Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Blaðsíða 17
16 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 17 Útgáfufélag: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson A&alritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaBaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlió 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 82, sfmi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Plötugeró og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Að loknum kosningum Úrslit alþingiskosninganna 2003 eru á margan hátt söguleg og veröa aö líkindum bindandi fyrir stjórnmálaátök á næstu árum, jafnvel áratugum. Fimmflokkur- inn hefur fest sig í sessi, tveir turnar rísa upp úr, hvor meö þriðjung þjóðarinnar á bak viö sig, annar stígur á meöan hinn hnígur og svo gæti farið að þar væri komiö pólitískt jafnvægi á milli tveggja nokkuð ólíkra breiöfylkinga, hófsamrar félagshyggju og hófsamrar frjálshyggju. Að þessu leyti hefur samkeppnisumhverfið breyst í stjórnmálaumræðu hér á landi. Miðja íslenskra stjórnmála er söm við sig. Hún má heita liðamótin í landsmálapólitíkinni. Þvert á margar spár náði miðflokkur íslenskra stjórnmála vopnum sínum á loka- sprettinum og tókst að koma sér í þá draumastöðu sem dug- ar honum best til áhrifa. Alþingiskosningarnar í ár voru sönnun þess að eftir sem áður er gott rúm á milli stóru flokkanna. Engu virðist skipta þó flokkarnir beggja vegna höfði báðir sterkt og æ meira til miðfylgisins: Framsóknar- flokkurinn er sem fyrr klár kostur í stjórnmálum. Alþingiskosningamar sýndu að tíu prósenta markið er erfitt fyrir flokka sem afmarka sig í málefnum og taka lítinn sem engan þátt í vinsældabrölti á breiðsíðum nútímans. Vinstri grænir gengu hreinir og klárir til kosninga, óþekkir og óspjallaðir, en náðu aldrei að vera sá veigamikli valkostur til vinstri sem þörf er á í lýðræðislegri umræðu. Til þess skyggði Samfylkingin of mikið á þá. Ef til vill má segja að í ár hafi það hent að minni flokkurinn í andstöðu hafi goldið stærðar sinn- ar, rétt eins og gerðist tíðum meðal stjórnarflokka. Það fór eins og við var að búast með Frjálslynda flokkinn að eina mál hans dugði honum ekki alla leið á kjörstað. Á ögurstundu hurfu allmargir úr stuðningsliðinu enda var ein- hæfnin í málflutningi meira áberandi eftir því sem á leið. Það reyndist flokknum líka erfitt að tefla fram nýjum og að einhverju leyti ósannfærandi oddvitum á listum flokksins sem þurftu að etja kappi við harðsvíraða atvinnumenn í orðsins skaki. Engu að síður getur flokkurinn vel við unað enda eini flokkurinn sem tvöfaldaði þingstyrk sinn. Samfylkingin er sigurvegari kosninganna í ár. Hún er orðin að breiðfylkingu jafnaðarmanna á evrópska vísu. Flokknum tókst hins vegar hvorki að fella ríkisstjórnina né koma talsmanni sínurn að á þingi. Samfylkingarinnar bíður pólitískt tómarúm sem mikilvægt er að flokkurinn nýti til að styrkja innviði sína svo hann geti hugsað og hagað sér í samræmi við stærð sína. Mestur er sigur formanns flokks- ins, fyrsta þingmanns Reykvíkinga í norðri. Hann smíðaði þau vopn sem dugðu til að brjótast yfir 30 prósenta múrinn. