Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2003, Blaðsíða 28
48
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 2003
íslendingaþættir___________________________________________________________________________________________________ x>y
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára_____________________________
Hróöný Einarsdóttlr,
Akraseli 5, Reykjavík.
85 ára_____________________________
Hanna Helgadóttir,
Hjarðarhaga 64, Reykjavík.
Jón Guömundur Ólafsson,
Dunkárbakka, Búöardal.
Kristjana Samúelsdóttir,
Torfnesi Hlíf 2, ísafirði.
80 ára_____________________________
Sigurður Hjaltason,
Víkurbraut 28, Höfn.
Siguröur tekur á móti gestum í
félagsheimilinu Ekru, Víkurbraut 30,
laugard. 17.5. nk. kl. 16.00.
Frank Paul Cremona,
Furugrund 68, Kópavogi.
Guömunda Bergsveinsdóttir,
Rauöalæk 3, Reykjavík.
Rannveig Þórðardóttir,
Eskiholti 12, Garöabæ.
Svavar Marteinsson,
Breiðumörk 15, Hveragerði.
75 ára_____________________________
Friðrik Friöriksson,
Byggöarholti 11, Mosfellsbæ.
Ingunn Jónasdóttir,
Höföabrekku 11, Húsavík.
Magdalena Albertsdóttir,
Hringbraut 23, Hafnarfirði.
70 ára_____________________________
Jón Krlstmannsson,
Seljalandsvegi 36, Isafirði.
Lovísa Óskarsdóttir,
Goðatúni 10, Garðabæ.
Sigríöur Steinsdóttir,
Gunnólfsgötu 16, Ólafsfirði.
Þórhaila Þórhallsdóttir,
Lindargötu 64, Reykjavík.
60 ára_____________________________
Ingunn Erlingsdóttir,
Brekkutanga 6, Mosfellsbæ.
Margrét Ásólfsdóttir,
Goðalandi 17, Reykjavík.
Siguröur Elli Guönason,
Víghólastíg 22, Kópavogi.
50 Öra_____________________________
Aöalstelnn G.Þ. Gislason,
Sigtúni 19, Patreksfirði.
Auður Aöalmundardóttir,
Melabraut 14, Seltjarnarnesi.
Ágúst Pétursson,
Fornhaga 21, Reykjavík.
Bjarni G. Sigurösson,
Njálsgötu 8b, Reykjavík.
Eggert Svelnn Jónsson,
Safamýri 38, Reykjavík.
Guðbjörg Ólafsdóttir,
Bólstað, Garöabæ.
Hólmfríöur H. Valgarösdóttir,
Garöabyggö 2, Blönduósi.
Ingibjörg Hallgrímsdóttir,
Munkaþverárstræti 16, Akureyri.
Málfríður Skjaldberg,
Hávallagötu 22, Reykjavík.
Páll Ágúst Ellertsson,
Krummahólum 4, Reykjavík.
Zofia Maria Pottorakiewlcz,
Hringbraut 44b, Keflavík.
40 ára_______t_____________________
Agnar Birgir Óskarsson,
Jörfalind 15, Kópavogi.
Anton Karl Jakobsson,
Kjalarlandi 26, Reykjavík.
Eiríkur Ingi Garöarsson,
Furubyggö 26, Mosfellsbæ.
Feldis Hulda Einarsdóttir,
Suðurhólum 20, Reykjavík.
Ketill Már Björnsson,
Háteigi 16, Akranesi.
Ólöf Asta Þorsteinsdóttir,
Hólagötu 37, Njarövík.
Sigríöur R. Vigfúsdóttir,
Ingólfsstræti 8, Reykjavík.
Steinunn Oddsdóttir,
Hamratanga 18, Mosfellsbæ.
Svandís Malen Sigurðardóttir,
Álfatröö 4, Egilsstöðum.
Valdimar Valgarðsson,
Tunguhlíð, Varmahlíö.
Vigdís Gunnarsdóttir,
Bárugötu 36, Reykjavík.
Þröstur E. Guömundsson,
Baldursgötu 36, Reykjavík.
