Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 DV Fréttir Viöamikil uppbygging í Laugardalnum; Stórbætt heilsu- og sundparadís Stórframkvæmdir standa nú yfir viö Laugardalslaug vegna byggingar „Laugar," sem er ný 7.150 fermetra heilsu- og sundmið- stöð með læknastofum, sjúkra- þjálfun, lyfjaverslun, veitinga- starfsemi og fleiru. Nýverið voru undirritaðir samningar við Landsbanka íslands, Sparisjóða- banka íslands og Sparisjóð vél- stjóra um fjármögnun á þessu verkefni upp á 928 milljónum króna. Upphaflegir samningar um Heilsu- og sundmiðstöðina Laugar voru undirritaðir við Nýsi hf. í apríl 2002 og er samningurinn til 25 ára. Það er ístak sem er aðal- verktaki framkvæmdanna. Verk- kaupi er Þrek ehf., læknar, lyfja- verslun og fleiri aðilar. Þrek ehf. er rekstrarfélag í eigu Björns Leifssonar sem á og rekur World Heilsu- og sundmiðstööin Laugar Arkitekt: Ari Már Lúövíksson Eigandi heilsumiðstöövar: Laugahús ehf. Eigandi Laugahúss ehf.: Fasteignafélagiö Laugar ehf. 50% og ráögjafa- og rekstar- fýrirtækið Nýsir hf. 50%. Eigandi Lauga ehf.: Björn Leifsson. Rekstur heilsuræktarmið- stöðvar: World Class. Eigandi Worid Class: Þrek ehf./Björn Leifsson. Eigandi sundmiðstöðvar: Reykjavíkurborg. TÖLVUGRAFlK: ONNO EHF. Glæsileg hellsumannvlrki i byggingu / byrjun næsta árs veröa nýju mann- virkin tilbúin en þau eru samtals 7.150 fermetrar aö flatarmáli. Class. Það félag mun leigja um 5.000 fermetra af þeim um 7.150 fermetrum heilsumiðstöðvarinn- ar. Samstarfsaðilar við verkefnið eru Reykjavíkurborg, Laugar ehf., Nýsir hf. og Landsbanki íslands. Fasteignafélagið Laugarhús ehf. mun eiga heilsumiðstöðina, leigja út húsnæðið og annast fasteigna- stjórnun þess. Laugahús ehf. er í 50% eigu Lauga ehf. og 50% eigu Nýsis hf. Laugar ehf. er svo félag í eigu Björns Leifsson- ar um fasteignir og fleira. Reykja- víkurborg á sundmiðstöðina og annast rekstur hennar en Lauga- hús ehf. heilsumiðstöðina eins og áður greindi. í notkun á næsta ári Heilsumiðstöðin verður eins og áður segir í 7.150 fermetra hús- næði á þremur hæðum. World Class mun starfrækja heilsurækt- armiðstöð í tæplega 5.100 fer- metra rými, en tæplega 2.000 fer- metra rými verður leigt út fyrir aðra starfsemi. Er byggingin hönnuð af Ara Má Lúðvíkssyni arkitekt. Gert er ráð fyrir að mið- stöðin verði tekin í notkun í byrj- un árs 2004. Heildarkostnaður alls verkefnisins er áætlaður um 2,5 milljarðar króna. -HKr. Nýr forsætisráöherra: Hógvær leiðtogi í grimmdarfulium átökum Abbas er engin glœsifígúra fremur en Arafat. En enginn frýr honum vits né góðs vilja til að leysa ágreiningsmdlin fremur en að herða hnútana með stóryrðum og yfirboð- um. Hann hefur enga pólitíska hreyfingu einhuga að báki sér, en er sá áhrifamaður sem ætla má að mest og best sátt sé um meðal hrjáðra Palestínumanna. Hann er einnig vel þekktur erlendis og hefur komið sér upp sam- böndum við áhrifamenn á vettvangi heimsmála. Erfitt er að spá með neinni vissu hve heilladrjúg ný skipan yfir- stjómar Palestínumanna verður þegar á reynir. Herskáir flokkar og hópar sætta sig illa við nýja for- sætisráðherrann, Mahmoud Abbas, sem jafnframt er dóms- málaráðherra í stjórninni. Arafat forseti var ekki alls kostar ánægð- ur heldur meö að fá forsætisráð- herra sér við hlið, sem er maður samninga og sátta og lofar að koma á friði milii stríðandi