shaqraa að ævintýrið
væri úti og flutti þá aftur heim til
Beirút.
Það var svo ekki fyrr en hún flutti
aftur til Bagdad, eftir að hafa gifst
íröskum kaupsýslumanni, að hún
uppgötvaði að Saddam hafði alls ekki
í hyggju að slíta sambandi þeirra.
Eiginmaðurinn í fangelsi
í heimildamynd, sem sýnd var á
bandarísku ABC-sjónvarpsstöðinni í
september sl. á sama tíma og Banda-
ríkjamenn voru að vinna hern-
aðaráformun sínum í írak hylli
alþjóðasamfélagsins, lýsti Shaqraa
því hvernig Saddam, sem þá þegar
var orðinn einræðisherra í írak, lét
varpa eiginmanni hennar í fangelsi.
Síðan þvingaði hann hana til þess að
yfirgefa Rétttrúnaðarkirkjuna sem
bannar hjónaskilnaði.
„Hann lét mig viðurkenna ís-
lamska trú til þess að ég gæti orðið
frilla hans. Þegar það var afstaðið lét
hann flytja mig beint í forsetahöllina
til þess að hafa kynmök við mig. í
fyrstu ætlaði ég aðeins að heilsa hon-
um með handabandi en hann greip
mig í fangið og faðmaði mig þétt-
ingsfast að sér. Hann vildi strax hafa
við mig mök og þegar hann hafði
lokið sér af löðrungaði hann mig
nokkrum sinnum og öskraði: „Ég er
aldrei veiklundaður nema þegar ég
er með þér.“
Hrifin af Saddam í fyrstu
Shaqraa viðurkennir að þrátt
fyrir ofbeldishneigðina hafi hún í
fyrstu verið hrifin af Saddam.
„Hann var ungur og aðlaðandi og
alltaf vel klæddur. Hann spurði mig
oft ráða, þó aldrei um stjómmál
eða viðskiptiheldur frekar um það
hvernig hann ætti að klæðast og
annað slíkt. Þá gerði ég mér ekki
grein fyrir grimmdinni og að hann
væri í raun sá glæpamaður sem
hann er,“ sagði Shaqraa.
Shaqraa, sem var frilla Saddams
í meira en þrjátíu ár og er núna á
fimmtugsaldri, segir einnig frá að-
draganda þess að hún ákvað á flýja
og er sú saga hryllingssögu líkust.
„Þar kemur að þætti Udays, eldri
sonar Saddams, sem misnotaði
dóttur mína oftar en einu sinni.
Hann nauðgaði henni fyrst þegar
hún var fimmtán ára og það gerði
hann heima í höll foður síns. Innan
um þessa ódæðismenn gat ég
ekkert gert annað en fara með
dóttur mína á spítala þar sem hún
fékk aðhlynningu og ég gat heldur
ekkert gert þegar Uday hélt
leiknum áfram. Eftir nauðgunina
fann ég fyrst til verulegs haturs í
garð Saddams og fékk það stöðugt á
tilfinninguna að hann væri að
nauðga mér þegar ég svaf hjá
honum. Ég viðurkenni þó að hið
ljúfa líf, sem hann bauð upp á,
mildaði mig en á endanum gat ég
ekki lifað við þetta lengur. Ég var
orðin hallarskækja," sagði Shaqraa
með tárin í augunum.
Erlendar fréttir vikunii
Handalausi dnengurinn á spítala
Tólf ára
íraskur dreng-
ur, Ali Ismail
Abbas, sem
hefur orðið
eins konar
táknmynd fyr-
ir þjáningar
óbreyttra borg-
ara í stríðinu í
írak, er nú kominnn á sjúkrahús í
Kúveit þar sem læknar ætla að
gera að sárum hans eftir mætti. Ali
litli missti báða handleggi og
brenndist illa þegar bandarískt
flugskeyti eyðilagði heimili hans í
Bagdad. í árásinni létust foreldrar
hans, bróðir og nokkrir aðrir ætt-
ingjar. Læknar á sjúkrahúsi í
Bagdad höfðu lýst því yfir að Ali
litli kynni að deyja kæmist hann
ekki á almennilega búið sjúkrahús
hið fyrsta.
Fundað upp eftirleikinn
Fyrsti fundur fulltrúa banda-
manna og íraskra stjómarandstæð-
inga um framtíðarskipan í írak var
haldinn skammt frá borginni Nass-
iriya á þriðjudag. Þar var sam-
þykkt áætlun bandamanna í þrett-
án liðum um lýðræðislega upp-
byggingu í írak. Næsti fundur
verður haldinn eftir páska. Ekki
voru allir jafnhrifnir af tiltækinu
því samtök sítamúslíma, sem eru
meirihluti íbúa íraks, mættu ekki
til fundarins til að mótmæla af-
skiptum Bandarikjamanna. Nauð-
synlegt er þó talið að fá síta með
vegna þess hve fjölmennir þeir eru.
Heimabopg Saddams falHn líka
Segja má að sigur hafi unnist í
stríðinu í írak á mánudag þegar
bandarískar hersveitir náðu Tikrit,
heimaborg Saddams Husseins, á
sitt vald. Hermennimir mættu
harðri mótspyrnu i útjaðri borgar-
innar fyrst í stað. Bandarískar
flugvélar höfðu haldið uppi mikl-
um loftárásum á stöðvar lýðveldis-
varðar Saddams til að veikja mót-
stöðu þeirra.
Sýrlendlngar í skotlínuraii
Bandarískir
ráðamenn fóru
mikinn í vikunni
þegar þeir keppt-
ust við að hóta
Bashar al-Assad
Sýrlandsforseta og
stjóm hans.
Bandaríkjamenn
saka Sýrlendinga um að vera að
reyna að koma sér upp gjöreyðing-
arvopnum og um að hafa gert til-
raunir með efnavopn. Þá segja
Kanar að leiðtogar íraka hafi feng-
iö skjól í Sýrlandi á flótta sínum
undan innrásarhernum. Sýrlend-
ingar visa öllum slikum ásökunum
á bug og undir miðja viku virðist
sem heldur hafi sljákkað í Banda-
ríkjamönnum.
Þjóöargfipsemap glataöan
Vargöldin í Bagdad og öðrum
borgum fraks, þar sem vopnaðir
flokkar manna hafa farið um ræn-
andi og ruplandi, hélt áfram i vik-
unni þótt innarásarhermenn hafi
um síðir reynt að hafa hemild á
gripdeildarmönnum. Þjóðminja-
safnið í Bagdad er ein þeirra opin-
beru stofnana sem fengið hefur að
kenna á stjórnleysinu í borginni.
Sérfræðingar óttast nú að þjóðar-
gersemar sem þaðan voru teknar
séu að eilífu glataðar.
Töldu síg komast í feítt
Bandaríkjamenn
töldu sig heldur
betur hafa komist í
feitt á mánudags-
kvöld þegar sér-
sveitir i Bagdad
handtóku palest-
ínska hryðjuverka-
foringjann Abu
Abbas. Hann var höfuðpaur hóps
sem rændi ítalska skemmtiferða-
skipinu Achille Lauro á Miðjarðar-
hafi árið 1985. Abbas hafði dvalið í
írak undanfarin 17 ár en hafði
margsinnis ferðast til Gaza, með
leyfi ísraelskra stjórnvalda.