Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Síða 14
14 SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ2003 Skref í átt til friðar Varlegt er að treysta á að vopnahlé á óróa- svæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs haldi. Dæmin sanna að veður skipast skjótt í lofti í samskiptum ísraelsmanna og Palestínu- manna. Sár vegna átaka undanfarinna ára- tuga eru djúp. Því þarf lítið út af að bregða. Þótt vonir vakni vita menn að hættan á því að allt fari í bál og brand er sífellt fyrir hendi. Sagan kennir okkur einnig að öfgamenn á báða bóga leggja allt kapp á að koma í veg fyr- ir frið vakni einhverjar vonir um árangur og friðarferli á svæðinu. Þrátt fyrir vonleysi og svartsýni, sem skýrist af fenginni reynslu, má ekki hætta tilraunum til þess að brjótast út úr því ófremdarástandi sem ríkt hefur lengi í samskiptum þessara grannþjóða. Reyna verður að koma á þolan- legum samskiptum sem felast m.a. í því að ísraelsmenn hætti landtöku á svæði Palest- ínumanna og skili til baka landi sem tekið var í óleyfi og ekki síður að Palestínumenn láti af mannskæðum og síendurteknum árásum á óbreytta íbúa fsraels. Þeim árásum hefur fsra- elsher svarað jafnharðan af mikilli hörku. Fyr- ir utan manndrápin sem því hafa fylgt er Palestína illa leikin. Víða um landið stendur varla steinn yfir steini. Hús hafa verið jöfnuð við jörðu, veitur og vegir eyðilagðir. í raun hafa flest samfélagskerfí þar hrunið í átökun- um. Hatrið hefur síast inn í börnin með móð- urmjólkinni. Við þessar vondu aðstæður ber að fagna hverju skrefi sem stigið er í friðarátt, hversu smátt sem það er. Israelar hófu í fyrradag brottflutning herja sinna frá Gaza-svæðinu eftir að herskáar fylkingar Palestínumanna höfðu samþykkt þriggja mánaða vopnahlé og Hús hafa verið jöfnuð við jörðu, veitur og vegir eyðilagðir. í raun hafa flest samfélagskerfi þar hrunið í átökunum. Hatrið hefur síast inn í börnin með móðurmjólkinni. Við þessar vondu aðstæður ber að fagna hverju skrefi sem stigið er í friðarátt, hversu smátt sem það er. lofað að stöðva allar árásir á ísraelska borgara. Brottflutningurinn hófst eftir að Fatah-hreyf- ing Arafats Palestínuforseta hafði samþykkt að taka þátt í vopnahléinu sem Hamas-sam- tökin og íslamska Jihad-hreyfingin höfðu þegar samþykkt. öryggisgæsla á svæðinu hef- ur verið falin palestínsku lögreglunni sam- kvæmt alþjóðlegu friðaráætluninni Vegvísir til friðar. Þrátt fyrir baráttu öfgahópa á báða bóga gegn vegvísinum hafa menn ekki gefist upp. Bandarísk stjórnvöld hafa hvatt til viðræðna um vopnahlé en þær viðræður hafa staðið að undanförnu að frumkvæði Abbas, forsætis- ráðherra Palestínu. Þrýstingur Bandaríkja- manna skiptir miklu, ekki síst á stjórnvöld í Israel en þau hafa ítrekað hafnað vopna- hléssamkomulagi Palestínumanna. Banda- rísk stjórnvöld hafa fagnað samkomulagi palestínsku fylkinganna og segja það mikil- vægt skref í átt til friðar. Israelsstjórn hefur hins vegar talið tilgangslaust að treysta hin- um herskáu fylkingum. Þrátt fyrir það vantraust tekur Israelsstjórn þátt í því ferli sem nú er hafið sem sést af brottflutningi herja frá mikilvægum stöðum. Þannig hafa Palestínumenn endurheimt stjórn aðalvegar Gaza-svæðisins eftir að ísra- elskar