Andlát
■■■■■■■■■■■■■■■■■
Baldvin Árnason, Miklubraut 68,
Reykjavík, lést á Landspítalanum,
Háskólasjúkrahúsi þann 7.5.
Ólöf Guörún Guðbjörnsdóttir frá
Straumi, Skógarströnd, síðast til heimil-
is í Skólatúni 4, Bessastaðahreppi, lést
á St. Jósefsspítala fimmtud. 8.5.
Gunnar Kristinn Aifreösson, Eyrarholti
4, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalan-
um við Hringbraut fimmtud. 8.5.
Kolbrún Guömundsdóttir, Gullsmára 9,
Kópavogi, lést á Landspítalanum Foss-
vogi föstud. 9.5.
Fólk í fréttum
HaHór Ásgrímsson
formaöur Framsóknarflokksins
Halldór Asgrímsson, formaöur Framsóknarflokksins og utanríkisráöherra.
Halldór hefur veriö alþingismaöur frá 1974, var sjávarútvegsráöherra
1983-91, dóms- og kirkjumálaráðherra 1988-89 og hefur veriö utanríkisráö-
herra frá 1995. Hann er formaöur Framsóknarflokksins frá 1994. Halldór er
almennt talinn til pólitískra raunsæismanna fremur en ævintýramanna. Hann
nýtur viröingar fyrir heilindi og traust og gerir sjálfur þá kröfu tli annarra.
Halldór Ásgrímsson, formaður
Framsóknarflokksins og utanríkis-
ráðherra, má una vel við nýafstaðn-
ar alþingiskosningar eftir glæsileg-
an vamarsigur Framsóknarflokks-
ins. Mjög er nú horft til Halldórs
um það hvort núverandi stjórnar-
samstarf sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna verði framlengt eða
hvort reyndar verði nýjar leiðir í
stjómarmyndun.
Starfsferill
Halldór fæddist á Vopnafirði 8.9.
1947. Hann lauk Samvinnuskóla-
prófl 1965, varð löggiltur endurskoð-
andi 1970, stundaði framhaldsnám
við verslunarháskólana í Björgvin
og Kaupmannahöfn 1971-73.
Halldór var lektor viö viöskipta-
deild HÍ 1973-75, var aiþingismaður
Austurlandskjördæmis 1974-78 og
frá 1979, var sjávarútvegsráðherra
1983-91 og samstarfsráðherra um
norræn málefni 1985-87, dóms- og
kirkjumálaráðherra 1988-89 og hef-
ur verið utanríkisráðherra frá 1995
og jafnframt samstarfsráðherra
Norðurlanda 1995-99.
Halldór var varaformaður Fram-
sóknarflokksins frá 1980-94 og er
formaður flokksins frá 1994. Hann
sat í bankaráði Seölabanka íslands
1976- 83 og var formaður þess
1980-83, sat í Norðurlandaráði
1977- 78, 1980-83, og 1991-95, og for-
maður íslandsdeildar þess 1982-83
og 1993-95. Þá var hann formaöur
hóps miðjuflokka í Norðurlandaráöi
1993-95.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 16.9. 1967 Sigur-
jónu Sigurðardóttur, f. 14.12. 1947,
læknaritara. Hún er dóttir Sigurðar
Brynjólfssonar, fyrrv. afgreiðslu-
stjóra Timans, og k.h., Helgu Karls-
dóttur Schiöth húsmóður.
Börn Halldórs og Sigurjónu em
Helga, f. 19.12. 1969, bankastarfs-
maður Seðlabanka íslands, búsett í
Kópavogi, gift Karli Ottó Schiöth,
dreifingarstjóra kvikmynda hjá
Norðurljósum og era böm þeirra
Linda Hrönn og Karl Friðrik; Guð-
rún Lind, f. 15.7. 1974, BA í sálfræði
og starfsmaður við Starfsmannaþró-
unardeild Delta Pharmaco, unnusti
hennar er Ómar Halldórsson við-
skiptafræðinemi; íris Huld, f. 2.10.
