Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 30
30 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ2003
> LJÐ 1.-6. UMFERÐAR: Þeir Geir Þorsteinsson, fjármálastjóri KSi (efst til hægri,) og Kristján Guðmundsson, markaðsstjóri Landsbankans, ásamt leikmönnunum 11. f efri röð frá vinstri eru
Ólafur Ingi Skúlason, Fylki, Þórður Þórðarson, [A, Guðjón H. Sveinsson, (A, Eysteinn Lárusson, Þrótti, Helgi Valur Daníelsson, Fylki, og Tommy Nielsen, FH. Neðri röð frá vinstri: Allan
Borgvardt, FH, Jón Þ. Stefánsson, FH, Kristján Örn Sigurðsson, KR, Veigar Páll Gunnarsson, KR, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og settur þjálfari liðsins, ÓJafur Jóhannesson, FH.
DV-myndir E.ÓI.
Gunnar Heiðar og
Ásthildur best
Samkvæmt vali fjölmiðlamanna - 3 FH-ingar í liði karlanna
ÓlafurJóhannsson, FH:
Frábærviðurkenn-
ing fyrir liðið
„Þetta er fyrst og fremst frábær
viðurkenning fyrir liðið,“ sagði
Ólafur Jóhannsson, besti þjálfari
1.-6. umferðar, að mati fjölmiðla-
manna. „Það var líka ffábært að
eiga 3 leikmenn í úrvalsliðinu."
Að 7 umferðum loknum er FH í
3. sætinu með 11 stig. „Okkur hef-
ur gengið ágætlega, ég er að
mestu leyti sáttur við gengið í
fyrstu 6 umferðunuin. Við erum
núna tveimur stigum frá toppn-
um og tveimur stigum frá falisæti
sem segir nú ýmislegt um þessa
deild," sagði Ólafur en taldi jafn-
framt að jafnræðinu í deildinni
myndi fljótt ljúka.
„Ég held að sum lið eigi mikið
inni. Þau eru nokkur sem hafa
komið á óvart hingað til en nú fer
að dreifast úr þeim. Ég vona bara
að við verðum í efri hlutanum,“
sagði Ólafur. elrikurst@dvJs
LIÐ KARLANNA
Marlc
Þórður Þórðarson, fA
Vöm:
Eysteinn Lárusson, Þrótti
Tommy Nielson, FH
Kristján Örn Sigurðsson, KR
Helgi Valur Daníelsson, Fylki
Miðja:
Veigar Páll Gunnarsson, KR
Jón Þ. Stefánsson, FH
Ólafur Ingi Skúlason, Fylkl
Guðjón Sveinsson, fA
Sókn:
Allan Borgvardt, FH
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV
Þjáffari:
Ólafur Jóhannesson, FH
LIÐ KVENNANNA
Marlc
Þóra B. Helgadóttir, KR
Vöm:
Málfríður Erna Sigurðardóttir, Val
Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, KR
(ris Andrésdóttir, Val
Embla Grétarsdóttir, KR
Miðja:
Karen Burke, (BV
Ásthildur Helgadóttir, KR
Ólfna G. Viðarsdóttir, Breiðabliki
Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki
Sókn:
Elín Anna Steinarsdóttir, Breiðabliki
Hrefna Jóhannesdóttir, KR
Þjálfari:
Vanda Sigurgelrsdóttir, KR
Fjölmiðlar sem fjalla um Lands-
bankadeildir karla og kvenna
hafa valið úrvalslið karla fyrir
1.-6. umferð og úrvalsiið
kvenna fyrir fyrri hluta mótsins.
Best voru valin þau Gunnar
* Heiðar Þorvaldsson úr ÍBV og
Ásthildur Helgadóttir, KR.
Það kom ekki mjög á óvart að
Ásthildur væri valin leikmaður fyrri
hluta mótsins enda mál manna að
hún hefði borið af í liði sem trónir á
toppnum taplaust. Liðið hefur að-
eins gert eitt jafntefli, gegn Val í 2.
umferð, og hefur KR nú 3 stiga for-
ystu, einmitt á Valsstúlkur, sem eru
með 16 stig. ÍBV og Breiðablik eru
skammt undan með einu stigi
minna.
