Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 DV 4 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson # j j t ! i t [ ■EEEBS9 95 gra_______________________________ Vilborg Hjaltested, Hringbraut 50, Reykjavík. 90 ára_______________________________ Áml Jónsson, Fífuhvammi 17, Kópavogi. Krlstín Jónsdóttlr, Freyjugötu 21, Sauöárkróki. 80 ára_______________________________ Ingunn Eiríksdóttir, Skúlagötu 20, Reykjavík. 75 ára_______________________________ Arnheiöur Hjartardóttir, Ljósheimum 8, Reykjavík. Gísll Bryngeirsson, Brimhólabraut 24, Vestmannaeyjum. Þorsteinn Jónsson, Bogahlíö 15, Reykjavík. 7Q ára_______________________________ Elísabet Sigurðardóttir, Brimhólum, Vestmannaeyjum. Kristín Herdís Magnúsdóttir, Víkurtúni 1, Hólmavík. 80 ára_______________________________ Davíð Eyrbekk, Fagragaröi 10, Keflavík. Einar A. Pétursson, Hvannhólma 20, Kópavogi. Gísli Guðmundsson, Miðvangi 101, Hafnarfirði. Guðbrandur Ingólfsson, Kleppsvegi 130, Reykjavík. Guðfinna Guðmundsdóttir, Bakkavör 5, Seltjarnarnesi. Haraldur Þórðarson, Gunnarsbraut 36, Reykjavík. 50ára________________________ Gunnar Jakob Haraldsson, Hverafold 146, Reykjavík. Gunnar Viðar Eiríksson, Byggöavegi 89, Akureyri. Jón Kjartan Sigurfinnsson, Hjallavegi 17, Reykjavík. Tryggvl Már Valdimarsson, Leirubakka 20, Reykjavík. 40ára________________________ Gunnhildur Pétursdóttir, Eggertsgötu 12, Reykjavík. Gústaf Adoif Þórarlnsson, Karlsbraut 28, Dalvík. Halldór Halldórsson, Staöarhvammi 19, Hafnarfirði. ivar Valbergsson, Miðtúni 4, Keflavík. Páll Pálsson, Ferjubakka 16, Reykjavík. Páll Skaftason, írafossi 4, Selfossi. Rósa ívarsdóttlr, Nönnufelli 3, Reykjavík. Slgríður Kristín Jónsdóttir, Fornósi 7, Sauðárkróki. Skjöldur Vatnar Árnason, Heimalind 20, Kópavogi. Sólborg L. Steinþórsdóttir, Mávahlíð 46, Reykjavík. Smáauglýsingar Þjónustu- auglýsingar ►I 550 5000 Áttrœöur______________________ Olafur Sverrísson fyrrv. kaupfélagsstjóri og stjórnarformaður SÍS Ólafur Sverrisson, fyrrv. kaupfé- lagsstjóri í Borgamesi og stjómar- formaður Sambands islenskra sam- vinnufélaga, Dvalarheimilinu Eir, Reykjavik, er áttræður í dag. Starfsferill Ólafur fæddist í Hvammi í Norð- urárdal í Borgarfirði og ólst upp i Norðurárdalnum. Hann vann á ung- lingsárum ýmist á búi foreldra sinna eða í vegavinnu, mest á Holta- verðuheiði. Ólafur tók gagnfræða- próf frá Reykholtsskóla 1943 og lokapróf frá Samvinnuskólanum 1945. Ólafur hóf störf hjá Kaupfélagi Húsavíkur 1945. Hann gegndi seinna ýmsum störfum hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga áð- ur en hann varð kaupfélagsstjóri á Blönduósi 1957. Ólafur Qutti með fjölskyldu sína til Borgamess 1968 þar sem hann var kaupfélagsstjóri til 1988. Þá flutti hann til Reykjavík- ur. Á Blönduósi og í Borgarnesi gegndi Ólafur fjölda trúnaðarstarfa, bæði fyrir bæi og sveitarfélög og sammvinnuhreyfmguna. Hann var