1979, nemi í viðskiptafræði við HÍ,
unnusti hennar er Guðmundur
Hafldór Björnsson, rekstrarfræðing-
ur og nemi í alþjóða markaðsfræði.
Systkini Hafldórs eru Ingólfur, f.
7.1. 1945, skipstjóri á Höfn í Homa-
firði, kvæntur Siggerði Aðalsteins-
dóttur; Anna Guðný, f. 2.7. 1951,
skrifstofumaður hjá Samskipum,
búsett í Reykjavík, gift Þráni Ár-
sælssyni matreiðslumanni; Elín, f.
5.1.1955, leikskólastjóri í Reykjavík,
gift Björgvini Valdimarssyni dúk-
lagningamanni; Katrín, f. 10.5. 1962,
garðyrkjufræðingur, bæjarfulltrúi í
Austurhéraði og varaþm., búsett í
Austurhéraði, maður hennar er
Gísli Guðmundsson.
Foreldrar Halldórs: Ásgrímur
Halldórsson, f. 7.2. 1925, d. 28.3. 1996,
kaupfélagsstjóri og framkvæmda-
stjóri á Höfn í Hornafirði, og k.h.,
Guðrún Ingólfsdóttir, f. 15.6. 1920,
húsmóðir.
Ætt
Ásgrímur var sonur Halldórs,
kaupfélagsstjóra og alþm. í Bakka-
firði í Borgarfirði eystra, Ásgríms-
sonar, b. á Grund í Borgarfirði
eystra, Guðmundssonar, b. á Nesi í
Borgarfirði, Ásgrimssonar. Móðir
Guðmundar á Nesi var Helga Þor-
steinsdóttir, b. á Litlu-Laugum,
Andréssonar og Ólafar Jónsdóttur,
b. í Reykjahlíð, Einarssonar, fóður
Helgu, langömmu Jóhannesar,
langafa Valgerðar Sverrisdóttur við-
skiptaráðherra. Bróðir Ólafar var
Friðrik, langafi Ólafs Hjartar, afa
Ólafs Ragnars Grímssonar forseta.
Móðir Ásgríms á Grund var Ingi-
björg Sveinsdóttir, b. á Snotrunesi,
Snjólfssonar, og Gunnhildar Jóns-
dóttur, b. í Höfn, Árnasonar, annars
Hafharbræðra. Móðir Halldórs
alþm. var Katrín Björnsdóttir, b. í
Húsey, Hallasonar og Jóhönnu
Björnsdóttur.
Móðir Ásgrims kaupfélagsstjóra
var Anna Guðmundsdóttir, b. á Hóli
í Borgarfirði eystra, Jónssonar og
Þórhöllu Steinsdóttur, b. á Borg í
Njarðvík, Sigurðssonar, b. í Njarð-
vík, Jónssonar, ættfoður Njarðvík-
urættarinnar yngri.
Móðurbróðir Halldórs er Arnþór
Ingólfsson yfirlögregluþjónn. Guð-
rún er dóttir Ingólfs, b. á Skjald-
þingsstöðum í Vopnafirði, bróður
Jóhannesar, b. í Fagradal á Fjöllum,
föður Gunnars, pr. á Skarði, föður
Jóhannesar, framkvæmdastjóra
Ríkispítalanna. Ingólfur var sonur
Eyjólfs, b. í Fagradal, Guðmunds-
sonar, b. á Fagranesi í Aðaldal,
Bjömssonar, í Lundi, Guðmunds-
sonar, bróður Páls, langafa Stefáns,
afa Guðmundar Bjamasonar, for-
stjóra íbúðalánasjóðs og fyrrv. vara-
formanns Framsóknarflokksins.
Móðir Guðrúnar var Elin Salína
Sigfúsdóttir, b. á Einarsstöðum í
Vopnafirði, Jónssonar. Móðir Sig-
fúsar var Sigríður Sigurðardóttir, b.
á Lýtingsstöðum, Jónssonar, b. á
Ljósalandi, Jónssonar b. á Vakurs-
stöðum, Sigurðssonar, ættfoður
Vakursstaðaættarinnar, foður Jóns
yngra, langafa Katrínar, móður
Gunnar Gunnarssonar rithöfundar.
