Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 Tilvera uv Renée Zellweger myndi ekki fela George: Alar konur ættu að vera með Clooney Norsk-bandaríska leikkonan frá Katy í Texas, hin krúttlega Renée Zellweger, er orðin hundleið á orðrómi þeim sem aftur er kominn á kreik vestan hafs og austan, nefni- lega þeim að hún og hjartaknúsar- inn George Clooney séu kærustup- ar. Hún er laus og liðug og hann er eftirsóttasti gæinn í Hollywood. „Ef George væri kærastinn minn myndi ég auglýsa það um allar triss- ur. Ég myndi sko ekki hafa hann í felum,“ segir leikkonan í viðtali við breska kvennablaðið New Woman. „Hvers vegna verð ég að endur- taka itrekað að við George erum ekki kærustupar. Ef svo hefði verið, hefði ég orðið á undan fréttamönn- unum og spurt þá hvort þeir hefðu hitt nýja kærastann minn, George Clooney. Hvaða stúlka myndi ekki óska sér að geta sagt það?“ segir Renée, sem margir kannast við úr hlutverki hinnar skemmtilegu Bridget Jones. Renée segir að þau séu bara vin- ir, meira að segja góðir vinir. „Ég er ekki með honum. Það er synd og skömm. Eiginlega ættu all- ar konur að vera með honum. Ge- orge er stórkostlegur. Hann er mér mjög kær. Hann er lærifaðir minn, besti vinur og ég stóla á hann. Ge- orge veitir mér innbiástur," segir leikkonan elskulega við kvenna- blaðið. Renée Zellweger Bara góö vinkona Clooneys. Um þessar mundir fer Renée hamfórum á hvíta tjaldinu vestra í myndinni Down With Love. •A: Ofurhetjur og dagpabbap Daddy Day Care Eddie Murphy og Jeff Garlin í hlutverkum dagpabbanna. Það fór eins og búist hafði ver- ið við að X-2: X-Men United (evr- ópska heitið er X-Men 2) myndi auðveldlega halda efsta sæti list- ans og var aðsóknin gífurlega mikil þótt hún hafl minnkað mik- ið frá síðustu helgi. Staðan hjá X- Men er nú sú að fengist hafa 150 milljónir dollara á tíu dögum í Bandaríkjunum, annars staðar hefur aðsókn einnig verið mikil, meðal annars hér á landi. Eddie Murphy var helsta von framleið- anda Daddy Day Care sem er í öðru sætinu. Myndin hlaut ágæt- ar viðtökur almennings þótt hún yrði aðeins hálfdrættingur á við X- mennina. Vert er að benda á tvær ódýrar kvikmyndir sem fá góða aðsókn mið- að við þann fjölda sýningarsala sem þær eru sýndar í. Eru það A Mighty Wind frá þeim ágæta leikstjóra og leikara, Christopher Guest. Er mynd- in byggð upp sem heimildakvikmynd um endurkomu frægs þjóðlagatríós. Hin myndin er Bend it Like Beckham sem á nokkrum vikum hefúr verið að fíkra sig upp listann. Sú mynd var sýnd hér fyrir nokkru í kvikmynda- húsum og er hægt að nálgast hana á myndbandaleigum. -HK Hafnaboltaleikur í Kanada: Halle kastaði fyrsta boltanum REUTERSMYND' Halle býr slg undlr að kasta Halle Berry kastaöi fyrsta boltan- um í hafnaboltakappleik vestur í Kanada um helgina. Óskarsverðlaunaða leikkonan Halle Berry sýndi það og sannaði um helgina að henni er margt til lista lagt. Hún kastaði nefnilega fyrsta boltanum í viðureign Montréal Expos og Los Angeles Dodgers í bandarísku hafnabolta- keppninni. Leikurinn fór fram í Montréal. Halle er í Montréal um þessar mundir við