Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ2003 SKOÐUN 15 Við tökum við Vellinum /) KJALLARI V * Friðrik Daníelsson efnaverkfræðingur mmÍ£.í:.íi________________________ Bandaríkjamenn, bandamenn okkar í sex áratugi, vilja kalla afganginn af hernum sínum heim. Enda kominn tími til, eng- inn óvinaher í nágrenninu og Is- lendingar, ein þróaðasta þjóð heims, getur nú loksins tekið við varnarviðbúnaðinum á frið- artímum. Þegar fslendingar losuðu sig við Evrópuvaldið 1944 (þá Danaveldi - og lengi páfaveldið í Róm sem héldu okkur í myrkri evrópskra stjómarhátta í einar sjö aldir) voru Bandaríkjamenn fyrstir til að leggja okkur lið. Strax 1942, nánar til tekið 14. október, löngu áður en aðrir þorðu, tilkynntu Bandaríkjamenn formlega að þeir myndu styðja sjálfstætt ísland. Þeir hafa síðan verið ábyrgðarmenn sjálfstæðis okkar. Og ekki í kot vísað; þeir eru orðnir eina risaveldið sem eftir er. Þeir tóku að sér varnir fslands með tvíhliða varnarsamningi. íslenskir ráðamenn hafa síðan treyst svo mjög á þá að líkst hefur smábarni sem vælir í mömmu. Nú getum við! En nú er kominn tími til að hætta að væla og tala skýrt. Barnalegar gamlar dillur um að íslendingar eigi að vera vopnlaus þjóð þarf að jarða sem fyrst. Við emm þegar með vopnað lið, Landhelgisgæsl- una, lögregluna og sérsveitir. ís- lendingar eiga einfaldlega að taka við Keflavíkurstöðinni, reyndar með mikilli hjálp Bandaríkjanna. Og það verður auðvelt. Þegar em til íslendingar sem þekkja hana og reksturinn þar og tii em menn hér- lendir sem kunna á varnarlistir. Þjálfun íslendinga í störfin verð- ur líka auðsótt mál. íslenska Rat- sjárstofnunin er þegar búin að taka við mikilvægasta hlutanum af varnarviðbúnaðinum og hefur sýnt að hún er jafnvel betri en aðrir í faginu. En það er aðeins ein íslensk stofnun sem hefur nafnið til að taka við vamarstöðinni á Keflavíkur- flugvelli: Landhelgisgæslan, sem hefur háð þrjú stríð, og öll unnin! Síðasti áfanginn í sjálfstæðis- baráttunni Það þarf að endurskapa Land- helgisgæsluna frá gmnni og upp til þess að hún geti tekið við Keflavík- urstöðinni. Reyndar þarf fyrr eða sfðar að stofna nýtt ráðuneyti (sem gæti þá heitið land(helgis)gæslu- ráðuneytið eða öryggisráðuneytið) um öryggismálin. Svo vill til að Davíð Oddsson for- sætisráðherra, sem varnarsamn- ingurinn hefur mætt mest á og hef- ur traust og virðingu Bandaríkja- manna, er í lykilstöðu til að koma öryggismálunum í farsæla höfn. Hann flytur sig væntanlega í utan- ríkisráðuneytið næsta ár og með því afli sem hann hefur til þess að standa vörð um hagsmuni íslands liggur beint við að hann stjórni stofnun nýs ráðuneytis um öryggis- málin. Hann gæti svo sinnt því ráð- herraembætti með utanríkisráð- herraembættinu ef dæma má af þeim tilþrifum sem hann hefur sýnt á sínum stjórnmálaferli (það ætti ekki að verða vandi að fækka gömlu ráðuneytunum í staðinn). Með þessu verður lokið síðasta áfanganum í uppbyggingu sjálf- stæðs ríkis á íslandi og kominn tími til, nærri sex áratugum