hersveitir hurfu þaðan. Þá binda menn vonir við fund Sharons, for- sætisráðherra ísraels, og Abbas, forsætisráð- herra Palestínu, en gert er ráð fýrir þeim fundi í Jerúsalem í dag. Þar munu þeir ræða fram- kvæmd ffiðaráætlunarinnar Vegvísir til friðar. Blóðbað undangenginna vikna gekk nærri því friðarferli sem hafið var en vonin er ekki úti meðan fulltrúar þjóðanna tveggja ræðast við. Eftir er að sjá hvernig til tekst með vopna- hlé Palestínumanna en það er mikilvæg við- leitni, skref í átt til friðar. Verndarstefna viðheldur fátækt KJALLARI Eiríkur Bergmann Einarsson stjómmálafræðingur Fagna ber róttækum umbótum á landbúnaðarstefnu ESB sem er gott innlegg í viðræðurnar um frjálsræði í viðskiptum með land- búnaðarvörur í heiminum sem fyrirhugaðar eru á vegum Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar. En betur má ef duga skal. í tengslum við svokallaða alþjóða- væðingu hafa vestræn ríki - ríku þjóðirnar-beitt alþjóðastofnunum á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn til að þrýsta á þróunarríkin - fá- tæku þjóðirnar - að opna markaði sína fyrir erlendum vörum og fjár- magni. Sums staðar hefur þessi þróun orðið til góðs en annars staðar hefur þessi stefna, sem rekin „Opnun markaða á Vesturlöndum fyrir landbúnaðarafurðir frá þróunarríkjum ersú aðgerð sem dugar best til að vinna gegn fá- tækt í heiminum. Að meina fátækum þjóð- um að selja vörur sínar á ríka markaði Vestur- landa er í raun siðferð- islega óverjandi en með því móti halda ríku þjóðirnar mörgum þróunarlöndum í fá- tæktargildru." hefur verið á ansi óbilgjarnan hátt, orðið til mikilla vandræða fyrir fá- tækari ríki þar sem innviðir hafa ekki verið til staðar til að takast á við samkeppnina. Jafnvel má full- yrða að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi til að mynda dýpkað Asíu- kreppuna svokölluðu árið 1997 með þrálátum kröfum sínum um ÍSLENSKT SKAL ÞAÐ VERA: Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tínir til gómsæta bita úr kjötborðinu. opnun markaða, hvort sem ríkin hafl verið undirbúin fyrir slíkt eða ekki. Tvískinnungur Vesturlanda Ríku þjóðirnar á Vesturlöndum, sem hafa haldið þessari stefnu stíft að þróunarríkjunum, hafa hins vegar ekki enn fengist til að opna markaði sína nægjanlega fyrir þær vörur sem fátæk þróunarríki hafa að selja - nefnilega landbúnaðar- vörur. Segja má að að þessi tví- skinnungur haldi mörgum þróun- arríkjum í fátæktargildru. Opnun markaða á Vesturlöndum fyrir landbúnaðarafurðir frá þróunar- ríkjum er sú aðgerð sem dugar best til að vinna gegn fátækt í heimin- um. Að meina fátækum þjóðum að selja vörur sínar á ríka markaði Vesturlanda er í raun siðferðislega óverjandi en með því móti halda ríku þjóðirnar mörgum þróunar- löndum í fátæktargildru. Við ís- lendingar erum ekki vanir að hugsa mikið um hag annarra þjóða, hvað þá fjarlægra og fátækra þjóða. Það verður þó ekki hjá því komist að horfast í augu við þá staðreynd að verndarstefnan í íslenskum land- búnaðaði, með ýmiss konar inn- flutningshöftum og ofúrtollum, er hluti af þessu óréttlæti. Með þessu móti tökum við þátt í að viðhalda fátækt í heiminum þótt það þyki sosum ekki beinlínis þjóðleg af- staða að ætlast til þess að fslend- ingar beri ábyrð á