Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2003, Side 8
24
MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2003
Sport
DV
ÍBV-Þpóttur/Haukar 9-1
1- 0 Olga Færseth ...........25.
skot úr teig .....Mhairi Gilmour
2- 0 Olga Færseth ...........35.
skot úr teig ... Ema Siguijónsdóttir
3- 0 Mhalri Gilmour..........47.
skot úr markteig....Karen Burke
4- 0 Olga Færseth ...........56.
skot beint úr aukaspymu
5- 0 Mhairi Giimour..........59.
skot utan vítateigs ... vann boltann
6- 0 Karen Burke ............60.
skot úr markteig .... Olga Færseth
7- 0 Mhairi Gilmour..........82.
skot úr vítateig ...Olga Færseth
8- 0 Thelma Sigurðardóttir ... 86.
skot utan vítateigs, misheppn. send.
9- 0 Lára D. Konráðsdóttir ... 90.
skot beint úr aukaspymu
9-1 Anna B. Björnsdóttir .... 90.
skot úr vítateig .......vann boltann
Skot (á mark): 27 (19) - 4 (3) Horn: 6-2 Aukaspyrnur: 12-5 Rangstöður: 6 -0 Varin skot: Petra 3 - Ingibjörg 8. |)> / J\
Besta frammistaðan á vellinum: Mhairi Gilmour, ÍBV
@@@ Mhairi Gilmour, Olga Fær-
seth, Karen Burke ÍBV.
@@ Lind Hrafnsdóttir ÍBV - Ingi-
björg Jóhannesdóttir (Þrótti/Hauk-
um).
© Ema D. Sigurjónsdóttir, Michell
Barr, íris Sæmundsdóttir, Thelma
Sigurðardóttir, Lára D. Konráðsdóttir
ÍBV - Jóna S. Jónsdóttir, Anna
Gunnarsdóttir Þrótti/Haukum.
Stjarnan-Þór/Kfl/KS 1-2
0-1 Guðrún Soffia Viðarsdóttir 19.
skot úr teig . . Jónína Ásgrímsdóttir
0-2 Guðrún Sofl'ía Viðarsdóttir 28.
skot utan teigs.......vann boltann
1-2 Dusty GrifFy................62.
skot úr teig . Elfa Björk Erlingsdóttir
Slcot (á mark):
8 (5) - 12 (5)
Horn:
6-7
Aukaspyrnur:
10-11
Rangstööur:
4 -1
Varin skot:
María 2 -
Sandra 3.
Besta frammistaðan á veUinum:
Ásta Árnadóttir, Þór/KA/KS
@@ Ásta Ámadóttir, Guðrún Soff-
ía Viðarsdóttir, Kristín Gísladóttir
(Þór/KA/KS).
@ Gunnhildur Jónsdóttir, Ashley
Meager og Elva Björk Erlingsdóttir
(Stjömunni) - Ásdís Jóna Sigurjóns-
dóttir, Þorbjörg Jóhannsdóttir og
Jónína Ásgrímsdóttir Þór/KA/KS.
K 0 N U R ~7~
Staóan:
ÍBV 2 2 0 0 13-1 6
Breiðablik 2 2 0 0 4-1 6
KR 2 1 1 0 7-2 4
Valur 2 1 1 0 4-2 4
Þór/KA/KS 2 1 0 1 3-3 3
FH 2 0 0 2 0-4 0
Stjaman 2 0 0 2 1-6 0
Þrótt./Hauk 2 0 0 2 1-14 0
Markahœstar:
Olga Færseth, tBV ..................5
Mhairi Gilmour, ÍBV ................4
Ásthildur Helgadóttir, KR...........2
Guðrún S. Viðarsd., Þór/KA/KS .. 2
Hrefna Jóhannesdóttir, KR...........2
Laufey Ólafsdóttir, Val.............2
ór
LRNDSBRNKfl
Deil_OIN
Upprullun í Eyjum
- ÍBV vann stórsigur á Þrótti/Haukum, 9-1
Eyjastúlkur tóku á móti
Þrótti/Haukum í Eyjum á laugardag-
inn í annarri umferð Landsbanka-
deildarinnar. Eyjastúlkur unnu stór-
sigur í fyrstu umferð og fylgdu því
eftir með því að leggja Þrótt/Hauka
með átta mörkum, 9-1.