eftir stofn- un lýðveldisins. Bandaríkin hjálpa Landhelgisgæslan tæki við orr- ustuþotusveitinni (örfáum þotum) og þyrlusveitinni, það verður vænt- anlega auðsótt að fá Bandaríkja- menn til þess að leggja til tækin, ásamt þjálfun og fjármagni að verulegu leyti, a.m.k. fyrst um sinn. Orrustuþotusveitin er til þess að taka á móti mögulegri fyrstu óvæntu árás og verja varnarstöðina en hefur þó í raun aðallega fráfæl- ingarhlutverk. Keflavíkurflugvöllur þarf á öllum tímum að hafa mannvirki og allan viðbúnað í lagi og vera í viðbragðs- stöðu fyrir bandaríska herinn sem áfram verður að vera varnarafl ís- lands með tilbúna aðstöðu hér, ef til ófriðar kemur. Endurnýjun og uppbygging á Vellinum lendir óhjákvæmilega á herðum Banda- ríkjanna að verulegu leyti. Evrópa að lokast inni Evrópusambandið einangrar sig í auknum mæli og sýnir vaxandi yf- irlæti gagnvart Islandi og öðrum heimshlutum. Gömlu stórveldin í Evrópu, sem Bandaríkin þurftu tvisvar að friða og byggja upp á síð- ustu öld, ætía sér nú að sýna hvað þau geta. Nýr stórveldadraumur er fæddur í Evrópu, allir vita hvemig fyrri draumar hafa endað. ESB ger- ir orðið í því að gefa Bandaríkjun- um langt nef í mörgum málum. Þetta á eftir að versna. Viðskipta- lega em í uppsiglingu illleysanleg árekstrarmál við Bandaríkin sem gætu orðið íslandi dýrkeypt ef við bindum trúss okkar um of við ESB. Stöðnunin sem hlýst af ofstjórnar- háttum ESB dregur meira og meira úr efnahagslegri getu ESB og vam- armáttur þess er lítilfjörlegur og ekki líklegur til að verða mikill í bráð. Hættan kemur úr austri Öryggi íslands stafar enn sem fyrr hætta úr austri. Allt frá Haraldi lúfu, Ólafi Tryggva, Hákoni gamla, Tyrkjaránsmönnum (þar sem sum helstu illmennin vom frá V-Evr- ópu), Hitler og til Breta sem her- námu fyrst en komu svo með her- skip til þess að stöðva Landhelgis- gæsluna (sem vann) hefur íslensku sjálfstæði og öryggi stafað hætta frá Evrópu. Orrustuþotusveitin er tilþess að taka á móti mögulegri fyrstu óvæntu árás og verja varnarstöðina en hefur þó í raun aðallega frá- fælingarhlutverk. Næsta herhlaup í nágrenni okkar verður í Evrópu, eins og fyrri dag- inn, þar getur hvenær sem er soðið upp úr. Efnahagsstöðnunin, at- vinnuleysið og yfirvofandi hmn velferðarkerfanna í ESB getur vald- ið þjóðfélagsólgu og vopnaskaki. Fækkun innfæddra, innflytjenda- straumurinn og vaxandi öfgahreyf- ingar ræðst lítið við og getur það endað í sama fari og ætið áður í Evrópu. ísland þarf með öllu móti að halda sinni fjarlægð frá þeim grautarpotti sem Evrópa er; Nýja hættan Hættan sem steðjar að íslandi nú er mest frá hryðjuverkamönnum og glæpaflokkum. í Evrópusam- bandinu býr nú þegar milljónatug- ur eða meir innfluttra áhangenda Múhameðstrúar sem er ein helsta gróðrarstía hryðjuverka. Þessum einstaklingum stendur opið hlið til íslands með Schengensamningn- um. Stöðugur straumur fólks frá öfga- trúarsvæðum liggur inn í Evrópu- sambandið, þar em hryðjuverk undirbúin (t.d. á New York-turn- ana). Hervarnir