Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Side 2
18
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
DV
segir sína skoðun
- keppnt i hverju ordi
Mánudagurinn 26. maí 2003
EfniDV-
Sports í dag
Utan vallar, fréttir
Toyota mótaröðin í golfi
i| Ísland-Noregur karla
© Ísland-Noregur kvenna
© 1. deild karla
© 1. deild karla
Landsbanka-
^dei,d kvenna
Landsbankadeild karla
Landsbankadeild karla
0/
1É>
Landsbanka-
deild karla
Evrópuknatt-
spyrnan
Endúró
mótokross
Torfæra í
Jósefsdal
© Rall
© Unglingasport
© Hestar
© Veiöi
C?í| Fréttir+NBA
Utan
Eins og flestum ætti að vera kunn-
ugt hefur Aðalsteinn Eyjólfsson tekið
við kvennaliði ÍBV í handboltanum en
félagið náði sínum besta árangri í
sögu félagsins á síðustu léiktið undir
stjóm Unnar Sigmarsdóttur. Þær sigr-
uðu í deildinni og fylgdu því svo eftir
með því að taka íslandsmeistaratitil-
inn. Einnig urðu Eyjastúlkur meistar-
ar meistaranna sem og unnu silfur í
bikarnum eftir æsispennandi úrslita-
leik við Hauka. Unnur sagði farir sín-
ar ekki sléttar varðandi forráöamenn
handknattleiksdeiidarinnar í viðtali
viö DV-Sport hér í síðustu viku og
sagði að sér liði eins og hún hefði feng-
ið hnífstungu í bakið. Skal engan svo
sem undra það enda kallaði árangur-
inn ekki á neitt annað en að henni
yrði boöinn nýr samningur. Ef það var
ekki uppi á borðinu þá ætlaðist hún til
þess að komið yrði fram við hana á
sómasamlegan hátt og henni tjáð frá
fyrstu hendi að ekki væri óskaö eftir
hennar kröftum næsta vetur. Það gekk
ekki eftir því forráðamennimir hafa
nú ljóstrað þvi upp aö þeir hafl logiö
að henni blákalt þegar hún spurði þá
hvort þeir hefðu byrjað að ræða við
vallar
„Þessi vinnubrögö eru
stjórninni til skammar og
þurfa þessir ágœtu herrar
aö taka hressilega til i
sínum garöi og ef þeir heföu
einhverja sómakennd myndu
þeir biöja Unni afsökunar á
opinberum vettvangi. “
Aðalstein áður en móti lauk. Eftir
þessa uppljóstrun buðu þeir henni síð-
an nýjan samning en hún var ekki
áfjáö í að skrifa undir hann og vinna
fyrir þessa einstaklinga eftir það sem
á undan var gengið og lái henni það
hver sem vill.
Þessi framkoma forráðamannanna í
garð Unnar er vægast sagt á lágu plani
og ekki til þess að auka hróður ÍBV.
Hún hefur unnið fómfúst sjálfboða-
starf fyrir félagiö í áraraðir og á flest
annað skilið en slíka framkomu. Það
er hreint með ólíkindum að forráða-
menn félagsins hafl ekki getað staðið
að málum með heiðarlegri hætti. Þessi
Henry Birgir
Gunnarsson
íþróttafréttamaöur
é DV-Sporti
- segir Logi Ólafsson, þjálfari íslenska landsliösins í knattspyrnu
Þeir Ásgeir Sigurvinsson og Logi
Ólafsson, nýráðnir þjálfarar ís-
lenska landsliðsins í knattspymu,
tilkynntu sinn fyrsta landsliðshóp
fyrir helgi en hópurinn er nánast sá
sami og Atli Eðvaldsson var með í
höndunum. Logi Ólafsson segir að
þetta sé okkar sterkasti hópur og
hann hefur trú á því að hægt sé að
ná betri árangri með þennan hóp en
til að ná betri árangri verði að
byggja upp öfluga liðsheild innan
hópsins og jafnfram verði að breyta
hugarfari leikmanna.
„Ég hef ekki eins mikla þekkingu
á því hvemig ástandið hefur verið
innan hópsins undanfarið en Ásgeir
þekkir það betur. Við þurfum að
byrja á því að gera leikmönnum
grein fyrir þvi hvað fyrst og fremst
gefur íslenska landsliðinu tækifæri
til þess að ná árangri á alþjóðavett-
vangi. Lykillinn að því er að búa til
liösheild sem er tÚbúin að vinna
saman, og með okkur, og leggja sig
alla fram í hvert einasta verkefni.
Við erum þannig í sveit settir í al-
þjóða fótbolta að við þurfum á öllum
okkar styrk að halda og öllum okkar
bestu mönnum," segir Logi.
Þetta er nú nokkurn veginn sami
hópur og hjá Atla. Þiö geriö ykkur
sem sagt vonir um aö þaö sé hœgt aö
mynda sterkari liösheild innan þessa
hóps en Atli náði aö gera?
„Atla tókst það á köflum. Liðið
náði oft ágætum úrslitum þó að það
hafi ekki gengið sérstaklega vel síð-
ustu misseri. Það er í sjálfu sér ekk-
ert markmið hjá okkur Ásgeiri að
gera miklar mannabreytingar á
þessum hóp. Við viljum heldur
reyna að breyta vinnulaginu og
vinnumóralnum innan þess hóps
sem við höfum í höndunum. Við telj-
um aö þetta sé sterkasta liðið sem
við getum valið fyrir þau verkefni
sem fram undan eru og við þekkjum
þessa pilta báðir vel og vitum að það
býr meira í þeim en þeir hafa sýnt.
