Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ2003 TILVERA 27 HOWTO LOSE A GUY IN 10 DAYS: Sýnd kl. 5.50,8 og 10.15. NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. Sýnd m. enskum texta. English subtitles. HásHóiabío Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6,8 og 10. B.i. 12 KRINGLAN ALFABAKKI Stórskemmtileg ævintýra- og gamanmynd í anda Princess Diaries frá Walt Disney. DARK BLUE: Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20. B.i. 16 ára. BRINGING DOWN THE HOUZE: Sýnd kl. 3.45,5.50,8 og 10.20. THE MATRIX RELOADED: KANGAROO JACK: Sýnd kl.4,6,8 og 10. iLúxusVIPkl. 5.30,8 og 10.30. SKÓGARLÍF: Sýnd m.lsl.tali kl.4. JOHNNY ENGLISH: Sýnd kl. 3.45. KANGAROO JACK Sýnd kl. 6. BRINGING DOWN THE HOUZE: Sýnd kl. 8og 10.10. KRINGLAN tS 588 0800 ÁLFABAKKI tS 587 8900 -4. FJÖLMIÐLAVAKTIN Sigurður Bogi Sævarsson skrifarum fjölmiðla Stemmningsfréttir og steindauðar síður Fylgdist með Elínu Hirst í Kast- ljósi á sunnudagskvöld þar sem meðal annars var fjallað um krabbameinslyf og -rannsóknir. Oft hefur Elínu tekist, rétt eins og í þessu tilviki, að íjalla skilmerkilega um læknavísindin. Taka fyrir mál sem hverja fjölskyldu snerta. Og gera hlutina þannig úr garði að þeir séu sæmilega auðskildir. Áfram, Elín! Yfir sumarið þegar allir eru á ferðalögum er gaman að fá fréttir af lífinu úti á landi. Gísli Sigurgeirsson var í sjónvarpinu með fallega frétt um afmæli þjóðgarðsins í Jökulsár- gljúfrum og Karl Eskil var farinn að leita að sjávarskrfmsli við Arnar- fjörð. Skemmtilegar stemmnings- fréttir - sem verða að fljóta með. Þingmenn eru misjafnlega dug- legir við að uppfæra heimasíður sínar. Þær síður sem daga uppi með eldgömlu efni eru verri en engar. Er steindauðar. Guðmundur Hall- varðsson skrifaði síðast á sína síðu 25. nóvember í fyrra og Rannveig Guðmundsdóttir um svipað leyti. Guðmundur Árni lagði síðast orð í belg á sinni síðu snemma í apríl sl. og Kolbrún Halldórsdóttir í lok febrúar. Frekar hallærlegt! Var að fletta Fréttablaðinu. Finnst skorta allan karakter í þetta blað; efnið er allt hræðilega niður- soðið. Engin tilþrif hvað varðar stíl, myndir, umbrot en þó fyrst og síð- ast hugun. Fyrir hvað stendur þetta blað; hver er hugmyndafræðin önn- ur en að blaðið er ókeypis og segir fréttir. STJÖRNUGJÖF DV ★ ★★★ Nói albínói ★★★'i DarkBlue ★★★ Respiro ★★★ Identity ★★★ X-Men 2 ★★★ They ★★* Agent Cody Banks ★★'Á Johnny English ★★★ Tricky Life ★★★ Phone Booth ★ ★★ Anger Management ★ ★ 2 Fast 2 Furious ★★ Kangaroo Jack ★★ Matrix Reloaded ★ ★ Bringing Down the Flouse ★★ How to Lose a Guy in 10 Days ★ 'Á Dumb and Dumberer * SfMAKLEFINN: Stu (Colin Farrell) lætur ekki símaklefann af hendi þótt hart sé að honum sótt. KVIKMYNDAGAGNRÝNI Hilmar Karlsson hkarl@dv.is Stu Shepard (Colin Farrell) er ómerkilegur almannatengslamaður sem aldrei leggur frá sér farsímann nema þegar hann er að hringja í við- höldin sín þá notar hann símaklefa svo að eiginkonan geti ekki séð sfm- tölin á skráðum reikningi. Hann get- ur því sjálfum sér um kennt þegar hann lendir í þeirri aðstöðu að