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði mestu í ár. Hann féll niður fyrir sársaukamörkin og hefur aðeins tvisvar mælst minni á síðustu 40 árum, síðast eftir klofninginn 1987. Rétt eins og þá situr flokkurinn uppi með klofningsframboð á landsvísu og stöku kjördæmi og virðist að auki hafa goldið fyrir ein- arða afstöðu í mörgum málaflokkum, svo sem fiskiveiðimál- um. Vandi flokksins er að annar flokkur er kominn til að vera hægra megin miðju og annar vandi er að sterkasti leið- togi flokksins í áratugi er að hverfa úr hásætinu. í alþingiskosningunum í ár töpuðu öfgarnar í íslenskum stjórnmálum og miðjan minnti á mátt sinn. Samfylkingin hefur náð út pólitískum þroska og hefur gert það að verk- um að sjálfstæðismenn geta ekki lengur horft niður til ann- arra stjómmálamanna hér á landi. Sjálfstæðismenn glíma ekki aðeins við flokksbrot á sínum væng stjórnmálanna heldur ekki síður að sígild stefna þeirra um framtak ein- staklingsins hefur fengið ríkan hljómgrunn meðal annarra flokka. Eftir standa auðkenni sem eru fyrir þrengri hóp. Sigmundur Ernir Skoðun Kosningaúrslit vekja blendnar dlíinningar Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur Kjallari Einum tvísýnustu kosning- um íslandssögunnar er nú lokiö. Eins og jafnan túlka flokkarnir niðurstöðurnar á æði misjafnan hátt og beita gjarnan því viðmiði sem kemur best út fyrir flokkinn. Þannig miða menn ýmist við ólíkar skoðanakannanir, síöustu kosningar eöa jafnvel meðaltals- fylgi yfir lengri tíma. Þannig verða allir sigurvegarar á sinn hátt. Sumt liggur þó ljóst fyrir: Sigur Samfylkingar Stór tíðindi kosninganna eru þau að flokkakerfið er breytt. Samfylk- ingin vann mikinn kosningasigur og hefur fest sig í sessi sem jafnað- armannaflokkur á borð við systur- flokkana á Norðurlöndum með yflr þrjátíu prósent atkvæða. Súluritin sýna, svo ekki veröur um villst, aö tveggja turna kenningin er orðin að veruleika. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna hátt yfir aðra flokka. Þrátt fyrir sætan sigur náði Samfylkingin þó aðeins einu af þremur markmiðum sínum og því er sigurinn nokkurri beiskju blandinn. Þrátt fyrir að alla tíð hafi verið langsótt að fimmta sætið í Reykja- vík noröur gæti orðið þingsæti voru það mikil vonbrigði fyrir samfylkingarfólk að vakna upp við það á sunnudagsmorgni að leiðtogi flokksins, Ingibjörg Sólrún, væri ekki á þingi, eftir að hafa verið inni nær alla nóttina. Enn fremur náði flokkurinn ekki því meginmarkmiði sínu að fella ríkisstjórnina. Sjálfstæðisflokkur tapar Sjálfstæðisflokkurinn bíð- ur mikinn ósigur og tapar langmest allra, eða heilum sjö prósentustigum, sem verður að teljast verulegt fylgistap. Þetta er fyrsti raunverulegi kosningaósigur Davíðs Oddsonar sem hefur hingað til verið hreint ævin- týralega sigursæll leiðtogi. Ósigurinn er enn áþreifan- legri fyrir það að Össur Skarphéðinsson er nú fyrsti þingmaður í Reykjavík norð- ur en ekki Davíð. Slíkt hefur aldrei gerst áður. Sjálfstæðis- menn geta þó huggað sig við þaö að ríkisstjórnin heldur velli en sjaldan í sögunni hafa Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur þó haft jafn lítiö fylgi til samans. Varnarsigur Framsóknar Framan af kosningabarátt- unni