Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR I.JÚLl 2003
0TGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRfTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fæc Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar:
auglysingar@dv.is. - Drelfing:
dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstraeti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. DV greiðir ekki
viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir
myndbirtingar af þeim.
EFNI BLAÐSINS
Sjö mánaða fangelsi
- innlendar fréttir bls. 4
Þyngstu refsidómarnir
— innlendar fréttir bls. 8
Ráðherra vill þjóðgarð á
hafbotninum
- innlendarfréttir bls. 10
Mesta leikkona allra
tíma
-Tllvera bls. 16-17
Guðjón til Barnsleys
- DV-Sport bls. 29 og baksíða
DV Bingó
'x Nú spilum við =-
^ ^ \ röðina og fyrsta
I talan talan sem
J upp kemur er 63.
___y' Þeir sem fá
bingó, eru vinsam-
lega beðnir að láta vita í síma
550 5000 innan þriggja daga. Ef
fleiri en einn fá bingó er dregið
úr nöfnum þeirra. I vinning er
ferð fyrir tvo með Iceland Ex-
press til London eða Kaup-
maimahafriar.
Samhliða einstökum röðum
er allt spjaldið spilað. Við
spilum ne&tilega bingó í ailt
sumar. Verðlaun fyrir allsherj-
arbingó er vikuferð til Portúgals
með Terra Nova Sól.
Forseti Þýskalands á Islandi
Kaupa 20% í Skeljungi
HEIMSÓKN: Johannes Rau,
forseti Þýskalands, kemur í
dag til (slands í þriggja daga
opinbera heimsókn. Með
honum í för eru nokkrir ráð-
herrar, embættismenn og
menn úr viðskiptalífinu. (dag
fara fram viðræður á milli for-
seta Þýskalands og forseta ís-
lands en einnig mun forset-
inn heimsækja Þjóðmenning-
arhúsið og skoða þar hand-
ritasýningu. Forsetinn hittir
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og borða þeir saman
hádegisverð á Þingvöllum. Þá
heimsækir hann Nesjavalla-
virkjun, Gullfoss og kynnir sér
sögu jarðfræði Þingvalla.
Heimsókn forsetans lýkur á
fimmtudagsmorgun.
VIÐSKIPTI: Shell Petroleum
Company Ltd, sem verið hef-
ur eigandi að 20,69% eignar-
hlut í Skeljungi hf., seldi í gær
hlut sinn í félaginu. Kaupend-
ureru Sjóvá-Almennartrygg-
ingar hf. og Burðarás ehf.
Skeljungur hf. hefurátt sam-
starf um markaðssetningu á
vörumerkjum Shell á (slandi
síðastliðin 75 ár og mun það
samstarf halda áfram þrátt
fyrir breytta eignaraðild.
Meðal annars mun hið svo-
kallaða vetnisverkefni sem nú
er unnið að halda áfram.
Shell-samsteypan hefur verið
minnihlutaeigandi í Skeljungi
undanfarin ár. Sala Shell á
hlutabréfum í Skeljungi er
liður í eignastýringu sam-
steypunnar.
Félagsfundur ÍVLFA um skýrslu PricewaterhouseCoopers:
Vantraust á formann og stiórn
Félagsfúndur: Atkvæði talin undir vökulum augum fulltrúa ASÍ. DV-mynd Hafþór Pálsson
í gærkvöld var loks haldinn fé-
lagsfundur í Verkalýðsfélagi
Akraness í kjölfar langvarandi
átaka sem leiddu til þess að
formaður og stjórn fóru frá á
aðalfundi í vetur og sett var á
starfsstjórn til vors. Á fundin-
um var kynnt svört skýrsla
PricewaterhouseCoopers um
bókhaldsóreiðu og alvarlega
misbresti í stjórnun félagsins
sem, áður greint var frá í DV í
byrjun júní.
Samþykkt var mjög harðorð til-
laga illaga á fundninum þar sem
sérstöku vantrausti var lýst á fyrr-
verandi formann og nafngreindan
meirihluta stjórnar. Var tillagan
samþykkt með 35 atkvæðum gegn
23, en 6 seðlar voru auðir.
Á fundinn mættu allir helstu for-
kólfar Alþýðusambands fslands,
með Grétar Þorsteinsson, forseta
ASÍ sem jafnframt var fundarstjóri,
og Halldór Björnsson, varaforseta í
fararbroddi. Mestur hluti fundarins
fór eins og vænta mátti í umræðu
um þá tillögu sem samþykkt var og
skýrslu PricewaterhouseCoopers
ehf., en fulltrúar PWC svöruðu
fjölda fyrirspurna fráfarandi meiri-
hluta stjórnarmanna um skýrsluna.
Gagnrýndu fulltrúar PWC mjög
stjórn félagsins á þeim árum sem
þeir fóru yfir 1997 -2001 og greint er
frá í skýrslunni. Á fundinum var
kynnt breytingartillaga ASÍ um lög
félagsins um bráðabirgðaákvæði
sem ætlað er að sætta aðila og var
hún samþykkt. Þar er gert ráð fyrir
að kosning nýs formanns og stjórn-
ar fari fram svo fljótt sem auðið er
og fellt er úr gildi umboð núverandi
stjórnar- og varastjórnarmanna,
formanna deilda og þeirra sem
kjörnir hafa verið persónubund-
inni kosningu.
