Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003
9
DV
Fréttir
Ný og nútímaleg Skaftárbrú verður byggð:
Glæsibrú í stað
■ ■
flmmtugrar og lúmnar
Tvær heldur lúnar brýr yfir
Skaftá við Kirkjubæjarklaustur
munu brátt ljúka þjónustu við veg-
farendur. Þama er um að ræða
tvær einbreiðar brýr frá 1953 sem
margir þekkja úr ferðalögum sín-
um um landið. Vegagerðin mun á
næstu dögum auglýsa útboð á gerð
brúnna tveggja, sem eru 20 metra
og 26 metra langar, auk vegtenging-
ar á milli brúnna og tengingu við
núverandi veg, alls 114 metra vega-
gerð.
Þarna mun koma 7,5 metra breiö
akbraut og nær tveggja metra gang-
braut, brúin tvíbreið samkvæmt
nútímakröfum. Brikur á brúnum
verða hálfur metri og á þær verður
sett vegrið með handriði en vegrið
verður á milli gangbrautar og ak-
brautar.
Þama er um að ræða mikla veg-
arbót á Suðurlandsvegi og fækkar
enn varhugaverðurm einbreiðum
brúm á hringveginum. -JBP
DV-MYNDIR VEGAGERÐIN
Sú gamla
Gamla Skaftárbrúin viö Kirkju-
bæjarklaustur, barn síns tíma,
einbreiö og tekin aö lýjast, enda
er fimmtugsafmæli hennar í ár.
Ný og glæsileg
Svona mun nýtt brúar- og vegamannvirkið líta út þeg-
ar væntanlegur verktaki hefur lokið störfum sínum
fyrir Vegagerðina. Tvíbreiö akbraut ásamt gangbraut.
Grjótvörn er á fyllingum til aö verjast vatnavöxtum.
Þessa tölvumynd geröi brúardeild Vegageröarinnar.
Hæstiréttur:
Þriggja ára
fangelsi fyrir
dópinnflutning
Hæstiréttur hefur staðfest
þriggja ára fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Reykjavíkur yfir Sig-
urði Hilmari Olasyni fyrir að
flytja mikið magn hættulegra
flkniefna til landsins í hagnað-
arskyni. Ríkissaksóknari skaut
málinu til Hæstaréttar 17. des-
ember 2002 að ósk Sigurðar
Hilmars en jafnframt af hálfu
ákaeruvaldsins. Málið var höfð-
að gegn þremur mönnum auk
Sigurðar og voru þeir allir sak-
felldir og dæmdir til refsingar í
héraðsdómi. Hlutu hinir þrír
tveggja ára fangelsi, 20 mánaða
fangelsi og 12 mánaða fangelsi.
Dóminum var þó ekki áfrýjað
að því er hina þrjá varðaði. Með
skýrslum mannanna þriggja hjá
lögreglu og fyrir dómi þótti
sannað að Sigurður Hilmar
hefði staðið að því með þeim að
flytja inn tæp 30 kíló af kanna-
bisefnum til landsins.
Sigurður Hilmar hefur
nokkurn sakaferil að baki og hef-
ur frá árinu 1980 verið sektaður
sjö sinnum fyrir umferðarlaga-
brot. Þá var hann dæmdur árið
1994 í 10 'mánaða fangelsi fyrir
fjársvik og tékkalagabrot.
Við ákvörðun refsingar var
haft til hliðsjónar að um mikið
magn fíkniefna væri að ræða. Þá
var einnig haft í huga að Sigurð-
ur hefði ásamt öðrum manni ver-
ið aðalskipuleggjandi brotsins.
Dómurinn taldi hann ekki hafa
neinar málsbætur og auk fangels-
isrefsingar þurfti hann að þola
upptöku á fíkniefnunum. Frá
refsivistinni dregst hins vegar
205 daga gæsluvarðhaldsvist
sem hann hefur sætt frá 16. apr-
ílsl.________________-EKÁ
Stúlka féll fram af svölum:
Henti sér fram af
í kjölfar rifrildis
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um klukkan tvö í fyrrinótt
að stúlka hefði fallið fram af svöl-
um á annarri hæð húss við Berja-
rima. Stúlkunni hafði sinnast við
pilt og í kjölfarið henti hún sér
fram af svölunum. Stúlkan var
flutt með sjúkrabifreið á slysa-
deild og kenndi hún eymsla í
baki og á hálsi. -EKÁ
Honda Integra Type-R, árg. 12/00, ek.
44 þús., beinsk.,190 hö., recaro-stólar, BBS-álfelgur.
Sportbíll nr. 1.
Verð 2.090 þús.
Honda Civic VTI 1,6, árg. 8/00, ek. 33
þús.,
beinsk.,160 hö., sóllúga, álfelgur, rafdr. rúður og speglar,
ABS.
Lán 1.040.
Verð 1.380 þús.
Honda CRV Advance, árg. Toyota Avensis Terra st.
7/00, ek. 3 þús., ssk., sílsarör, 1,8, árg. 5/00, ek. 57 þús.,
sjálfvirk miðstöð, ABS, loftpúðar, álfelgur,
rafdr. rúður og speglar.
Verð 2.890 þús.
ssk., þakbogar, ABS, loftpúðar, rafdr.
rúður og speglar.
Verð 1.310 þús.
Honda CRV Rvsi, árg. 3/99,
ek. 55 þús.,
ssk., leðursæti, þakbogar, ABS, sílsarör,
kastaragrind, álf., loftpúðar.
Verð 1.750 þús.
Toyota Yaris Terra, árg.
6/00, ek. 47 þús.,
beinsk., álfelgur, spoiler, loftpúðar.
Verð 820 þús.
Peugeot 306 XR, árg. 4/01,
ek. 35 þús.,
beinsk., ABS, loftpúðar, samlæsingar,
rafdr. rúður og speglar, kastarar.
Verð 990 þús.
M-Benz E-290D Classic,
árg. 8/96, ek. 375 þús.,
ssk., rafdr. rúður og speglar, olíufýring,
þjónustaður af Ræsi, ABS, loftpúðar,
álfelgur.
Verð 1.680 þús.
Aðalbílasalan - fyrstir í notuðum!
Góð og traust þjónusta við viðskiptavini Aðalbílasölunnar
hefur verið lykilforsenda fyrir velgengi henna síðastliðin 48 ár.
Viljir þú kaupa eða selja bíl þá getur þú treyst á þjónustu okkar.
mLBiLAsaut^
<"* I HJARTA BORGARINNAR
MILATORGI • SIMI 551 7171 • FAX 551 7225 • www.ab