Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2003, Side 29
H
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003
Sport
Basl á Blikum
- sem töpuöu, 1-0, gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum í gær
1-0 Henning Jónasson ......(70.)
Afturelding sigraði Breiðablik,
1-0, á Varmárvelli í gærdag. Sigur-
inn var -kærkominn fyrir Mosfell-
inga en þeir höfðu gert tvö jafntefli
fyrir leikinn og með sigrinum
blanda þeir sér í toppbaráttuna.
Kópavogspiltar þurftu aftur á móti
að þola sitt þriðja tap í jafnmörgum
leikjum í 1. deildinni í sumar og er
það mikið reiðarslag fyrir þá þar
sem stefnan var sett á toppinn í upp-
hafi móts.
Leikur liðanna var ekki mikil
skemmtim en þó fengu bæði lið
ágætis marktækifæri í fyrri hálfleik
en þeim tókst ekki að nýta þau og
því var staðan markalaus í hálfleik.
Breiðablik kom mun ákveðnara til
leiks i síðari hálfleik og sýndi á köfl-
um ágætis leik. Kristófer Sigurgeirs-
son fékk nokkur góð færi en líkt og
aðrir leikmenn Breiðabliks áttu þeir
í erfileikum með að hitta á
markrammann.
Annars var Axel Gomez, mark-
vörður Aftureldingar, yfirleitt vel
staðsettur og þau skot sem komu á
markið átti hann ekki í miklum
erfiðleikum með að stoppa.
Það dró hins vegar til tíðinda á 70.
mínútu þegar Afturelding fékk horn-
spyrnu og Henning Jónsson skaliaði
boltann inn af stuttu færi eftir góða
fyrirgjöf Ásbjörns Jónssonar. Eftir
þetta var allur vindur úr gestunum
og þótt þeir sæktu það sem eftir lifði
leiks komust þeir ekki fram hjá
sterkri vörn Aftureldingar sem setti í
lás undir lok leiksins. Afturelding
fékk nokkur góð færi á lokamínút-
unum en Páll Gísli Jónsson, mark-
vörður Breiðabliks, kom í veg fyrir
að sigur Mosfellinga yrði stærri.
„Við vorum búnir að spila tvo leiki
og gera jafntefli í þeim báðum þar
sem um var að ræða mikla varnar-
sigra. Það var því að duga eða drep-
ast í dag - annaðhvort að vera á
botninum í bili með tvö stig eða kom-
ast í toppbaráttuna með sigri. Við
vissum að Blikarnir kæmu mjög
taugaveiklaðir hingað og ætluðum að
sækja vel á þá en þetta var samt í
járnum allan tímann," sagði Sigurð-
ur Þórir Þorsteinsson, þjálfari Áftur-
eldingar, við DV-Sport að leik lokn-
um.
„Ég er gífurlega ánægður með að
hafa innbyrt fyrsta sigurinn í ár og
að við skulum vera komnir með
fimm stig. Þetta virðist vera það jöfn
deild að hvert stig er mikilvægt - það
geta allir unnið alla og því fagna ég
hverju stigi sem við náum,“ sagði
Sigurður að lokum.