Það var aðeins eitt lið á vellinum í
fyrri hálfleik í leik liðanna og var
nánast einstefna að marki gestanna.
Eyjastúlkur sóttu af miklum krafti
en náðu ekki að skora fyrr þrátt fyr-
ir nokkur ágætis færi. Olga Færseth
braut hins vegar ísinn á 25. mínútu
þegar hún lagði boltann undir Ingi-
björgu Jóhannsdóttur í marki
Þrótts/Hauka. Eyjastúlkur héldu
áfram að sækja en fyrirliði gestanna,
Anna Gunnarsdóttir, átti þrumuskot
af löngu færi í fyrstu sókn þeirra eft-
ir rúmlega hálftíma leik en mark-
vörður ÍBV, Petra Bragadóttir, varði
vel. í kjölfarið bætti Olga við öðru
marki sínu í leiknum og ööru marki
ÍBV en staðan í hálfleik var 2-0.
Seinni hálfleikur var varla hafinn
þegar að ÍBV bætti við þriðja mark-
inu en þar var að verki Mhairi
Gilmour eftir góðan undirbúning
Karenar Burke. Seinni hálfieikur fór
á sömu lund og sá fyrri, ÍBV sótti
töluvert meira. Á aðeins fiórum mín-
útum tvöfölduðu Eyjastúlkur svo for-
skot sitt í leiknum þegar Olga, Gilmo-
ur og Burke skoruðu jafnmörg mörk.
Þrátt fyrir að vera sex mörkum yfir
voru Eyjastúlkur ekki hættar og
héldu áfram að sækja og þegar átta
mínútur voru til leiksloka bætti
Mhairi Gilmour við sjöunda mark-
inu. Undir lokin skoraði svo vara-
maður ÍBV, Thelma Sigurðardóttir
.glæsilegt mark og síðasta orð ÍBV í
leiknum átti annar varamaður, Lára
D. Konráðsdóttir, sem gerði sér lítið
fyrir og skoraði beint úr aukaspyrnu
af 35 metra færi. Það var augljóst að
Eyjastúlkur lögðu allt kapp á að bæta
við tíunda markinu en Anna Bjöms-
dóttir, í liði gestanna, nýtti sér það
og skoraði eina mark gestanna úr
skyndisókn.
Eyjaliðið lék mjög vel í leiknum í
dag, sérstaklega sóknina og er liðið
ekki árennilegt með Olgu í fremstu
víglínu og Karen Burke og Mhairi
Gilmour á köntunum sem bæði mata
hana og skora sjálfar. Hjá gestunum
átti markvörður þeirra, Ingibjörg Jó-
hannesdóttir, góðan leik þrátt fyrir
mörkin níu en þau hefðu án efa orð-
ið töluvert fleiri ef hún hefði ekki
staðið á milli stanganna.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV,
sagði eftir leikinn að það væri stíg-
andi í liði sínu. „Við erum að slípa
saman liðið og erum að taka inn nýja
leikmenn. Þetta tekur tíma en við er-
um að bæta okkur eins og er. Við er-
um með góða leikmenn, mitt hlut-
verk er að nýta þær sem best en okk-
ur vantar enn þá Margréti Láru og ég
held að þær verði ekki árennilegar
þegar hún kemur inn í liðiö.“
Markaskorari gestanna, Anna
Björnsdóttir, var ekki mjög sátt í
leikslok.
„Við náðum að halda þessu nokk-
uð jöfnu í fyrri hálfleik en ég veit
ekki hvað gerðist svo. Við ætluðum
okkur að halda áfram að veijast vel
en sækja meira og jafna leikinn. En
svo gerðist það sama og gegn KR, við
fengum á okkur þrjú mörk í upphafi
síðari hálfleiks og þar með var þetta
búið. Það var ekkert sérlega
skemmtilegt að skora undir lokin
þótt það sé alltaf gaman að skora
mörk. Það hefði verið skemmtilegra í
jafnari leik.“ -jgi
Asthildur Helgadóttii sési hór skora
jölnunarmark KR-stulkna gegn Vals-
stulkum á laugafdaginn án þess aö
Guöbjörg Gurmarsdóttir, markvöröur
Vals, komi nokkrum vörnum vlö. DV-
mynd Hari
llarnir SQörnmnar
brugðust illilega
- Þór/KA/KS fór meö
Norðanstúlkur fóru syngjandi
norður eftir góða ferð í Garðabæ-
inn og sigur, 2-1. Stjörnustúlkur
geta hins vegar sjálfum sér um
kennt. Þær héldu boltanum lengst-
um en máttlitlar sóknaraðgerðir
þeirra skiluðu litlu. Þá var vöm
þeirra oft grátt leikin af norð-
lenskum sóknarmönnum, þar sem
Guðrún Soffía Viðarsdóttir fór
fremst í flokki.
