Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2003, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003
DV
Fréttir
DV-MYNDIR HEB
Heil á húfi
Keith og Joanna Ginnaw ásamt dætrum sínum, Georginu og Charlotte. Húsbi'II þeirra valt í Skriödalnum og Charlotte kastaöist út
skyldu sleppa ómeidd úr slysinu.
úr bílnum.
Fjögurra manna ensk fjölskylda lenti í bílveltu í Skriðdal:
Erum heppin að vera á lífi
Hjónin Keith og Joanna
Ginnaw telja þaö mikið lán aö
þau eru á heil á húfi en .húsbíll
þeirra valt í Skriðdal síðastlið-
inn þriðjudag. Þau voru á ferð
ásamt dætrum sínum Georginu,
5 ára, og Charlotte, 4 ára. Fjöl-
skyldan er frá Essex á Englandi.
„Við vorum búin að ferðast frá
Reykjavík og ætlunin var að fara
hinn „gullna hringveg." Við vor-
um búin að skoða jöklana og
Austfirðina og vorum á leið til
Mývatns þegar óhappið varð. Á
veginum í Skriðdal missti ég bíl-
inn í lausamöl sem varð til þess
að hann valt. Ég hef verið á um
50 kílómetra hraða,“ segir Keith.
Það má telja mikla mildi að
ekki fór verr en húsbíllinn er
mjög illa farinn eftir veltuna.
Önnur dætranna kastaðist út úr
bílnum þegar bíllinn tók að
velta.
„Þegar bíllinn stöðvaðist byrj-
aði ég að kanna hvort Joanna
væri meidd. Sjálfur var ég blóðug-
ur í framan, vörin sprungin auk
þess sem það blæddi úr nefi. Ég
marðist töluvert undan öryggis-
beltinu. Joanna var ómeidd en í
Stuttar fréttir
Varað við 90% lánum
Tryggvi Þór
Herbertsson, for-
stöðumaður hag-
fræðistofnunar HÍ,
varar við hættu á
verðbólgu verði
lánshlutfall al-
mennra íbúðalána
hækkað upp í allt
að 90%. Til viðbótar sé einnig
hætta á hærra á fasteignaverði.
RÚV sagði frá.
Sementið hækkar
Verð á sementi gæti hækkað um
3-4% um mánaðamótin vegna þess
að flutningsgjald hækkar um 240
krónur á tonnið; meðal annars
vegna uppbyggingar á Austurlandi.
miklu sjokki. Ég dreif mig aftur í
bílinn þar sem Georgina og
Charlotte sváfu. Þar fann ég Ge-
Riða í sauðté
Riða hefur greinst í sauðfé á
Breiðabólstað í Ölfusi. Þetta mun
fyrsta riðutilfellið í 19 ár í land-
námi Ingólfs. RÚV sagði frá.
Þrefaldur fjöldi um göng
Fjöldi þeirra sem leggja leið
sína til Vestmannaeyja gæti þre-
faldast ef gerð verða jarðgöng
milli lands og Eyja ef marka má
nýja skoðanakönnun Gallups.
orginu grátandi undir borði innan
um brotið leirtau og spýtnabrak.
Charlotte fann ég hins vegar ekki.
Við Joanna leituðum í bílnum en
sáum dóttur okkar hvergi," segir
Keith þegar hann rifjar upp fyrstu
mínúturnar eftir slysið.
Skyndilega heyrðu þau rödd
Charlotte að utan. „Við gerum
okkur ekki grein fyrir hvar hún
kastaðist út úr bílnum en við
fundum hana hálfsofandi og vank-
aða skammt frá bílnum."
Báðar stúlkurnar sluppu
ómeiddar úr óhappinu. „Við erum
heppin að vera á lífi,“ segir Keith.
Fjölskyldan hefur að undan-
fórnu dvalið í góðu yfirlæti á gisti-
heimili fyrir austan. Þau eru
smám saman að jafna sig og hyggj-
ast halda ferð sinni áfram í dag.