öðru fólki en okkar eigin. Nauðsynlegar umbætur Aftur að umbótum á landbúnað- arstefnu ESB. Um það bil helming- ur fjárlaga ESB, eða 43 milljarðar evra, fer til landbúnaðarmála á hverju ári sem er sá opinberi stuðn- ingur sem evrópskir bændur fá um- fram samkeppnisaðilana í öðrum heimshlutum. Samkvæmt nýlegu samkomulagi er hins vegar gert ráð fyrir að útgjöld til landbúnaðar- mála muni ekki aukast, þrátt fyrir stækkun ESB sem hefur sett griðar- legan þrýsting um útgjaldaaukn- ingu til landbúnaðar, heldur standa í stað fram til ársins 2013. Að óbreyttri landbúnaðarstefnu myndi fyrirhuguð stækkun til aust- urs sprengja fjárhagsramma ESB. Grundvallaratriði í umbótunum er að klippa á tengslin milli styrkja og framleiðslu og koma á aukinni skilvirkni í landbúnaðarfram- leiðslu, með óskir og hagsmuni neytenda í huga. Fram til þessa hefur stuðningur til evrópskra bænda fyrst og fremst verið byggð- ur á framleiðslustyrkjum, þar sem bændur fá úthlutað framleiðslu- kvóta sem svo er styrktur með fjár- framlögum úr sjóðum ESB. Nú er lögð áhersla á að styrkir til bænda verði tengdir eftirspurn á markaði. Frá árinu 2005 eiga styrkir ekki að stjórnast af framleiðslumagni og framleiðslugetu einstakra býla eins og verið hefur heldur verða teknar upp beingreiðslur til hvers bús eftir stærð en óháð framleiðslu. Fram til ársins 2007 geta einstaka ríki þó haldið áfram að styðja við fram- leiðslu einstakra býla þar sem hætta er á að bændur verði að bregða búi. Flókin málamiðlun Segja má að samkomulagið miði að því að bæta stöðu neytenda og tryggja góða framleiðslu á markaði en um leið verður dregið verulega úr verðlagsstýringaraðgerðum. Samkomulagið felur í sér mjög rót- tækar breytingar sem eðlilega kalla á sterk viðbrögð frá hagsmunaðil- um. Hins vegar er orðið fulljóst að sú offramleiðsla og óráðsía í land- búnaði sem núverandi kerfi hefur alið af sér getur ekki haldið áfram til lengdar. Umbæturnar eru niður- stöður úr flóknum málamiðlunum milli mjög ólíkra sjónarmiða aðild- arríkjanna. Ríki á borð við Bretland, Holland og sum Norðurlandanna vildu ganga miklu lengra f umbóta- átt meðan mikillar óánægju gætir til að mynda á meðal Frakka en franskir bændur hafa þegið ríkuleg- ar greiðslur úr sjóðum ESB og hafa hingað til staðið í vegi fyrir róttæk- um breytingum á landbúnaðar- stefnunni. Enn háirtollar Samkomulagið tekur hins vegar ekki á ýmsum aðkallandi úrlausn- arefnum eins og þeim er varða tolla og útflutningsbætur sem skekkja samkeppnistöðu gagnvart öðrum framleiðendum. Eftir sem áður verndar Evrópusambandið fram- leiðslu sína verulega fyrir ódýrari innflutningi, til að mynda frá þró- unarríkjunum sem haldið er frá rík- um mörkuðum Evrópu. Það sama á við um ísland sem gengur jafnvel enn lengra í að vernda innlendan landbúnað. í þessu sambandi ber þó að geta þess að Evrópusam- bandið hefur einhliða fellt niður tolla á helstu framleiðsluvörur frá um það bil fjörutíu fátækustu ríkj- um heims, samkvæmt samkomu- lagi um fríverslun með aðrar vörur en vopn (e. everything but arms) en strangar reglur um sjúkdómavarnir og öryggi hamla enn viðskiptum að nokkru leyti. ísland mætti að sönnu taka slíkt hið sama til athugunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.