Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Page 14
SLA60RBASAHKEPP1U 14 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 DV HÆTTUM AÐREVKJA HVATNINGAR- 0R ÁTAKUMFÍ Jffi Taktu þátt í samkeppmum slagoro gegn reyking-um Slagoröasamkeppnin er opin öllum landsmönnum á hvaöa aldri sem er. Vegleg verðlaun tengd íþróttum, útivist og feröalög- um veröa veitt. Sendiö slagoröin JÚJjlJjJjJiJ UUJj'lJJJ Jújj Jú- til: Þjónustumiöstöö UMFÍ, Fellsmúla 26, 108 Reykjavík merkt: SLAGORÐASAMKEPPNI fyrir 25. maí. Útslit veröa kynnt á reyklausum degi 31. maí. Leggöu inn á Reyklausan reikning til að fá geisla- plötuna HÆTTUM AÐ REYKJA! Leggðu kr. 1000 inn á Reyklausan relkning í banka eða sparisjóöi og þú færð eintak sent um hæl: SPK nr. 5513 - SPH nr. 6943 - SPV nr. 11047 SPRON nr. 7306 - SPK nr. 408428 íslandsbanki (aöalbanki) nr. 160379 Landsbanki (aðalbanki) nr. 283408 Búnaðarbanki (aðalbanki) nr. 120552 Mundu að láta nafn þitt og heimilisfang koma skýrt fram þegar þú leggur inn á Reyklausan reikning. HVATNINGAR- 0fS ÁTAKUMFÍ Mm Geisladiskinn HÆTTUM AÐ REYKJA er einnig hægt aö fá í Þjónustumiðatöö UMFÍ, Fellflmúla 26,108 Reykjavík, 8. 668 2929. Diflkurinn kostar 1.000 kr. Hetldarverðmæti vinninga í hvatningarátakl UMFÍ er kr. 760.000. Nöfn vinningshafa veröa birt í DV á reyklausum degi 31. maí. Fríverslunin leikur helming Mexíkóa grátt: Auðurinn vex og fátæktin eykst REUTERS Um fimm hundruö manns flýja daglega til stórborga eöa Bandaríkjanna Göm- ul kona í Mexíkóborg amlar ofan í sig og á meö saumum, en hún er meöal fjóröungs landsmanna sem býr viö sára fátækt og skort. Verslunarumsvif Mexíkó hafa þre- faldast síðan landið varð aðili að NAFTA, norður-ameríska fríverslun- arsvæðinu ásamt Bandaríkjunum og Kanada. Efnahagskerfið er hiö ní- unda stærsta í veröldinni og veltir um 600 milljónum dollara og viöskiptaveldið er umfangsmeira en hið breska, suður-kóreska og spánska. Samt er fátæktin meiri og lífskjörin verri í Mexíkó en þau voru fyrir tveim áratugum en á því tíma- bili hafa fjórir forsetar lofað endur- bótum og framfórum. Þær láta þó á sér standa og meirihluti þjóðarinnar býr við fátækt og fjórðungur ibúanna við sára fátækt sem eykst hraðfara, öfugt við loforð og væntingar sem ráðandi öfl vekja með þjóðinni. Ríflega helmingur íbúa Mexíkós situr fastur í fátæktargildru sem eng- in leið virðist að sleppa úr. Enn og aftur er því trúað að umbótasinnaöir forsetar muni leiða þjóðina út úr ógöngunum en fijálsa markaðskerfiö og fríverslunarsambandið í öflugasta hagkerfi heims hafa einvöröungu þau áhrif að fátæktin magnast um leið og ríkidæmið eykst. Hundraðshluti þeirra Mexíkóa sem sitja fastir í fátæktinni er hinn sami og við upphaf níunda áratugar- ins, á sama tíma og fólkinu hefur fjölgað úr 70 milljónum í 100 miiijón- ir. Þaö þýöir að nú eru fátæklingar 17 milljónum fleii'i en þegar farið var fyrir aivöru að takast á við landlæga örbirgðina og ekkert hefúr hinum snauðu fækkað á þeim árum sem landiö hefur notiö fríverslunarinnar við Bandaríkin og Kanada. En á sama tíma, eða á tæpum ára- tug, hefur auður landsins þrefaldast og útvaldir atvinnuvegir standa með miklum blóma. Ríkisrekna olíuíýrirtækið Pemax hefur einkaleyfi á vinnslu í auðugum olíulindum og er eitt stærsta olíufyr- irtæki heims. Sólbakaðar strendur, glæsileg hótel og afþreyingarstaðir draga að sér 20 milljónir ferðamanna á ári og er Mexíkó meðal 10 mest sóttu ferðamannalandanna. Áratugaspilling Þverstæðurnar í efnahagslífinu eru útskýrðar með ýmsu móti. Við- varandi fátækt er útskýrð af sérfræð- ingum og tveim samdráttarskeiðum frá 1980 gjaman kennt um að hægt hafi á hagvexti og atvinnuleysi auk- ist svo að fiöldi miðstéttarfólks hafi lent í fátæktargildrunni miklu - og eigi sér vart viðreisnar von. Lélegt menntakerfi dæmir hina snauðu til atvinnuleysis eða lág- launastarfa innan auðugra efhahags- kerfa þar sem þekking og starfshæfni er undirstaða góðra lífskjara. Áratuga opinber spilling rænir þá snauðu öllum