ef hann sleppi símtólinu í símaklefan- um eða láti einhvem vita við hvern hann er að tala þá verði hann drep- inn. Phone Booth gerist á einum degi í lífi Stus. I upphafí gengur hann spíg- sporandi um Manhattan, dílar við sér meiri menn og niðurlægir þá sem standa honum neðar f fæðu- keðjunni. Þetta er hans líf og honum lfkar vel við það. Við fáum fljótt vit- neskju um að hann er sjálfsánægð- ur, ófyrirleitinn og haldinn mannfyr- irlitningu. Þegar Stu er búinn að taka af sér giftingarhringinn, tilbúinn að hringja í viðhaidið í símaklefanum, hringir síminn. Eins og sá sem hringir vissi stenst Stu ekki freisting- una og tekur upp símtólið. Eftir það verður ekki aftur snúið. Hinum meg- in á línunni er leyniskytta sem með þýðri en ákveðinni röddu segir: „Ég vil alla þína athygli." Þegar Stu ætlar að leggja á, telur viðmælanda sinn bilaðan, kemur setningin sem fær bióðið til að frjósa í æðum Stus: „Ef þú leggur á mun ég drepa þig“. Þeg- ar Stu hikandi telur slíkt óhugsandi kemur sönnunin fyrir því að leyniskyttan meinar hvert einasta orð sem hann segir: Hver ástæðan er fyrir veru leyniskyttunnar í einhverju há- hýsanna, sem umkringja símaklef- ann, er aldrei beint á hreinu, nema hann telji sig vera að þjóna samfé- laginu með því berstrípa líferni Stus og benda á að vondir eru vondum verstir. Hvað um það. Stu þarf að játa fyrir almenningi hversu ómerki- legur hann sé ef hann á að halda lífi. Hver ástæðan er fyrir veru leyniskyttunnar í einhverju háhýsanna sém umkringja síma- klefann er aldrei beint á hreinu. Phone Booth er ein af fáum kvik- myndum þar sem tekst að halda uppi jafnri og góðri spennu þrátt fyr- ir að sagan sé fyrirsjáanleg. Joel Schumacher er með í höndum gott handrit eftir Larry Cohen sem hann stílfærir af snilld, svo ekld sé meira sagt. Það er ekkert auðvelt að gera spennumynd þar sem persónan sem á að halda myndinni á floti er allan tímann í símaklefa. Colin Farrell hjálpar mikið með því að leika af mildum krafti og tilfmningu Stu Shepard, svo vel að maður er far- inn að finna til með honum þótt hann eigi það ekld skilið. Að vísu á Stu ekki skilið að verða drepinn en það er mátulegt á hann að þurfa að opinbera eðli sitt fyrir öUum. Phone Booth minnir um margt á það hvernig meistari Alfred Hitchcock tók á hlutunum. Hann hafði yndi af því að nálgast spenn- una í takmarkaðri sviðsetningu. Má þar nefna Rear Window og Psycho. Hitchcock hefði sjálfsagt óskað Joel Schumacher til hamingju með vel unnið dagsverk hefði hann haft tækifæri til að sjá Phone Booth. hkart@dv.is Leikstjóri: Joel Schumacher. Handrit Larry Cohen. Kvikmyndataka: Matthew Libatique. Tónlist Harry Gredson-Williams. ASalleikaran Colin Farrell, Forest Whitaker, Katie Homes, Rada Mitchell og KieferSutherland. Hvað erísjónvarpinu íkvöld? Sekureða saklaus Sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 22.20 I fylgsnum hugans, fyrsta hluta í breskum spennumyndaflokki í þremur þáttum. Aðalsöguhetjan, sálfræðingurinn Grace Hazlett, er miður sfn eftir að hún komst að því að maðurinn hennar hélt fram hjá henni