Sjötug
Sigríður K. Steinsdottir
húsmóöir á Ólafsfiröi
Sigríður K. Steins-
dóttir húsmóðir,
Gunnólfsgötu 16,
Ólafsfirði, er sjötug í
dag.
Starfsferill
. Sigríður fæddist á
Ólafsfirði og ólst þar
upp á Vesturgötu 7.
Sigríður hefur
lengst af verið hús-
móðir og sinnt heim-
ilisstörfum af mikill
alúð. Auk þess stund-
aði hún verslunar-
störf um langt árabil og sinnti
jafnframt lengi ræst-
ingarstörfum.
Þá voru þau hjón-
in með sauðfé til
heimilisdrýginda í
fjölmörg ár.
Á fyrri árum var
Sigríður virk í
verkakvennafélag-
inu Sigurvon.
Fjölskylda
Sigríður giftist
31.12. 1952 Sveini Jó-
hannessyni, f. 18.4.
1929, fyrrv. verslun-
armanni. Hann var sonur Jóhann-
esar Steinssonar og Unnar Sveins-
dóttur frá Hrúthól.
Fósturforeldrar Sveins voru
Björn Magnússon og Pálína
Steinsdóttir í Ólafsfirði.
Kjörsonur Sigríðar og Sveins er
Björn Steinn Sveinsson, f. 9.12.
1957, lögregluþjónn á Sauðárkróki,
kona hans er Elsa Kristín Gunn-
laugsdóttir, f. 12.9. 1960, hjúkrun-
arfræðingur, og eru börn þeirra
Katrín Sveina, f. 3.9. 1988, og
Sveinn Gunnar, f. 24.5. 1991, en
tvíburar Elsu Kristínar frá því áð-
ur eru Halla Björk Erlendsdóttir,
f. 26.5. 1981, stúdent, nú búsett er-
lendis, og Gunnlaugur Hafsteinn
Erlendsson, f. 26.5. 1981, stúdent.
Bræður Sigríðar: Gunnar
Steinsson, f. 5.9. 1922, búsettur á
Ólafsfirði; Jón G. Steinsson, f. 6.1.
1925, d. 12.1. 1990, var búsettur á
Ólafsfirði; Sigurjón Helgi Steins-
son, f. 12.2. 1927, d. 31.8. 1948, bú-
settur á Ólafsfirði; Ástvaldur G.
Steinsson, f. 21.8. 1930, búsettur á
Ólafsfirði.
Foreldrar Sigríðar voru Steinn
Jónsson, f. 29.5. 1877, d. 10.1. 1958,
og Júlíana Einarsdóttir, f. 24.8.
1894, d. 14.6. 1964. Þau bjuggu
lengst af á Ólafsfirði.
Sigríður verður að heiman á
afmælisdaginn.
(illl l>(«) (íluigaverdtislíi í heimi vióskipta í dag
Útvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viðskipti og efna-
hagsmál á hverjum virkum degi
milli klukkan 17-18
Landsbankinn
-þaðborgarsigaðhlustd
Indrlðl Guömundsson, Munaöarnesi, Ár-
neshreppi, verður jarðsunginn frá Árnes-
kirkju mánud. 12.5. kl. 14.00.
Birkir Freyr Ragnarsson verður jarö-
sunginn frá Egilsstaðakirkju mánud.
12.5. kl. 14.00.
Haukur Clausen tannlæknir, Blikanesi
5, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni
þriðjud. 13.5. kl. 13.30.
Sighvatur Jóhannsson, Litlubæjarvör
13, Bessastaðahreppi, verður jarðsung-
inn frá Bessastaðakirkju þriöjud. 13.5.
kl. 15.00.
Útför Ástrúnar S. Jónsdóttur, Suðurgötu
20, Keflavík, fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikud. 14.5. kl. 14.00.
Minningarathöfn um Þórónnu Rósu
Jensdóttur sem lést í Lions Gates
sjúkrahúsinu í Vancouver, Kanada, verð-
ur í Fella- og Hólakirkju 12.5. kl. 17.00.