Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1.JÚLÍ 2003
Islendingar grunaðir um skattsvik í Svíþjóð
SVIK: Efnahagsbrotadeild
sænsku lögreglunnar hefur ís-
lenskt fyrirtæki og nokkra (s-
lendinga grunaða um aðild að
stórfelldu skattsvikamáli í Sví-
þjóð. Einn (slendingur sat í
gæsluvarðhaldi í Svíþjóð
vegna málsins fyrr á árinu.
Málið teygir anga sína víða og
mun vera mjög flókið í sniðum
en að sögn sænskra fjölmiðla
hafa þrjú þarlend fyrirtæki
þegar verið úrskurðuð gjald-
þrota vegna málsins.
Svikin fóru þannig fram að
flutningabílstjórar voru rang-
lega skráðir starfsmenn er-
lendra fyrirtækja í þeim til-
gangi að komast hjá því að
greiða skatta og önnur gjöld í
Svíþjóð. Þá voru gervifyrirtæki
stofnuð og falskar kvittanir
vegna kostnaðar gefnar út.
Starfsmenn frá efnahagsbrota-
deild sænsku lögreglunnar
munu að öllum líkindum koma
til landsins síðar á árinu til þess
að yfirheyra nokkra aðila sem
taldir eru tengjast málinu.
Frjálslyndir eyddu 13 milljónum í kosningar
Guðjón A. Kristjánsson.
STJÓRNMÁL Kosningabarátta
Frjálslynda flokksins fyrir síðustu
alþingiskosningar kostaði alls
um 13 milljónir, að öllu með-
töldu. Það er innan þeirra marka
sem flokkurinn setti sér fyrir
kosningarnaren um 2/3 hlutar
kostnaðarins eru vegna auglýs-
inga og prentunarkostnaðar. (
fréttatilkynningu frá flokknum
segir að gætt hafi verið aðhalds
í rekstri á liðnu kjörtímabili
þannig að unnt var að leggja til
hliðar ákveðnar upphæðir sem
nægðu, ásamt fjárframlögum
frá velunnurum og flokksfélög-
um, til þess að greiða þennan
kostnað. Flokkurinn hefur verið
málsvari þess að opna bókhald
stjórnmálaflokka hér á landi og
er hægt að skoða bókhald á vef-
slóðinni www.frjalslyndir.is
'
Breti og Þjóðverji dæmdir í héraðsdómi í gær:
7 mánaða fangelsi fyrir
fíkniefnainnflutning
Tveir menn, Þjóðverji og Breti,
voru í gær dæmdir í sjö mánaða
óskilorðsbundið fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur fyrir fíkni-
efnabrot.
Mennirnir voru ákærðir fyrir að
hafa staðið saman að innflutningi á
tæplega þremur kflóum af hassi til
íslands frá Spáni í ágóðaskyni.
Þjóðverjinn hafði keypt hassið á
Spáni og pakkaði hann því í niður-
suðudósir til að villa um fyrir lög-
reglu og tollgæslu. Hann skipulagði
einnig för Bretans til fslands en
hann keypti m.a. flugfarseðla og
gistingu fýrir þá hér á landi og
hugðist hann sjá um sölu efnisins
hérlendis.
Þjóðverjinn hafði keypt
hassið á Spáni og pakk-
aði hann því í niður-
suðudósir til að villa
um fyrir lögreglu og
tollgæslu.
Bretinn tók við efninu af Þjóð-
verjanum á Spáni og flutti það til
íslands 1. júní síðastliðinn gegn lof-
orði um peningaþóknun. Tollverð-
ir fundu hins vegar efnið í farangri
hans við komu hans á Keflavíkur-
flugvöll. Þá var Þjóðverjinn einnig
ákærður fyrir að hafa ílutt hingað til
lands fyrr á þessu ári allt að 200
grömm af hassi í tveimur ferðum
sínum frá útlöndum og selt fólki
efnið á veitingahúsum í Reykjavík.
Þjóðverjinn sagði að
Bretinn væri aðeins
burðardýr í málinu og
hefði átt að fá 2-3 þús-
und evrur í sinn hlut.