leit út fyrir að Fram- sóknarflokkurinn myndi bíða afhroð í kosningunum. Vel heppnuð - en feikidýr - kosningabarátta skilaði flokknum hins vegar fast að kjörfylgi þegar upp var staðið og um leið var frísk- að verulega upp á ímynd flokksins. Framsókn vann því góðan varnar- sigur þrátt fyrir að flokkurinn sé nálægt sögulegu lágmarki. Tap Vinstri grænna Lengst af kjörtímabilinu mæld- ust Vinstri grænir með álíka fylgi og Samfylking og á tímabili sigldi flokkurinn með himinskautum í skoðanakönnunum og fór þá langt fram úr Samfylkingu. í því ljósi svíður tapið ansi sárt - ekki síst sökum fylgishrunsins í kjördæmi formannsins. Vinstri grænir tapa manni og telst nú vera þröngur prósenta fylgi getur Halldór ráðið hvort hann verður forsætis- ráðherra í stjóm með Sjálfstæðisflokki eða Samfylkingu en þegar þetta er skrifað hefur hann ekkert gefið uppi um það. Það sem helst stendur í vegi fyrir áframhaldandi ríkis- stjórnarsamstarfi Sjálf- stæðisflokks og Fram- sóknar er að ólíklegt verður að teljast að Hall- dór kæri sig um að sitja í ríkisstjórn undir áframhaldandi forystu Davíðs Oddssonar. Jafn ólíklegt er aö Davíð kæri sig um að taka við öðru ráðuneyti. Davíð verður því að stíga af stóli til að tryggja áframhaldandi stjórn. Hugsanlegt er að Davíð sitji áfram í eitt ár og að svo taki Halldór „Það virðist engu skipta hvemig kosningar fara á íslandi, alltaf hefur viö- Á næsta ári eru hundrað ár frá því að Is- Framsókn lykilinn að stjórnarráðinu. - Súluritin sýna, svo ekki verður imdfékk^yrsta^ráðherr um villst, að tveggja tuma kenningin er orðin að veruleika. Sjálfstœð- ann og ekki er fráieitt að isflokkur og Samfylking tróna hátt yfir aðra flokka.“ smáflokkur um. yst á vinstri kantin- Frjálslyndir vinna á Frjálslyndir vinna góðan sigur þrátt fyrir að dala nokkuð frá skoð- anakönnunum. Flokknum tókst að láta kosningabaráttuna snúast að miklu leyti um kvótamálið og er það sigur í sjálfu sér. Athyglisvert er að um leið og stofnandi flokks- ins, Sverrir Hermannsson, hætti sem formaður þaut fylgið upp úr öllu valdi. Kjósendur flykktu sér um flokkinn en síðan lak aðeins úr blöðrunni. Það sem helst ógnar til- veru flokksins er hefðarleysið. Fjórflokkurinn er svo rótgróinn í íslenskum stjórnmálum að líklegt verður að teljast að Frjálslyndi flokkm'inn verði brátt aðeins sagn- fræði eins og Bandalag jafnaðar- manna, Borgaraflokknum og fleiri álíka flokkar sem hefur tekist að gera mikinn usla í íslenskum stjómmálum um skamma hríð. Ýmsir möguleikar Eins og svo oft áður er Fram- sóknarflokkurinn í lykilstöðu þeg- ar kemur að stjórnarmyndun og Halldór Ásgrímsson getur í raun ráðið með hverjum hann vill starfa. Það virðist engu skipta hvemig kosningar fara á íslandi, alltaf hefur Framsókn lykilinn að stjórnarráðinu. Þrátt fyrir að flokk- urinn hafi aðeins ríflega sautján Davíð noti það tilefni til að stíga niður. í fyrsta sinh í sögunni er unnt að mynda tveggja flokka meirihlutastjóm á íslandi án þátt- töku Sjálfstæðisflokks. Það sem helst stendur í vegi fyrir samstjórn Framsóknar og Samfylkingar er að hún hefði aðeins eins manns meiri- hluta og engin ríkisstjóm vill eiga líf sitt undir Kristni