Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2003, Side 7
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003
!DV
7
Fréttir
Hæstiréttur þyngdi dóm vegna kynferðisbrots:
18 mánaða f angelsi
og hálf milljon í bætup
Hæstiréttur þyngdi í gær dóm
Héraösdóms Vestfjarða yfir rúmlega
fertugum manni sem dæmdur var
fyrir kynferöisbrot gagnvart þroska-
heftri konu í desember 2002. Héraðs-
dómur haföi dæmt manninn í 12
mánaöa fangelsi en Hæstiréttur
þyngdi dóminn í 18 mánaða fang-
elsi.
Maðurinn hafði þekkt konuna,
sem er tæplega fimmtug, í nokkum
tíma. Hann haföi farið heim til
hennar umræddan dag án sérstaks
tilefnis en þangaö hafði hann aldrei
komið áður. Hann var undir áhrif-
um áfengis og hafði meðferðis titr-
ara. Hann lét hana taka þátt í ýms-
um kynferðislegum athöftium sem
hún þorði ekki að sporna við sökum
hræðslu og hafði að lokum samræði
við hana gegn vilja hennar. í hér-
aðsdómi sagði að engum meðal-
greindum manni sem sæi konuna og
ræddi við hana litla stund gæti
blandast hugur um að hún væri
greindarskert.
Hæstarétti þótti sýnt að maðurinn
hefði notfært sér trúnað hennar og að
hún hefði litið á hann sem vin sinn.
Þá þótti nægilega fram komið að
brotið hefði ekki verið hugdetta hans
á vettvangi heldur fyrir fram skipu-
lagt og framið á ófyrirleitinn hátt.
Auk fangelsisrefsingarinnar var
manninum gert að greiða konunni
hálfa milljón í miskabætur. -EKÁ
7' #
DVWND NJÖRÐUR HELGASON
Handriðið lagað og fært.
Starfsmenn Vegageröarinnar eru þessa dagana aö víkka akrein Ölfusártrúar um 17 senímetra. Stjórnendur Árborgar
vilja varaniegri úrbætur.
Handriðið á Ölfusárbrú fært um 17 sentímetra:
Hvergi nærri full-
nægjandi breytingar
Við færum handriðið 17 sentí-
metra frá umferðinni, það rýmkar
aðeins fyrir bílana en ætti ekki að
hafa áhrif á umferð gangandi,"
sögðu starfsmenn Vegagerðarinn-
ar sem eru þessa dagana að lag-
færa handrið á göngubrautinni á
Ölfusárbrú á Selfossi.
Skipulags- og byggingamefnd
og bæjarráð Árborgar hafa
ályktað um gangbrautina á Ölf-
usárbrú. Breytingin á handriðinu
var samþykkt í vor en jafnframt
bent á að vandamál með handrið
gangbrautarinnar sýni augljóslega
fram á þörfína á sérstakri göngu-
brú yfir Ölfusá til að tryggja ör-
yggi gangandi vegfarenda. Bæjar-
ráð Árborgar hefur tekið undir
þetta sjónarmið og telur þessa að-
gerö hvergi nærri fullnægjandi til
að greiða fyrir umferð eða auka
öryggi gangandi og akandi vegfar-
enda um brúna.
Það sem horft er til á Selfossi er
að gerð verði göngubrú við hlið
brúarinnar. Með því nýtist öll
breidd brúargólfsins fyrir akandi
umferö og öryggi gangandi vegfar-
enda verði tryggt. -NH
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um deiliskipulag
í Reykjavík
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að deiliskipulagsáætlun í Reykjavík:
Stakkahlíð, Hamrahlíð, Bogahlíð.
Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Stakkahlíð,
Hamrahlíð og Bogahlíð.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að leyft verði að rífa atvinnu-
húsnæði að Stakkahlíð 17 og byggja tvílyft fjölbýlishús
með neðanjarðarbílgeymslu Á fyrrum gæsluvallarlóð og
leiksvæði að Stakkahlíð 19 er gert ráð fyrir að heimilt verði
að byggja tveggja deilda leikskóla. Sunnan þeirrar lóðar
er afmarkaður göngustígur milli Stakkahlíðar og Boga-
hlíðar. Gert er ráð fyrir að gönguleið fyrir framan lóðina nr.
17 við Hamrahlíð verði bætt og afmörkuð að höfðu sam-
ráði við eigenda hússins til þess að auka öryggi.
Að öðru leyti er ekki gert ráð fyrir breytingum á lóðum og
húsum á svæðinu. Nánar vísast í kynningargögn.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3, 1. hæð,
virka daga kl. 8.20 - 16.15 og fimmtudaga til 18.00, frá
30. maí 2003 til 11. júlí 2003. Einnig má sjá tillöguna á
heimasíðu sviósins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila
skriflega til Skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu-
lagsfulltrúa) eigi síðar en 11. júlí 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 30. maí 2003.
, Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Gullfalleg handmálud
veggskilrúm, kistlar,
kommóður og
blómapottar.
Á MJÖG GÓÐU VERÐI!
Eftirfarandi verslanir bjóða þessar vörur:
Blómabúðin Dögg, Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
Blómahafið við Gullinbrú, Stórhöfða 17, Rvk
/1 homi Laugavegar og Klapparstígs
/ /cihis öluiircjing