em því ekki nóg fyrir ísland. Það þarf ekki síður hryðjuverkavarnir Schengensamningnum þarf að segja upp og stöðva óheftan að- gang 1/2 milljarðs manna að land- inu. Þó að enn þurfl að efla og sfyrkja Ríkislögregluna, Útlend- ingaeftirlitið og Tollgæsluna er það ekki nóg. Það þarf líka að vopn- væða með nýjustu tækjum; allfjöl- mennum, vel búnum og sérþjálf- uðum andhryðjuverkasveitum í Keflavík, Reykjavík og á Seyðisfirði. Reyndar er aðalhryðjuverka- vörnin gott eftirlit og upplýsinga- öflun sem við verðum í samvinnu með öðmm þjóðum jarðar. Á öllu geta menn átt von; skemmdarverk- um, sjálfsmorðsárásum, eiturefna- árásum, sýklavopnaárásum og jafnvel kjarnorkuárás ef litið er lengra fram í tfmann. Of mikiil kostnaður? Ein af örfáum ríkustu þjóðum heims þarf, þótt ekki sé nema bandamanna sinna og orðstýrs vegna sem sjálfstæð þjóð, að leggja eitthvað af mörkum til þess að verja sig. Þó að líklegt sé að Bandaríkja- menn geti hjálpað okkur út á að- stöðuna fyrir bandaríska herinn og varnir gegn hryðjuverkum verða ís- lendingar að fara að leggja fé til varnanna. Ein besta leiðin til þess er að draga saman í óþörfum ríkisrekstri. Þar er enn af nógu að taka en það mun þó varla duga. Nýtt skattfé þarf smám saman að koma til. En ef rétt er að staðið koma varnar- og öryggisútgjöld að verulegu leyti aft- ur í umferð í hagkerfið með því að íslendingar og íslensk fyrirtæki starfa að og veita vörnunum þjón- ustu. Nágrannaþjóðir eyða 2-4% af landsframleiðslu sinni til varnar- mála, kannski gætum við sloppið með 1-2% og megnið kæmi inn í hagkerfið aftur. Eina trygging sjálfstæðisins Það er enginn sem vill eða getur skrifað upp á sjálfstæði íslands nema Bandaríkin. Þegar ESB setur alvarlegar þvinganir á ísland, eins og það reyndar gerir nú þegar með innflutningsbönnum o.fl., til þess að árétta tilskipanavaldið sem það fékk á silfurfati með EES-samn- ingnum, verður ekkert valfrelsi fyr- ir íslendinga, nema að samstarfið við Bandaríkin standi á föstum grunni. Hagsmunir okkar hafa sögulega alltaf rekist á hagsmuni Evrópu og munu gera það áfram. í uppsiglingu eru Iandgrunns- mál, Hatton-Rockhall, auðlindir á hafsbotni, fiskimið sem og alls kyns skaðlegar samþykktir runnar und- an ESB, sérstaklega ýmsar um- hverfisverndarkreddur og hömlur á atvinnustarfsemi. Það verður þröngt fyrir dyrum hjá íslending- um að standa vörð um hagsmuni sína, nema hafa bakhjarl í Banda- ríkjunum. Áframhaldandi varnarsamning- ur við þau er eina trygging okkar fyrir að missa ekki sjálfstæðið aftur til Evrópu, sem þessa stundina heitir Evrópusambandið og leggur mikið upp úr því að draga öll jaðar- lönd Evrópu, ekki sfst ísland, inn undir sitt vald. Varnarsamninginn við Bandaríkin megum við undir engum kringumstæðum missa. STRAX 1942, NÁNAR TIL TEKIÐ 14. OKTÓBER: Löngu áður en aðrir þorðu tilkynntu Bandaríkjamenn formlega að þeir myndu styðja sjálfstætt Island. Þeir hafa síðan verið ábyrgðarmenn sjálfstseðis okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.