H. Gunnars- syni. Heppilegra væri þvi að kippa annaðhvort Frjálslyndum eða Vinstri grænum með í slíka stjóm eða semja um að annar hvor flokk- urinn verði stjórnina vantrausti í skiptum fyrir framgang tiltekinna mála. Þá er heldur ekki hægt að úti- loka samstjóm Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en það verður þó að teljast ólíkleg niöurstaða. „Hjá okkur vantar t.d. öll ákvœði sem tryggja launþeg- um eðlilegt atvinnuöryggi, “ segir m.a. í pistlinum. lausum uppsögnum á fyrirmyndar- starfsfólki. Meiningarlaus orð Fullyrðingar stjómvalda, aö hér ríki réttlæti og ísland sé meðal fremstu þjóða hvað mannréttindi varðar, eru því miður meiningar- laus orð, því veruleikinn segir allt annað. íslensk stjómvöld hafa átt þess kost árum saman að setja lög sem tryggðu launafólki lágmarks mannréttindi við uppsagnir úr starfi en ekki hirt um það. Þau hafa jafnvel daufheyrst við áskor- Lágmarks mannréttindi Slgur&ur T. Sigurösson fyrrverandi formaöur Hlífar í Hafnarfiröi „Samkvæmt núgildandi lögum getur atvinnurek- andi sagt starfsmanni upp starfi án nokkurrar ástæöu og ráðið annan í hans stað. Þannig getur persónuleg óvild atvinnu- rekandans í garð starfs- manns orðið til þess að starfsmaðurinn standi allt í einu uppi atvinnulaus." Við íslendingar drögumst sífellt meira aftur úr öðrum lýðræðis- þjóðum í mannréttindamálum og í íslenska löggjöf vantar mörg mikil- væg ákvæði sem þykja sjálfsögð og eðlileg annars staðar í Vestur-Evr- ópu og Norður Ameríku. Hjá okkur vantar t.d. öll ákvæði sem tryggja launþegum eðlilegt at- vinnuöryggi og vemd gegn því að hægt sé að vísa þeim úr starfi án gildra ástæðna. Auk þess eru at- vinnuleysisbætur langt undir viður- kenndum lágmarkslaunum, þannig að atvinnuleysi, jafnvel í stuttan tíma, þýðir gjaldþrot hjá hverju venjulegu heimili. Þetta vita núver- andi stjórnvöld en hafa hvorki áhuga né siðferðismeðvitund til að laga þetta ófremdarástand. Geðþóttauppsagnir Samkvæmt núgildandi lögum getur atvinnurekandi sagt starfs- manni upp starfi án nokkurrar ástæðu og ráðið annan í hans stað. Þannig getur persónuleg óvild at- vinnurekandans í garð starfs- manns orðið til þess að starfsmað- urinn standi allt í einu uppi at- vinnulaus. Á sama hátt geta pólitískar skoð- anir, litarháttur, trúarbrögð eða jafnvel aðild að verkalýðsfélagi orðið tilefni til uppsagnar og því miður hafa atvinnurekendur notaö sér þetta, oft á tiðum með tilefnis- unum frá Sameinuðu þjóðunum um að fullgilda alþjóðlegar reglur varðandi uppsagnir. Bananalýðveldi Verkalýðsfélagið Hlíf svo og mörg önnur verkalýðsfélög hafa ít- rekað farið fram á það við íslensk stjómvöld að þ^u fullgiltu fyrr- greindar reglur Sameinuðu þjóð- anna en hingaö til hafa værukærir ráðherrar þrjóskast við. Þar af leiö- andi er launafólk hérlendis verr sett í þessum málum en t.d. verka- fólk í Jemen og Tyrklandi en bæöi þessi ríki hafa fullgilt fyrrgreinda samþykkt. Það er athyglisverð staðreynd að ríki þriðja heimsins skuli fullgilda samþykktir Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi en ísland situr eftir eins og steinrunnið banana- lýðveldi. Að þessu sinni ætla ég ekki að skora á stjórnarflokkana að virða lágmarks