Maður leiksins: Magnús Einars-
son, Aftureldingu -ÞAÞ
KNATTSPYRNAJ
öa ©BODJi)
KARLA
Stadaru
Víkingur 3 2 1 0 6-2 7
Keflavík 2 2 0 0 7-3 6
Afturelding 3 1 2 0 2-1 5
Þór Ak. 2 1 1 0 3-2 4
Njarðvík 2 1 0 1 4-3 3
Haukar 2 1 0 1 3-5 3
HK 2 0 2 0 1-1 2
Stjaman 2 0 1 1 3-5 1
Leiftur/Dalv. 3 0 1 2 1-4 1
Breiðablik 3 0 0 3 1-5 0
Markahœstu menn:
Magnús Þorsteinsson, Keflavík ... 3
Daníel Hjaltason, Vtkingi.........2
Högni Þórðarson, Njarðvík.........2
Stefán Gíslason, Keflavík ........2
Adolf Sveinsson, Keflavik.........1
Andri Sveinsson, Haukum ..........1
Ásbjöm Jónsson, Aftureldingu ... 1
Bjami Hall, Vikingi ..............1
Brynjar Sverrisson, Stjömunni ... 1
Darri Johansen, Haukum ...........1
Freyr Guðlaugsson, Þór Ak........1
Hafsteinn Rúnarsson, Keflavík ... 1
Höskuldur Eiríksson, Vikingi . . ;. 1
Ingi Hrannar Heimisson, Þór Ak. . 1
Olgeir Sigurgeirsson, Breiðabliki . 1
Óskar Öm Hauksson, Njarövík ... 1
Snorri Már Jónsson, Njarðvík .... 1
Sævar Eyjólfsson, Haukum.........1
Valdimar Kristófersson, Stjömunni 1
Vilhjálmur Vilhjálmss., Stjörnunni 1
Henning Jónasson, Afturelding ... 1
Heiðar Gunnólfs., Leiftur/DalvUc . 1
AC Milan Evrópumeistari
AC Milan tryggði sér sigur í Meistaradeild Evrópu á miðvikudagskvöldið
með því að bera sigurorð af Juventus í úrslitaleiknum. Staðan var markalaus
eftir venjulegan ieiktíma og framlengingu og því þurfti að grípa tii
vítaspyrnukeppni til að ná fram úrslitum. Þar reyndust leikmenn Miian
hlutskarpari og hömpuðu því titlinum á Old Trafford í Manchester, en þar fór
úrslitaleikurinn fram. Reuters
Víkingar geröu góða ferö á Ólafsfiörð þar sem þeir mættu Leiftri/Dalvík:
Mikilvæg stig
- sterkir Víkingar reyndust heimamönnum of erfiöir í frekar döprum leik
0-1 Stefán Öm Amarson .... 26.
0-2 Danlel Hafliðason......36.
1-2 Heiðar Gunnólfsson.....45.
Leiftur/Dalvík tók á móti Víking-
um á Ólafsfjarðarvelli í fyrstu deild
karla gær. Víkingar náðu að sigra í
leiknum, 1-2, og sækja öll þrjú stig-
in norður tii Ólafsfjarðar, í leik sem
einkenndist af fáum marktækifær-
um.
Víkingar byrjuðu leikinn mun
betur og réðu gangi hans fyrstu
mínútumar án þess þó að ná að
skapa sér hættuleg marktækifæri,
leikurinn jafnaðist þegar á hann
leið en hvorugu liðinu tókst að
brjótast í gegnum vamarmúr hins
fyrr en á 26. mínútu þegar Daníel
Hafliðason fékk góða sendingu frá
vinstri kanti yfir á þann hægri og
þaðan gaf hann góða stungusend-
ingu inn fyrir vörn heimamanna á
Stefán Örn Arnarson sem afgreiddi
boltann örugglega fram hjá Sævari í
markinu.
10 mínútum síðar náðu gestimir
tveggja marka forystu. Daniel
Hjaltason átti þá þrumuskot utan
við teig sem endaði í þverslánni,
boltinn datt niður á markteig þar
sem nafni hans Daníel Hafliðason
fylgdi vel eftir og skoraði í autt
markið.
Heimamenn náðu að minnka
muninn í uppbótartíma fyrri hálf-
leiks og var þar að verki Heiðar
Gunnólfsson með gott bogaskot af 30
metrunum yfir Ögmund í marki
Víkings sem stóð of framarlega í
teignum.
Heimamenn komu mun sprækari
til leiks í síðari hálfleik, Heiðar
flutti sig neðar á miðjuna og við það
styrktist miðjuspil þeirra verulega,
en til þessa höfðu Víkingar stjórnað
miðjunni að mestu. Liðin skiptust á
að skapa sér hálffæri það sem eftir
liföi leiks en hvorugu liðinu tókst
að koma boltanum í netið og leikur-
inn endaði þvi 1-2 fyrir gestina í
Viking.
Heiðar Gunnólfsson var bestur í
liði heimamanna, sérstaklega í
seinni hálfleiknum, en einnig spil-
uðú þeir Ámi Thor og Sandor ágæt-
lega í miðju vamarinnar en veik-
leikar hennar vom sérstaklega út á
vængjunum þar sem nafnanir í Vík-
ingsliðinu Daníel og Daníel áttu oft
mjög góða spretti.
Vöm gestanna var mjög góð og
ósanngjamt að hrósa einum leik-
manni öðrum fremur.