afla. Hann ætlar að beita sér fyrir að sjálfsmorðsárásum á ísraelska borgara verið hætt og verði það fyrsta skrefið í átt að samningum um forræði Palestínu í eigin mál- um og að landnemabyggðum gyð- inga á hemumdum svæðum verið skilað til fyrri eigenda. Það var palestínska þingið sem samþykkti nýju ríkisstjómina og þá breytingu sem verður á stjóm- arfarinu. Abbas er orðinn næst- ráðandi Arafat forseta, sem til þessa hefur verið nær einráður um stefnuna og samninga við fuil- trúa annarra ríkja og stofnana. Fulltrúar stjóma Bandaríkjanna, Rússlands, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna settu fram tillögumar um nýja stjórnarhætti í Palestínu í samráði við ísraela og Palestínumenn. Abbas er fæddur í Palestínu undir yfirráðum Breta árið 1935. Hann er einn af fáum eftirlifandi stofnendum Fatah-hreyfmgarinn- ar sem er pólitíski armurinn af PLO, frelsishreyfingu Palestínu. Hann er hámenntaður maður, las lög í Egyptalandi og varði doktors- ritgerð i Moskvu. Hann er höfund- Arafat forseti og Abbas forsætisráö- herra. Þeir hafa starfaö lengi saman en hvort samstarfiö veröur farsælt telja margir vafasamt þar sem Arafat þyk- ir hann hafa misst völdin í hendur ríkisstjórnar sem friöarsinni stýrir. ur allmargra bóka. Á sjötta áratugnum dvaldi Abbas í útlegð í Katar þar sem hann aðstoðaði við að skipuleggja hóp útlaga sem síðar urðu áhrifa- miklir innan PLO. Erfiöar samningaviðræður fram undan Hann stofnaði Fatah-flokkinn með Arafat en þeir voru í nánu sambandi í útlegð í Jórdaníu, Lí- banon og Túnis. Þá vakti Abbas at- hygli fyrir heiðarleika og einfalda lífshætti og hófsemi í orðum og gjörðum. Honum gekk vel að stofna til sambanda við leiðtoga arabaríkja og yfírmenn leyniþjón- ustu þeirra. í útlegðinni var hann duglegur að safna framlögum til frelsisbar- áttu Palestínumanna og varð eins konar utanríkisráðherra þeirra, eða sinnti skyldum málefnum frá 1980. Þar áður var hann tengiliður þjóðar sinnar og vinstri sinnaðra Israela og friðarsinna á árunum áður en alvarlegar samningarvið- ræður milli þeirra hófust. Abbas er talinn eiga mikinn þátt í Óslóarsamkomulaginu og fylgdi Arafat til Washington þegar það var undirritað í Hvíta húsinu 1993. Hann hefur reynt aö halda aftur af löndum sínum í sjálfs- morðsárásum á ísraela og hvatt þá til að leita friðsamlegra lausna á sínum erfíðu málum í stað þess að gefa andstæðingunum tækifæri til hermdarárása og halda þanngi viö stríðsástandi sem ekki sér fyrir endann á að öllu óbreyttu. Meðal þeirra atriða sem Abbas forsætisráðherra leggur mikla áherslu á er að flóttamenn fái að snúa aftur til Palestínu og setjast að í fyrri heimkynnum. Þetta kann að vera einn örðugasti hjall- inn að yfirstíga í væntanlegum samningaviðræðum við ísraela. En ekki verður hjá því komist að ræða málin og hvetur Abbas til þolinmæði því slík mál verða ekki leyst nema að vel grunduöu máli og að mikilvægt er að báðir eða allir viðkomandi megi við una. Abbas er engin glæsifígúra fremur en Arafat. En enginn frýr honum vits né góðs vilja til að leysa ágreiningsmálin fremur en að herða hnútana með stóryrðum og yfirboðum. Hann hefur enga pólitíska hreyfíngu einhuga að baki sér, en er sá áhrifamaður sem ætla má að mest og best sátt sé um meðal hrjáðra Palestínumanna. Hann er einnig vel þekktur erlend- is og hefur komið sér upp sam- böndum við áhrifamenn