Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003
DV
Fréttir
Hreiður í
þvottahúsglugga
Hann hefur sennilega veriö að
flýja óblíða veðráttu, skógarþröst-
urinn sem gerði þetta hreiður í
þvottahúsglugganum hjá Marín
Jónsdóttur og Friðriki Friðriks-
syni á Dalvík. Hreiðrinu er kom-
ið haganlega fyrir og urðu hús-
ráðendur ekki varir við fram-
kvæmdimar fyrr en fjögur egg
voru komin í það. -hiá
Classic-vöðlur
Mesf keyptu vöðlurnar.
Verð aðeins 9.995.
Outback vöðlujakki
Vatnsheldur með öndun.
. Verð aðeins 9.995.
Vöðlur og jakki saman.
Aðeins kr. 17.995.
Onauðsynleg hækkun
og kolvitlaus tímasetning
- segir varaforseti ASÍ - siölaust, segir Ögmundur Jónasson, alþingismaöur
Halldór Björnsson, varaforseti ASÍ,
segir að útspil kjaradóms - sem ákveð-
in var á kjördag og kynnt í gær með
hátt í 20% hækkun á launum æðstu
embættismanna ríkisins - hafi vakið
mikla reiði meðal félagsmanna ASÍ.
Þetta gerist með sama hætti nú og við
þingkosningamar 1999, en þá voru
launin hækkuð um nær 30% og varð
þingfararkaupið þá 295.000 krónur.
Samkvæmt kjaradómnum hækkar
þingfararkaup nú um 93.000 krónur og
verður því 437.777 krónur á mánuöi.
Auk þess fá þingmenn mánaðarlega
greiðslu vegna útlagðs kostnaöar og
einnig vegna ferðakostnaöar, auk þess
sem landsbyggðaþingmenn fá sérstak-
ar greiðslur vegna húsnæðis- og dval-
arkostnaðar. Haft var eftir Garðari
Garðarssyni, formanni kjaradóms, í
DV á fóstudag að það væri ekkert nátt-
úrulögmál að kjaradómur kvæði upp
úrskurði sína á kjördegi og vildi hann
ekkert segja til um hvort úrskurðar
væri að vænta á laugardag. Svo reynd-
ist þó vera eins og á kjördaginn 1999.
Kolvitlaus tímasetning
„Hvemig sem htið er á þetta, þá er
tímasetningin kolvitlaus og það var
engin nauðsyn að breyta launum þess-
ara manna núna. Þeir em búnir að fá
helmingi meiri launahækkun á þessu
ári heldur en allir aðrir. Um síöustu
áramót fengu þessir menn 7% hækk-
un á meðan allir aörir fengu 3%. Þeir
fengu þá 3% vegna almennra breyt-
inga og restina vegna álags eða til-
færslna í launum. Það er í raun alltaf
verið að bæta þeim sama hlutinn.
Þeir hafa fengið 41,9% hækkun frá
fyrsta ársfjórðungi 1999. Almenna
launavísitalan hefur á sama tíma
hækkað um 31,31%, vísitala Alþýðu-
sambandsfélaganna um 27,16% og
vísitala opinbem félaganna um tæp
38%. Þessu til viðbótar fá þeir 20%
núna. Þetta þýðir að þeir hafa fengið
60% á meðan hin almenni launamað-
ur hefur fengið rúm 27%.
Halldor Bjornsson
Þetta útspil muni án efa hafa áhrif á alla umræöuna sem fram undan er.
Ég vil taka það skýrt fram að ég tel
ekki að þeir séu ofhaldnir af sínum
launum. Þetta hefur hins vegar keðju-
verkandi áhrif á hugsunarhátt fólks.
Fólk spyr hvort við ætlum ekki að
geraeitthvað. Það hringja í okkur
fokreiðir menn sem kannski lögðu
þessum mönnum lið í kosningunum.
Ég hefði gjaman viljaö að þetta hefði
komið fram á laugardaginn, kannski
hefði Ingibjörg Sólrún þá komist inn.
Það hlýtur þá að vera mjög einfalt að
fá fram verulegar breytingar á launa-
kjörum.
