Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Qupperneq 25
FIMMTUDAOUR 17. APRÍL 2003 H e !c) cj rt> ict c) TDTST 25 r DV-myndir Hari Einar kemur kartöflutening- unuin, sem fylltir hafa verið með kartöflumauki bættu með sinjöri og beikoni, fyrir á diskinum. Skreytt með grænu. Portobellosveppirnir eru lagðir yfir hryggvöðvana áður en þeini er stungið í ofn til steikingar við lágan hita. Hér sker Einar vöðvann í sneiðar eftir steikingu. Sósa úr lambasoði, portvíni, lauk og timjan passar vel með lambasteikinni og gefur rauðan og gljáandi lit á diskinn. $S BLA* l- Spænskt og ástralskt sem smellpassa með lambakjöti - er val Guðrúnar Gunnarsdóttur hjá Eðalvínum Stundum heyrum við að aöeins sé hægt að drekka ákveðin vín með ákveðnum mat. í raun- veruleikanum er það samt þannig að hver hefur sinn smekk og sínar skoðanir um hvað sé gott með hverju. Einfaldur hlutur eins og krydd get- ur gerbreytt mat og þar af leiðandi hvaða vín passar með hvaða mat. Skynsamleg notkun á salti í mat, sérstaklega í sósur og annan Savory- mat, getur verið mjög gagnleg til að tóna niður beiskleika í vínum. Einnig þarf að hafa í huga að því saltari sem matur er því bragðminna verður vínið sem drukkið er með. Sæta i mat eykur hins vegar sýruupplifun, beiskju og samherpingu í víni. Hún gerir vínið þurrara, minnkar ávöxtinn í því, bælir niður sætleikann og gerir það bragð- sterkara. í meðfylgjandi uppskriftum er mikið af sætum mat. Með það í huga valdi Guðrún Gunn- arsdóttir hjá Eðalvínum vín frá „gamla“ og „nýja“ heiminum. Beronia Reserva er framleitt í Rioja á Spáni sem oft er nefnt Bordeaux Spánar. Bodegas Ber- onia var stofnað 1973 af vínáhugamönnum sem vildu framleiða hágæðavín sem ekki færi á markað fyrr en það væri tilbúið til neyslu. Fyrir- tækið Gonzalez Byass keypti víngerðarhúsiö árið 1982. Það er á Rioja Alta-svæðinu þar sem allar vínekrur Beronia. Beronia Reserva er látið þroskast í 18 mánuði í eikartunnum. Nokkuð mikil fylling einkennir vínið, örlítið krydd og vanilla í eftirbragði. Algengt er að finna sterkan sveppailm. Þetta er mjög mjúkt og gott vin sem hentar einstaklega vel með lambakjöti, nauta- kjöti eða villibráð. Vínið mun vera einstaklega gott með beikonkartöflunum. Gott er að umhella víninu ef það er orðið eldra en 7-8 ára gamalt. Kjörhitastig til neyslu er 18 gráður. Beronia Res- erva fæst í kjarnabúðum ÁTVR og kostar 1290 krónur. Á hverju ári velja stærstu samtök áfengis- framleiðenda bestu framleiðendur og vörur fyrir hvern flokk áfengis sem er framleidd- ur í heiminum að bjór undanskildum. Þessi keppni eru undir merkjum IWSC - International Wine and Spirit Com-petition. Þetta er sennilega mesta viðurkenning sem fyr- irtæki eða vara í vínheiminum getur fengið. Ástralski framleiðandinn Wolf Blass var valinn besti vinframleiðandi í heimi árið 2002 og atti þar kappi við framleiðendur frá Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi, Bandaríkjunum, Nýja-Sjá- landi og Suður-Afríku. Frá Wolf Blass kemur Yellow Label Cabernet Sauvignon en það er framleitt í Suður-Ástralíu. Þetta er meðalþungt vin með keim af dökkum berjum og nokkuð áberandi mintukeim. Fá vín passa eins vel með íslenska lambakjötinu. Kjörhitastig til neyslu er 16-18 gráður. Wolf Blass Yellow Label Cabernet Sauvignon fæst í kjarnabúöum ÁTVR og kostar 1370 krónur. Umsjón Haukur Lárus Hauksson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.