Beindist að mikilvægum
hagsmunum
Mennirnir tveir játuðu brot sín
fyrir dómi í gær. Fulltrúi ákæru-
valdsins taldi að um styrkan brota-
vilja mannanna hefði verið að ræða
þar sem þeir höfðu sett efnið í nið-
ursuðudósir og notað til þess sér-
stakar dósavélar. Hann sagði að
þrátt fyrir að upp um mennina
hefði komist áður en efnið fór í um-
ferð hefði brotið beinst að mikil-
vægum þjóðfélagslegum hagsmun-
um og taldi hann að líta ætti til þess
við ákvörðun refsingar. Verjandi
Þjóðverjans kvað hann hafa sýnt
ágæta framkomu í málinu og upp-
lýst það strax í byrjun. Hann hefði
flutt inn hass sem væri veikasta
efnið á markaðinum og ætti hann
að njóta þess við ákvörðun refsing-
ar. Verjandi Bretans tók fram að
hann hefði aðeins verið burðardýr í
málinu og samkvæmt samkomulagi
hefði hann aðeins átt að fá 2-3 þús-
und evrur í sinn hlut fyrir innflutn-
inginn. Þjóðverjinn hefði verið höf-
uðpaurinn sem skipulagði allan
innflutninginn. Verjandinn taldi að
líta ætú til þess að Bretinn hefði ját-
að brotið þótt hann hefði ekki gert
það strax í upphafi af ótta við hefnd-
araðgerðir. Dómarinn taldi ekki efni
til að skilorðsbinda refsinguna en til
frádráttar fangelsisvistinni kemur
gæsluvarðhald sem þeir hafa setið í
frá 1. júnf. Auk þess var mönnunum
gert að greiða skipuðum verjendum
sfnum 430 þúsund krónur í
málsvarnarlaun. -EKÁ
Lögreglumenn ákærðir
fyrir ólömætar handtökur
Tveir lögreglumenn í Reykjavík
hafa verið ákærðir fyrir ólög-
mætar handtökur og ólögmæta
skýrslugerð í tengslum við þær
en málið var þingfest fyrir hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
Annar lögreglumannanna er
ákærður fyrir að hafa handtekið
mann á veitingastaðnum Nonna-
bitum í miðbænum 8. mars síðast-
liðinn og flutt hann á lögreglustöð-
ina án þess að hafa haft til þess
nægilegar ástæður eða tilefni.
Samkvæmt almennum
hegningarlögum getur
ólögleg handtaka varð-
að sektum eða fangelsi
allt að þremur árum.
Þá eru báðir lögreglumennirnir
ákærðir fyrir að hafa handtekið
annan mann fyrir framan veitinga-
stað í Tryggvagötu daginn eftir og
fært á lögreglustöðina án nægilegra
ástæðna eða tilefnis og annar
þeirra ákærður fyrir brot í opinberu
starfi með því að hafa beitt úða-
vopni við aðra handtökuna án þess
að hafa haft til þess nægilegar
ástæður eða tilefni. f kjölfar hand-
takanna gerðu þeir skýrslur um at-
vikin en samkvæmt ákæru er þeim
gefið að sök að hafa skýrt þar rang-
lega frá atvikum. Sagði m.a. í þeim
að mikil múgæsing hefði orðið á
vettvangi og ástandið verið mjög
eldfimt og því hefði nauðsynlegt að
beita úðavopni til þess að lögreglan
kæmist af vettvangi án þess að til
frekari átaka kæmi.
Neita sök
Sigríður ]. Friðjónsdóttir sak-
sóknari krafðist þess að mennirnir
tveir yrðu dæmdir til refsingar en
samkvæmt almennum hegningar-
lögum getur ólögleg handtaka
varðað sektum eða fangelsi allt að
þremur árum. Auk þessa krefst
annar hinna handteknu 600 þús-
und króna miskabóta vegna hand-
tökunnar. Lögreglumennirnir
mættu fyrir dóm í gær og neituðu
sök. Þeir höfnuðu auk þess miska-
bótakröfu mannsins.
Lögreglumönnunum
er gefið að sök að hafa
greint ranglega frá at-
vikum í skýrslum
sínum.
Þá krafðist lögmaður annars
þeirra að saksóknari aflaði upplýs-
inga um allar kærur sem lagðar
hefðu verið fram á hendur lög-
reglumönnum á síðustu tveimur
árum þar sem fram kæmu ástæður
kæranna og afdrif þeirra. Lögreglu-
mönnunum tveimur hefur verið
veitt tímabundin lausn frá störfum
og vildu verjendur þeirra að málinu
yrði flýtt þar sem fjárhagslegir
hagsmunir þeirra væru í húft.
Stefnt er að því að aðalmeðferð í
málinu verði snemma í haust. -eká
Vinningur í DV-bingói
Björn H. Sveinsson tekur hér við
vinningi í bingóleik DV fyrir hönd
konu sinnar, Kolbrúnar Jónasdótt-
ur. Átján lesendur DV fengu bingó
á I-röðina. Dregið var úr innsend-
um nöfnum og kom nafn Kolbrún-
ar upp. Verðlaunin sem Kolbrún
hlýtur er flugferð fyrir tvo með
Iceland Express. Það var blaða-
maður DV á Akureyri, Ægir Dags-
son, sem afhenti Birni vinninginn.