Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2003, Side 10
70 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR l.JÚLÍ 2003
Fjölskyldufólk fær eitt að tjalda
UMGENGNI: „Eftir slæma reynslu
í fyrra ætlum við að loka tjald-
svæðum í Þjórsárdal fyrir öðrum
en fjölskyldufólki," segir Hreinn
Óskarsson, skógarvörður á Suð-
urlandi. Skógræktarmenn hafa
af því spurnir að unglinga á
meðal gangi SMS-skilaboð þess
efnis að fjöldinn ætli að stefna í
Þjórsárdal. Við þessu hjarðeðli á
að bregðast og verður gæsla við
hliðið inn á tjaldsvæðið.
„Vegna óláta og leiðinlegrar um-
gengni fyrstu helgina í júlí í fyrra
verðum við að gera þetta," segir
Hreinn. Tjaldsvæðið í Þjórsárdal
nýtur að sögn hans vinsælda.
Það er skógi vaxið, með rjóðrum
inn á milli og má því víða finna
sér góð tjaldsvæði. Skemmtileg-
ar gönguleiðir eru einnig um
skóga Þjórsárdals.
Gulbrún tré á Héraði
TRJÁSKAÐAR: Skógartré á Hér-
aði eru gulbrún á lit þessa dag-
ana. Gætir þessa mest á svæð-
inu frá Egilsstöðum og suður í
Hallormsstaðarskóg. „Það sést
helst á lerkinu enda er það sú
planta sem hér er langsamlega
mest af. Ástæða þessa eru þau
hlýindi sem voru í vetur. Þá
misstu trén frostþol og lifnuðu
við en síðan kom bakslag í
kuldakastinu í lok apríl," sagði
Þór Þorfinnsson, skógarvörður
á Hallormsstað, við DV.
Þór segist ekki telja að trén
muni bera af þessu varanlegan
skaða. Hafi menn skoðað brum
og árssprota til að kanna það.
Frekari úttekt á skógargróðri
verði síðan gerð á næstunni
með tilliti til þessa.
Umhverfisráðherra á ferð um landið vegna nýrrar Náttúruverndaráætlunar:
Ráðherrann vill
þjóðgarð á hafsbotninum
ÍASBYRGI: Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum. Haldið var upp á
30 ára afmæli þjóðgarðsins þar um helgina. Landið skartaði sínu fegursta í sumarblíðunni. DV-mynd Jóhannes Sigurjónsson
Alls 77 ný verndarsvæði eru
sett á blað í nýrri náttúruvernd-
aráætlun sem umhverfisráð-
herra kynnti fyrir skemmstu.
Áætlunin er unnin af sérfræðing-
um á ýmsum sviðum og nýlega hef-
ur Umhverfisstofnun sent hana
fjölmörgum aðilum til umsagnar.
„I raun er nýmæli að áætlun sem
þessi - sem nær til fimm ára - sé
gerð. Sett er upp net verndarsvæða
um landið og þau valin á grundvelli
röksemda, svo sem alþjóðlegra við-
miðana í náttúruvernd. Nálgunin
er heildstæð," sagði Siv Friðleifs-
dóttir umhverflsráðherra í viðtali
við DV.
Byggt á rannsóknum
Ýmissa grasa kennir í hinni nýju
áætlun. Viðmið um val verndar-
svæða eru til dæmis jarðfræðilegar
minjar, plötur, vistkerfi, dýra- og
fuglalíf og fleira.
Frekari og meiri upplýs-
ingar vantarþó og eftir
því sem við fáum fleiri
og ítarlegri rannsókn-
arniðurstöður getum
við betur fyllt inn í
myndina.
„Hér er byggt á grundvelli rann-
sókna og út frá þeim eru verndar-
svæðin valin. Frekari og meiri upp-
lýsingar vantar þó og eftir því sem
við fáum fleiri og ítarlegri rann-
sóknarniðurstöður getum við betur
fyllt inn í myndina. Þá býst ég
meira að segja frekar við að vernd-
arsvæðunum fjölgi," segir ráðherr-
ann.
Tveir nýir þjóðgarðar
Þjóðgarðar á fslandi í dag eru
fjórir; Þingvellir, Skaftafell, Jök-
ulsárgljúfur og utanvert Snæfells-
nes. Mikill vilji er til þess, að sögn
Sivjar, að fjölga görðunum. Nú þeg-
ar liggur fyrir pólitísk ákvörðun um
stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs,
sem yrði hinn stærsti sinnar teg-
undar í Evrópu.
En það sem er nýmæli nú er
stefnumörkun um stofnun tveggja
nýrra þjóðgarða. Annars vegar
garðs sem næði yfir Rauðasand og
Látrabjarg; svæði sem þykir ein-
stakt með tilliti til náttúrufars og
sögulegra minja. Hins vegar er til-
laga um stofnun þjóðgarðs við
Heklu. Bæði þykja eldfjallið og
hraunin í nágrenni þess einstök
auk þess sem birkiskógar í ná-
grenni þess eru síðustu skógarleif-
arnar á stóru svæði.
Verndarsvæði í sjó
„Hvað varðar Látrabjarg og
Heklu hygg ég að ekki þurfi taka
langan tíma að koma þar upp þjóð-
görðum. Varðandi þjóðgarða er
gengið út frá því að landið sé í ríki-
seigu og þá þarf að ná samningum
við landeigendur. Þeir eru, að ég
hygg, ekki ýkja margir á þessum
tveimur svæðum, auk þess sem
sveitarfélögin eru jákvæð. Almennt
sjá menn mikla hagsmuni með
friðun einstakra svæða, svo sem
með tilliti til ferðaþjónustu," segir
umhverfisráðherra.
