Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 DV Fréttir Síðustu landgönguliðarnir í Bandaríkjaher á Keflavíkurfligvelli kveðja: Ríflega 50 manna deild á förum Á heimleiö Þaö var svo komiö aö ekki reyndist þörf fyrir landgönguliöana, enda haföi þeim smátt og smátt veriö fækkaö niöur í þessa fimmtíu á undanförnum árum. Ríflega flmm- tíu manna deild landgönguliða í Bandaríkjaher á Keflavíkurflug- velli er nú á leið af landi brott. Deildin hefur kvatt formlega og fer héðan á næstu vikum. Landgöngulið- arnir voru hér til öryggisgæslu en þau störf hafa nú færst yfír til annarra deilda, að sögn Friðþórs Eydals, upplýsingafulltrúa Banda- ríkjahers. Smátt og smátt hefur verið fækkað í deildinni sem taldi 100 manns í upphafi og eru síð- ustu landgönguliðarnir nú á för- um. Friðþór sagði, að landgöngulið- ar hefðu verið fyrsta liðssveit Bandaríkjahers sem komið hefði til landsins 7. júlí 1941. Mjög fljót- lega bættust við flugher, landher og floti sem reyndar komu með landgönguliðana. Síöar þegar reksturinn á varn- arliðinu og vamastöðinni á Kefla- víkurflugvelli breyttist frá því að vera á hendi flughersins til þess að vera á hendi flotans 1961 komu hingað rúmlega 100 landgöngulið- ar sem hafa fylgt flotanum þar sem hann fer og sinnt ýmiss kon- ar varðgæslu og öryggisþáttum. Þeir önnuðust t.d. eftirlit með ol- íubirgðastöðinni í Hvalfirði fram til 1967 og til að mynda eftirlit með stjórnstöðvum og fjarskipta- stöðvum á Keflavíkurvelli. „Sá þáttur hefur smátt og smátt verið að færast yfir til öryggislög- reglu flotans sem annast almenna löggæslu jafnframt öryggisgæsl- unni, ásamt íslensku lögreglunni á Keflavíkurflugvelli,“ sagði Frið- þór. „Það var svo komið að ekki reyndist þörf fyrir landgöngulið- ana, enda hafði þeim smátt og smátt verið fækkað niður í þessa fimmtíu á undanförnum árum.“ Friðþór kvaðst ekki vita til þess að fleiri varnarliðsmenn væru á leið af landi brott. Áhyggjur „Að sjálfsögðu höfum við áhyggjur af at- vinnusvæði sem skapar um 1700 íslendingum störf, ýmist beint í vinnu fyrir Vamarlið- ið eða fyrirtækj- um sem tengjast starfsemi Varnarliðsins,“ sagöi Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, um fækkun í Vam- arliðinu. Hann sagði að framhaldið færi mikið eftir því hvernig íslensk stjórnvöld taka á endurskoðun þeirrar bókunar sem er framund- an um það hvers konar starfsemi eigi að fara hér fram. „Við treystum á að íslensk stjórnvöld standi föst fyrir. Marg- ir starfsmenn í bandaríska utan- ríkisráðuneytinu telja ekki þörf fyrir flugvarnir hér heldur mæla með sjóvörnum. Ef það sjónar- mið yrði ofan á væri nánast ver- ið að leggja af þá starfsemi sem hér er. Ég hef áhyggjur af þeim orðum sem frá stjórnmálamönn- um fara þar sem þeir era að gefa sér að þetta fari fljótlega úr hönd- um Bandaríkjamanna. Slík sjón- varmið era ekki til að hjálpa okk- ur.