Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2003, Page 38
38 Helgarblaci H>'V FIMMTUDAGUR IV. APRÍL 2003 „Mér sýnist að skoðanakannanir beri með sér að hér geti orðið niikil og löng stjórnarkreppa ef svo fœri að hér yrðu tvœr stórar fylkingar sein tækjust á og allir hinir flokkarnir, þar á meðal við, yrðum sináflokkar." segir Guðni Ágústsson m.a. DV-myndir GVA Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ræðir um pólitíkina og kosningabaráttuna: Brimbrjótur í átta ár Það i/ar ekki hlaupið að þvíað ná tali af Guðna Agústssyni landbúnaðarráðherra, nú þegar kosningabaráttan er t algleymingi. Hann er á ferð og flugi um kjördæmi sitt þessa dagana og hver mínúta bókuð. Loks tókst þó að finna stund þar sem hægt var að spyrja hann út ípólitíkina, kosningabar- áttuna, stöðu stjórnmálaflokkanna og af- stöðuna til Evrópusambandsins, svo eitt- hvað sé nefnt. Fyrst lá beinast við að ræða um fylgi Framsóknarflokksins samkvæmt undangengnum skoðanakönnunum. - Hvers vegna hefur Framsóknarflokkurinn komið svo illa út úr skoðanakönnunum eins og raun ber vitni? „Ég heyri, þar sem ég fer, að fólk er undrandi á því að Framsóknarflokkurinn skuli koma svona út úr könnunum. Margir telja að miðað við verkin eigi Framsóknarflokkurinn það alls ekki skilið. Við höfum verið ákveðinn brimbrjótur í átta ár í því að efla þjóðartekjur og atvinnulíf íslendinga. Við höf- um farið með atvinnumálaráðuneytin og höfum auðvitað náð mjög miklum árangri í að bæta lífs- kjörin, atvinnuleysi hefur horfið að mestu, land- flótti er úr sögunni og um 3000 íslendingar hafa flutt heim á þessum tíma og sest hér að. Við höfum þurft á miklu vinnuafli erlendis frá að halda til þess að ráða viö allt það sem við erum að gera. Þetta hafa auðvitað verið erfið verkefni og mikil mótstaða við þau á stundum. Það var mikil mót- staða við að stækka Straumsvík, gríðarleg mótstaða við að byggja Norðurál í Hvalfirði, svo eitthvað sé nefnt. Fólk flykktist saman til að mótmæla, menn héldu að allt færi í eyði í kringum höfuðborgina. En það er nú öðru nær. Þetta hefur aukiö þjóðar- tekjur og gert vatnsaflið, hina hreinu orku, að sterkri auölind og skapað framtíðarþjóðartekjur fyrir íslendinga. Þessu öllu höfum við orðið að fylgja eftir. Merkileg staða Mér heyrist nú samt sem áður núna í þessari kosningabaráttu, að ekki sé verið að væna okkur um að hafa brugðist í þessum verkum varðandi at- vinnulífiö. Allir vilja nú „Lilju kveöið hafa“. Við höfum einnig náð miklum árangri í verkum okkar sem náttúruverndarflokkur. Jón Kristjánsson, þá settur umhverfisráðherra, komst að þeirri niöur- stöðu að hægt væri að stækka Norðurál með Norð- lingaölduveitu án þess að láta fermetra af Þjórsár- verum undir vatn, af friölandinu sjálfu. Kára- hnjúkavirkjun og Reyðarál verða þýðingarmikil verkefni í auknum hagvexti næstu árin. Þetta sýnir hvernig við vinnum, enda er enginn að ræða um umhverfismál í kosningabaráttunni núna, heldur eru allir flokkar að boða skattalækk- anir út á þær framkvæmdir sem brimbrjóturinn, Framsóknarflokkurinn, hefur rutt leið á undan- förnum árum. Þetta er því merkileg staða ef flokk- urinn færi svona út úr kosningum." - Hvað með stöðu heilbrigðismála, sem hefur ver- iö umdeild? Telurðu að flokkurinn sé að gjalda fyr- ir hana? „Heilbrigðismálin eru afar mikilvægur mála- flokkur. Ingibjörg Pálmadóttir varð í upphafi í sínu starfi sem heilbrigðisráðherra fyrir ýmsum ásök- unum, sem hún náði sér út úr. Mér finnst að Jón Kristjánsson, núverandi heilbrigðisráðherra, leysi öll mál af trúverðugleika. Við höfum náð samning- um við eldri borgara um bætt lífskjör. Nú síðast náðum við samningum um að bæta kjör öryrkj- anna, þeirra yngstu í þeirra hópi, verulega. Við höf- um notað afl og auknar tekjin- úr atvinnulífinu til þess að reyna að bæta kjör þeirra sem verst eru settir.“ - Sjálfstæðisflokkurinn virðist halda nokkuð stöðugu fylgi í skoðanakönnunum, meðan Fram- sóknarflokkur tapar. Telurðu að Sjálfstæðisflokkur- inn sé þarna að hagnast á verkum samstarfsflokks- ins eftir átta ára ríkisstjórnarsamstarf? „Ég veit í sjálfu sér ekki hvort Sjálfstæðisflokk- urinn er að hagnast á þeim. Staðan með Sjálfstæð- isflokkinn virðist mér sú að menn séu ekkert sér- staklega að velta því fyrir sér hvað hann gerir eða gerir ekki. Hann á sitt fylgi í um 35 prósentum og þar fyrir ofan. Það virðist eins konar lögmál að menn sætti sig við allt sem hann gerir. Hann býr ekki viö mikla gagnrýni innan frá og kannski litla utan frá. Það hefur frekar verið tilhneiging til að ráðast á samstarfsflokka Sjálfstæðisfloksins, reyna að sækja að þeim og takast á við þá.“ Hrópandi mismunur - Hvernig meturðu samstarfið við Sjálfstæðis- flokkinn eftir átta ár. Hefur ríkt fullt traust manna á millum? „Ég held að það sé öllum mönnum ljóst að þetta samstarf í átta ár hefur verið farsælt fyrir þjóðina og árangur verkefna mjög góður. Það hefur ríkt traust á milli flokka og menn hafa lagt ágreinings- mál til hliðar og tekið á saman. Við í innsta hring skynjum að það er auðvitað heilmikill stefnumun- ur á þessum flokkum og oft tekist á um hvert eigi að fara. Við sjáum það ef til vill best núna þegar stefnuskrár þessara tveggja flokka sjást og hvað þeir hafa ályktaö á flokksþingum. Þar sést hinn hrópandi mismunur. Framsóknarflokkurinn segir til dæmis að við höfum getað bætt kjör unga fólksins í gegnum íbúðalánasjóð. Hann verður ekki einkavæddur. Hann verður ekki seldur. Við höfum getað lengt lánin í 25-40 ár. Við höfum getað haldið vöxtunum niðri. Við trúum því að við getum enn bætt kjör unga fólksins í gegnum sjóðinn með því að hækka lánin upp í 90 prósent hjá öllum. Þess vegna á ekki að einkavæða hann. Yröi hann seldur til peninga-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.