kosinn í sveitarstjóm Blönduóss þar sem hann var oddviti vinstri manna, sat einnig í sveitarstjórn Borgamess í átta ár frá 1976, sat í stjóm Osta- og smjörsölunnar og Samvinnutrygginga og var formað- ur Vinnumálasambands samvinnu- félaganna í nokkur ár. Þá var hann í stjórn Sambands íslenskra sam- vinnufélaga í funmtán ár, þar af rit- ari í sex ár og stjómarformaður í rúmlega fjögur ár. Ólafur var einnig í stjóm Vímets og i skólanefnd Samvinnuskólans, þar af formaður í mörg ár og sat í allmörgum nefnd- um á vegum Sambandsins. Ólafur var m.a. formaöur í fram- sóknarfélögum i Kópavogi, Austur- Húnavatnssýslu og Mýrasýslu, var einn af stofnendum Lionsklúbbs Blönduóss, varð umdæmisstjóri og seinna fjölumdæmisstjóri Lions- hreifingarinnar, ferðaðist víða bæði innan lands og utan til að sitja þing og ráðstefnur Lionshreyflngarinn- ar, sat Norðurlandaforum Lions- hreyfmgarinnar í Kotka, Finnlandi, Evrópuforum í Vínarborg og sat heimsþing i Montreal. Ólafur hefur notið fjölda tóm- stunda. Hæst bera þó útilíf, ferðalög víða um heim og laxveiðar. Ólafur hefur ritað greinar i dagblöð um stjórnmál og málefni samvinnu- hreyfmgarinnar. Fjölskylda Ólafur kvæntist 4.6. 1949 Önnu Ingadóttur, f. 29.4. 1929, d. 1.10. 2002, húsmóður. Foreldrar Önnu voru Guðlaug Erlendsdóttir, f. 16.4. 1901, d. 25.5. 1948, og Ingi Halldórsson, f. 15.8. 1895, d. 28.11. 1981, bæði búsett í Reykjavík, þar sem Ingi starfaði lengst af sem bakarameistari. Börn Ólafs og Önnu eru Sverrir Ólafsson, f. 28.10. 1950, PhD, sér- fræðingur hjá British Telecom, kona hans er Shameem Ólafsson, f. 6.2.1955, og eru böm þeirra Natalía, f. 4.11. 1987, og Yasmeen, f. 20.11. 1991; Hulda Ólafsdóttir, f. 5.6. 1953, sjúkraþjálfari, MBA, maöur hennar er Stefán Stefánsson, f. 8.1. 1953, og eru synir þeirra Stefán Ingi, f. 7.8. 1976, og Ólafur, f. 29.9. 1984, sonur Huldu og Tryggva Jóhannssonar, f. 17.10. 1952, er Sverrir, f. 30.12. 1970, og eiga hann og Guðrún H. Ólafs- dóttir, f. 16.5. 1972, dótturina Svan- laugu Birnu, f. 28.10. 1993; Ingi Ólafsson, f. 26.12. 1954, dr. Scient, aðstoðarskólastjóri, kona hans er Ragnhildur Ásgeirsdóttir, f. 9.5. 1956, böm þeirra eru Ásgeir, f. 29.5. 1979, Amar, f. 28.6. 1984, og Viðar, f. 8.4. 1986, en Ásgeir og Tinna Bessa- dóttir, f. 25.2.1978, eiga dótturina El- enu Dís, f. 2.11. 2001; Ólafur Ólafs- son, f. 23.1.1957, forstjóri, kona hans er Ingibjörg Kristjánsdóttir, f. 29.1. 1962, og eru böm þeirra Anna Rakel, f. 27.9. 1985, Birta, f. 11.3. 1992, og Ólafur Orri, f. 12.10. 1995; Anna Elísabet Ólafsdóttir, f. 2.7. 1961, matvæla- og næringarfræðing- ur, MBA, maður hennar er Viðar Viðarsson, f. 21.3. 1956, og eru synir þeirra Sævar Logi, f. 7.2. 1988, og Bjarki, f. 15.6. 1995, auk þess sem Anna Elísabet á soninn ívar Öm, f. 18.2. 1985, með Lámsi Elíassyni, f. 20.5. 1959. Systkini Ólafs eru Guðmundur, f. 1917, fyrrv. bóndi; Andrés, f. 1918, fyrrv. bifreiðarstjóri; Vigdís, f. 1920; Ásgeir, f. 9.6. 