“ Endurskipulagning „Þarna er um aö ræða endur- skipulagningu," segir Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytis- stjóri í Utanríkisráðuneytinu. „Það er verið er að stokka upp starfsemina á Vellinum, þessu hlutverki sem herdeildin hafði með höndum verður sinnt af ör- yggisdeild sjóhersins annars veg- ar og hins vegar af MP, Military Police, herlögreglunni." Gunnar Snorri taldi það af og frá að þarna væri um aö ræða fyrsta áfanga í að Varnarliðið með hátt í 3 þúsund menn hyrfi frá íslandi. -JSS/hlh/JBP Á Ráðhústorgi Ástu Fyrir íslendinga á ferð í Kaup- mannahöfn er sjálfsagður siður að fá sér pylsu á Ráðhústorginu. Fyrir fólk sem var á ferð í Reykjavík á laugardag var sömuleiðis sjálfsagt að næla sér í eina með öllu sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins buðu á kosningaskemmtunum vítt og breitt um borgina. „Margir not- uðu einnig tækifærið til þess að ræða við okkur frambjóðendur. Bæði um stefnumálin og einnig bera upp við okkur ákveðin mál,“ sagði Ásta Möller sem skipar 5. sætið á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík norður. DV fylgdi henni eftir stund- arkom á laugardag. Loforð og leiðir Ásta Möller var komin upp í Breiðholt um klukkan tíu á laug- ardagsmorgun. Þangað voru einnig mættir til að grilla pylsur Guðmundur Hallvarðarsson þing- maöur og borgarfulltrúinn Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson. Öll sýndu þau góða takta við grillið. Nokkuð sem þau sýna yfirleitt ekki öðrum en sinni fjölskyldu. Og svo vel tókst þeim til að á þremur klukkustundum ruku út 1.300 pylsur sem jafnt háir sem lágir gerðu góð skil. DV MYNDIR -SBS Kunnugleg andlit Björn, Sölveig og Ásta. Góöa veöriö í Reykjavík um helgina haföi bætandi áhrif á mannlífiö svo allir fóru aö brosa. Frambjóöendur voru þar engin und- antekning. Pylsur, bíó og kampavín Áfram hélt Ásta í pylsunum. Fjölskylduhátíð sjálfstæðismanna Um eitt leytið var Ásta komin upp í Grafarvog og leit þá inn í verslunar- miðstöðina í Spöng. Hafði þar tal af fólki sem var aö gera helgarinnkaup- in - og fékk í kaupbæti leiðsögn um pólítíkina. Hvemig þær leiðir og lof- orð sem Sjálfstæöisflokkurinn býður geta drýgt mánaðarlaunin svo fá megi meira fyrir hveija krónu. Út á það gengur pólíktikin í ríkum mæli; en þó umfram allt annað að skapa —gott samfélag. Ein með Pylsan er góö - og var hádegismatur vegamóös þingmanns. skessuleik Þingmenn þur fa aö bregða sér í ýmis hlutverk. Rétt eins og aö fara meö krökkunum í skessuleik - eöa hvaö sem leikir nútímans heita. ALÞINGISKOSNINGAR 2 0 0 3 Á FERÐ IWEÐ FRAMBJÓÐENDUM í Grafarvogi var haldin við Gufu- nesbæinn um kl. 13 þar sem krakkar fóru í leiki, fullorðnir skröfuðu saman og frambjóðendur grilluðu. Þetta var í líkum dúr og í Breiðholti um morguninn. Það sem svo síðar var í boði á þessum bjarta vordegi var bíó síð- degis, þar sem Sjálfstæðisflokkur- inn bauð gestum og gangandi að sjá nokkrar af vinsælustu ís- lensku myndum seinni ára. Áður en sýning hófst var Ásta þar og heilsaði upp á bíógesti. Einnig var hún á konu- og kampavínskemmt- un á Metz í Austurstræti. Góöir taktar viö grilliö Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Ásta sýndu kjósendum góöa takta viö grilliö - og þaö aö þeim er fleira til lista lagt en standa í bardaga á hin- um þólítíska vettvangi. Vorið og bjartsýnin Það var bjart og fallegt í Reykja- vík á laugardag og vísast hefur það haft sín áhrif á sálarlíf fólks- ins. „Það var gaman að fara um og tala við fólk. Vorið gerir alla bjart- sýna. Og það er gaman að standa í kosningabaráttu þegai' svo er, enda er Sjálfstæðisflokkurinn bjartsýnn flokkur.