Halldór segir aö samningar séu
flestri lausir í kringum næstu áramót.
Á fimmtudag er m.a. vinnufundur
framkvæmdasfjómar ASÍ þar sem
þetta mál verður á dagskrá. Halldór
segir að þetta útspil muni án efa hafa
áhrif á alla umraeðuna sem fram und-
an er.“
Hefur áhrif á kjaraumræðu
Auðvitaö mun þetta hafa áhrif á
hugsanagang manna í kringum kjara-
samninga sem menn eru byijaðir að
höndla við. Hvað myndu menn segja
ef menn óskuðu nú eftir fúndi með
samtökum atvinnulífsins um nýjan
kjarasamning og við myndum segja
að við teldum okkur eiga inni sam-
bærilegar hækkanir.
Þessu til viðbótar lofuðu stjómar-
flokkamir allt upp í 30 milljörðum í
skattalækkanir sem fer auðvitað til
þessara manna eins og annarra. Auk
þess segja þeir að fram undan séuein-
hver mesta efnahagsuppsveifla sem
nokkum tíma hefur orðið á íslandi.
Siðlaus vinnubrögð
Ögmundur Jónas-
son, alþingismaður
og formaður BSRB,
segir þetta forkastan-
leg og siðlaus vinnu-
brögð. „Þetta gerist
trekk í trekk að laun
alþingismanna og
stjórnenda hjá rík-
inu em hækkuð nán-
ast í skjóh nætur.
Þetta virðist vera gert af yfiriögðu
ráði á þessum tíma til að komast hjá
umræðu um málið. Alþingiskosningar
em kjöriö tilefni til að ræða kjaraþró-
un í landinu og það er nokkuð sem
Ogmundur
Jónasson.
menn vilja greinilega forðast. Varð-
andi fyrirkomulagiö um launaákvarð-
anir alþingismanna, ráðherra og
stjórnenda hjá ríkinu, er það nokkuð
sem þarf að endurskoða á Alþingi og
ég mun beita mér fyrir að það verði
gert.“
Úrskurður kjaradóms
Lágmarkstekjur samkvæmt taxta
Starfsgreinasambandsins eftir 7 ára
starf er nú um 93.000 krónur á mán-
uði. Kjaradómur úrskurðaði á laugar-
dag, kjördag, um laun þeirra aðila
sem undir dóminn falla fýrir utan for-
seta íslands. Launabreytingamar mið-
ast við 1. maí 2003 hjá öðrum en ráð-
herrum og þingmönnum en mánaöar-
laun þeirra breytast frá og með 11.
maí 2003. Laun forsætisráðherra
hækka mest eða um 19,3% og eru
mánaðarlaun hans nú 871.085 krónur.
Þá eru laun ráðherra 785.669 og
hækka um 18,4% og er hvort tveggja
að meðtöldu þingfararkaupi sem er
437.777 krónur. Þingfararkaup alþing-
ismanna hefur því hækkað um 18.7%,
forseti Hæstaréttar fær nú 833.058
krónur í heildarlaun en aðrir hæsta-
réttardómarar fá 753.985 krónur. Laun
ríkissaksóknara hafa einnig hækkað
og eru heildarlaun hans nú 753.986
krónur. Þá fær biskup íslands 704.504
krónur í heildarlaun á mánuði og er
það hækkun upp á rúmlega 7%. Úr-
skurður kjaradóms á ekki við um
laun forseta íslands en tekin var sér-
stök ákvörðun um þau í júlí 2000 í
kjölfar lagabreytinga. Laun hans hafa
fýlgt almennum hækkunum launa frá
þeim tíma og eru nú 1.460.156 krónur.
I úrskurði kjaradóms segir að hlutur
dagvinnulauna í heildarlaunum
þeirra embættismanna sem dómurinn
ákvarði laun, aukist nú við ákvörðun
kjaradóms. Til viðbótar þingfarar-
kaupi fá alþingismenn greiddan mán-
aðarlega þingfararkostnað og þá nýtur
forseti Alþingis sömu launa- og starfs-
kjara og ráðherrar. -HKr./EKÁ
Opinberir aðllar spenna upp launaþróunina
- segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
„Þetta eru hækk-
anir upp á 0 til 19%
og fyrst og fremst
innbyrðis breyting
á milli hópa,“ segir
Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins.
