Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 11 r DV Ferðir skrúðugt. Einn frægasti skemmti- staður borgarinnar heitir Golodnaja útka. Andrúmsloftið á staðnum þykir „heitt“ og oft dansa gestir fáklæddir uppi á borðum langt fram á morgun. Þeir sem kjósa aftur á móti fágaðri menn- ingu geta heimsótt Bolshoi-leik- húsið sem býður upp á besta ball- ett sem völ er á í heiminum. íbúar Moskvu rekja upphaf borgarinnar til ársins 1147 þegar Júri Vladimirovitsj Dolgorukíj, prins í Suzdal, hélt bandamanni sínum og vini, prinsinum af NovgoroSeverskí veglega veislu eða öllu heldur hátíð sem stóð í nokkra daga. í borginni fmnast þó mun eldri minjar um búsetu eða allt frá nýsteinöld. Árið 1156 lét Dolgorukíj prins víggirða þann hluta borgarinnar sem nú gengur undir nafninu Kreml. Á fimmtándu öld var Moskva orðin höfuðborg hins sameinaða rússneska ríkis og á átjándu öld var hún óumdeilanleg menningar- höfúðborg landsins. Arið 1756 var fyrsti ríkisháskólinn í Rússlandi stofnaður í Moskvu. Þrisvar sinn- um á átjándu öld geisuðu miklir eldsvoðar í borginni en í kjölfar þeirra voru reistar margar falleg- ar byggingar sem standa enn. íbúafjöldinn í Moskvu árið 1811 var um það bil 275 þúsund manns, svipað og allir íslendingar í dag. Pétursborg þrjú hundruð ára Næststærsta borgin í Rússlandi heitir Pétursborg og stendur við mynni árinnar Neva í austurenda Finnska flóans og er mikilvæg hafnarborg. Á árunum 1924 til 1991 gekk borgin undir nafninu Leningrad. Pétursborg var á sínum tíma höfuðborg rússneska keisararíkis- ins og þykir mjög ólík Moskvu. Pétur mikli lét byggja borgina frá grunni 1703 og verður hún því þrjú hundruð ára í ár. Hátíðahöld- in heíjast 26. maí næstkomandi. Borgin stendur á mýri sem var ræst fram og mörg húsin standa á stöplum. Pétur flutti hirð sína til borgarinnar árið 1712. Hann hafði mikið dálæti á evrópskri menn- ingu og kallaði borgin glugga sinn til vesturs. Pétursborg þykkir ein af falleg- ustu borgum í heimi og þar er meðal annars að finna listasafn Katrínar miklu, Hermitage, sem hefur að geyma ótrúlegt safn list- muna og er oft kallað mesta lista- safn allra tíma. Sumarhöll keisaranna er skammt fyrir utan borgina og í henni nýtur stórkostlegur íburð- urinn sín vel. Þjóðverjar lögðu hallirnar í rúst í síðari heims- styrjöldinni en Rússar endur- byggðu þær í sinni upprunalegu mynd. í Pétursborg er líka hið fræga Kunstkammer eða náttúru- gripa- og þjóðfræðisafn Péturs mikla sem enginn áhugamaður um menningu og sögu ætti að láta fram hjá sér fara. í ferðabækling- um segir að í borginni séu rúm- lega sautján hundruð almennings- bókasöfn og að í því stærsta séu tæplega þrjátíu milljónir bóka. Lífstíll aðalsins í borginni á keisaratímanum og fátækt verka- mann ollu miklum óeirðum og árin 1825 og 1905 voru gerðar upp- reisnartilraunir við Vetrarhöll- ina. Rússneska byltingin 1917 hófst í Krohshtadt-virkinu og bol- sévíkar hófu uppreisn sína í borg- inni í október sama ár. Ferðast úr sófanum: Áferða- lagium Jemen Árið 1978 lenti Eric Han- sen, höfundur bókarinnar Motoring with Mohammed, í sjávarháska á Rauða haf- inu. Að eigin