Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2003, Qupperneq 25
25
ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003____
X> V Tilvera
Spurning dagsins
Hvert er átrúnaðargoð þitt?
Sigurður Thorlacius nemi:
Jesús.
Hilmir Ægisson nemi: Hlynur Hiynsson nemi:
Michael Jackson, flottur dansari. Jamie Thomas hjólabrettagaur.
Magnús Hallsson nemi:
Ali Bulala, hjólabrettagaur.
Ólafur E. Birgisson nemi:
Ágúst frændi minn.
Bjarki Gíslason nemi:
Pabbi minn.
Stjörnuspá
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
I Vinur þinn á í vanda
^ og leitar ef til vill til
þín eftir hjálp. Það er
ekki víst að þú getir
hjálpað honum nema fá aðra til
að hjálpa þér við það.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars):
Fyrri hluti dagsins
Iverður rólegur en
r þegar líður á daginn
( er hætt við að þú
hafir ekki tíma til að gera allt
sem þú þarft að gera.
Hrúturinn (21. mars-19. april):
. Óvæntur atburður
'setur strik í reikning-
inn og gæti raskað
_ áætlun sem gerð var
fyrir löngu. Vertu þolinmóður
við þína nánustu í dag.
Nautið (?0. anril-20. maík
/ Sambandið við vini
þína er gott um þessar
mundir og þú nýtiu-
virðingar meðal
þeirra sem þú umgengst.
Happatölur þínar eru 2, 36 og 45.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúní):
Þú ættir að hugsa
'þig vel um áður en
þú tekur að þér stórt
verkefni því það
gæti tékið meiri tíma en
þú heldur í fyrstu.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiíl:
Þú ert ofarlega í huga
i ákveðinnar manneskju
" og skalt fara vel að
henni og ekki gagn-
rýnaöf mikið það sem hún gerir.
Happatölur þínar eru 11,12 og 31.
Krossgáta
Lárétt: 1 snjókoma,
4 fals, 7 fjarstæða,
8 togvinda, 10 bjálfi,
12 kjaftur, 13 skortur,
14 frásaga,
15 gagnleg, 16 slóttug,
18 áforma, 21 undur,
22 klampar, 23 elja.
Lóðrétt: 1 húðpoki,
2 óvissa, 3 markmið,
4 skeggrót,
5 fljótfæmi, 6 blási,
9 saltlög, 11 krydd,
16 sjáðu, 17 þjálfa,
19 saur, 20 hraði.
Lausn neðst á síðunni.
Tvíburarnir 12
gæti tekið ir
VUKIII
Gildlr fyrir mlðvíkudaginn 14. maí
Uónið (23. iúli- 22, ágústl:
. Dagurinn lofar góðu í
sambandi við félagslíf-
ið og liklegt er að það
4 verði liflegt. Þú þarft
að huga að eyðslunni og passa að
hún fari ekki úr böndunum.
Mevian (23. ágúst-22. sept.l:
Þú leysir vel af hendi
verk sem þér er sett
^^V^lfcfyrir í vinnunni en
' r það gæti gengið illa að
leysa ágreiningsmál heima fyrir.
Happatölur þínar em 9, 24 og 48.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Vertu þolinmóður þó
einhver virðist
tillitslaus og ætlist til
mikils af þér.
Skílningur þinn á líðan vina
þinna mætti vera meiri í dag.
Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.):
Ákveðinn atburður
er átti sér stað nýlega
jverður ræddur fram
og aftur og kannski
meira en þú kærir þig um
í augnablikinu.
Bogmaðurinn (22. nðv.-21. des.l:
®^,Þú hefiu- minna að gera
fí dag en þú bjóst við en
forðastu að sitja auðum
höndum, þú verður þvi
feginn seinna ef þú flýtir fyrir þér
og lýkur einhverju í vinnunni.
Steingeitin (22. des.-19. ian.C
Þú þarft að fara
varlega í fjármálum
og forðast alla
óhóflega eyðslu. Þá
er líklegt að þú getir látið
gamlan dramn rætast.
Hvítur á leik!
Nýlega fór fram i Rússlandi borga-
keppni á milli Moskvu og Sankti Pét-
ursborgar og teflt var á 40 borðum!
Moskvumenn unnu glæsilegan en þó
ekki stóran sigur, 43,5v-36,5 v. Hér
Umsjón: Sævar Bjarnason
sjáum við einn Moskvubúann vinna
skemmtilega með athyglisverðri peðs-
fóm í drottningarbragði. Svona á að
tefla þessa ágætu byijun ef tækifæri
gefst!
Hvitt: Sergei Ivanov (2557).
Svart: Evgenij Vorobiov.E (2534) [D26]
Drottningarbragð.