upptökur á nýrri kvik- mynd. Hún gaf sér þó tíma til að kasta boltanum, enda sjálfsagt kjörin leið til að koma sér 1 mjúk- inn hjá almenningi. Ef hún hefur yfírleitt þurft á slíku að halda. Hafnaboltinn er jú þjóðaríþrótt Bandarikjamanna og heilagri en allt sem heilagt er. Halle var ekki ein á vellinum því eiginmaður hennar og dóttir voru þar einnig og fylgdust með. Og að sjálfsögðu kastaði leikkonan boltanum eins og engill. Sambíóin/Háskólabíó - How To Lose a Guy in 10 Days ★i Skltlegt eðli og sönn ást -==i í kvikmyndinni How to Lose a Guy in 10 Days er Andie blaðamaöur á Composure. Það er alveg eins og hið vinsæla ung-kvennablað Cosmopolit- an, bara vitlaust skrifað. Andie er sæt og skemmtileg og ljóshærð og skrifar greinar um hvemig lesandinn á að gera alls kyns nytsama hluti eins og hvemig hægt er að fá stinnan rass á þrem vikum eða hvemig hægt er að Feng Shui breyta stofúnni. Hana langar hins vegar að skrifa al- varlegar greinar um Tsjetsjeníu og svoleiðis og því er óskiljanlegt hvers vegna hún sótti um vinnu á slúður- frauðblaöinu Composure, en látum það liggja á milli hluta. Ben er mikill töffari sem vinnur á auglýsingastofu, raðsefur hjá konum og fær helst verkefhi sem felast í að selja bjór eða íþróttavörur. Hann langar hins vegar til að stjóma stórri auglýsingaherferð um demanta. Þessi tvö elskulegu ungmenni hitt- ast svo þegar Andie samþykkir að skrifa grein um það hvemig stelpur skuli fá strák til aö segja sér upp á 10 dögum. í staðinn á hún að fá frjálsari hendur á blaðinu. Ben hefur þá veðj- að við eiganda auglýsingastofunnar að hann geti fengið hvaða stúlku sem er til að verða ástfangna af sér á 10 dögum og í staðinn fær hann dem- antaherferðina. Augljóslega hittast þau og hún er algjörlega óþolandi til að losna við hann og hann lætur allt yfir sig ganga til að vinna veðmálið. Getur verið að þau finni sanna ást, þrátt fyrir sitt skítlega eðli, lygar og plat? Og getur verið að sambandið eigi sjens í Hollywoodlandi þar sem öll alvörusambönd era byggð á óflekkuðum heiðarleika og hrein- skilni?? Þó að handritið sé byggt á ágætri hugmynd er það óvenjuslæmt miðað við aðrar nýséðar rómantískar gam- anmyndir, kannski vegna þess að rómantíkina vantar alveg. Handrits- höfundum (þeir em skráðir þrír á þessi ósköp) og leikstjóra er meira í mun að láta okkur skella upp úr en að láta hjörtu slá hraðar. Og stundum getur maður ekki annað en flissað upphátt að fullkomlega geðklofa hegðun Andies sem samkvæmt þess- ari mynd jaðrar við að vera eðlileg hjá amerískum stúlkum í tilhugalíf- inu: að vera yfirmáta vælnar, tilfinn- ingasamar, afbrýðisamar, vitlausar og leiðinlegar - en alltaf sætar. Kate Hudson (dóttir hinnar óvið- jafnanlegu Goldie Hawn) er ágæt í hlutverki Andie, og best þegar hún er gölnust. Matthew McConaughey leik- ur ekki hér frekar en í öðrum kvik- myndum en er vænlega myndarlegur og karlmannlegur. How to Lose a Guy in 10 Days er ágæt ef kröfúmar em litlar og það var sniðugt að sýna úr mjög vondum myndum á undan, eins og gert var á sunnudaginn, (fyr- ir utan Matrix Reloaded!) því þá kem- ur aðalmyndin mun betur út. • Leikstjóri: Donald Petrie. Handrit: Krist- en Buckley, Brian Regan og Burr Steers, byggt á skáldsögu Michele Alexander og Jeannie Long. Kvikmyndataka: John Bailey. Tónlist: Dana Millman-Dufine. Aö- alleikarar: Kate Hudson og Matthew McConaughey. HELGIN 9. 