Hervar Gunnarsson fyrrverandi
formaður mæti ekki til fundarins,
en hann hefur undanfarna mánuði
mætt til vinnu á skrifstofu félagsins
sem starfsmaður. Hefur hann þar
titlað sig sem framkvæmdarstjóra
skrifstofu. Lagt var fram bréf frá
Hervari á fundinum, þar sem hann
segir af sér störfum fyrir félagið
með 3 mánaða fyrirvara og krafðist
þar með launa út september. Var
þetta mjög gagnrýnt, þar sem eng-
in gögn séu til um að hann hafi
nokkurn tíma verið annað en for-
Hervar Gunnarsson
fyrrverandi formaður
mætti ekki til fundar-
ins, en hann hefur und-
anfarna mánuði titlað
sig sem framkvæmda-
stjóra skrifstofu.
maður félagsins. Sem kunnugt er
sagði hann af sér formennskunni á
aðalfundi í febrúar og þótti gagn-
rýnendum sem hann ætti ekki að fá
uppsagnarfrest út á titil sem hann
bjó sér til sjálfur eftir að hann hafði
sagt af sér.
Einnig sendi Hervar bréf sem
hann útskýrði fjarveru sína á þess-
um fundi, sem hann hefði ekki
fengið að kynna sér þau gögn sem
skýrslan byggði á og mundi ekki
ræða hanna fyrr en hann hefði
fengið það. Þetta eru eigi að síður
þau bókhaldsgögn sem hann hefur
haft aðgang að alla þá tíð sem hann
hefur verið formaður félagsins.
hkr@dvJs
Flugmennirnir
kyrrsettir
Tveir flugmenn á leið til lend-
ingar á Reykjavíkurflugvelli
villtust af réttri leið í skýja-
bakka á sunnudagskvöld með
þeim afleiðingum að þeirflugu
afar lágt yfir Þingholtin og
þurftu að snarbeygja vélinni til
að ná inn á flugvöllinn aftur.
Flugmálastjórn íslands hefur
nú kyrrsett flugmennina á
meðan rannsókn stendur yfir.
Flugmálastjóm íslands kyrrsetti á
sunnudagskvöld flugmann og
farþega tveggja hreyfla einka-
flugvélar eftir misheppnað aðflug að
Reykjavíkurflugvelli. Flugvélin kom
niður úr skýjum í u.þ.b. 300 feta hæð
yfir Þingholtunum, að því er talið er,
og töluvert austar en aðflugsferill
hennar átti að vera að norður-suður-
flugbraut vallarins. Vélinni var síðan
sveigt inn á aðra flugbraut þar sem
henni var lent á henni miðri en ekki
reyndist næganlegt svigrúm til að
stöðva vélina og því hóf
flugmaðurinn hana aftur til flugs. í
fráhvarfs-fluginu fór hann síðan ekki
eftir fyrirmælum flugtums varðandi
flugstefnu en lenti hálftíma síðar
heilu og höldnu.
Flugmáfastjórn gerði þegar ráð-
stafanir til að afrit yrði tekið af rat-
sjárgögnum og aðflugstæki á flug-
brautinni prófuð og reyndust þau öll
vera rétt stillt.
Eftir atvikið var Rannsóknarnefnd
flugslysa, RNF, tilkynnt um atvikið
með rafpósti klukkan 20.03. Verk-
lagsreglur segja að tilkynna beri RNF
um flugstjórnaratvik en þar sem flug-
vélin lenti heilu og höldnu kl. 19.32
og tryggt hafði verið að öll gögn varð-
andi flugið væm til staðar og flug-
mennirnir kyrrsettir var ekki talin
ástæða til að tilkynna það einnig þeg-
ar í stað. Flugmálastjóri hefur áréttað
að öll atvik verði tilkynnt símleiðis til
RNF eins fljótt og verða má.
Lögreglan í Reykjavík yfirheyrði
flugmennina tvo á sunnudagskvöld
þar sem þeir gáfu þær skýringar að
þeir hefðu komið skakkt inn í aðflug-
Tveir flugmenn villtust
á leið sinni inn til lend-
ingar á Reykjavíkur-
flugvelli. Þeirhafa ver-
ið kyrrsettir.
ið þannig að þeir hefðu ekki getað
lent flugvélinni og því þurft að taka
annan hring. Einnig vildu þeir meina
að hæðarmælir vélarinnar hefði verið
rangt stilltur og gerðu þeir sér því
ekki grein fyrir hæð flugvélarinnar.
Þá viðurkenndu þeir að hafa brotið
flugreglur en bættu því við að það
hefði ekki verið ásetningur þeirra.
Alvarleg: Flugmennirnir hafa viðurkennt að hafa brotið flugreglur.
Yflrheyrslum yfir mönnunum, sem
vom á leið frá Litháen til Bandaríkj-
anna, lauk sfðan í gær með viðtölum
við RNF.
Nú hefur rannsóknarneiridin safn-
að öllum nauðsynlegum gögnum um
flugvélina og flugferilinn í aðdrag-
anda lendingarinnar. Rannsókn
málsins er á ffumstigi en ekki hefur
verið tilkynnt um hvenær kyrrsetn-
ingu flugmannanna verður aflétt.
agust@dvJs
Sigmundur Ernir
lætur af stðrfum
Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur
látið af störfum sem ritstjóri DV. „Ég
hef átt þátt í einum mestu breyting-
um á DV á seinni árum og nú þegar
þessar breytingar em að baki vil ég
sjálfur nota tækifærið og breyta um
starfsvettvang."
Aðspurður kveðst Sigmundur Ern-
ir ætla að helga sig ritstörfum á næst-
unni og segist ekki óttast verkefna-
leysi. „Eg kveð DV með stolti og tel að
blaðið hafi batnað í minni tíð."
Útgefendur DV og starfsfólk
þakka Sigmundi Erni farsælt og
ánægjulegt samstarf og óska honum
velfarnaðar í framtíðinni.
í