Fyrsta mark leiksins leit dags-
ins ljós á nítjándu mínútu þegar
áðurnefnd Guðrún fékk boltann
sendan inn fyrir vörn Stjörnunnar
og lagði boltann snyrtilega fram
hjá Mariu markverði. Guðrún var
aftur á ferðinni tíu mínútum síð-
ar. Þá fékk hún boltann utan teigs
og lét hann vaða að markinu, Mar-
ía virtist hafa hendur á boltanum
en missti hann undir sig og inn
fyrir lrnuna. Eftir markið róaðist
leikurinn og hvort lið um sig átti
nokkur tækifæri.
Garðbæingar komu sterkari til
leiks í síðari hálfleik og uppskáru
mark eftir tæplega kortérsleik.
Elfa Björk stakk þá boltanum inn
á Dusty Griffy sem sendi boltann í
tómt markið, eftir að hafa leikið á
Söndru, markvörð Þórs, sem hafði
misreiknað úthlaup sitt. Eftir
markið sóttu Stjömustúlkur að
norðanmeyjum en sterk vöm
Þórsliðsins, með fyrirliðann Ástu
Ámadóttur sem besta mann, varð-
ist án afláts og hélt fengnum hlut.
Þórsliðiö allt stóð sig með prýði.
Þær unnu vel hver fyrir aðra og
uppskáru eftir því. Hins vegar
féllu þær óþarflega mikið til baka
þegar þær komust tveimur mörk-
um yfir og hleyptu andstæðingum
sínum inn í leikinn.
Valdimar Pálsson, þjálfari
sigur af hólmi, 2-1
Þórs/KA/KS var hins vegar
kampakátur eftir leikinn. „Þetta
var erfið fæðing en stelpurnar
unnu svo sannarlega fyrir þessu.”
„Næsti leikur er gegn FH-ingum
fyrir norðan og það er alveg ljóst
að við ætlum að vinna þann leik.”
Stjörnustúlkur verða ekki
dæmdar af þessum leik. Þær sökn-
uðu sáran Auðar Skúladóttur auk
þess sem María var ekki svipur
hjá sjón i markinu. Má þar líkast
til kenna um flugþreytu en hún
kom til liðs við Garðbæinga þá um
morgunin. Það er þó ljóst að Ás-
bjamar, þjálfara liðsins, bíður
erfitt hlutverk við að skerpa sókn-
arleikinn hjá liðinu. Það býr mik-
ið í þvi en næstu leikir munu
reyna verulega á ungt Garðabæj-
arliðið sem þarfnast sárlega meiri
stuðnings bæjarbúa. -SKK
Stórmeis
íslandsmeistarar KR geröu jafntefli
Þau tvö lið sem spáð er hvað bestu
gengi í Landsbankadeild kvenna
mættust í Frostaskjólinu á laugar-
dag, þar sem heimastúlkur tóku á
móti Val. KR em núverandi íslands-
meistarar en Val hefur verið spáð
titlinum í ár. Niðurstaðan var því
stórmeistarajafntefli, 1-1.
Leikurinn byrjaði rólega og voru
leikmenn liðsins að þreifa fyrir sér
fyrst um sinn. Ekki er ólíklegt að
ætla að nokkur spenna hafi verið í
liðunum en eftir fremur ömgga sigra
þeirra beggja í fyrstu umferðinni var
nú komið að alvöra málsins.
Við fyrstu athugun vora Valsstúlk-
ur heldur meira áberandi í leiknum.
Þær vora duglegri að skjóta, þó svo
að engin hætta hafi myndast fyrr en
á 33. mínútu. Þá var Kristín Ýr stödd
uppi við endalinuna á vinstri kantin-
um og leit ekki út fyrir að mikil
hætta væri á ferðum. Embla Grétars-
dóttir var tU varnar en Kristín sneri
laglega á hana, gaf frábæra sendingu
fyrir, beint á Laufeyju Ólafsdótt-
ur,sem kom boltanum auðveldlega i
markið.