og flytur heim til mömmu sinnar með ungan son sinn. Lög- reglan fær hana til að kveða upp úr um sekt eða sakleysi manns sem er talinn hafa myrt eiginkonu sína en segist ekkert muna eftir því. Við rannsóknina kemur ýmislegt úr kafinu sem minnir hana á hennar eigið hjónaband. Aðalhlutverk leika Niamh Cusack, Rowena Cooper og Andrew Lincoln. Fyrr um kvöldið er í sjónvarpinu Út og suður. I þættinum heimsækir Gísli Einarsson oddvita Öxarfjarð- arhrepps, Rúnar Þórarinsson, sölu- stjóra Silfurstjörnunnar á Kópa- skeri. Rúnar hefur þurft að styðjast við hækjur allt sitt líf en er samt sem áður meira sjálfbjarga en margir sem óhaltir ganga. Hann þykir öflugur og skeleggur talsmað- ur síns sveitarfélags og harður í horn að taka. Þá er farið á óperu á Eiðum þar sem sjálfur Don Giovanni ræður ríkjum þessa dag- ana og rætt við Ástu B. Scram en hún og maður hennar, Keith Reid, hafa unnið mörg þrekvirkin í menningarlífmu á Austurlandi. Lífíð .eftir vinnu Sýning Sigurrósar á Egilsstöðum Myndlistarkonan Sigurrós opnar sýn- ingu í dag í Café Nielsen á Egilsstöð- um. Myndimar sem hún sýnir að þessu sinni skírskota til náttúmnnar og fólksins sem býr á landsbyggðinni. Sigurrós tileinkar m.a. sýningu sína þeirri uppbyggingu sem er að hefjast á Austfjörðum eins og fram kemur m.a. í heiti myndanna „Staður tækifæranna", „Stöndum saman" og ekki síst „Horft til framtíð- ar“. Sigurrós er fædd og uppalin á Ólafs- firði og býr nú í Kópavogi. Listræn Viðeyjarganga í kvöld mun Kristinn E. Hrafnsson listamaður stýra gönguferð urn lista- verk bandaríska myndhöggvarans Richard Serra. Verkið kallast Áfangar og samanstendur það af níu stuðla- bergs-súlnapömm sem hugsuð em sem rammar um ákveðna hluta út- * sýnisins. Serra er talinn áhrifamesti myndhöggvari heims eftir stríð. Einnig verður stiklað á stóm í sögu Viðeyjar. Ferðin hefst með siglingu ffá Sundahöfn kl 19.30 og endar með kafBsölu íViðeyjarstofu. Tönleikar drengjakórs frá Minnesota Tónleikar bandarísks drengjakórs (Land of Lakes Choirboys Minnesota’s Singing Boys) frá Minnesota í Bandaríkjunum verða haldnir í Grafarvogskirkju í kvöld kl. 20. Drengjakórinn kemur við á Islandi eftir glæsilegt kórferðalag um Evrópu. Kórinn hefur sungið í öllum ríkjum Bandaríkjanna og í flestöllum löndum Evrópu, Ástralíu og Kanada. Á efn- iskránni er tónlist allt frá barokktím- anum til dagsins ( dag. Allir em vel- komnir í Grafarvogskirkju á þessa tón- leika sem em ókeypis. Þjóðlagahátíð Siglufjörður hefur undanfarin sum- ur fóstrað þjóðlagahátíð þar sem tón- listarmenn, innlendir og erlendir, koma ffam. Að þessu sinni verður há- tíðin haldin dagana 2.-6. júlí. Lögð verður sérstök rækt við hinn foma söngdans Islendinga, vikivakann. Hljómsveitin Draupner ffá Svíþjóð •< flytur vikivaka ásamt Önnu Pálínu Árnadóttur á setningartónleikum há- tíðarinnar og Egill Ólafsson flytur söngdansa Jóns Múla ásamt djasstríó- inu Flís og Renata Iván frá Ungverja- landi flytur píanókonsert Jómnnar Viðar sem dregur að hluta dám af gömlum vikivökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.