Það þarf kannski helst að skipta um
hugarfar hjá leikmönnunum. Við
munum reyna að höfða meira til
hvers og eins leikmanns og reynum
að gera hveijum leikmanni grein
fyrir því að hann eigi hlutverk í
hópnum. Það verður hver og einn i
hópnum að taka á sig ábyrgð. Leik-
mennirnir hafa kannski sloppið
býsna vel við gagnrýni en aftur á
móti hefur Atli legið undir mikilli
gagnrýni með það hvernig liðið hef-
ur leikið en hann er aðeins utan
vallar.“
Nú er Ijóst aö viö veröum helst að
fáfullt hús í nœstu leikjum. Ætliö þió
að gera miklar taktískar breytingar
á leik liösins?
„Já, einhverjar áherslubreytingar
verða þar. Við fundum um það á
hverjum einasta degi við Ásgeir og
veltum því fyrir okkur hvernig
þessu verður best fyrir komið. En
það er kannski ekki rétt að ræða
þær breytingar núna.
Hvaö teljiö þiö ásœttanlegan ár-
angur í þeim leikjum sem eru á nœst-
unni?
„Út úr þeim tveim leikjum sem
eru fram undan eru 4 stig algjört
lágmark. Bæði Færeyjar og Litháen
eru sýnd veiði en ekki gefin og eins
og Ásgeir sagði lika um daginn þá er
nauðsynlegt að fá 7 stig út úr næstu
þremur leikjum. Það gæti talist
ásættanlegur árangur," sagði Logi
Ólafsson, þjálfari landsliðsins.
vinnubrögð eru stjóminni til skamm-
ar og þurfa þessir ágætu herrar að
taka hressilega til í sinum garði og ef
þeir hefðu einhverja sómakennd
myndu þeir biðja Unni afsökunar á op-
inberum vettvangi - hún á það inni
hjá þeim.
Annars fer það að verða rannsókn-
areftii hvemig staðið er að öllum þjálf-
aramálum í Eyjum og er skemmst að
minnast síðasta sumars þegar bæði
karla- og kvennaþjálfara fótboltaliðs-
ins var sagt upp störfúm með eftir-
minnilegum hætti. Mikil læti vora sér-
staklega i kjölfar brottvikningar
kvennaþjálfarans og lét einn stjómar-
maður kvennaráðs hafa það eftir sér
að hann myndi taka hana af lífi i fjöl-
miðlum ef hún ætlaði sér að gera mál
úr uppsögninni. Ef mið er tekið af
þessum málum þá má gera því skóna
að vera Aðalsteins Eyjólfssonar í Vest-
mannaeyjum verði ekki löng og ef ég
væri í hans sporam myndi ég fara mér
hægt i aö pakka postulíninu áður en
ég flytti til Eyja.
Áhersla á liðsheildina
Logi Ólafsson mun
stýra landsliöinu meö
Ásgeiri Sigurvinssyni í
næstu leikjum. Hann
segir aö breyta þurfi
hugarfari leikmanna
liösins og mynda þurfi
öfluga liösheild. DV-
mynd Hilmar Þór
Rúnar Arnarson:
Vonast eftir
samkomulagi
Rúnar Amarson, formaður
knattspyrnudeildar Keflavíkur,
sagði í samtali við DV-Sport um
helgina að hann vonaðist eftir því
að Skotinn Scott Ramsey gengi í
raðir liðsins í þessari viku.
„Við höfum samið við Ramsey
sjálfan en við eigum eftir að ná
samkomulagi við KR. Við höfum
rætt við forráðamenn KR en hlut-
imir hafa gengið hægt. Þeir vilja fá
peninga fyrir Ramsey, sem er að
sjálfsögðu ekki óeðlilegt, en það
verður að vera innan sanngimis-
marka. Ég vonast til að hægt verði
að ganga frá félagaskiptunum í
þessari viku,“ sagði Rúnar.
Scott
Ramsey gekk
til liðs við KR
frá Grindavík
síðasta haust
en fékk að
fara frá félag-
inu í síðasta
mánuði
vegna mikill-
ar heimþrár.
Hann er þó kominn aftur til íslands
og forráðamenn KR skilja hvorki
upp né niður í málinu.
„Við sýndum honum mikinn
skilning þegar hann vildi fara
heim. Við þurftum að borga 350
þúsund krónur fyrir hann í félags-
skiptagjald auk ýmiss konar kostn-
aðar við leikmanninn í vetur og
það segir sig sjálft að við látum
hann ekki frá okkur án þess að fá
það til baka. Keflvíkingamir hafa
verið í sambandi við okkur en ég
veit satt að segja ekki hvemig mál-
in þróast," sagði Jónas Kristinsson,
stjómarformaður KR-Sports, í gær.
-ósk
Scott Ramsey
kcppm i hverju orði
Beinn sími: .............. 550 5880
Ljósmyndir: .............. 550 5845
Fax:...................... 550 5020
Netfang:............dvsport@dv.is
Fastir starfsmenn:
Henry Birgir Gunnarsson (henry@dv.is)
Jón Kristján Sigurösson (jkssport@dv.is)
Óskar Ó. Jónssor. (ooj.sport@dv.is)
Óskar Hrafh Þorvaldsson (oskar@dv.is)
Rjetur Sigurösson (pjetur@dv.is)
Vignir Guöjónsson (vignir@dv.is)