Þær flokkanir sem notar eru í
náttúruverndaráætlun eru búsvæði
náttúruvætti, fólkvangar, friðlönd
og þjóðgarðar. Og öll eru þau á
þurru landi.
„í náinni framtíð vil ég einnig sjá
verndarsvæði í hafi, eins konar
sjávarþjóðgarða," segir Siv. Þegar
hafa einstæðar hverastrýtur í botni
Eyjafjarðar, sem eru tugir metra á
hæð, verið friðaðar - og gildandi
eru sérstök lög um verndun Breið-
arfjarðar. Þá segir Siv nauðsynlegt
að friða kóralrif sem eru á jaðri
landgrunnsins. Þau eru þúsundir
ára að myndast en með veiðarfær-
um má eyðileggja þau í sviphend-
ingu.
Hinn gullni meðalvegur
Náttúra óháð manninum er ekki
til og verður ekki til, segir í hinni
nýju áætíun, enn fremur að nú á
tímum stjórnist náttúruvernd ekki
síst af hagnýtum efnislegum rökum
en ekki bara fagurfræði eins og var
til skamms tíma var gert. Siv var
spurð hvernig sér þætti takast að
samræma fagurfræði og efnisleg
rök.
„Það er hinn gullni meðalvegur
sem þarna þarf að feta á milli.
Stundum þurfa önnur rökin að
víkja fyrir hinum. Náttúruverndar-
áætlun er hugsuð til þess að finna
þessa vandrötuðu leið. Stundum
þurfa framkvæmdir að víkja fýrir
náttúrunni og aðrar framkvæmdir
eru það mikilvægar að öll verndun-
arrök yfirvinnast," segir Siv.
Á ferð um landið
Sem fyrr segir hefur Náttúru-
verndaráætíunin nú verið send til
umsagnar og eru þær fyrstu farnar
að berast. Þannig mun hún þróast í
meðförunum. Umhverfisþing, sem
haldið verður í haust, mun fjalla
um áætlunina og verður jafnframt
lögð fram á Alþingi og væntanlega
samþykkt þaðan sem þingsálykt-
unartillaga. Síðan er það Umhverf-
isstofnunar að ná lendingu um
hvert og eitt verndarsvæði, svo sem
hvað varðar frekari rannsóknir,
samninga við landeigendur og svo
fleira slíkt.
Stundum þurfa fram-
kvæmdir að víkja fyrir
náttúrunni og aðrar
framkvæmdir eru það
mikilvægar að öll
verndunarrök
yfirvinnast.
Þessa dagana er Siv Friðleifsdótt-
ir á ferð um Norður- og Austurland
þar sem hún skoðar ýmis þau
svæði sem eru Náttúruverndará-
ætluninni. Hún fer víðar um landið
í sumar. „Mér finnst mikilvægt að
glöggva mig á staðháttum og að-
stæðum til þess að geta fjallað um
þessi svæði. Mér fínnst ég í raun
ekki geta fjallað um þessi mál nema
hafa yfirsýnina og tek því sumarið
að miklu leyti í að skoða landið og
þau svæði sem gerð er tillaga um
verndun og friðun á samkvæmt
þessari áætlun." -sigbogitsidv.is
Nokkur verndarsvædi
Svæði Forsenda friðlýsingar Verndartillaga
Brennisteinsfjöll / Herdisarvík 1 Jarðmyndanir, landslag og saga Náttúruvætti
Grafarvogur í Reykjavík Fjölbreytt fuglalff Búsvæði
Húsafellsskógur í Borgarfirði Hávaxinn birkiskógur Búsvæði
Áftanes á Mýrum / Akrar / Löngufjörur Fuglalíf,selur,gróðurfar Friðland
Látrabjarg / Rauðisandur Björg, fuglalíf, söguminjar, rauður sandur Þjóðgarður
Snæfjallaströnd / Æðey / Drangajökull, Drangar / Furufjörður Landslag, útivistargildi, gróður og fuglallf (Stækkun friðlands á Hornströndum)
Drangey á Skagafirði Sjófuglabyggð og tengsl við fornsögurj Búsvæði
Héðinsfjörður Gróðurfar og útvist Friðland
Grímsey Mikilvæg sjófuglabyggð Búsvæði
Jökulsárgljúfur Fornir farvegir Jökulsár á Fjöllum og fleira Stækkun þjóðgarðs
Eyjabakkar Gróður og votlendi. Beitiland hreindýra og stærsti fellistaður heiðargæsa í heimi Friðland
Papey Sjófuglabyggð og menningarminjar Friðland
Breiðamerkursandur / Kviármýrarkambur Lón,jökulöldur,gróðurog fuglalíf Friðland
Grenlækur/Eldvatn Votlendi, sjóbirtingsstofn (Grenlæk Búsvæði
Þórsmörk Leifar náttúrulegra birkiskóga Friðland
Hvítárvatn / Hvítárnes /Karlsdráttur Votlendi, slðustu leifar kjarrs á Kili Friðland
Geysir í Haukadal ! Frægasta goshverasvæði í Evrópu Náttúruvætti
Sog Fuglategundir.votlendi Búsvæði
Stokkseyri /Eyrarbakki Fjörur og fulgallf, sjaldgæfar plöntur Friðland
DRANGEY í FLUGSÝN: Meðal tillagna í Náttúruverndaráaetlun er friðlýsing Drangeyjar á
Skagafirði sem búsvæðis. Röksemdir fyrir því eru meðal annars fuglalíf og tengsl eyjunnar
við Grettlu og fleiri fornar sagnir. DV-myndsbs