á vett- vangi heimsmála. Hann ætti að vera sjálfsagður frambjóðandi til forseta þegar Ara- fat lætur af embætti, en ólíklegt er aö hann sækist eftir því, þar sem hann er ekki við góða heilsu og enginn veit hve lengi hins ráða- góða og hógværa mann nýtur við. (BBC-fréttir) Byggðastofnun: 700 milljónir til atvinnuþróunar Á fundi ríkisstjórnarinnar þann 11. febrúar sl. var ákveðið að verja 700 milljónum króna til atvinnuþróunarverkefna á lands- byggðinni. Þar af hefur Byggða- stofnun verið falið að annast út- hlutun á 500 milljónum króna. í fyrsta áfanga verkefnisins verður 350 milljónum króna varið til kaupa á hlutafé í álitlegum sprotafyrirtækjum og nýsköpun- aífyrirtækjum i skýrum vexti og auglýsir stofnunin umsóknar- fresti frá og með 1. maí 2003. Byggðastofnun mun fjárfesta í fyrirtækjum í höfuðatvinnugrein- unum, þ.e. sjávarútvegi, iðnaði og ferðaþjónustu, ásamt tengdum greinum. Tekið verður á móti umsóknum frá og með 1. maí 2003 til 31. ágúst 2003. Hlutafjárkaup geta í einstökum verkefnum orðið að hámarki 50 milljónir króna en þó ekki yfir 30% af heildarhlutafé í hverju verkefni. Sérfræðingar Byggða- stofnunar munu meta umsóknir og gera tillögur í einstökum mál- um til stjórnar sem taka mun ákvörðun um hlutafjárkaup. Stofnunin áskilur sér rétt til að leita eftir áliti og ráðgjöf frá fag- aðilum um hlutafjárkaup, s.s. Ný- sköpunarsjóði atvinnulífsins ásamt því að leita eftir staðbund- inni þekkingu á forsvarsmönn- um, fyrirtækjum og umhverfi þeirra, t.d. hjá atvinnuþróunarfé- lögum og eignarhaldsfélögum á einstökum svæðum. Leitast verð- ur við að svara umsækjendum innan 45 daga frá því að umsókn- artímabili vegna einstakra at- vinnugreina er lokið. -GG Akureyri: ESSO yfirtekur rekst- ur bensínstöOva Olíufélagið og Höldur á Akur- eyri ehf. hafa gert meö sér samn- ing um að Olíufélagið taki yfir rekstur ESSO-stöðvanna á Akur- eyri frá og meö 1. maí nk. Um er að ræða yfirtöku á þremur bens- ínstöðvum sem eru við Hörgár- braut, Tryggvabraut og Leiruveg ásamt rekstri á Veganesti við Hörgárbraut.ÝÝHöldur mun áfram reka Litlu kaffistofuna við Tryggvabraut og Lindina við Leiruveg. Höldur og Olíufélagið hafa átt gott og farsælt samstarf í áratugi og verður engin breyting þar á.ÝÝ Með þessum breytingum fara hagsmunir beggja fyrirtækj- anna vel saman og er hún í sam- ræmi við stefnu þeirra, Olíufé- lagsins að taka við rekstri sinna bensínstöðva á þessum stærri stöðvum og Hölds að einbeita sér að rekstri sinna grunneininga. Stöðvarstjóri ESSO á Akureyri verður Axel Grettisson. Nýlega seldu bræðurnir Skúli, Birgir og Vilhelm, stundum kall- aðir „Kennedy-bræður", Höld til hóps starfsmanna. -GG Vegagerðin: Ferðast á vefnum Vegagerðin opnaði á föstudag „leiða- og þjónustukortavef' sem gefur notendum færi á að „ferð- ast á vefnum“ um landið og fá upplýsingar um ferðaþjónustu, áningarstaði, leiðarlýsingar, sögu- staði og náttúrufar. Vefurinn tengist landshluta-, svæðis-, sögu- og náttúruskiltum sem sett hafa verið upp víða um land ferðafólki til hægðarauka og fróðleiks. Markmiðið með vefnum er aukin þjónusta við almenning í upplýs- ingaleit og jafnframt að einfalda viðhald upplýsinga á þjónustu- skiltum Vegagerðarinnar viö þjóðvegi landsins. Komast má inn á þjónustu- kortavefinn gegnum vefinn www.vegag.is -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.