Moskva-SankU Pétursborg (2), 05.05. 2003
1. d4 d5 2. Rf3 e6 3. c4 dxc4 4. e3
Rf6 5. Bxc4 c5 6. 0-0 a6 7. Bb3 Rc6
8. Rc3 cxd4 9. exd4 Be7 10. Hel 0-0
11. a3 Ra5 12. Bc2 b5 13. d5 exd5
14. Bg5 Be6 15. Rd4 Dd7 16. f4 g6
17. f 5 gxf5 (Stöðumynd) 18. Bxf5
Bxf5 19. Hxe7 Dxe7 20. Rxf5 De5
21. Df3 Hae8 22. Hfl He6 23. Dh3
Re4 24. Bf4 Df6 25. Rxd5 Dxb2 26.
Bh6 Hfe8 27. Dg4+ Hg6 28. Rde7+
Kh8 29. Dxe4 Hxe7 30. Rxe7 1-0.
Lausn á krossgátu
'Tse 08 ‘QPl 61 ‘ejæ ii ‘05[s 91 ‘inbau n
‘nM®d 6 ‘ind 9 ‘sbj 9 ‘tgæisuBJð \ ‘jn3uB§ni 8 ‘Ua Z ‘saq x uiajgo'j
'iugi £8 ‘JBifo ZZ ‘EQ-mj 12 ‘Bijæ 8I ‘§æis 91 ‘pfu 91
‘uSos \i ‘Bpja 81 ‘m3 21 ‘iusb oi ‘[ids 8 ‘bjjij 1 ‘dojS \ Jajq 1 :jiaJEri
Pínlegt að leika
í ástaratriðinu
Carrie Anne Moss fannst af-
skaplega pínlegt að leika á móti
hjartaknúsaranum Keanu Reeves
í ástaratriðinu eldheita í nýju
Matrix-kvikmyndinni.
„Ég er frekar feimin stúlka,“
segir hin 35 ára gamla leikkona.
Þess vegna er hún svo ánægð
með að leikstjóramir, Wac-
howski-bræöur, skyldu ekki hafa
beðið hana um þetta í fyrstu
myndinni um Matrix. Hún þurfti
ekki svo mikið sem kyssa mót-
leikarann sykursæta.
„Við Keanu erum orðnir góðir
vinir svo að ég losnaði við aö
leika í slíku atriði á móti ókunn-
ugum manni. En það er mjög
erfitt að líta sannfærandi út þeg-
ar manni finnst þetta innst inni
vera afskaplega pínlegt og
Wachowski-bræður hrópa á mann
að fá fullnægingu akkúrat núna,“
segir Carrie Anne i viðtali viö
ástralska dagblaðið Sydney Mom-
ing Herald. „En ástaratriðið var
þó ekki alslæmt. Ég þurfti í það
minnsta ekki að vera allsnakin.“
Sigurvíma
Margir em sigurvegarar eftir þess-
ar kosningar. Samfylkingin er sigur-
vegari þrátt fyrir að ríkisstjórnin
hafi ekki fallið og Ingibjörg ekki náð
á þing. Samfylkingin rauf jú 30 pró-
senta múrinn og það er auðvitað sig-
ur í sjálfu sér. Jafnvel þó ríkisstjórn-
ardyrunum hafi verið lokað. Sjálf-
stæðismenn sigruðu í Reykjavík
þrátt fyrir að Össur hafi hirt fyrsta
sæti í Reykjavík norður af Davíð. Því
þegar litið er á Reykjavík sem eina
heild er Sjálfstæðisflokkurinn stærri
en Samfylkingin. Og meira að segja
Sturla sigraði þar sem vegið fylgistap
sjálfstæðismanna í Norðvesturkjör-
dæmi var óverulegt og hann náði
þremur mönnum inn þrátt fyrir hið
kostulega prófkjörsklúður þegar allt
fór í háaloft. Og Frjálslyndir eru sig-
urvegarar þó þeir hafi ekki náð því
fylgi sem kannanir spáðu því þeir
tvöfólduðu þingmannafjölda sinn. Og
Framsókn er sigurvegari þar sem
hún náði næstum kjörfylgi þrátt fyr-
ir að hafa verið spáð heldur ömurleg-
um örlögum í kjölfar kannana fyrr á
árinu. Meira að segja Guðmundur G.
getur fagnað sigri því það var ekki
aðalatriðið að komast á þing heldur
vekja athygli á málum sem honum
eru hjartfólgin. Kristján Pálsson get-
ur ekki kæst yfir miklu en standi
hann undir nafni sem pólitíkus getur
hann sjálfsagt soðið saman einhverja
sigurrullu. Og hver sagði að póltík
væri leiðinleg? í miðjum kosningum
voru laun þingmanna hækkuð um
hátt í 20 prósent. Ég þarf aðeins að
melta rökstuðninginn en mest er um
vert að kjaradómur hefur séð til þess
að þingmönnum öllum hlýtur að líða
eins og sigurvegurum. Þrátt fyrir
slæma útreið í kosningunum.
fHaukur Lárus
Hauksson