Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 25
49 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 DV Tilvera Spurning dagsins Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Halla Sigrún Matthiesen, 5 ára: Hamborgari á McDonald’s og pitsa með tómatsósu og osti. Alma Finnbogadóttir, 5 ára: Pitsa margarita. Unnur Bjarnadóttir, 8 ára: Ég veit þaö ekki. Viktoria Und Gunnarsdóttir, 6 ára: Hamborgari. Unda Tómasdóttir, 8 ára: Pitsa meö túnfiski. Ragnhildur Þrastardóttir, 6 ára: Pitsa meö pepperoni. Stjömuspá Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.l: _ 1 k Hætta er á að ástvinir fJ/ lendi upp á kant og þú þarft því að leggja þig fram um að sýna nær- gætni og tillitssemi í samskiptum. Taktu það rólega í kvöld. Fiskarnir(19. febr,-20. marsl: Dagurinn verður lannasamur en að sama skapi afar skemmtileg- ur. Þú kemur miklu í verk og verður ánægð að dagsverki loknu. Hrúturinn (21. mars-19. aaríl): fVFélagslífið blómstrar um ^“■w^^JPþessar mundir og þér gengur vel að umgangast fólk. Þú munt bráðlega hitta manneskju sem hefur mikil áhrif á lif þitt til hins betra. Nautið (20. april-20. maí): / Fólk er gjarnt á að reyna að ráðskast með þig og þú verður %ssi# að vera ákveðinn og sýna hvað í þér býr. Kvöldið verður ánægjulegt. Tvíburarnlr (21. mai-21. iúnii: V Þú hefur verið /yNr-hálfdapur undanfarið _ / í en nú er bjartari tími fram undan. Þér gengur vel i vinnunni og færð hrós fyrir. Ástin blómstrar. Krabbinn (22. iúní-22. iúiit: Þér gengur vel í við- i skiptum þessa dagana og ' ættir að nota tækifærið ____ ef þú hefur á annað borð hug á að fjárfesta. Kvöldið verður ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar. Krossgáta Lárétt: 1 krampi, 4 fljótfæmi, 7 blóm, 18 heysæti, 10 skortur, 12 hest, 13 stúlkum, 14 köggul, 15 reið, 16 vandræði, 18 mjög, 21 tindur, 22 ró, 23 verst. Lóðrétt: 1 látbragö, 2 tíðum, 3 örlæti, 4 óspilltur, 5 draup, 6 sigti, 9 telja, 11 hjúkra, 16 beiðni, 17 seyði, 19 leyfi, 20 upphaf. Lausn neðst á síöunni. Glltllr fyrlr þriöjudaginn 6. maí Ljónjð (23. iúlí— 22. ágúst): ■ Ekki er ólíklegt að þú farir í óvænt ferðalag sem mun hafa mjög góð áhrif á þig. Þér býðst óvænt tækifæri í vinmmni og er um að gera að nýta sér það. Meyjan l23..Múst-22, sfflaU Þú þarft að taka sjálf- umþértakvarðandi tiltekt á heimilinu. Þar ^ f hefur ýmislegt drabbast niður undanfarið. Það er þó ekki eins mikið mál og þú heldur. Vogin (23. sept.-23. oKU: J Ástarliflð er fyrirferð- armikið og talsverð Vspenna er í loftinu. Þú r f gætir þurft að velja á milli tveggja einstaklinga. Happatölur þínar era 11, 27 og 39. Sporðdreklnn (24. okt.-2i. nóv.c J Þú ert sérstaklega ■ vel upplagðxu- þessa LJJdagana og kemur miklu í verk. Einhver spenna liggur í loftinu varðandi félagslífið. Bogmaðurinn (22. n6v.-2l. des.l: •Þú þarft að grafast rfyrir um orsakir A'' hegðunar vinar þíns. Þér finnst hann eitthvað undarlegur og það er nauðsynlegt að vita ástæðuna. Stelngeltln (22. des.-19. ian.): Félagslífið er blómlegt hjá þér og þú þarft víða að koma við. Það er ekki laust við að þér finnist það einum of mikið af þvi góða. Hvítur á leik! Ég á mér nokkra uppáhaldsskákmenn og Jonny Hector er einn af þeim. Ég skil nú sjaldnast hvað hann er að gera í skáklistinni og það finnst mér skemmti- legt. Ég hef reyndar hermt eftir honum og unnið án þess aö botna í af hverju. Lausn á krossgátu Umsjón: Sævar Bjarnason Hér tekur hann ungan landa sinn í kennslustund sem viðkomandi hefur vonandi dregið einhvem lærdóm af! Hvítt: Jonny Hector (2553) Svart: Bengt Lindberg (2392) Drottningarpeðsleikur. Malmö (2), 30.04. 2003 1. d4 Rf6 2. Rc3 d5 3. Bg5 Rbd7 4. Dd3 e6 5. e4 dxe4 6. Rxe4 Be7 7. Rxf6+ Bxf6 8. Bxf6 Dxf6 9. Rf3 c5 10. 