sögn náðu hann og fjórir skipsfélagar hans á land á lítilli eyju sem heitir Uqban og tilheyr- ir Jemen. Eftir vikudvöl á eyjunni var skipbrotsmönn- unum bjargað af eritrískum geitahiröum og smyglurum. Áður en höfundur fór í land gróf hann persónulega muni sína djúpt í sand á eyjunni, þar á meðal dagbók sem hann hafði haldið á ferða- lögum sínum síðustu sjö árin fyrir skipbrotið. Ætlun- in var að sækja munina fljótlega aftur. En tíminn leið og það var ekki fyrr en tæpum tíu árum seinna sem hann sneri aftur til að reyna að finna dagbókina. í bókinni Motoring with Mo- hammed lýsir Eric Hansen menningu, sögu og lífinu í Jemen og baráttu sinni við kerfi til að fá leyfi frá hem- um til að fara til Uqban-eyj- ar aftur. Það gerist í raun ekki margt spenn- andi í bók- inni fyrir utan sjávar- háskann en höfundur seg- ir frá Jemen á skemmtileg- an hátt og þannig að lesandann iangar til að vita meira um þetta dularfulla land. í grófum dráttum skiptist bókin í þrjá hluta. í þeim fyrsta er sagt frá sjávarháskanum og björguninni og hann hefur yfir sér spennandi og ævin- týralegan blæ. Annar hlut- inn, sem nær yfir stærsta hluta bókarinnar, segir frá því þegar Hansen snýr aftur til Jemen og kynnist Mo- hammed sem á eftir að verða leiðsögumaður hans í ferðinni. Hansen segir einnig frá ferðalagi sem hann fór til að skoða eyði- mörkina og þegar hann er kynntur fyrir „qat“, sem er nautnalyf sem innfæddir tyggja til að gera lífið nota- legra. Höfundi tekst að gera hversdagslega hluti áhuga- verða þannig að bókin verð- ur aldrei langdregin eða leiðinleg aflestrar. í þriðja og stysta hluta taka málin nokkuð óvænta stefnu sem ekki verður sagt frá hér. Motoring With Mo- hammed fæst í bókabúð Máls og menningar og kost- ar 1.525 krónur. ÞARFASH ÞJÓNNINN! BÓNUSVÍDEÓ Leigan i pmu ftverfi Húsbréf Innlausn húsbréfa Frá og með 15. maí 2003 hefst innlausn á útdregnum húsbréfum í eftirtöldum flokkum: 1. flokki 1989 - 50. útdráttur 1. flokki 1990 - 47. útdráttur 2. flokki 1990 - 46. útdráttur 2. flokki 1991 - 44. útdráttur 3. flokki 1992 - 39. útdráttur 2. flokki 1993 - 35. útdráttur 2. flokki 1994 - 32. útdráttur 3. flokki 1994 - 31. útdráttur Innlausnarverðið er að finna í Morgunblaðinu þriðjudaginn 13. maí. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf. íbúðalánasjóður | Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími 569 6900 | Fax 569 6800 VEGA fartölvur: mikil verðlækkun! VEGA+C506 1 x IR port, 1 x TV ut, 1x IEEE1394 (firewire), 1x PCMCIA Type II - Lion rafhlaða Vero: kr.149.900.- www.ormsson.is 15” XGA TfT - Intel Celeron 2,1 Ghz - 256Mb DDR Ram - HDD 30 Gb - Skjámlnni 4-64 Mb shared - CD-Rom 8xDVD/8x8x24x CD-RW Combo - Modem 56Kbps/V.90 - Netkort: 10/1 OOMbps - 2 x USB 2.0, a - Windows XP home VEGA+506 15" XGA TFT - Intel P IV 2,5 Ghz - 512Mb DDR Ram - HDD 40 Gb - Skjáminni 4-64 Mb shared - CD- Rom 8xDVD/8x8x24x CD-RW Combo - Modem 56Kbps/V.90 - Netkort: 10/1 OOMbps - 2 x USB 2.0, 1 xlR port, 1 xTVút, 1x IEEE1394 (firewire), 1x PCMCIAType ll-Lion rafhlaða-WindowsXP home Verð: kr. 179.900.- OKMSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.