„Við ætlum okkur að skoða Mý-
vatn eins og til stóð í upphafi. ís-
land er afar fallegt land en vegirn-
ir þyrftu að vera öruggari. Það er
ekki víst að næsta fjölskylda verði
jafnheppin og við,“ segir Keith
Ginnaw. -HEB
Þungarokkari í flugínu
Söngvari þungarokksveitarinnar
Iron Maiden hefur flogið með farþega
Iceland Express. Dickinson starfar
sem flugmaður hjá flugfélaginu
Astreus hálft árið en félagið flýgur
sem kunnugt er fyrir Iceland Ex-
press. mbl. sagði frá. -aþ
í kjallaragrein Gunnlaugs Jóns-
sonar fjármálaráðgjafa í DV á
þriðjudag brenglaðist síðasta setn-
ing greinarinnar. Rétt er setningin
þannig: Minni flokkar gætu sam-
einast til að sameina umframat-
kvæði sín í einn pott og ná þá jafn-
vel auka þingmanni eða þingmönn-
um. - Eru lesendur, svo og greinar-
höfundur, beðnir velvirðingar.
Eins og sjá má á þessari skýjahuluspá,
sem evrópska veðurstofan ECWMFgerir
og fengin er af vef Veöurstofunnar, er iík-
iegt aö skýjaö veröi á öllu landinu klukk-
an sex á laugardagsmorgun, tveimur
tímum eftir sólmyrkvann.
Sólmyrkvinn:
Sennilega skýjað
um allt land
Líklegt er að áhugamenn um sól-
myrkva verði að bíta í það súra epli
að ský muni skemma fyrir þeim
hringmyrkvann á sólu sem mun
verða um fjögurleytið í nótt. Veður-
spáin hefur verið óhagstæð alla vik-
una og þeir sem vonuðu að hún
myndi batna hafa ekki fengið ósk
sína uppfyllta. Veðurfræðingar á
Veðurstofu íslands voru ekki von-
góðir þegar DV hafði samband í
morgun og sögðu að það væru svo
til engar líkur á að það mundi sjást
til sólu á Norðausturlandi þar sem
erlendir ferðamenn hafa pantað upp
allt gistipláss fyrir löngu.
„Einhverjar líkur eru á að það
rofi hins vegar til á Norðvesturlandi
í nótt en erfitt er að segja til um
hvort það muni gerast eða ekki.
Bestu líkurnar á að skýin brotni
eitthvað upp eru vestur af Trölla-
skaga,“ sagði vakthafandi veður-
fræðingur á Veðurstofunni nú í
morgun. Hægt er að fá nánari upp-
lýsingar um veðurspá fyrir sól-
myrkvann með því að fara á vef
Veðurstofunnar, www.vedur.is. -KJA
Leit að 12 ára dreng:
Fannst í geymslu
í Képavogi
Lögreglan í Reykjavík leitaði í
nótt að 12 ára gömlum dreng sem
hafði sinnast við foreldra sína í
gærkvöld og rokið út úr húsi í
Breiðholtinu þar sem þau voru
gestkomandi. Foreldrar drengsins
tilkynntu lögreglunni að drengur-
inn væri týndur um ellefuleytið
og fannst hann um klukkan fjög-
ur í nótt. Hann hafði haldið til í
geymslu við hús í Kópavogi og
var við ágæta heilsu þegar hann
fannst. -EKÁ
Bingo
0Þetta er fyrsta
talan í DV-Bingó.
Nú er spiluð B-
röðin. Einnig er
allt spjaldið spilað.
nningur fyrir
bingó á B-röðina er ferðavinning-
ur fyrir tvo með Iceland Express.
Vinningur fyrir bingó á allt
spjaldið er vikuferð til Portúgal
með TerraNova Sól.
Hmhelgarblað
Líkaminn
er umbúðir
í Helgarblaði DV á
morgun er viðtal við
fegurðardrottningu ís-
lands, RagnhOdi Stein-
unni Jónsdóttur. Margt
af því sem þar kemur fram er ekki í
samræmi við viðteknar hugmyndir
manna eða fordóma um stúlkur sem
taka þátt í slíkum keppnum. Einnig
er viðtal við Sigurlaugu Ó. Guð-
mannsdóttur á Sauðárkróki sem hef-
ur fengið þyngri byrðar að bera en
margir aörir. Hún á flölfatlaðan son
en annar sonur hennar lamaðist þeg-
ar hann féll úr ljósastaur í vetur. í
blaðinu er einnig rætt við nýkjörinn
formann Blaðamannafélags íslands,
Róbert Marshall.