0-0-0 0-0 11. De3 b6 12. Bb5 De7 13. d5 Rf6 14. Bc6 Hb8 15. d6 Dd8 16. d7 Bb7 17. Re5 Rg4 18. Rxg4 Bxc6 19. Hd6 Bd5 20. Hdl h5 21. c4 Bxc4 22. Re5 Bd5 (Stöðumyndin) 23. Hlxd5 exd5 24. Rc6 Dc7 25. Re7+ Kh7 26. De5 g6 27. Rxd5 Dd8 28. Rf6+ Kh6 29. g4 hxg4 30. Rxg4+ Kh7 31. Rf6+ Kh6 32. Hd3 g5 33. Hh3+ Kg6 34. De4+ Kg7 35. Hh7+ Kxf6 36. Hh6+ 1-0. Litla ppinsessan meO rödd í lagi Norsku konungshjónin staðfestu á miðvikudagsmorgun aö nýfædd dótt- ir Mörthu Lovísu prinsessu og Ara Behns, eignmanns hennar, kynni sko alveg að láta í sér heyra. Sú stutta, sem gefið var nafnið Maud Angelica, kom í heiminn á þriðjudagskvöld, fyrsta konunglega bamið hjá frændum vorum í 30 ár. „Hún er það sætasta sem við höf- um séð og hún hefur það mjög gott,“ sögðu afi kóngur og amma drottning þegar þau komu frá því að heim- sækja dóttttr sína og bamabamið á norska landspítalanum. Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, sá ástæðu til að taka þátt í fagnaðarlátunum og sagði í sjónarpsviðtali að þetta væri mikili hamingjudagur fyrir norsku þjóðina alla. Maud Angelica er skírð í höfuðiö á Maud, fyrstu drottningu Noregs eftir sjáifstæði landsins frá Svíþjóð árið 1905. Fegunðin í nýjum víddum Að morgni einhvers frídagsins um páskana var ég venju fyrr kom- in á ról. Sólin skein inn um glugg- ann og fallegur vormorgunninn kali- aði á að maður fær eitthvað út. Göngutúr var gráupplagður. Ekki langt frá mínum heimaranni er Laugarnesið, sögustaður til forna, kirkjustaður um aldir. Nú er það að- setur listamanna sem hafa reist sér þar hús sem brjóta upp hefðir í arki- tektúr og skipulagi. Eru sem vin í eyðimörkinni. í Laugarnesinu kvök- uðu mófuglar og æðarfuglinn var í flæðarmálinu. Allt var þetta býsna snoturt. Á sumardaginn fyrsta fékk ég mér göngutúr um Þingholtin þar sem Berlínarbjörninn stendur á einu götuhorninu. Ég heilsaði upp á bangsa og tók af honum mynd. Labbaði svo niður Skothúsveg og arkaði í gegnum Hallargarðinn og svo eftir Tjarnarbakkanum. Mætti ástföngnu pari í spássitúr og stelpan var kasólétt. Aðrir voru með litlu bömin sín sem voru að gefa öndun- um brauð. Þetta var fallegt. Þegar kom inn á Austurvöll settist ég á bekk. Hlustaði á Dómkirkjuklukk- urnar slá sín þungu slög sem þó alltaf taka bæði ár og síð af allan vafa um hvað tímanum líður. Rétt eins og piltar keyra rúntinn í stelpuleit, rétt eins og skáldið kvað forðum, mætti ég í Austurstræti pólítískum framagosum í leit að villuráfandi sálum sem vantar ör- ugga leiðsögn um hvað skynsamleg- ast sé að Kjósa. En einnig voru á sveimi ýmsir þeir fuglar sem ná ekki að feta hinn örugga og dygga veg samfélagsins - eru fyrir vikið hráefni vandamálafræðinga. En engu að síð- ur vídd í mannlífmu sem gerir það fjölbreyttara en ella væri. Til skamms tíma - og jafnvel enn í dag - hefur það verið félagslegur rétt- trúnaður að tala illa um höfuðborg- ina og líta á hana sem lastabæli. Sjálfur held ég að þetta sé goðgá og algjört rugl. Okkur er mikilvægt að sjá að Reykjavíkursvæðið, þar sem meirihluti landsmanna á heima, býr yfir fegurð sem gaman er að upplifa, leggjum við okkur fram við að sjá til- veruna í nýjum víddum. Þá er ekki á aðrar byggðir landsins hallað heldur er þetta mikilvægur skerfur til þess að tilveran sé okkur bærileg. Enda er hverjum manni mikilvægt að lifa í sátt við umhverfi sitt. Sigurður Bogi Sævarsson blaöamaöur ÚOJ 02 ‘I-IJ 61 ‘Qos Ll ‘uoq 91 ‘euifli n ‘BfliB 6 ‘eis 9 ‘>fBi s ‘snBppiau p ‘ipfluijBS g ‘yo z ‘sbj i :waJ0pq jsis sz ‘ipæu ZZ ‘anppo iz ‘jejb 81 ‘iSBq 91 ‘flt si ‘spip>i n ‘umid 81 ‘MUJ 21 ‘Epp 01 ‘bjbs 8 ‘Bjofj i ‘SBfl j ‘3ofl 1 flipjBfl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.