Þrátt fyrir forystuna í deildinni er
þó greinilegt að hún er fljót að
hverfa því fyrrnefnd ljögur lið eru
frekar jöfn að getu og sást það best
á sigri ÍBV á KR f fjórðungsúrslitum
Visa-bikarkeppninnar síðastliðinn
föstudag.
„Við klúðruðum kjörnu
tækifæri að komst upp í
2. sætið í deildinni."
„Þetta er engan veginn búið,“
sagði Ásthildur. „Enda mótið að-
eins hálfnað. Það voru auðvitað
vonbrigði að detta út í bikarnum og
leiðinlegt að þurfa mæta IBV svo
snemma í keppninni, enda synd að
þurfa að sjá eftir öðru liðinu strax í
8-liða úrslitum.
Nú eigum við eftir að spila við öll
liðin aftur í deildinni og verður
spennandi að sjá hvernig fer. Ég
i
Þorvaldsdalsskokk 2003
Þorvaldsdalsskokkið verður haldið í tíunda skiptið —— ~
laugardaginn 5. júlí og hefst klukkan 10.00 við Fornhaga
í Hörgárdal. Hlaupið endar við Árskóg á Árskógsströnd
og geta þátttakendur geymt bíla sína þar, því farið verður
með rútu þaðan kl. 9:00.
Þáttökugjald er kl. 1.000,- á hvern þátttakanda.
Aðilar sem sanda að hbupinu eru: UngmennaféUgið Revnlr, Feröafélagiö Hórgur,
Bjórgurursveit Ankófsstrandar og Ferðaþjónustan Ytri-Vi'k / Kiffsskinní
Upplýsingar á www.hlaup.is og í sfma 462-6824 (Bjami)
held að þessum fjórum neðri liðum
í deildinni eigi eftir að reytast ein-
hver stig og að deildin eigi eftir að
jafnast meira út.“
Ásthildur segist vera mjög sátt við
persónulegu frammistöðu sína í
deildinni það sem af er. „Ég vona að
það gangi vel áfram. Ég vil alla vega
halda áfram að bæta mig.“
Bjóst ekki við þessu
„Já, ég verð að segja að þetta hafi
komið mér á óvart," sagði Gunnar
Heiðar Þorvaldsson, Eyjamaðurinn
sem valinn var besti leikmaður 1.-6.
umferðarinnar í Landsbankadeild
karla. Hann er markahæsti maður
deildarinnar með 7 mörk skoruð.
„Liðinu hefur gengið misjafnlega,
við klúðruðum kjörnu tækifæri að
komast upp f 2. sætið í deildinni
með tapinu gegn Þrótti, sem má
skrifa á algert andleysi í liðinu,“
sagði Gunnar.
„En fyrst okkur tókst það ekki er
vonandi að okkur takist að ná
þessari alræmdu Eyjabaráttu upp
eftir síðustu tvo tapleiki, eins og við
gerðum eftir slaka byrjun í vor.
Mótið sjálft er mjög skemmtilegt,
alveg galopið, og getur því allt gerst
enn.“
Hvort stefnan hjá Gunnari er að
bæta markametið, 19 mörk, vill
hann sem minnst segja um. „Ég tek
bara einn leik fyrir í einu,“ segir
hann og brosir. eirikurst@dv.is
BESTAR HJÁ STELPUNUM: Þeir Kristján og Geir eru hér í góðum félagsskap. Ásamt þeim má finna besta þjálfarann, Vöndu
Sigurgeirsdóttur, KR, og þá leikmenn sem valdirvoru í úrvalslið 1.-7. umferðar Landsbankadeildar kvenna. f efri röð frá vinstri eru þær
Margrét Ólafsdóttir, Ólina G. Viðarsdóttir, Elín Anna Steinarsdóttir, allar f Breiðabliki, og Ásthildur Helgadóttir, KR. f neðri röðinni eru Þóra
B. Helgadóttir, Hrefna Jóhannesdóttir og Embla Grétarsdóttir, allar í KR. DV-mynd E.ÓI.
h