11. MAI ALLAR UPPHÆOIR i ÞÚSUNDUM BANDARÍKJADOLLARA. FYRRI INNKOMA INNKOMA FJÖLDI SÆTI VIKA Tmu. HELGIN: ALLS: BÍÓSALA O 1 X-2: X-Men Unlted 40.032 147.677 3749 o _ Daddy Day Care 27.623 27.623 3370 o 2 The Lízzle McGulre Movie 7.209 26.528 2825 o 3 Identity 6.477 39.382 2618 o 4 Anger Management 5.738 123.182 2819 o 5 Holes 4.858 51.678 2452 o 14 A Mlghty Wlnd 3.004 9.483 765 o 6 Malibu's Most Wanted 2.128 31.747 2008 o 10 Bend It Llke Beckham 1.736 13.170 555 © 7 Confidence 1.539 11.051 1188 0 15 Chicago 1.110 166.514 761 © 11 Phone Booth 1.004 44.007 785 © 8 It Runs in the Family 959 6.744 1042 © 13 Bringing Down the House 737 128.659 778 © 17 Ghost of the Abyss 622 7.482 93 © 9 Bulletproof Monk 605 22.635 944 © 12 What a Girl Wants 522 35.272 925 © 16 House of 1000 Corpses 506 11.570 525 © 20 Agent Cody Banks 392 47.285 1224 © - The Dancer Upstairs 270 420 62 Vínsælustu myndböndin Bond er ósigrandi Þriðju vikuna í röð er nýjasta James Bond-myndin, Die Another Day, í efsta sæti myndbandalistans og ætlar ekki að gefa eftir sætið fyrr en í fulla hnefana.í öðm og þriðja sæti eru nýjar myndir inn á listann, hin dramatíska The Salton Sea og gaman- myndin The Master of Disgu- ise. The Salton Sea fjallar um Danny Parker sem verður fyrir miklu áfalli þegar eigin- kona hans er myrt. Frá þeim tima hefur lífið engan tilgang fyrir hann og hann leiðist út í líf í undirheimum þar sem fé- lagar hans eru glæpamenn og The Sa|ton Sea dópistar. Hann vingast við val Kilmer leikur Ath.. slæpingjann Jimmy og eyða þeir mestöll- um tíma sínum í eit- urlyfjavímu í got- neskum nætur- klúbbum. En Danny er ekki allur þar sem hann er séður. Hann gengur undir öðru nafni, Tom Van Allen, og var áður virtur djasstón- listarmaður. Einnig hefur hann verið á launum sem heim- ildamaður fyrir tvo spillta alríkislög- reglumenn. Val Kilmer leikur aðalhlutverkið. Mót- leikarar hans eru Vincent D’Onofrio, Adam Goldberg, Luiz Guzman, Ant- hony LaPaglia, Meat Loaf og Deborah Kara Unger. -HK FYRRI VIKUR SÆTI VIKA TTnil. (DREIFINGARAÐIU) ÁUSTA O i Die Another Day (skífan) 3 0 - The Salton Sea isam myndböndi 1 0 - The Master of the Disguise (skífanj 1 O 2 Changing Lanes (sam myndbönd) 4 Q 7 Juwanna Man (sam myndbond) 3 Q 3 Enough (skífan) 5 0 8 Human Nature (bergvíki 2 O 4 Harry Potter..... (sam myndbönd) 5 0 8 Avenglng Angelo (skífan) 2 © 5 High Crlmes (skífan) 7 © 9 Undercover Brother (sam myndbönd) 5 © - The Guru (sam myndböndj 1 © 10 One Hour Photo (skífanj 6 © 13 Mr. Deeds (skífan) 9 © - Lilya 4-ever (sam myndböndi 1 © 20 Signs (SAM MYNDBÖND) 9 © 17 í skóm drekans (myndformj 2 © 11 Road To Perdition (skífan) 8 © 15 Divine Secret (sam myndbönd) 4 1 © _ Knockaround Guys (myndform) 5' ',.•'..• .'.íJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.