lífsgæðum, allt frá styrkjum til að stunda framhaldsnám til niðurgreiddrar mjólkur. Brogað bankakerfi bætir síst um. Hinir snauðu fá engin lán né fyrirgreiðslur og er borin von að þeir geti eignast viðunandi húsnæði eða komið undir sig fótunum í rekstri smáfyrirtækja. Vanmáttur löggjafans og fram- kvæmdavaldsins til að breyta lögum fátæklingum í vil kemur í veg fyrir að fiárfest sé í fyrirtækjum sem krefi- ast nýrra starfa. Stjómleysi og glæpastarfsemi er af-. leiöing uppgjafarinnar gegn fátækt- inni og fæst þar lítið við ráðið. Einn af nánustu samstarfsmönnum Fox forseta, sem nýlega lét af embætti ut- anríkisráðherra, segir berum orðum, aö landið sé stjómlaust og svona geti ástandið ekki gengið áfram. Loforð og vanefndir Glögglega hefur komið í ljós að frí- Fox forseti er að hefja enn eina umbótaáœtlun- ina, enda standa þing- kosningar fyrir dyrum. Hvort hún reynist öreig- unum betur en önnur kosningaloforð á eftir að koma í Ijós. Hitt er aug- Ijóst að hinir vel mennt- uðu og efnuðu munu áfram nota yfirburði sína til að sitja yfir hlut smœlingjanna, sem allir þykjast œtla að bjarga upp úr fátœktardíkinu án þess að láta neitt eftir af sínum forréttindum. verslunin og aðgangurinn að NAFTA megnar ekki að lyfta Mexíkó upp úr fátæktarbaslinu, eins og miklar von- ir vom bundnar við. Þegar Miguael de la Madrid tók við forsetaembætti 1982 lofaði hann bót og betrun og að koma á stjómkerfi sem útrýma átti fátæktinni. Þegar næsti forseti tók við sex árum síöar sat allt við sama keip og aftur var lof- að bót og betrun og réttlátara þjóðfé- lagi. Næstu forsetar höfðu á stefnuskrá að efla frjálst markaðskerfí og minnka afskipti hins opinbera af at- vinnugreinum eins og landbúnaði og iönaði. Frjálshyggjan átti að leysa vanda- málin á tíunda áratugnum og sér- staklega beindust allar vonir um end- urbætur að þátttöku landsins í NAFTA. En frjálsræðið hefur ekkert gert fyrir hina fátæku sem em fleiri og enn vem settir en fyrr. Að hinu leytinu hefur stefnan í efnahagsmálunum breikkað bilið mikið milli hinna ríku og snauðu. Rannsóknir sýna að hinir auðugu em 10% þjóðarinnar og þeir eiga og stjóma helmingi auöæfa landsins, þar með taldar landeignir og fasteign- ir. Flestir þefrra sem búa við sámstu fátæktina hrærast í dreifbýlinu. Um 40 af hundraði þéna innan við sem svarar 100 íslenskum krónum á dag og em ekki færir um að afla nauð- synlegrar fæðu. Afleiðingin er flótti úr sveitum í leit að skámi lífskjörum. 400 til 600 manns flýja á degi hveijum til stórborga eða yfir landamærin til Bandaríkjanna. Talsmaður bænda og vinnufólks heldur því fram að dreif- býlisfóikið vilji halda áfram að búa í sínum byggðarlögum en neyðist til að flytja vegna þess hve lítið lifvæn- legt er að stunda landbúnaðarstörf við núverandi aðstæður. Þingkosningar Skuldinni er gjaman skellt á aðild- ina að NAFTA. Mexíkóskir bændur veröa unnvörpum gjaldþrota því þeir geta ekki keppt viö mikið niður- greiddar afurðir frá Bandaríkjunum en að auki er landbúnaður þar mikið tæknivæddur. Aftur á móti hafa stór- bændur haft góðan hag af fríverslun- inni og sama er að segja um verk- smiðjurekstur. En neyðin meðal hinna snauðu minnkar ekki við það. Ríkiseinokun á olíuvinnslunni ger- ir Pimex að ríki í ríkinu og þeir sem þar stjóma auðgast vel á því að standa á móti öllum breytingum og ef eitthvaö er aö marka umbótavilja for- setanna sýnist ljóst að þeir ráða ekk- ert við þau öfl sem reka það mikla fyrirtæki eins og hveijir aörir auð- lindagreifar. Fox forseti er að hefia enn eina umbótaáætlunina, enda standa þing- kosningar fyrir dyrum. Hvort hún reynist öreigunum betur en önnur kosningaloforð á eftir að koma í ljós. Hitt er augljóst að hinir vel mennt- uðu og efnuðu munu áfram nota yfir- burði sína til að sitja yfir hlut smæl- ingjanna- sem allir þykjast ætla að bjarga upp úr fátæktardíkinu án þess að láta neitt eftir af sínum forréttind- um. (Heimild: The Washington Post)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.