Maður leiksins: Daníel Hafliða-
son. -ÆD
HÆTTUM
AÐREVKJA
HVATNINGAR- £3
ÁTAKUMFÍ 1=6
Taktu þátt í ein-
faldri getraun.
Svaraöu spurn-
ingunum hér til
hliðar og sendu
svörin til Þjón-
ustumiöstöðvar
var UMFÍ, Fells-
múla 26, 108
Reykjavík fyrir
26. maí. Úrslit
verða kynnt á
reyklausum degi
31. maí.
Getur jþú svaraö eftirfarandi
spurnmgum?
1. Hvað heitir rapparinn sem
syng-ur í laginu Tóm tjara?
2. Hvað reykja íslendingar
fyrir mikinn pening á ári?
3. Hvað heita söngvararnir í
laginu Svæla, svæla?
4. Hver á augu, eyru, lítinn
mimn og lítiö nef?
5. Hvað geta reykingar orsakað?
Þátttökuseðlar fylgja geisladisknum HÆTTUM AÐ
RJEYKJA. Þú flnnur einnig svörin við sptmiingunum
í bæklingi sem fylgir með diskinum.
NINGAR:
ICRAFTER kassagítar R-035 (kr: 50.000) frá hljóð-
færarversluninni Gítarinn, Mark geislaspilari
(kr. 10.000) frá Tóbaksvaraanefnd og Framtíöarreikn-
iugur Gjafabréf (kr. 10.000) frá - -im
íslandsbanka og Ensk-ísl/ísl-ensk
oröabók fyrir tölvu (kr. 8.000) frá
Eddu útgáfu.
ÍKaraoke-hljómborö (kr. 50.000)
frá Hljóðfærahúsinu og Fram-
tíöarreikuiugur Gjafabréf
(kr. 10.000) frá íslandsbanka.
SSkrifstofustóIl (kr. 40.000) frá
Odda og Framtíöarreikuiiigur
Gjafabréf (kr. 10.000) frá íslandsbahka.
Vg Mark DVD fjölkerfa myndgeisla-
‘S spilari (kr. 20.000).
®j| Nokia súni með B korti (kr. 17.000).
Gjafabréf að upphæð kr. 15.000 frá
w Tónastöðinni.
ÍHringadróttinssaga eftir
Ttolkien (kr. 12.000) frá
Fjölva og geisladiskurinn
í svörtnm fötnm frá Skífunni.
Ö Gjafabréf (kr. 10.000) frá
Kringlunni og geisladiskur-
inn f svörtnm fötum frá Skífunni.
Q GUESS kvenmannsúr (kr. 10.000) frá Leonard og
geisladiskurinn í svörtum fötum frá Skífunni.
»GUESS karlmannsúr (kr. 10.000) frá Leonard
geisladiskurinn í svörtum fötum frá Skifunni.
AUKAVINNINGUR AÐ
UPPHÆÐ kr. 100.000
Úr öllum innsendum þátttökuseðlum verður einn
seöill dreginn út og fær sendandi gjafabréf aö
upphæö kr. 100.000 sem er innborgun á sófa
frá DESFORM.
DESfORM
(e>
E d d a
SKIFAN
Leggðu inn á Reyklausan
ey*
reikning til að fa geislaplötuna
HÆTTUM AÐ REYKJA!
Leggöu kr. 1000 inn á Reyklausan reikning í banka
eöa sparisjóöi og þú færö eintak sent um hæl:
SPK nr. 5513 - SPH nr. 6043 - SPV nr. 11047
SPRON nr. 7306 - SPK nr. 408428
fslandsbanki (aöalbanki) nr. 160379
Landsbanki (aðalbanki) nr. 283408
Búnaöarbanki (aöalbanki) nr. 120552
Mundu aö láta nafn þitt og heimilisfang koma skýrt
fra.m þegar þú leggur inn á Reyklausan reikning.
REVKLAUS
REIKNINGUR
HVATNINGAR-
ATAK UMFÍ
Geisladiskinn HÆTTUM AÐ REYKJA er einnig hægt aö fá í Þjónustumiðstöö
UMFÍ, Fellsmúla 26;108 Reykjavík, s. 568 2929. Diskurinn kostar 1.000 kr.
Heildarverömæti vtnnlnga í hvatningarátaki UMFÍ er kr. 750.000.
Nöfn vinningshafa veröa birt £ DV á reyklausum degi 31. mai.
I