„Ég get svo sem al-
veg tekið undir það
Ari Edwald.
að laun kjörinna fulltrúa hjá hinu
opinbera hafa ekki verið í eðlilegu
samhengi við laun embættis-
manna.“
Ari segir að Samtök atvinnulífsins
hafi lengi gagnrýnt að launahækkan-
ir á opinberum vinnumarkaði hafi
verið meiri en á almennum vinnu-
markaði. „Opinberir aðilar hafa því
verið að spenna upp launaþróunina
með þeim hætti sem almennur
vinnumarkaður getur ekki fylgt eftir.
Hlutfall launa í vergri framleiðslu er
í sögulegu hámarki, bæði í sögulegu
samhengi og í samanburði við önnur
lönd, og engin efni til annars í kjara-
samningum en að taka tillit til þess
raunveruleika sem við búum viö. Ég
tel að opinberir aðilar verði í sínum
launabreytingum að taka tillit til
þess sama raunveruleika og aörir.
Þaö væri mjög ógæfúlegt ef atvinnu-
lífið færi að elta einhvem óraunveru-
leika hins opinbera í þessum efnum."
Ari segist ekki geta svarað því
hvort aðrir fari að miða kröfur sínar
um hækkanir við forsendur kjara-
dóms. „Ég hef ekki kynnt mér dóm-
inn nógu vel til að geta svarað því. -
Kip
Heilbrigðisráöherra samræmir reglur um greiðslur fyrir þjónustu:
Þjónusta spítalanna lækkar í verði
Gjöld fyrir ýmsa þjónustu heil-
brigðisstofnana ríkisins og lækna
á samningum við ríkið lækka
samkvæmt reglugerð sem Jón
Kristjánsson heilbrigðisráöherra
hefur geflð út. Sjúklingar sem
gangast undir hjartaþræðingu
hafa greitt allt að 18 þúsund krón-
ur fyrir aðgerðina, en gjaldið
lækkar nú í 5.100 krónur. Sama er
að segja um fyrstu aðgerð gagn-
vart brjóstakrabbameini, sú að-
gerð lækkar mikið.
„Aðallega er ég að samræma
reglur þannig að sama verð
sé alls staöar, hvergi sé tek-
ið meira fyrir þjónustima
en reglugerð segir til um,“
sagði Jón Kristjánsson í
morgun. Hann segir að um
sé aö ræða smávægilegar
lækkanir í mörgum tilvik-
um, en mun meiri á öðrum
aðgeröum. „Þetta er ekkert
verulegt og mun ekki kosta
ríkið mikið og ætti ekki að hafa
mikil áhrif fyrir Landspítalann,"
sagði Jón Kristjánsson.
Jón sagði að dæmi væru
um að menn drægju að fara
í hjartaþræðingu sem kost-
aöi 18 þúsund krónur, en
hún lækkar nú verulega.
Ráðherrann benti á að til
væri öryggisnet fyrir þá
tekjulægstu sem gætu sótt
um endurgreiðslu á 90%
kostnaöar.
Sem dæmi um breytingar á
gjaldtöku má nefna að komugjald á
slysadeild lækkar úr 3.570 krónum í
3.170 krónur. Fyrir dagvist aldraðra
á Landspítala - háskólasjúkrahúsi
hefur verið innheimt 600 króna
gjald en það verður nú 500 krónur.
Gjald fyrir kransæða- og hjarta-
þræðingu verður fast, 5.100 krónur,
en var áður 18.000 krónur án afslátt-
arkorts en rúmar 10 þúsund fyrir þá
sem fengu afsláttinn. Sama er að
segja um svokallaðar keiluskurðað-
gerðir, verð á slíkri aðgerð lækkar
umtalsvert, verður 5.100 krónur en
var hæst 18 þúsund krónur. Land-
spítalinn innheimti helming þeirrar
upphæðar. -JBP
Jón
Kristjánsson.
smaauglysingadeild • 550 5
fíTiTiBTKl