mannréttindi, heldur vona að kjósendur hafi ekki greitt þeim atkvæði sitt í nýliðnum al- þingiskosningum og hegnt þeim þannig fyrir þann fjandskap sem þeir hafa sýnt almennu launafólki í landinu. Ummæli Stíll Össurar Spyrja má hvort stj ómarandstöðustíll össurar, með hraða- upphlaupum sem enda sjaldnast með marki, nema þá sjálfsmarki, sé það sem „stóri“ jafnaðar- mannaflokkurinn þarf á að halda, ætli hann að festa sig í sessi. Þessi stíll hefur fremur þótt henta smá- flokkum.“ Ólafur Þ. Stephensen i fréttaskýringu í Morgunblaöinu. Með minnihluta atkvæða „í síðustu kosningum fékk George W. Bush ekki meirihluta atkvæða á landsvísu en fékk engu að síður meirihluta kjörmanna og var rétt kjörinn forseti. Rætt var við Össur Skarphéðinsson um þessa niðurstöðu í Morgunblaðinu 15. desember 2000 og þar segir meðal annars: „Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, segir að úrslit forseta- kosninganna séu áfall fyrir lýðræðið. Niðurstaðan hljóti að leiða tú um- ræðu um breytingar á fyrirkomulagi kosninganna og talningar atkvæða, þannig að í framtíðinni verði ekki mögulegt að verða forseti með færri atkvæði en sá sem tapar.“ Þetta er sami Össur og segir nú að loknum kosningum að sá draumur sinn hafi ræst aö hægt sé að mynda ríkisstjórn Samfylkingar og Framsóknarflokks. í kosningunum í gær fengu þessir flokkar samanlagt 48,7% atkvæða en engu að síður meirihluta þingmanna. Væri stjórn þessara flokka áfall fyrir lýðræðið?" Vefþjóðviljinn á Andríki.is. Á móti vindi „Samkvæmt þeim kosningaúrslit- um sem nú liggja fyrir eru skilaboð- in skýr. Framsóknarflokkurinn á að vera áfram í ríkisstjóm og Sjálfstæð- isflokkurinn á að fara úr ríkisstjóm og Samfylkingin inn. [...] Vissulega verður það erfitt aö leiða rikisstjórn með eins manns meirihluta en mun- um að flugdreki fer aðeins á loft á móti vindi en ekki með vindi.“ Björgmundur Örn Guðmundsson á Maddömunni.is. Loftfimleikar „Þegar hvorki tókst að fella ríkis- stjómina né að koma Ingibjörgu Sólrúnu á þing, hefur forysta Samfylkingarinnar huggað sig við, að hún hafl rofið „30%- múrinn". Líklega vita fæstir kjósend- ur Samfylkingarinnar, hvað í þessu felst, enda voru þeir aldrei hvattir til þess að taka þátt í slíku hástökki. Þetta eru pólitiskir loftfunleikar og eftiráskýringar með söguna að mælistiku, en skipta engu í veru- leika stjómmálanna." Björn Bjarnason á vef sinum. Hjólað í Framsókn „Samfylkingunni er hollt að minn- ast þess að Sjálfstæðisflokkurinn beið sögulegt afhroð í þessum kosningum. Ólíklegt verður að teljast að slíkt ger- ist aftur. Eina leiðin til að fella ríkis- stjórnina var að fella Framsóknar- flokkinn. Þetta sjá menn nú í hendi sér. Frá fyrsta degi nýrrar ríkisstjóm- ar ber Samfylkingunni því að taka Framsóknarflokkinn fyrir og veita flokknum harða stjórnarandstöðu." Birgir Hermannsson á Kreml.is. Hólmsteinn grætur Þaö sem er líklega rótin að þessari geðröskun Hólmsteins er sú stað- reynd að Borgarfræðaset- ur gaf út í apríl sl. bók eft- ir Hörpu Njáls um fátækt á íslandi. Ætla má að hon- um hafi fundist þetta framlag óþægilegt. Hannes Hólmsteinn Gissurar- son skrifar mikla úttektargrein um niðurstöður kosninganna í DV í gær (mánudag). Heldur er þungt hljóð í kauða, enda er hann óánægður með útkomu síns flokks. Eins og allir vita er hann helsti hugmyndafræðingur og baráttumaður Sjálfstæðis- flokksins og hefur verið svo um langt árabil. Ekki skal ég blanda mér í túlkanir Hólmsteins á úr- slitum kosningaxma, þó mér sýn- ist að þær séu bæði ónákvæmar og villandi. í geðvonsku sinni hreytir Hólmsteinn ónotum í nokkra samstarfsmenn sína við Háskóla íslands. Vil ég sérstaklega gera athugasemd við staðhæflngu sem hann beinir að mér og Borgar- fræðasetri sem ég er í forsvari fyrir. Hólmsteinn segir að ég og starfsmenn Borgarfræðaseturs hafi tilheyrt einhverjum hópi sem „skipulagði kosningabaráttu hennar (Samfylkingarinnar) og mælti fyrir stefnu hennar í fjöl- miðlum“. Ég kannast ekki við að þetta sé rétt. Það sem er líklega rótin að þessari geðröskun Hólmsteins er sú staðreynd að Borgarfræðaset- ur gaf út í apríl sl. bók eftir Hörpu Njáls um fátækt á íslandi. Ætla má að honum hafi fundist þetta framlag óþægilegt. Eðli máls samkvæmt var nokkur kynning á verki þessu í kjölfar útgáfunnar, enda mikið verk á ferðinni sem unnið hefúr verið að um árabil. Þessi kynning var þó hófleg (einn opinber fyrirlest- ur) en fjölmiðlar sýndu verkinu nokkum áhuga og fjölluðu um það, eins og ég tel að gerst hefði í öllum vestrænum þjóðfélögum. Fátækt er alls staðar mikilvægt viðfangsefiii. Þá hef ég sjálfur flutt fyrirlestra um velferðarmál á íslandi eins og gerist alltaf annað slagið, enda er þar um viðfangsefni að ræða sem ég hef fengist við í á þriðja áratug og skrifað meira um en flestir aðr- ir í landinu. Eitthvað af því sem fram kom í þessum fyrirlestrum mínum þótti fréttnæmt á fjölmiðl- um. Ef það hefur veriö óþægilegt fyrir einhvern er vart við mig að sakast, nema ég hafi beinlínis ver- ið að falsa staðreyndir til þess að hafa pólitísk áhrif. Enginn hefur haldið slíku fram svo mér sé kunnugt. Ég hef haft þá reglu að tala á fundum, ráðstefnum og hjá stjórn- málaflokkum ef um er beðið og í reynd hef ég oftar talað hjá Sjálf- stæðisflokknum en hjá Samfylk- ingunni á liðnum árum. Ég tel það skyldu háskólaprófessora að fjalla um viðfangsefni sín á opinberum vettvangi ef um er beðið og ef þeir geta því viðkomið, sem og að veita áhugasömum aðgang að gögnum sem ég hef tiltæk. Þó Borgarfræðasetur sé lítil stofnun enda tiltölulega nýlega tekin til starfa - þá starfa þar þó nokkrir einstaklingar auk mín. Mér er ekki kunnugt um hvaða stjórnmálaskoðanir þeir hafa né hvort einhverjir þeirra hafi unnið fyrir einhverja stjórnmálaflokka í frítíma sínum. Það kemur mér ekki við. Það er hins vegar ekki líðandi að Hannes Hólmsteinn taki gremju sína út á þessu fólki sem heild með því að hreyta ónot- um í Borgarfræðasetur og draga starfsfólk þar allt í einhverja póli- tiska dilka að ósekju. Ég vænti þess að þegar Hannesi Hólmsteini rennur reiðin þá biðji hann starfsfólk Borgarfræðaseturs afsökunar á þessari yfirsjón sinni. Ég hef haft þá reglu að tala á fundum, ráðstefnum og hjá stjómmálaflokkum ef um er beðið og í reynd hef ég oftar talað hjá Sjálfstæðisflokknum en hjá Sam- fylkingunni á liðnum ámm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.