1928, fyrrv. starfsmað- ur samvinnutrygginga; Einar, f. 9.6. 1928, fyrrv. starfsmaður viðskipta- ráðuneytisins (tvíburar). Foreldrar Ólafs voru Sverrir Gíslason, f. 4.8. 1885, d. 24.3. 1967, bóndi og formaður Stéttasambands bænda, og Siglaug Guðmundsdóttir, Níræður Sigurður Breiðíjörð Halldorsson fyrrv. starfsmaður íslenskra aðalverktaka Sigm-ður Breiðíjörð Halldórsson, fyrrv. starfsmaður hjá íslenskum aðalverktökum á Keflavíkurflug- velli, Akurbraut 11, Innri-Njarðvík, er níræður í dag. Starfsferill Sigurður fæddist að Mábergi á Rauðasandi í Vestur-Barða- strandasýslu og ólst þar upp til níu ára aldurs. Þá flutti hann að Gröf á Rauðasandi. Sigurður fór til sjós er hann var flmmtán ára, reri frá Hænuvík i Rauðasandshreppi og var síðan sjómaður á skútunni Þresti frá Patreksfirði. Þá var hann kyndari á togaranum Gylfa frá Patreks- firði með hléum til 1939. Jafnhliða sjómennskunni stundaði Sigurður almenn sveitastörf og var á vertíð- um á Suðurlandi. Sigurður flutti í Innri-Njarðvík 1939. Þar var hann mótoristi í vél- smiðju og vann síðan í fiskimjöls- verksmiðju í Njarðvík í tíu ár. Þá hóf hann störf hjá Hamilton, bandarísku byggingarfyrirtæki hjá varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli þar sem hann starfaði í fjög- ur ár. Hann hóf síðan störf hjá ís- lenskum aðalverktökum á Kefla- víkurflugvelli og vann þar síðan við húsbyggingar og blikksmíði. Fjölskylda Sigurður kvæntist 25.5. 1940 El- sebeth Marie Jacobsen, f. 26.1. 1919, d. 19.12.1993, húsmóður. Hún var dóttir Tomas Jacobsen, járn- smiðs í Skipanesi í Söldafirði á Austurey í Færeyjum, og Mathilde Jacobsen húsmóður. Börn Sigurðar og Elsebeth eru Sigurður Guðfmnur, f. 15.11. 1940, slökkviliðsmaður á Keflavíkur- flugvelli, búsettur í Innri-Njarð- vík, kvæntur Guðríði Helgadóttur, leikskólastjóra í Reykjanesbæ, og eiga þau tvö börn auk þess sem Sigurður eignaðist dóttur fyrir hjónaband; Elsa Hallfríður, f. 3.1. 1943, ljósmóðir i Þórshöfn í Fær- eyjum, gift Kristian Rasmussen verkfræðingi og eiga þau þrjú börn; Bergdís Matthildur, f. 27.11. 1947, hjúkrunarfræðingur, búsett í Þorlákshöfn, gift Smára Sveins- syni bílstjóra og eiga þau þrjá syni; Ingvar Guðmundur, f. 19.8. 1955, d. 30.3. 2002, var hjúkrunar- fræðingur í Flórída og eignaðist hann einn son. Systkini Sigurðar: Guðmundur Jóhannes; Jónína Bergþóra Guð- rún; ívar Rósinkrans; Bjarni Trausti; Guðrún; Ingimundur Benjamín; Sigríður; Halldór Krist- inn; Ólafur Halldór. Foreldrar Sigurðar voru Hall- dór Ólafur Bjarnason, f. 15.11. 1874, d. 9.5. 1924, bóndi og sjómað- ur að Mábergi og síðan að Gröf á Rauðasandi, og k.h., Magnfríður ívarsdóttir, f. 25.11. 1875, d. 13.1. 