“ -sbs Átök innan ÍSÍ: „Ófrægingar- herferð" „Eftir þvi sem mér skilst er Júl- íus Hafstein að leggja fram kæru vegna bréfa sem skrifuð voru fyrir 2 og 3 árum í um- boði fram- kvæmdastjómar ÍSÍ og undirrituð af mér. Kærandi segir að þau feli í sér villandi upp- lýsingar og hafi leitt til þess að hann var ekki skipaður í til- tekna nefnd í út- löndum. Ég man þó ekki betur en hann hefði sagt í blaðaviðtali að hann hefði sjálfviljugur tekið þá ákvörðun að hætta í nefndinni. Annars segi ég bara þetta: Þaö er engin tilviljun að þessi kæra er lögö fram viku fyrir kjördag. Þetta er lið- ur í ófrægingarherferð sem hófst þegar ég gekk til Uðs við „vitlaus- an“ flokk. Ætli þetta sé ekki góð sýnikennsla um vinnubrögð bláu handarinnar. Ég mun snúa mér að þessu máli þegar kosningar eru af- staönar,“sagði Ellert B. Schram við DV í morgun. Sviptur rétti eöa ávíttur Júlíus Hafstein hefur krafist þess að Ellert B. Schram, forseti íþrótta- og Ólympíusambands íslands, verði sviptur rétti til að gegna trúnaðar- störfum innan sambandsins og lagt fram kæru þar að lútandi til dóm- stóls ÍSÍ. Til vara krefst hann þess að Ellert verði víttur en til þrauta- vara að hann verði áminntur. Einnig krefst hann þess að stjóm ÍSÍ verði gert að afhenda sér afrit af öllum bréfum sambandsins til Heimssambands Ólympíunefnda sem varði hann persónulega. Tilefnið em bréf sem Ellert skrif- aði sem forseti ÍSÍ til forseta Heims- sambands Ólympíuneíhda árið 2000. Þar hafi Ellert, að sögn Júlíusar, þrýst á að Júlíus yrði leystur frá störfum í nefhd innan Alþjóða Ólympíunefndarinnar og hann sjálf- ur eða aðrir sem hann tilgreini látn- ir taka við. Júlíus fékk tvö bréfanna afhent frá stjóm ÍSÍ en ekki önnur sem hann segist þó hafa upplýsing- ar um að Ellert hafi sent. I kærunni er fullyrt að Ellert beiti sér í bréfun- um fyrir því með blekkingum og villandi upplýsingum að Júlíus verði leystur frá störfum í ofan- greindri nefnd. Meðal annars gefi Ellert í skyn í bréfunum að Júlíus sé ekki starfandi innan íþróttahreyf- ingarinnar þrátt fyrir að hann hafi þá verið formaður Blaksambands ís- lands, fulltrúi í Ólympíunefiid ís- lands og formaður Evrópusambands C-þjóða í blaki. Ellert hafi þannig stundað rógsherferð á hendur Júl- íusi í þeim tilgangi að koma sjálfum sér eða öðrum í það trúnaðarstarf sem Júlíus gegndi. Þessi háttsemi sé brot á 2. og 4. lið 35. gr. laga ÍSÍ, Júlíus sagði í samtali við DV að aðalatriðið væri að þetta kæmi fram á sjónarsviðið svo koma mætti í veg fyrir að menn stunduðu slík vinnu- brögð í framtíðinni. „Hér er ekki bara um mig að ræöa. Geti forseti ÍSÍ hagað sér með þessum hætti getur hann auðvitað skrifað svona um hvem sem er til heildarsamtaka íþróttahreyfmgar- innar án þess að stjómarmenn í ÍSÍ hafi hugmynd um það. í þessu til- felli vissu stjómarmenn ekkert um málið fyrr en ég upplýsti þá um það, en ég fékk upplýsingar um vinnubrögð Ellerts erlendis frá,“ segir Júlíus. Hann þvertekur fyrir að tímasetn- ing kærunnar hafi nokkuð með komandi alþingiskosningar að gera. „Mér er nákvæmlega sama í hvaða stjómmálaflokki Ellert er. Það hefur ekkert með þetta mál að gera,“ segir Júlíus. -hlh/ÓTG Júlíus Hafstein.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.