1958, húsmóðir. Ætt Halldór var sonur Bjama Ein- arssonar á Láganúpi í Kollsvík og Guðrúnar Jónsdóttur frá Krossa- dal á Tálknafirði. Magnfríður var dóttir ívars Magnússonar, á Hvalskeri á Pat- reksfírði, og Rósu Benjamínsdótt- ur á Bröttuhlíð á Rauðasandi. Sigurður verður að heiman á af- mælisdaginn. Andlát Gelr Elnarsson frá Suöur-Fossi í Mýrdal lést fimmtud. 8.5. Eyvindur Áskelsson, Laugafelli, Reykja- dal, varð bráökvaddur miðvikud. 7.5. Bernharö Adolf Andrésson, fyrrum bóndi, Noröurfiröi, Strandasýslu, Rofa- bæ 43, Reykjavík, lést á heimili sínu laugard. 3.5. sl. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Birgir Karlsson flugþjónn, Reynilundi 11, Garöabæ, andaðist á Landspítala Fossvogi miðvikud. 7.5. Kristín Alexanders frá Dynjanda, Tanga- götu 23, Isafiröi, andaöist á Fjóröungs- sjúkrahúsinu á ísafiröi fimmtud. 8.5. Slgríöur Sóley Sveinsdóttlr frá Þykkva- bæjarklaustri andaöist á hjúkrunarheim- ilinu Holtsbúö miövikud. 7.5. Merkir íslendingar Einar Jónsson myndhöggvari fæddist að Galtafelli 11. mai 1874, sonur Jóns Bjamasonar, bónda í Galtafelli, og Gróu Einarsdóttur. Bróðir Einars var Bjami í Nýja-Bíói, faðir Harðar húsameistara. Einar sigldi til Kaupmannahafhar 1893 og lærði þar höggmyndasmíði, fyrst hjá St. Sinding en síðan við Kon- unglega listaháskólann. Að námi loknu stundaði hann listgrein sína í Kaupmannahöfn, hélt þar sína fyrstu sýningu í Charlottenburg 1901 og fór fjölda kynnis- og námsferða um Evrópu, til Rómar, Vínarborgar, Berlínar, Prag og Lundúna. Þá dvaldi hann í Bandaríkjunum i tvö og hálft ár þar sem hann gerði m.a. myndina af Þorfinni karlsefni. Einar flutti heim til íslands 1920 og var bú- settur í Reykjavík til æviloka 18. október 1954. Hann lét reisa húsið Hnitbjörg á Skólavörðuholti og opnaði þar listasafn sitt 1923. Síðar ánafnaði hann íslensku þjóðinni verk sín sem enn eru til sýnis í safninu. Verk Einars minna í ýmsu á skáld- skap nafna hans Benediktssonar: til- komumikil, huglæg og oft dulræns eða trúarlegs eðlis, blanda af rómantískum natúralisma og expressjónisma. Einar er höfundur margra fyrstu standmynda Reykjavíkur, s.s. af Jónasi Hallgríms- syni, Jóni Sigurðssyni, Ingólfl Amarsyni og Kristjáni IXda, auk styttanna af Þorfinni karlsefni og Útlaganum. Einar Jónsson Jarðarfarir Elín Margrét Þorkelsdóttir, Skjöldólfs- stööum, veröur jarðsungin frá Egils- staðakirkju þriðjud. 13.5. kl. 14.00. Magnús Jónsson, Snorrabraut 56, Reykjavík, verður jarösunginn frá Bú- staöakirkju þriöjud. 13.5. kl. 13.30. Jón Elliöi Þorsteinsson, Hringbraut 48, Keflavík, veröurjarösunginn frá Keflavík- urkirkju þriðjud. 13.5. kl. 14.00. Haukur Clausen tannlæknir, Blikanesi 5, verður jarösunginn frá Dómkirkjunni þriðjud. 13.5. kl. 13.30. Stefán Bryngeir Einarsson, Keilusíöu 12c, Akureyri, veröur jarösunginn frá Ak- ureyrarkirkju föstud. 16.5. kl. 13.30. Jóna Karitas Eggertsdóttir andaöist á hjúkrunardeild Hrafnistu miövikud. 7.5. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstud. 16.5. kl. 15.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.